Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 8. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  158. tölublað  107. árgangur  Á EKKI SUMARHÚS SJÁLFUR VEÐRIÐ LÉK VIÐ GESTI Í EYJUM FINNST HAGYRÐINGAR SKEMMTILEGASTIR GOSLOKAHÁTÍÐ 10 TÍMARITIÐ STUÐLABERG 28HAGSMUNAGÆSLA 11 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samkeppniseftirlitið hyggst kanna hvort upplýsingar í nýrri skýrslu Rík- isendurskoðunar gefi tilefni til að kanna starfsemi Íslandspósts. Eftirlitið vísar til ákvörðunar (8/ 2017) um aðgerðir til að styrkja sam- keppnisaðstæður á póstmarkaði. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir ákvörð- uninni hafa verið ætlað að tryggja eðlilegan samkeppnisgrundvöll og að ekki væri með ólögmætum hætti ver- ið að nýta tekjur af einkarétti til að eiga í samkeppni á sviðum þar sem hún á að ríkja. „Við áréttum jafnframt að sér- stakri eftirlitsnefnd sem starfar sam- kvæmt skilyrðum eftirlitsins sé ætlað að tryggja að farið sé að leikreglum í þessu efni,“ segir Páll Gunnar. Að fengnum frekari skýringum á ályktunum Ríkisendurskoðunar muni eftirlitið taka afstöðu til þess hvort nauðsynlegt sé að taka uppgjör og þ.m.t. kostnaðarskiptingu Íslands- pósts til skoðunar á vettvangi eftir- litsnefndarinnar eða eftirlitsins. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst segir að „starfsemi fé- lagsins sem er í samkeppni [sé] ekki látin bera neina hlutdeild í sameigin- legum föstum kostnaði jafnvel þótt samkeppnisreksturinn nýti sér sömu framleiðsluþættina“. Farið sé að leikreglum  Samkeppniseftirlitið kannar hvort Íslandspóstur hafi virt sátt sína við eftirlitið  Forstjóri eftirlitsins segir sáttinni ætlað að tryggja samkeppni á póstmarkaði MBjörgun í pólitískum … »4 Nýtur einkaréttar » Íslandspóstur hefur einka- rétt á bréfum sem eru léttari en 50 grömm og skapar það félaginu stöðugar tekjur. » Pósturinn á hins vegar í samkeppni við einkafyrirtæki um dreifingu á öðrum sviðum. Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð- ingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir að fréttir af mönnum sem teknir voru með 16 kílógramma skammt af kókaíni á Keflavíkurflugvelli í maí, hafi aðeins lítil áhrif á fíkniefnamarkaðinn. Fréttirnar telur hann vera eins konar „endurspeglun á ástandi“ hér á landi. „Við höfum sögu af þessu hér heima. Við höfum fengið stór mál og höfum þá getað séð það hversu mikil áhrif þetta hafði á markaðinn í kjöl- farið og það hefur í mesta lagi áhrif í mjög skamman tíma,“ segir Helgi. Segir hann að svo virðist sem fíkni- efnainnflytjendur „hinkri“ í skamma stund eftir að stórar aðgerðir kom- ast í hámæli. Telur hann mál af þessu tagi gefa vísbendingu um hversu mikil eftirspurn sé eftir fíkni- efnum í samfélaginu. Margeir Sveinsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn tekur undir með Helga og segir áhrif vegna lögreglu- aðgerða þar sem lagt er hald á mikið magn fíkniefna tímabundin og að ómögulegt sé að segja til um hversu lengi þau vari. „Við erum að fást við opinn markað, það er bara því miður þannig.“ » 14 Hafa að- eins lítil áhrif Morgunblaðið/Kristinn Fíkniefni Mikil eftirspurn virðist vera eftir fíkniefnum hér á landi.  Eftirspurn eftir fíkniefnum mikil Bandaríska kvennalandsliðið hefur unnið tvöfalt fleiri heimsmeistaratitla í knattspyrnu en nokkurt annað lið, en það fagnaði sínum fjórða titli eftir sigur á Evrópumeisturum Hollands í úrslitaleik í Lyon í gær. Bandarísku heimsmeistararnir hafa ekki aðeins vakið athygli fyrir góða frammistöðu inni á vellinum, heldur einnig fyrir það að nota sviðsljósið til þess að benda á kynjamisrétti á ýmsum sviðum í knattspyrnuheiminum. »25 Einstakt heimsmeistaralið Bandaríkjanna AFP  Veitur ohf., dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, vilja örva lághita borholu á Norðurnesi, norð- anverðu Geldinganesi, til vatns- framleiðslu. Það er hægt að gera með því að dæla vatni í borholuna undir þrýstingi svo hún framleiði meira vatn. Veitur hafa auglýst eftir verk- taka til að örva borholuna. Það er gert með pakkara, einskonar tappa sem settur er inn í borholuna í þeim tilgangi að stýra því hvert vatnið sem dælt er ofan í holuna fer. Engar holur á Geldinganesi eru tengdar inn á hitaveitu Veitna, en ef örvun og borun heppnast stend- ur til að tengja þær inn á kerfið. »6 Vilja örva borholu  Hætta er á því að á einhverjum tímapunkti árið 2022 verði framboð á raforku á Íslandi ekki nægilegt til að svara eftirspurn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Landsnets. Skýrslan skoðar raforkujöfnuð landsins í heild sinni og segir Sverr- ir Jan Norðfjörð, framkvæmda- stjóri þróunar- og tæknisviðs Landsnets, erfitt að segja til um hvar í dreifikerfinu vandinn yrði mestur. Raforkuþörf heimila og vinnustaða eykst að jafnaði um 1,5-2% á ári og gæti vaxið eitthvað hraðar en það á komandi árum ef orkuskipti í samgöngum ganga hratt fyrir sig. „Ef öllum fólksbílum væri skipt út fyrir rafmagnsbíla væri afl- og orkuþörf þeirra á við eina Blöndustöð, eða um 150 MW, og eru þá undanskildir vörubílar, strætisvagnar og rútur,“ segir Sverrir. »12 Vara við mögulegum aflskorti árið 2022 Rafmagnsbíll Fjölgun rafmangsbíla mun auka raforkuþörf þjóðarinnar.  „Það er enginn sem er svona veikur eins og þessi börn,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir. Hann staðfestir að grunur sé uppi um að fleiri séu smitaðir af E. coli-bakteríu sem valdið getur nýrnabilun og blóðleysi í alvar- legum tilfellum. Fjögur börn hafa nú þegar greinst með alvarlega sýkingu af völdum bakteríunnar en tvö þeirra voru lögð inn á Barnaspítala Hringsins með nýrnabilun. Annað barnanna var útskrifað síðastliðinn föstudag. „Þetta er hættulegur sjúkdómur sem er verið að meðhöndla,“ segir Viðar Örn Eðvarðsson, læknir á Barnaspítala Hringsins. „Flestir ná sér vel en það er ekki útilokað að nýrnastarfsemin geti verið eitthvað skert þegar frá líður.“ »2 Fleiri gætu verið smitaðir af E. coli Morgunblaðið/Eggert Eftirfylgni Læknar Barnaspítalans fylgja börnunum vel eftir að sögn Viðars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.