Morgunblaðið - 06.07.2019, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
40 ára Guðrún ólst
upp í Bíldudal til sjö ára
aldurs og hefur síðan
þá búið að mestu í
Garðabæ. Hún er sál-
fræðingur að mennt
frá HÍ. Hún er sérfræð-
ingur hjá Virk starfs-
endurhæfingarsjóði.
Börn: Bjartur Helgason, f. 1998, Kristín
Birta Helgadóttir, f. 2002, Baldur Logi
Ingason, f. 2007, og Dagbjört Hulda
Ingadóttir, f. 2013.
Foreldrar: Eyjólfur Þorkelsson, f. 1942,
fv. fiskútflytjandi, og Bjarney Gísladóttir,
f. 1943, fv. skrifstofustjóri. Þau eru bú-
sett í Kópavogi.
Guðrún Ágústa
Eyjólfsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
HrúturMundu að sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Reyndu að sjá hlutina í réttu
ljósi áður en þú lætur til skarar skríða.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú er bjartsýn/n í dag. Makinn eyðir
of miklu að þínu mati, reyndu að koma
honum á rétta braut.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Stundum þarf að vita hvenær á
að henda sér út í djúpu laugina og hvenær
ekki. Vinur leitar til þín og biður um hjálp
21. júní - 22. júlí
Krabbi Slakaðu á á meðan þú safnar upp-
lýsingum og reyndu að einblína ekki á að
fá vilja þínum framgengt. Gakktu meira en
þú gerir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ástarævintýri, rómantík, orlof og
ánægjulegt félagslíf höfða mikið til þín
þessa dagana. Rifrildi er í uppsiglingu við
náinn vin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhver er ekki að segja allan sann-
leikann. Vertu á verði, þú færð tilboð sem
þú ert efins um. Gakktu hægt um gleðinn-
ar dyr.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er engin ástæða til að hleypa öllu
í bál og brand þótt fólk þurfi að setjast
niður og ræða viðkvæm mál. Hafðu þetta í
huga og reyndu að hafa stjórn á skapi
þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leyndarmál sem náinn vinur
á mun koma þér á óvart. Þér finnst ekki
sanngjarnt að þurfa að gera allt á heim-
ilinu. Virkjaðu fólkið þitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lærðu að slappa af. Reyndu
að finna tíma fyrir sjálfa/n þig. Þú lætur
allt of oft í minni pokann heima fyrir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur það í hendi þér að
skapa eitthvað frumlegt og mjög sérstakt í
dag. Eftir hressandi kaffibolla gæti verið
að þú sæir vinnuna sem blessun en ekki
byrði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu stjórnina í þínar hendur í
stað þess að láta tilviljanirnar ráða ferð-
inni. Ekki sækja vatnið yfir lækinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stundum verður þú að treysta á
dómgreind þína, þegar þú ert búin/n að
velta við öllum steinum í málinu. Gerðu
það í dag sem þú getur, eins vel og þú get-
ur.
Á þessum tíma höfðu Loftorku-
feðgar verið að ýta í mig hvort
mig langaði ekki aftur í bygginga-
gamalt hús þar sem við höfum
endurbyggt og njótum þess að
dvelja þar.
Ó
li Jón Gunnarsson
fæddist 7. júlí 1949 á
Bálkastöðum í Hrúta-
firði og ólst þar upp
hjá foreldrum sínum
með bræðrum sínum og frænd-
systkinum Eiríksbörnum á hinu
býlinu.
„Ég gekk í farskóla í Staðar-
hreppi sem á þeim tíma var rekinn
til skiptis í stofunni heima á
Bálkastöðum eða á Reykjum.
Tvær vikur í skóla og ein vika frí,
en þá áttum við að læra heima.
Tók fullnaðarpróf 12 ára, var svo
heima einn vetur uns ég fór í
Reykjaskóla sem þá var héraðs-
skóli. Tók þar gagnfræðapróf
hafísvorið 1966. Eftir gagnfræða-
prófið fór ég á samning í múrverki
hjá heiðursmanninum Jóni Dags-
syni, múrarameistara á Sauð-
árkróki, og fór í Iðnskólann þar.“
Óli Jón varð múrarameistari 1973
og fór í Tækniskóla Íslands, sem
síðar sameinaðist Háskólanum í
Reykjavík, og útskrifaðist þaðan
byggingatæknifræðingur 1975.
Óli Jón vann fyrst á verkfræði-
stofu Guðmundar G. Þórarins-
sonar uns hann fór til Akureyrar
og vann þar hjá tæknideild Ak-
ureyrarbæjar í rúmt ár. „Ég réðst
síðan sem byggingafulltrúi í Borg-
arnes og starfaði þar uns ég réð
mig til Konráðs Andréssonar í
Loftorku og vann hjá honum þar
til ég var ráðinn bæjarstjóri í
Borgarnesi í árslok 1987 og gegndi
því starfi fram að kosningum 1994.
Eftir kosningarnar var ég ráð-
inn bæjarstjóri Borgarbyggðar,
sem þá var nýstofnuð við samein-
ingu nokkurra sveitarfélaga, og
var það til vormánaða 1999, en þá
var mikil óöld í bæjarstjórninni
eftir aukna sameiningu í Borg-
arbyggð. Tveimur mánuðum síðar
var ég ráðinn bæjarstjóri í Stykk-
ishólmi og sá Rúnar Gíslason, for-
seti bæjarstjórnar, svo um að
fundurinn væri haldinn á afmæl-
isdaginn þegar ég varð 50 ára og
var bæjarstjóri þar til hausts 2005.
Í Stykkishólmi var yndislegt að
vera og keyptum við hjónin okkur
bransann. Það var afskaplega
freistandi á þeim uppgangsárum,
en súrnaði þegar frá leið í gegnum
hrunið þegar nánast allur bygg-
ingariðnaður hrundi. Við nokkrir
lykilstarfsmenn störtuðum Loft-
orku aftur eftir gjaldþrot 2009 og
rákum það í gegnum erfiðleika-
tímabilið fyrstu árin á eftir og að
lokum vorum við orðnir tveir eftir
af eigendahópnum ég og Bergþór
sonur minn sem kom með okkur
að endurreisninni. Eftir að við
seldum fyrirtækið hef ég verið að
dútla smávegis við bygginga-
framkvæmdir.“
Óli Jón hefur starfað með
Lionshreyfingunni í rúmlega 40 ár
og var gerður að Melvin Jones-
félaga fyrir mokkrum árum. Einn-
ig er hann í frímúrarastúkunni
Akri á Akranesi. „Í tengslum við
störf mín hef ég lent í fjölda
stjórna, ráða og nefnda, meðal
Óli Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri og fv. bæjarstjóri – 70 ára
Fjölskyldan Samankomin til að halda upp á afmæli Óla Jóns í Villa Marina í Terranuova Bracciolini í Toskana. Frá
vinstri: María, Rúnar, Óli Jón, Bergþór, Erik Óli, Ósk, Jóhann Gunnar og Kolbrún. Á myndina vantar Lottu Ósk.
Heldur upp á daginn í Toskana
Með barnabörnunum Óli Jón ásamt
Lottu Ósk og Erik Óla.
Hjónin Ósk og Óli Jón stödd á
Hawaii fyrir 20 árum.
40 ára María er
Reykvíkingur og er
rafmagnstækni-
fræðingur að mennt
frá Óðinsvéum í
Danmörku.
Maki: Steingrímur
Már Jónsson, f.
1979, framleiðslutæknifræðingur hjá
BM Vallá.
Börn: Jón Emil, f. 2007, Kristinn, f.
2009, og Egill, f. 2013.
Foreldrar: Kristinn Gíslason, f.
1941, rafiðnfræðingur, og Lísa Gísla-
son, f. 1941 á Sandey í Færeyjum,
vann ýmis störf. Þau eru búsett í
Kópavogi.
María
Kristinsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Þorleifur Ágúst
Sveinsson fæddist 25. nóvember
2018 í Reykjavík kl. 18.52. Hann vó
4.082 g og var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Margrét Svandís
Þórisdóttir og Sveinn Þorleifs-
son.
Nýr borgari