Morgunblaðið - 06.07.2019, Page 48

Morgunblaðið - 06.07.2019, Page 48
Opið virka daga frá kl. 11 til 18 laugardaga frá kl. 11 til 17 Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen) 70% afsláttur af öllum vörum Hreinsun! Troðfull verslun af merkjavöru Opið á morgun sunnudag 13 til 17 Jófríður Ákadóttir, sem gengur undir listamannsnafninu JFDR, flyt- ur lágstemmdar útgáfur af til- raunakenndri popptónlist sinni á stofutónleikum Gljúfrasteins á morgun. Jófríður mun leika á gítar og kemur systir hennar fram með henni og leikur á píanó. Stofutónleikar Gljúfrasteins eru haldnir hvern sunnudag frá júní út ágúst og hefjast allir kl. 16. Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs. Systur á Gljúfrasteini LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 187. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Körfuboltamaðurinn Haukur Helgi Pálsson þurfti að ákveða hvort hann myndi spila í Ísrael eða Rúss- landi á komandi keppnistímabili á sömu stundu og hann var í þann veginn að verða faðir í fyrsta skipti. Haukur valdi Kazan í Rússlandi. „Þetta er í raun allt í smá móðu hjá mér,“ segir Haukur Helgi við Morgunblaðið. »39 Þetta er í raun allt í smá móðu hjá mér Íslensk þjóðlög flutt á nýstárlegan hátt Tríóið Máninn líður mun flytja ís- lenska tónlist á nýstárlegan hátt í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á morgun kl. 20.30. Tríóið skipa Anna Jónsdóttir sópran, þýski píanóleik- arinn Ursel Schlicht og landi henn- ar Ute Völker harmonikkuleikari. Schlicht og Völker hafa sérhæft sig í spuna og tilraunakenndri tónlist og hafa mikla reynslu af því að tengja saman ólíka heima tónlistar. Tríóið mun flytja íslensk þjóðlög og lög eftir Jón Leifs. ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Urð og grjót. Upp í mót. Ekkert nema urð og grjót. Upphaf ljóðsins Fjallgöngu eftir Tómas Guðmundsson kemur upp í hugann í spjalli um grjóttínslu við Steinþór Björnsson á Hvannabrekku austur í Berufirði. Sveitalífið er fjöl- breytt og að ýmsu þarf að hyggja. Ábúendur á Hvannabrekku hafa ræktað land á mjög grýttu svæði lengur en elstu menn muna og mik- ilvægur þáttur í ræktun landsins er að tína grjótið og fjarlægja það. „Grjóttínslan er liður í vinnunni okkar og það fylgir því að vera bóndi að rækta túnin og endurrækta þau,“ segir Steinþór Björnsson bóndi. Þessu fylgi líka hagkvæmni, því með meira ræktarlandi heima þurfi ekki að heyja úti um allt. „Þessi blettur, sem við erum að hreinsa núna, er um tveir og hálfur hektari en ræktað land okkar er rúmir 40 hektarar og hefur allt verið grjóthreinsað. Mismikið samt.“ Tún brunnin Steinþór er yngstur sjö systkina. Hann fæddist á Hvannabrekku og hefur búið þar allt sitt líf en tók við rekstrinum af foreldrum sínum 1999. „Það æxlaðist þannig að ég tók við af foreldrum mínum,“ segir hann. Bætir við að systkinin hafi farið í annað nema ein systirin, sem sé líka bóndi. „Undirlendið hérna er ekkert nema grjót, framburður úr lækjum, og grjóttínslan hefur fylgt mér alla tíð. Ég get ekki sagt að mér hafi þótt þetta skemmtilegt, ekki frekar en börnunum okkar, en tínslan venst eins og hvað annað. Það þarf að gera þetta og ekki gengur að skorast undan því, en yfirleitt er tínt á hverju ári, gjarn- an frá sauðburði og fram að slætti.“ Sláttur er ekki hafinn á Hvanna- brekku en Steinþór vonast til þess að geta byrjað um helgina. „Ég vil helst klára grjótið og sá og fara svo að heyja,“ segir hann. Áður en tínslan hefst þarf að plægja og jarðvinna svæðið. Hann segir að grjótið sé af öllum stærðum og gerðum en allt haf- ist þetta að lokum. „Við skjótumst í tínsluna tvo til fjóra tíma á dag.“ Miklir þurrkar hafa sett strik í heyskapinn. „Veðrið hefur verið fínt en alltof þurrt,“ segir hann um sprettuna. „Það er mjög mikið brunn- ið hjá okkur enda hefur varla komið væta síðan í apríl nema hvað aðeins hefur blotnað nokkrum sinnum á steinum og svo var smá rigning um helgina.“ Hjónin Steinþór og Auðbjörg Stef- ánsdóttir eiga átta börn og sex þeirra búa enn heima. Þau eru með um 200 nautgripi og þar af 33 mjólkandi kýr. Auk þess nokkrar kindur. Hann segir að fjölskyldan sé samhent í öllum störfum enda þurfi svo að vera með hagkvæmni í huga. „Við gerum sem mest sjálf,“ áréttar hann. Í grjóttínslu á Hvannabrekku Fjölskyldan frá vinstri: Guðrún Lilja, Stefán Valur, Steinþór bóndi, Guðmundur Hálfdán, Auðbjörg bóndi, Gunnur Margrét, Karólína Björt og Anna Jóna. Grjóttínsla í blóðinu  Fjölskyldan á Hvannabrekku í Berufirði ræktar land á mjög grýttu svæði við bæinn  Það er vont en það venst Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.