Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019
Renndu við
hjá okkur í
Tangarhöfða 13
Túrbínur
í flestar gerðir bíla
Ódýrari kostur
í varahlutum!
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Verð frá
66.900
með vsk.
Sláttuvélar og sláttutraktorar
frá Toro
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Tónlistarhátíðin Hjarta Hafnar-
fjarðar hefst í kvöld, 8. júlí, og stend-
ur fram á sunnudag, 14. júlí. Páll
Eyjólfsson umboðsmaður, skipu-
leggjandi hátíðarinnar, segir ástæðu
þess að hátíðin er haldin fyrst og
fremst þá að íbúar Hafnarfjarðar
hafi ekki til þessa haft stóra bæj-
arhátíð eins og svo mörg önnur
sveitarfélög hafa. „Þetta er viðleitni
til þess að búa til bæjar- og tónlistar-
hátíð í Hafnarfirði. Hafnarfjörður
telur 30 þúsund manns þannig að
það eitt og sér sýnir að það er ærin
ástæða til. Þegar við lítum til ná-
grannasveitarfélaganna eins og
Grindavíkur og Reykjanesbæjar,
sem eru með stórar hátíðir, þá eig-
um við ekki að láta okkar eftir liggja
að gleðjast líka í heimabænum.“
Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin
Hjarta Hafnarfjarðar er haldin og
segir Páll ganga vel að stækka hana.
Björgvin langstærstur
Á opnunarhátíðinni, í kvöld kl. 19,
verður í fyrsta sinn afhjúpuð
„stjarna íslenskrar tónlistar“ svo-
kölluð. Lögð verður niður stjarna í
gangstéttina fyrir framan Bæjarbíó
í Strandgötu í Hafnarfirði.
„Við byrjum á Björgvini Halldórs-
syni. Hann er langstærsti tónlist-
armaður Hafnarfjarðar fyrr og síð-
ar. Það hefði alltaf verið skrítið að
velja hann ekki. Svo verða tónleikar
honum til heiðurs sem fyrsta stjarn-
an okkar,“ segir Páll. Fjöldi tónlist-
armanna mun koma fram og verður
frítt inn á útisvæði hátíðarinnar svo
Hafnarfjarðarbúar og aðrir gestir
geta glaðst með Björgvini.
Dagskráin næstu daga er fjöl-
breytt. Tónleikar fara fram í Bæjar-
bíói öll kvöld meðan á hátíðinni
stendur. Auk þess verður útisvæði
þar sem hægt verður að fylgjast með
tónleikunum sem varpað verður á
stóran LED-skjá með miklum hljóð-
gæðum.
Annað kvöld, þriðjudagskvöld,
spilar rokkhljómsveitin Dimma og
daginn eftir heldur Friðrik Dór
tónleika. Á fimmtudaginn stígur
Björgvin Halldórsson sjálfur á
svið ásamt hljómsveit og í
framhaldi af því verður Papaball.
Föstudaginn 12. júlí koma Jónas
Sig. og Milda hjarta fram og þá
verður aftur Papaball á dagskrá.
Hljómsveitin Á móti sól stígur svo á
pall á laugardagskvöldið og heldur
síðan ball þar til svæðinu verður
lokað.
Hátíðinni lýkur á sunnudagskvöld
þegar Vök heldur tónleika í Bæjar-
bíói. Miðasala fer fram á vefsíðunni
www.midi.is.
Ljósmynd/Sigga Ella
Vök Poppsveitin vinsæla kemur fram á hátíðinni í Hafnarfirði í ár. Hún
hitaði upp fyrir Duran Duran fyrir skömmu í Laugardalshöll.
Hafnfirðingar gleðjast í heimabænum
Tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar haldin í þriðja sinn 8.-14. júlí Stjarna til heiðurs Björgvini
Halldórssyni verður lögð í götuna Tónleikar á hverju kvöldi í Bæjarbíói og mikið líf á útisvæði
Morgunblaðið/Eggert
Hafnfirðingar Björgvin Halldórsson og dóttir hans Svala taka bæði þátt í
Hjarta Hafnarfjarðar. Hér syngja þau dúett á Jólagestum árið 2008.
Jack Reacher fer víða í Engrimálamiðlun, nýjustuspennusögu Lee Child á ís-lensku. Að þessu sinni bæt-
ast netheimar við raunheima og er
það ekki öfundsvert en söguhetjan
veit hvað hún syngur þó að hún leið-
ist af kunnugri leið á stundum.
Í ónefndu bandarísku landbúnað-
arhéraði er lestarstöðin Mother’s
Rest í sam-
nefndum
smábæ. Eng-
inn veit eða
virðist vilja
vita hvað
nafnið stendur
fyrir og kulda-
legt viðmót
íbúanna bend-
ir til þess að
þeir hafi eitt-
hvað að fela.
Ekkert farsímasamband er á svæð-
inu og hvorki er minnst á kirkju né
krá. Hvergi er safn eða minnisvarða
að sjá. Ekki spennandi staður fyrir
venjulega ferðalanga en Jack Reac-
her er óvenjulegur maður og and-
rúmsloftið kveikir í forvitni hans.
Í þessu undarlega umhverfi hittir
Reacher Michelle Chang, fyrrver-
andi rannsóknarlögreglu hjá banda-
rísku alríkislögreglunni, FBI. Þau
eru á sömu bylgjulengd og leit að
Keever, samstarfsmanni Chang,
færir þau á hvert hættusvæðið á
eftir öðru. Lee Child kann þá list að
byggja upp spennu og gerir það vel í
þessari viðbjóðslegu en um margt
raunsæislegu sögu á stundum. Ein-
eygður maður er lítil fyrirstaða fyrir
Reacher og hann vílar ekki fyrir sér
að berjast við þrjátíu manns enda
fæddur áflogahundur en hann er
líka snöggur að hugsa og raunsætt
mat hans er yfirleitt á skynsamlegri
nótum. Hér og þar er plantað litlum
vísbendingum og eftir því sem líður
á söguna mynda þær heildstæða
mynd. Ógeðslega mynd. Sumum
kann þykja of hægt farið, en virða
ber að Reacher hefur líka um annað
að hugsa.
Annað einkenni á Reacher er
þolinmæði. Hann er meðvitaður um
að allt getur skipt máli. Þess vegna
þarf að fara víða, gá í öll horn,
skyggnast undir yfirborðið, skanna
djúpvefinn, setja saman púslin. Upp-
byggingin er markviss, þræðirnir
eru margir og slóðin hitnar eftir því
sem nær dregur endalokunum.
Djúpríkið er sem helvíti.
Rómantíkin svífur yfir vötnum,
eitthvað sem ekki hefur truflað
Reacher mikið til þessa. Það sýnir að
hann er ekki bara tröll heldur mann-
legt tröll. Aukinheldur er hann ekki
ósigrandi í öllum lotum en hafa ber í
huga að viðfangsefni hans eru sem
langhlaup frekar en spretthlaup.
Glæpamenn gera allt sem þeir
geta til þess að hylja slóðina. Oft
tekst það, en þegar Jack Reacher er
annars vegar sjá þeir sæng sína upp-
reidda. Þess vegna óttast þeir hann.
Þess vegna er hann bestur. Þess
vegna er hann eftirminnilegur. Í
stuttu máli má líkja sögunni við
köngulóaravef þar sem Mother’s
Rest er miðpunktur Reachers með
um 350 km radíus.
Spennuhöfundur „Lee Child kann þá list að byggja upp spennu og gerir
það vel í þessari viðbjóðslegu en um margt raunsæislegu sögu á stundum.“
Óþægileg dvöl
á djúpvefnum
Spennusaga
Engin málamiðlun bbbbm
Eftir Lee Child.
Ragna Sigurðardóttir þýddi.
JPV-útgáfa, 2019. Kilja, 416 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR