Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 34

Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 ✝ Ragna Jóhann-esdóttir fæddist í Reykjavík 24. des- ember 1945. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut 9. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Svava Magnúsdóttir, f. 11. júní 1921, d. 25. ágúst 1998, og Jó- hannes Þóroddsson, f. 10. febrúar 1917, d. 5. júní 2002. Stjúpfaðir hennar var Páll Haukur Kristjónsson, f. 25. sept- ember 1920, d. 22. október 1993. Systkini Rögnu eru: 1) Magnea Jóhannesdóttir, f. 8. maí 1940, eiginmaður Ingvi R. Einarsson og eiga þau fjögur börn. 2) Krist- ín Jóhannesdóttir, f. 21. sept- ember 1944, d. 17. ágúst 2012, eignaðist hún tvö börn þar af er eitt látið. 3) Hulda Jóhannes- dóttir, f. 14. janúar 1953, hún á Þórir Erlendsson, f. 13. ágúst 1971, maki Berglind Ólafsdóttir, börn þeirra eru a) Jóhanna Stein- unn, sambýlismaður hennar er Birnir Jarl Eyjólfsson og eiga þau einn son, Óðin Helga. b) Björn Bjarki, c) Ragnheiður Ýr, d) Rebekka Rán og e) Birgir Örn. Börn Rögnu og Gunnars Eld- ars eru: 4) Matthías Þór, f. 21. mars 1976, 5) Jóhannes Örn, f. 8. september 1977, maki Trine Lundhave, börn hans eru Cecilia og Jónas. 6) Karl Eldar, f. 30. apríl 1979, barn hans er Gunnar Valur. 7) Ágúst Fannar, f. 4. sept- ember 1981. 8) Kristensa Valdís, f. 27. september 1982, maki Svanur Heiðar Tryggvason, börn þeirra eru Ágúst Váli Eldar, Ragna Bentey Eldar, Þröstur Elímar Eldar, Eldbjörg Lára Eldar og Leó Dreki Eldar. Ragna var fædd á Sólvallagötu 68 þar sem hún bjó fyrstu árin og hóf skólagöngu sína í Melaskóla. Lengst af starfaði hún sem hús- móðir en fékkst við hin ýmsu störf svo sem fiskvinnslu og skúr- ingar. Síðast starfaði hún hjá Múlalundi. Útför Rögnu hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. þrjár dætur. Sammæðra eru systkini: 4) Sig- urður K. Pálsson, f. 1. febrúar 1959, eig- inkona Elsabet Baldursdóttir, eiga þau saman þrjú börn en Elsabet á tvö fyrir. 5) Jónína Pálsdóttir, f. 23. desember 1961, eig- inmaður Michael Degnan, Jónína á eina dóttur. 6) Magnús Geir Pálsson, f. 28. ágúst 1963, d. 19. maí 2014, eiginkona Áslaug Sif Gunnarsdóttir og eiga þau tvö börn. Ragna giftist 13. júní 1976 Gunnari Eldari Karlssyni, f.16. október 1947, d. 18. júlí 1999, og eignuðust þau fimm börn saman en fyrir átti Ragna þrjú börn. 1) Reynir Ástþórsson, f. 22. júlí 1965, 2) Jóhanna Gústafsdóttir, f. 14. apríl 1970, d. 2. júlí 1973, 3) Mamma, þú mikla dugnaðar- kona, það var erfitt að fá þetta símtal í vinnuna þegar þér hrak- aði svo mikið uppi á spítala. Þú hélst eins og við að þetta yrði bara smástund á spítala og svo heim aftur eins og í öll hin skiptin en nei, þarna var þinn tími kom- inn. Þú barðist eins og hetja við þín veikindi sem á endanum tóku þig frá okkur en ég veit að þú ert komin á betri stað. Ég veit að pabbi tók vel á móti þér enda hef- ur hann saknað þín í öll þessi ár eins og við söknum ykkar beggja. Elsku mamma og besta amma í öllum heiminum, Gunnar Valur saknar þín endalaust en hann heldur fast í allar góðu minning- arnar. Já þær voru margar fallegar stundirnar sem þið áttuð saman og elsku mamma mín takk fyrir að þola mig. Sama hvað gekk á hjá mér þá vissi ég að ég gat allt- af leitað til þín, þú varst best. Okkar fallegu stundir geymi ég í hjarta mínu, elska þig og sakna þín elsku besta mamma mín, sé þig síðar. Koss og knús til þín. Þinn sonur, Karl Eldar Gunnarsson. Elsku besta mamma mín. Símtölin okkar voru oft tíu sinnum á dag og alltaf var það það sama sem við sögðum hvor við aðra og hlógum svo að því. „Hæ, hvað er frétta?“ „Æ, ekki neitt, en hjá þér?“ svona byrjuðu símtölin okkar. Alltaf gátum við spjallað saman þó það hafi ekki verið nema tveggja mínútna sím- tal. En það þurfti líka fleiri en eitt símtal á dag til þess að heyra í þér, þess vegna urðu þau alltaf svona mörg. Þú vissir best og gast alltaf leiðbeint mér með allt saman og ég hlustaði vel á þig. Ég man þegar ég varð ólétt að mínu fyrsta barni hvað þú varst glöð. Þú komst með mér í allar mínar mæðraskoðanir og sýndir hversu spennt þú varst að bíða eftir barnabarninu þínu. Þú varst viðstödd fæðingu fyrsta barns míns og það var yndislegt að hafa þig þar. Ég hefði ekki getað þetta án þín, elsku mamma mín. Þegar ég fæddi barn númer tvö ári síð- ar, þá sagðir þú við mig þegar kyn barnsins kom í ljós, þetta er hún Ragna og auðvitað var hún skírð Ragna eftir þér. Þegar þú sast við eldhúsborðið og ég stóð við eldavélina að elda matinn, heyrðist allt í einu: „Ég er svo stolt að þér Stensa mín, svo stolt,“ og ég brosti mínu breiðasta brosi. Þessum orðum gleymi ég aldrei. Þegar þú komst með alla skartgripi þína til mín og sagðir, þetta vil ég að þú eigir og svo dætur þínar seinna meir. Þú elskaðir barnabörnin þín svo mikið og þau elskuðu þig, þú vildir allt fyrir þau gera, laumaðir þúsundkalli til þeirra af og til. Þau eignuðust sko bestu ömmu sem hægt var að hugsa sér. Þú vildir ávallt passa þau og fá að eyða tíma með þeim. Þú tal- aðir mörgum sinnum við þau í símann. Þau eiga ótal minningar af þér, elsku mamma, sem ég auðvitað held áfram að varðveita með þeim. Þetta er enn svo óraunveru- legt, þú sem varst svo hress dag- inn fyrir andlát þitt. Ég hafði heimsótt þig dag hvern upp á spítala og stundum tvisvar á dag, bara til þess að vera með þér og fá að sjá þig. Við vorum búnar að plana að fara í sumarbústað sam- an. Þú vildir fá að koma heim til okkar og fá að vera þar þegar þú áttir að fara af spítalanum, en það gerðist aldrei. Ég fékk að eiga síðustu stundirnar með þér uppi á spítala. Við töluðum saman í klukkutíma um hversu vænt okk- ur þætti hvorri um aðra og hversu heitt ég elskaði þig og þín síðustu orð til mín voru, ég líka. Ég gisti hjá þér uppi á spítala síð- ustu nótt þína og mun ég ávallt vera þakklát fyrir það. Elsku mamma, allar minning- ar okkar varðveiti ég vel. Guð gaf þér svo sannarlega vængi tvo og fljúgið þið pabbi nú saman. Þín dóttir, Kristensa Valdís. Ragna amma mín var sterk- asta kona í heimi og hún var besta amma sem hægt var að eiga. Þegar ég var pínulítil áður en ég byrjaði á leikskóla þá pass- aði amma mig oft þegar mamma og pabbi voru að vinna. Alltaf þegar ég var hjá pabba þá pass- aði amma mig þegar að hann var að vinna. Við tengdumst því mik- ið og það var gott að tala við hana og við urðum mjög góðir vinir. Allir sem höfðu ömmu mína í lífi sínu voru mjög heppnir og ég elskaði hana meira en út af lífinu. Mig langaði svo að hún kæmi í ferminguna mína en hún var of veik og ég heimsótti hana á spít- alann eftir veisluna og var hjá henni. Þremur dögum seinna, á afmælisdaginn minn, veiktist hún mjög mikið og daginn eftir af- mælið mitt dó hún. Mér líður svo illa í hjartanu en ég er líka svo þakklátur fyrir að átt hana fyrir ömmu mína og minningin um elsku bestu ömmu mína mun alltaf búa í hjarta mínu. Gunnar Valur Karlsson. Ragna Jóhannesdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma okkar. Við söknum þín svo mik- ið, vildum að þú værir ekki farin frá okkur, elsku besta amma okkar. Þú varst langbesta amma í öllum heiminum, sem gerðir allt fyrir okkur. Þú verður ávallt í hjarta okkar. Sofðu rótt, elsku amma okkar. Þín barnabörn, Ágúst Váli, Ragna Ben- tey, Þröstur Elímar, Eld- björg Lára, Leó Dreki. Elsku pabbi minn Ásbjörn Magnússon. Þetta er allt bú- ið að gerast svo hratt en samt fengum við smátíma og þú fékkst að klára sumt sem ég veit að þú vildir klára! Ég er svo þakklát fyrir að þú varst pabbi minn, þú kenndir mér svo margt, þú varst með aðra sýn á margt, þú varst Pollýanna mín þú gast alltaf Ásbjörn Magnússon ✝ Ásbjörn Magn-ússon fæddist 29. desember 1948. Hann lést 24. júní 2019. Útför Ásbjörns fór fram 29. júní 2019. séð það góða. Hjá Þér voru allir menn jafnir. Þú þoldir aldrei að talað væri illa um neinn og sagðir manni frekar að líta í eigin barm frekar en að vera að horfa á aðra. Þú vildir alltaf hjálpa ef þú gast, það eru svo margir góðir gullmolar sem þú hefur gefið mér, þú varst með svo fallega sál. Þú sagðir einu sinni við mig að það gæti bara verið betra að byrja á vitlausum fæti í lífinu og enda það á réttum fæti, þannig var spekin þín, elsku pabbi minn, þú sást alltaf það góða. Það er heilt ævintýri búið að vera að fá að fylgja þér, elsku pabbi minn, þú varst skjólið mitt og klettur, passaðir alltaf litlu stelpuna þína eins vel og þú gast, þú varst besti afi í heimi. Það er svo vont að þú sért farinn frá okkur. Ég veit að þú ert alltaf hjá okkur og fylgir okkur. Minning þín lifir, elsku pabbi og afi okkar. Þuríður Ásbjörnsdóttir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát eiginkonu minnar og systur, GRÉTU SIGRÍÐAR HARALDSDÓTTUR, Kórsölum 1. Einnig fær starfsfólk á deild 12G Landspítala sérstakar þakkir. Hrafnkell Þorvaldsson Sigrún J. Haraldsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR SALÓMON ÁSGEIRSSON, Stórholti 13, Ísafirði, lést af slysförum fimmtudaginn 27. júní. Útför hans verður gerð frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 13. júlí klukkan 14. Ásgeir Guðmundsson Margrét Jónsdóttir Arnar Guðmundsson Kristbjörg Tinna Sigurðard. Aron Guðmundsson og barnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, BJÖRGVINS ÓLAFS GUNNARSSONAR skipstjóra, Austurvegi 5, Grindavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Einnig þökkum við innilega öllum þeim sem aðstoðuðu hann í Víðihlíð. Rúnar Þór Björgvinsson Karen Mjöll Elísdóttir Hrafnhildur Björgvinsdóttir Gunnhildur Björgvinsdóttir Símon Alfreðsson Óli Björn Björgvinsson Guðrún Jóna Magnúsdóttir afabörn, langafabörn og langalangafabarn Ásrkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR S. GUNNLAUGSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 62, Reykjavík, lést mánudaginn 1. júlí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 12. júlí klukkan 15. Grétar Sigurgeirsson Gunnvör Sverrisdóttir Margrét Óskarsdóttir Steinar Þór Guðlaugsson Gylfi Óskarsson Guðrún Sigmundsdóttir og ömmubörn Elsku mamma, lieve schoonmoeder, amma og langamma, JÓRUNN JÓNSDÓTTIR, Jólý, skrifstofustjóri, Háaleitisbraut 137, Reykjavík, sem lést 1. júlí verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 11. júlí klukkan 15. Ingunn Elín Egilsdóttir Róbert Kaatee Jórunn Agla Jannie Brynja Birgir og Róbert Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTJÓNSSON skipstjóri, lést fimmtudaginn 4. júlí á dvalarheimilinu Jaðri í Snæfellsbæ. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín M. Sigurðardóttir Svanbjörn Stefánsson Sigurður V. Sigurðsson Kristín Björk Marísdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.