Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 38
38 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Ítalskt nautsleður
Stærð: 214 cm Verð frá 270.000 kr
Stærð: 194 cm Verð frá 258.000 kr.
Stærð: 172 cm Verð frá 235.000 kr.
Roby sófar fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Íslenska U17 ára landslið pilta í
handknattleik vann til bronsverðlauna
á Opna Evrópumótinu sem lauk í Sví-
þjóð í gær. Ísland vann spennuþrung-
inn sigur á Hvíta-Rússlandi í leiknum
um þriðja sætið, 30:29, þar sem Bene-
dikt Gunnar Óskarsson var marka-
hæstur með sex mörk. Tryggvi Þór-
isson var valinn besti varnarmaður
mótsins, en það var lið Færeyja sem
stóð uppi sem sigurvegari eftir sigur á
Svíum í úrslitaleik, 36:29.
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði
sitt fyrsta mark fyrir Astana þegar
hann skoraði fyrra mark liðsins í 2:0-
sigri á Tobol í toppslag efstu deildar í
Kasakstan. Rúnar gekk til liðs við Ast-
ana í síðasta mánuði.
Matthías Vilhjálmsson skoraði eitt
mark og lagði upp annað þegar lið
hans Vålerenga vann stórsigur á
Bodö/Glimt, 6:0, í norsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í gær. Þetta var
fjórða deildarmark hans í 14 leikjum
með Vålerenga á tímabilinu.
Eitt
ogannað
EM U18 kvenna
B-keppni, leikin í Makedóníu:
Tyrkland – Ísland............................... 103:41
Búlgaría, Sviss og Portúgal eru einnig
með Íslandi í riðli og næsti leikur er við
Portúgal á morgun.
KÖRFUBOLTI
HANDBOLTI
Opna Evrópumót U17 karla
Leikið í Gautaborg:
Leikur um bronsverðlaun:
Hvíta-Rússland – Ísland...................... 29:30
UPPRUNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Landsbyggðarliðin fjögur í úrvals-
deild kvenna í fótbolta hafa teflt fram
fleiri uppöldum leikmönnum á þessu
keppnistímabili en liðin sex af höf-
uðborgarsvæðinu sem eru í deildinni.
Þveröfugt við karladeildina þar
sem Fylkir teflir fram langflestum
heimamönnum er kvennalið Fylkis
það lið kvennadeildarinnar sem hefur
alið upp fæsta leikmenn.
En rétt eins og hjá körlunum er
það Breiðablik sem á flesta leikmenn
í deildinni í heild. Þar eru líka fleiri
uppaldir leikmenn í öðrum liðum
deildarinnar en hjá Kópavogsfélag-
inu sjálfu en samtals 18 leikmenn
sem spila í deildinni í ár koma upp-
haflega úr röðum þeirra grænu.
Skoðum hvernig liðin tíu í deildinni
eru samsett, miðað við þá leikmenn
sem hafa komið við sögu í leikjunum
til þessa.
Þór/KA 11 + 3
Akureyrarliðið er með hæsta hlut-
fall heimakvenna í sínu liði en 11 af
18 leikmönnum sem hafa spilað með
liðinu í deildinni í ár eru Akureyr-
ingar. Sex uppaldar hjá KA og fimm
hjá Þór. Þór/KA hefur notað þrjá er-
lenda leikmenn og fjórar eru upp-
aldar hjá öðrum íslenskum liðum.
Þrír Akureyringar leika með öðr-
um liðum í deildinni, tvær þeirra með
KR, Laufey Björnsdóttir og Lilja
Dögg Valþórsdóttir, og Lillý Rut
Hlynsdóttir leikur með Val.
Keflavík 11 + 0
Nýliðar Keflavíkur hafa notað 11
uppalda leikmenn í deildinni (af 20)
og auk þess þrjá frá öðrum Suð-
urnesjaliðum og fjóra erlenda leik-
menn.
Enginn Keflvíkingur leikur með
öðru liði í deildinni.
ÍBV 10 + 3
Margar ungar Eyjastúlkur hafa
komið inní lið ÍBV í ár og síðasta ár,
og eru orðnar helmingur liðsins, tíu
af þeim tuttugu sem hafa spilað í ár.
Sex af hinum eru af erlendu bergi
brotnar, þar á meðal Cloé Lacasse
sem nú er orðin íslensk.
Þrjár aðrar Eyjakonur leika í
deildinni, Margrét Lára og Elísa Við-
arsdætur með Val og Sóley Guð-
mundsdóttir með Stjörnunni.
Selfoss 10 + 1
Selfoss er með rúmlega 50 prósent
hlutfall í sínu liði, tíu uppalda leik-
menn af nítján. Fjórar koma að utan
en hinar fimm af landsbyggðinni, Eg-
ilsstöðum, Reyðarfirði og Rangár-
þingi.
Eini Selfyssingurinn í öðru liði í
deildinni er Guðmunda Brynja Óla-
dóttir í KR.
Stjarnan 10 + 0
Í gjörbreyttu liði Stjörnunnar eru
tíu uppaldir Garðbæingar af 22 leik-
mönnum sem Kristján Guðmundsson
hefur teflt fram í deildinni. Fjórar
koma úr Fjölni og þrjár úr FH en að-
eins ein erlendis frá, og hún er horfin
á braut.
Engin Stjörnukona er í öðru liði í
deildinni.
Breiðablik 8 + 10
Hálft lið Breiðabliks er uppalið í
Kópavogi, átta af þeim sextán sem
hafa spilað í deildinni. Enginn er-
lendur leikmaður (þó Fjolla Shala
spili fyrir Kósóvó kemur hún úr
Leikni R.) og af hinum sjö koma tvær
frá Hetti á Egilsstöðum, Áslaug
Munda Gunnlaugsdóttir og Heiðdís
Lillýjardóttir.
Breiðablik er hinsvegar sér á báti
að því leyti að tíu uppaldir leikmenn
félagsins leika með sex öðrum liðum í
deildinni. Valur, Fylkir, HK/
Víkingur og KR eru hvert um sig
með tvo Blika í sínum röðum, Þór/
KA og Stjarnan einn hvort.
HK/Víkingur 8 + 1
Af átján leikmönnum sem spilað
hafa með HK/Víkingi í deildinni eru
átta uppaldir, fimm þeirra úr Víkingi
og þrjár úr HK. Af hinum tíu eru þrír
erlendir leikmenn.
Margrét Eva Sigurðardóttir er í
láni hjá Fylki og er sú eina úr HK/
Víkingi sem er hjá öðru félagi í deild-
inni.
KR 8 + 1
Vesturbæjarliðið hefur teflt fram
22 leikmönnum i deildinni og af þeim
eru átta uppaldir KR-ingar. Tíu leik-
menn koma frá níu íslenskum fé-
lögum og KR er með fjóra erlenda
leikmenn, tvo þeirra úr Eyjaálfu.
Eini KR-ingurinn í öðru liði í deild-
inni er Dagmar Mýrdal í Keflavík.
Valur 6 + 4
Af 17 leikmönnum sem Valur hef-
ur notað í deildinni eru sex uppaldir á
Hlíðarenda. Sjö leikmenn koma utan
af landi, þrjár þeirra frá Akranesi og
systurnar Margrét og Elísa frá Vest-
mannaeyjum.
Fjórar Valskonur eru í öðrum lið-
um í deildinni, m.a. Berglind Rós
Ágústsdóttir, fyrirliði Fylkis, og
Hildur Antonsdóttir, miðjumaður
Breiðabliks.
Fylkir 6 + 1
Nýliðar Fylkis eru með lægsta
hlutfall uppalinna leikmanna í deild-
inni, sex af þeim 20 sem hafa komið
við sögu til þessa hafa alist upp hjá
félaginu.
Eina Fylkiskonan í öðru liði er Rut
Kristjánsdóttir hjá ÍBV.
Flestar frá Aftureldingu
Afturelding er það félag utan efstu
deildar sem á flesta leikmenn þar, sjö
talsins. Þar af leika tvær með Fylki
og tvær með HK/Víkingi.
FH og Fjölnir eiga sex leikmenn
hvort félag í deildinni, ÍA, Höttur og
KFR eiga fjóra leikmenn hvert,
Haukar, Þróttur R. og Grindavík
þrjá hvert, Leiknir R., Völsungur og
Sindri eiga tvo leikmenn hvert og þá
eru fulltrúar frá Víkingi Ó., KS,
Vestra, Val á Reyðarfirði, ÍR og Víðis
í Garði í hópi leikmanna efstu deildar
í ár.
Heima er best á Akureyri
Landsbyggðarliðin fjögur með flesta uppalda leikmenn í úrvalsdeild kvenna
Flestir leikmanna deildarinnar eiga rætur að rekja til Breiðabliks
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Um langt árabil hefur verið hátt hlutfall Akureyringa í leikmannahópnum hjá Þór/KA.
Kylfingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur
Franklín Magnús og Axel Bóasson eru á góðu skriði á
mótum erlendis og verða áfram í eldlínunni um helgina.
Haraldur Franklín er efstur fyrir lokahringinn á móti
í Svíþjóð sem er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Har-
aldur er samtals á tíu höggum undir pari og hefur
tveggja högga forskot. Axel Bóasson er í þriðja sæti á
sjö höggum undir pari.
Guðmundur Ágúst er að leika á Slovakia Challenge-
mótinu sem er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu, næst-
sterkustu mótaröð álfunnar. Guðmundur lék annan
hringinn í gær á fimm höggum undir pari, en aðeins einn
kylfingur lék betur. Guðmundur bætti sig um sjö högg frá fyrsta hring, fór
í gegnum niðurskurðinn og leikur þriðja og fjórða hring um helgina.
Eru á skriði á erlendri grund
Guðmundur Ágúst
Kristjánsson