Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 44

Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 18.900,- BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 21.900,- LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 39.900,- stk. CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- STONE STOOL Kollur – fleiri litir Verð 28.900,- stk. TAKE Borðlampi – fleiri litir Verð 12.900,- Glæsileg gjafavara frá PLANET CRYSTAL Borðlampi – fleiri litir Verð 54.900,- BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- KABUKI Borðlampi – fleiri litir Verð 52.900,- TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég eins og fleiri sat hug-fanginn yfir HBO-þáttunum um Chernobyl, hvar kjarnorkuslysið geigvænlega árið 1986 var sett undir mæliker- ið, ásamt tíðarandanum sem lék um Sovétríkin á þeim tíma. Þætt- irnir ganga alveg ótrúlega vel upp, natnin við öll smáatriði eftirtektarverð og maður sat sem á bríkinni yfir hverjum einasta þætti. Vissulega gægðust Holly- wood-púkar fyrir horn öðru hverju, óvelkomnir, en það voru líka senur þarna sem voru hrein- asta listaverk og verulega reynt á þau mörk sem draumaverksmiðjan setur hvað sköpun og tilraunir varðar. Í þessum pistli ætla ég að ein- beita mér að einum þætti hvað Chernobyl varðar en það er tón- listin. Og engin smávegis rulla sem hún spilaði en höfundurinn er okkar eigin Hildur Guðnadóttir. Það er ekki alltaf sem tónspor þátta og kvikmynda er sér- staklega tiltekið en snemma fór að bera á því að nafn hennar var nefnt sérstaklega, hvort heldur á samfélagsmiðlum eða í öðrum fréttum. Hildur sagði í viðtali við Reykjavik Grapevine að hún hefði strax ákveðið að tóna tónlistina niður eins og hægt væri, hún ætti ekki að vera í forgrunni í drama- tískum atriðum o.s.frv. Nei, tón- listin þyrfti að vera greinanleg en samt varla, líkt og geislunin sem hékk yfir verinu og nálægum byggðum. Þessi nálgun er það sem gerir tónlistina svo snilldarlega. Hildur nær á undraverðan hátt að þræða hana inn í myndmálið, þannig að hún verður órofa partur af allri framvindu. Höfug og ákveðin, listavel útfærð. Hildur „neglir“ þetta með bravúr, og þetta er það besta sem hún hefur gert hingað til í þessum efnum. Fyrir réttu ári helgaði ég ein- mitt pistil kvikmyndatónlist henn- ar. Mary Magdalene (2018) var unnin ásamt Jóhanni Jóhannssyni, falleg tónlist og stílar beggja dansandi yfir. Sicario: Day of the Soldado, var framhald af Sicario (sem Jóhann „skoraði“) og tónlist- in þjónar myndinni fyrst og síðast og er eðlilega í svipuðum stíl og tónlistin við myndina á undan. Í Chernobyl er Hildi hins vegar að takast nokkuð magnað, að undir- stinga efniviðinn rækilega um leið og hennar ára liggur yfir. Það er ekki auðvelt að knýja svona nokk- uð fram. Að þjóna myndmiðlinum og eigin andagift. Tónlistin er draugaleg, köld, stundum angur- vær og falleg. Stundum hrollvekj- andi, þar sem röraklangur, skæld rafhljóð og verksmiðjuorg magnar upp óttalega stemningu. Og allt í algerum samhljóm við það sem á skjánum er. Frábært! Hildur heimsótti kjarnorkuver í Litháen, framkvæmdi nokkurs konar vettvangs-hljóðritun, og smalaði inn hljóðum sem þar var að finna. Ekki er að finna eitt ein- asta hljóðfæri í tónsporinu, allt sem við heyrum er unnið úr því sem Hildur nam úr verinu. Afmæl- isbróðir minn Hallgrímur Helga- son talaði um að tónlistin væri í raun eins og að kjarnorkuverið sjálft hefði samið hana. Þetta kall- ar fram pælingar Giorgio Moro- der, þegar hann að var að semja sína tímamóta-diskótónlist, að hann væri til í að hún hljómaði líkt og vélar hefðu samið hana. Svona pælingar voru líka gegn- umgangandi hjá Kraftwerk („rad- ioactivity, is in the air, for you and me“), hugleiðingar um tengsl hins mennska og hins ómennska. Chernobyl fjallar eðlilega um það, þegar við missum tökin á því sem var ætlað að þjóna okkur, hvort heldur í formi orkugjafa eða stjórnkerfis hins sovéska kommún- isma. Hildur litar þessa sögu glæsilega með tónlist sinni. Afrek segi ég og nauðsynlegt að stinga niður penna um þessa vörðu á leið hennar. Vísur kjarnorkuversins Morgunblaðið/Styrmir Kári Tónskáld Hildur Guðnadóttir, höfundur tónlistar við Chernobyl. Kaldranaleiki Tónspor Hildar hæfir sjónvarpsþáttunum Chernobyl fullkomlega og fangar ömurðina. Hér má sjá stillu úr einum þessara mögnuðu þátta. »Nei, tónlistinþyrfti að vera grein- anleg en samt varla, líkt og geislunin sem hékk yfir verinu og nálægum byggðum.  Tónlist Hildar Guðnadóttur við þáttaröðina Chernobyl hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli  Með henni hefur hún stimplað sig inn í alþjóðaheim kvikmynda- og sjónvarpsþáttatónlistar Framleiðslufyrirtækið HBO Nordic, sem heyrir undir bandarísku HBO- sjónvarpsstöðina og framleiðslufyr- irtækið, hefur ákveðið að fjármagna gerð norskra sjónvarpsþátta, Ut- mark, og mun Dagur Kári Péturs- son leikstýra þeim. Þessu er greint frá á vef norska ríkisútvarpsins NRK. Handritshöfundur þáttanna er Daninn Kim Fupz Åkeson sem skrifaði m.a. handrit kvikmyndar- innar Cold Pursuit. Utmark verða átta gamanþættir og sögusviðið fámennur bær úti á landi. Mun hefnd koma mikið við sögur og furðulegar persónur, m.a. prestur sem hatar guð. Allir þekkja alla en dag einn kemur nýr kennari í bæinn í leit að betra lífi. Hann veit ekki að utanbæjarmenn eru ekki alltaf velkomnir í þessu litla sam- félagi. Tökur á þáttunum eiga að hefjast nú í sumar, skv. frétt NRK en ekki hefur verið gefið upp hverjir leika í þeim. Fyrirtækið Paradox framleiðir þættina fyrir HBO Nor- dic en það hefur m.a. framleitt kvik- myndirnar Utøya 22. juli og Kon- gens nei. Haft er eftir framleiðand- anum Finn Gjerdrum að eftir langt og spennandi ferðalag sé nú loksins hægt að hefja framleiðsluna. Utmark er önnur norska þátta- röðin sem HBO Nordic festir kaup á en sú fyrri er vísindaskáldskapar- serían Beforeigners sem frumsýnd verður 21. ágúst. Þá hefur Evrópu- útibú HBO, HBO Europe, keypt tvær sænskar þáttaraðir, Gösta sem Lukas Moodysson skrifar og leik- stýrir, og Bjørnstad sem byggð er á bók Fredrik Backman. Ekki náðist í Dag Kára við vinnslu fréttarinnar í gær. Leikstjóri Dagur Kári Pétursson. Dagur Kári leikstýrir norskum grínþáttum  HBO Nordic fjármagnar Utmark

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.