Morgunblaðið - 06.07.2019, Síða 40
hnappagat sitt þegar liðið vann 2:1-sigur gegn
Englandi í undanúrslitum keppninnar í ár á Ól-
ympíuleikvanginum í Lyon. Liðið hefur nú unn-
ið ellefu leiki í röð á heimsmeistaramóti sem er
met. Liðið tapaði síðast leik í venjulegum leik-
tíma á HM 2011 í Þýskalandi gegn Svíþjóð, 2:1,
í riðlakeppninni 6. júlí á Volkswagen-vellinum
í Wolfsburg. Þrátt fyrir tapið fór liðið alla
leið í úrslit keppninnar þar sem banda-
ríska liðið tapaði í vítaspyrnukeppni
gegn Japan á Commerzbank-vellinum
í Frankfurt, 3:1, en staðan eftir venju-
legan leiktíma var 2:2.
Leikmannahópurinn hefur breyst að-
eins frá HM 2011 en enginn af þeim leik-
mönnum sem byrjuðu gegn Englandi í und-
anúrslitunum í ár voru í byrjunarliðinu gegn
Japan árið 2011. Alex Morgan og Kelley
O‘Hara byrjuðu báðar á bekknum en
Megan Rapinoe var í byrjunarliðinu
en hún var á bekknum gegn Eng-
landi í ár. Þá hefur liðið einnig
breyst talsvert frá úrslita-
leiknum gegn Japan á
HM 2015 í Kanada þar
sem Bandaríkin unnu
5:2-sigur gegn Japan á
BC Place-vellinum í Van-
couver. Alex Morgan, Julie Ertz og Tobin
Heath voru þær einu sem byrjuðu bæðu úr-
slitaleikinn gegn Japan 2015 og undanúrslita-
leikinn gegn Englandi 2019.
Heimsmeistararnir líklegri
Veðbankar hafa ekki mikla trú á hollenska
liðinu í úrslitaleiknum og reikna þeir allir með
nokkuð auðveldum sigri Bandaríkjanna. Það
ætti ekki að koma neinum á óvart enda hefur
liðið þrívegis fagnað sigri á þeim sjö heims-
meistaramótum sem haldin hafa verið frá árinu
1991 og alltaf hefur liðið endaði á verðlauna-
palli.
Það skal hins vegar enginn afskrifa hollenska
liðið sem hefur á að skipa stórhættulegum sókn-
armönnum í bland við mjög ferska og öfluga
miðjumenn sem eru gríðarlega góðir og öruggir
með boltann. Leiðin hefur bara legið upp á við
hjá þeim hollensku síðan íslenska kvennalands-
liðið sendi þær heim af EM 2013 og það væri í
raun eðlilegt framhald af uppgangi liðsins ef lið-
inu tekst að landa þeim stóra á sunnudaginn.
Íslenska landsliðið trekkti
þær hollensku í gang
AFP
Marksækin Vivianne Miedema er
22 ára framherji og enskur meistari
með Arsenal í vor en hún hefur
skorað hvorki meira né minna en
61 mark í 81 landsleik fyrir Holland
og mætir Bandaríkjunum í úrslita-
leiknum á morgun.
HM 2019
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Bandaríkin og Holland mætast í úrslitaleik
heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu á Ól-
ympíuvellinum í Lyon í Frakklandi á morgun. Í
leiknum mætast besta landslið heims og besta
landslið Evrópu en Bandaríkin eru ríkjandi
heimsmeistarar á meðan Holland er ríkjandi
Evrópumeistari.
Bæði lið eru ósigruð á heimsmeistaramótinu í
ár en á meðan Bandaríkin hafa verið eitt besta
kvennalandslið heims undanfarna áratugi hefur
stjarna hollenska liðsins skotist hratt upp á
stjörnuhimininn á undanförnum árum.
Ekki litið um öxl frá 2013
Á Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð árið 2013
endaði hollenska liðið í neðsta sæti B-riðils loka-
keppninnar með eitt stig. Fyrir lokaumferð
riðlakeppnina átti hollenska liðið ennþá mögu-
leika á því að fara áfram í átta liða úrslitin en
Dagný Brynjarsdóttir gerði út um vonir hol-
lenska liðsins þegar hún tryggði Íslandi 1:0-
sigur á Myresjöhus-vellinum í Växjö hinn 17.
júlí 2013 og sendi hollenska liðið þar með úr
keppni.
Lieke Martens og Daniëlle van de Donk voru
báðar í byrjunarliði Hollands gegn Íslandi en
þær eru algjörir lykilmenn í liðinu í dag. Eftir
afhroðið á EM 2013 hófst ákveðinn uppgangur
hjá liðinu sem fór alla leið í sextán liða úrslit á
HM 2015 sem fram fór í Kanada en þar féll lið-
ið úr leik gegn Japan. Liðið vann svo alla leiki
sína á EM 2017 og stóð uppi sem óvæntur sig-
urvegari eftir 4:2-sigur gegn Damörku í úrslita-
leik á De Grollsch-vellinum í Enschede í Hol-
landi.
Af þeim ellefu leikmönnum sem byrjuðu úr-
slitaleikinn gegn Danmörku 2017 voru átta í
byrjunarliðinu í 1:0-sigri liðsins gegn Svíþjóð í
undanúrslitum keppninnar í Lyon í ár. Mark-
maðurinn Sari van Veenendaal, varnarmenn-
irnir Desiree van Lunteren og Stefanie van der
Gragt, miðjumennirnir Jackie Groenen, Daniëlle
van de Donk og Sheride Spitse og loks sókn-
armennirnir Vivianne Miedema og Lieke Mar-
tens.
Bandaríska liðið bætti enn einni rósinni í
Heimsmeistararnir mæta Evrópumeisturunum í úrslitaleik HM 2019
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
Pepsi Max-deild karla
Stjarnan – Grindavík ............................... 0:0
Staðan:
KR 11 8 2 1 21:10 26
Breiðablik 11 7 1 3 22:13 22
Stjarnan 12 5 4 3 19:16 19
ÍA 10 5 2 3 15:12 17
Valur 12 5 1 6 21:18 16
Fylkir 10 4 3 3 18:18 15
FH 10 3 4 3 15:17 13
Grindavík 11 2 6 3 7:9 12
KA 11 4 0 7 16:19 12
Víkingur R. 10 2 5 3 15:17 11
HK 10 2 2 6 11:14 8
ÍBV 10 1 2 7 8:25 5
Inkasso-deild karla
Þór – Fram ............................................... 3:0
Aron Elí Sævarsson 38., Jónas Björgvin
Sigurbergsson 67., Jakob Snær Árnason
88. Rautt spjald: Jökull Steinn Ólafsson
(Fram) 30.
Grótta – Njarðvík .................................... 3:1
Pétur Theódór Árnason 44., 67., Axel
Freyr Harðarson 62. – Ivan Prskalo 88.
Víkingur Ó. – Afturelding...................... 2:0
Harley Willard 54., Sallieu Tarawallie 62.
Staðan:
Fjölnir 10 7 1 2 20:9 22
Grótta 10 6 2 2 22:14 20
Þór 10 6 1 3 18:10 19
Víkingur Ó. 10 5 2 3 11:6 17
Fram 10 5 2 3 15:14 17
Keflavík 10 4 3 3 15:11 15
Leiknir R. 10 5 0 5 16:17 15
Þróttur R. 9 3 1 5 16:15 10
Haukar 10 2 4 4 14:16 10
Afturelding 10 3 0 7 12:23 9
Njarðvík 10 2 1 7 9:20 7
Magni 9 1 3 5 10:23 6
3. deild karla
Álftanes – KH ........................................... 2:3
Vængir Júpíters – Skallagrímur............. 1:0
Staðan:
KV 9 8 0 1 21:8 24
Vængir Júpiters 10 7 0 3 17:11 21
Kórdrengir 9 6 2 1 23:9 20
KF 9 6 1 2 20:10 19
Reynir S. 9 4 3 2 15:11 15
Einherji 9 4 1 4 13:11 13
Sindri 9 4 1 4 18:18 13
Höttur/Huginn 9 2 3 4 14:17 9
Álftanes 10 2 3 5 15:19 9
Augnablik 9 1 3 5 13:21 6
Skallagrímur 10 2 0 8 12:28 6
KH 10 1 1 8 14:32 4
2. deild kvenna
Sindri – Álftanes....................................... 2:3
Staðan:
Völsungur 5 5 0 0 12:6 15
Grótta 6 4 1 1 13:4 13
Fjarð/Hött/Leikn. 6 3 0 3 21:6 9
Álftanes 5 3 0 2 14:7 9
Hamrarnir 5 2 0 3 6:8 6
Sindri 6 2 0 4 7:15 6
Leiknir R. 7 0 1 6 2:29 1
Kasakstan
Tobol – Astana ......................................... 0:2
Rúnar Már Sigurjónsson lék í 78 mín-
útur og skoraði fyrra mark Astana.
KNATTSPYRNA
Úrslitin í leikjunum þremur í 1.
deild kvenna í knattspyrnu í gær-
kvöld, Inkasso-deildinni, voru
nokkuð áhugaverð en í öllum við-
ureignunum höfðu liðin sætaskipti í
leikslok.
Það var toppslagur í Kaplakrika
þar sem FH vann Þrótt R. 2:1 með
mörkum Margrétar Sifjar Magn-
úsdóttur og Nóttar Jónsdóttur. FH
komst með því upp fyrir Þrótt og á
toppinn með 16 stig og hefur nú
stigi meira en Þróttur.
Um miðja deild komst Aftureld-
ing upp í fimmta sætið eftir 2:1-
sigur á Tindastóli, sem var í fimmta
sætinu fyrir leikinn. Þá stökk Fjöln-
ir upp um tvö sæti og upp í það átt-
unda eftir sigur á Haukum, sem
sátu í áttunda sætinu fyrir leikinn.
Fjölnir vann 3:2 eftir að Haukar
höfðu komist í 2:0, en dramatíkin
var í meira lagi þar sem Mist Þor-
móðsdóttir Grönvold skoraði sig-
urmark Fjölnis á fimmtu mínútu
uppbótartíma með öðru marki sínu
í leiknum.
yrkill@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mark Samira Suleman skorar fyrir Aftureldingu gegn Tindastóli í gær.
Sætaskipti eftir alla
leiki gærkvöldsins