Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 ✝ Ólafur Mar-íusson fæddist í Reykjavík 25. októ- ber 1921. Hann lést á bráðamóttöku Landspítalans Foss- vogi 24. júní 2019. Foreldrar hans voru hjónin Karól- ína Andrea Dani- elsen frá Eyrar- bakka, f. 24. ágúst 1890, d. 25. júlí 1983, og Maríus Ólafsson frá Eyr- arbakka, f. 28. október 1891, d. 4. mars 1983. Systkini Ólafs voru: Sólveig, f. 7.7. 1916, d. 19.7. 2000, Sigríður, f. 21.6. 1919, d. 16.1. 1978, Karl, f. 21.4. 1925, d. 21.3. 1962, Guðný, f. 14.10. 1926, d. 6.7. 2008, Baldur, f. 23.3. 1928, d. 28.9. 2016. Árið 1943 kvænist Ólafur Jó- hönnu Guðrúnu Jónsdóttur, f. 29.6. 1924, d. 11.4. 2003. Börn þeirra eru: 1) Jón Magni, f. 21.8. 1943, kvæntur Sigríði H. Magn- hjá Haraldarbúð í miðbæ Reykja- víkur þar sem hann hóf feril sinn sem afgreiðslumaður. Þar kynnt- ist hann Pétri Sigurðssyni og stofnuðu þeir saman herradeild P&Ó árið 1959 og ráku þeir versl- unina saman í fjölda mörg ár. Hann gekk í frímúrararegluna 1953 og var einn af 17 stofn- félögum Lionsklúbbsins Ægis 1957 þar sem hann var sæmdur Melvin Jones-orðunni sem er æðsta viðurkenning Lionshreyf- ingarinnar. Eftir að þau hjónin fluttu til Hafnarfjarðar um sex- tugsaldurinn var eitt af hans áhugamálum garðrækt og fengu þau hjónin margar viðurkenn- ingar frá Hafnarfjarðarbæ fyrir garðinn sinn. Einnig hóf hann að mála myndir en hann hafði ungur að aldri verið í listnámi. Hann dustaði rykið af gömlu kylfunum og gekk í golfklúbbinn Keili en hann hafið á árum áður spilað golf og var hann félagi í golf- klúbbnum Keili langt fram á tí- ræðisaldurinn. Útför hans verður frá Foss- vogskirkju í dag, 8. júlí 2019, kl. 15. úsdóttur og eiga þau tvö börn og fimm barnabörn. 2) Ólaf- ur Maríus, f. 31.5. 1946, d. 12.8. 1989. Hann átti eina dótt- ur sem á tvö börn. 3) Gunnar, f. 14.6. 1950, d. 29.4. 2019, eftirlifandi eig- inkona hans er Rannveig Sturlaugs- dóttir og eiga þau fimm börn, átta barnabörn og eitt barnabarnabarn. 4) Símon, f. 29.12. 1953, kvæntur Maríu Júlíu Alfreðsdóttur og eiga þau tvo syni, þrjú barnabörn og eitt barnabarnabarn. 5) Hanna, f. 17.3. 1962, gift Einari O. Gíslasyni og eiga þau þrjá syni og þrjú barnabörn. Ólafur var fæddur og uppalinn í Reykjavík þar sem hann ólst upp ásamt fimm systkinum. Hann fór snemma að vinna fyrir sér og byrjaði aðeins 11 ára að sendast Þá er afi farinn. Hann fékk lengri tíma hér á jörðinni en flest- ir. Hann bar sig alltaf vel og kvartaði aldrei en ég veit að það hafði áhrif á lífslöngunina þegar sonur hans, pabbi minn, lést núna í lok apríl. Afi var flottur karl og fallegur maður. Hann var um árabil áber- andi í borgarlífinu sem Ó-ið í Herradeild P&Ó. Hann rak þá flottu verslun með Pétri vini sín- um í næstum 30 ár, frá 1959 til 1986. Það var alltaf gaman að koma í búðina til afa, það var mikill æv- intýraheimur að ganga inn í. Búðin var líka á besta stað í bæn- um, í Austurstræti þar sem Café Paris hefur núna verið í mörg ár. Afi og amma voru mér alltaf góð og það var hátíð í bæ þegar ég fékk að fara með Akraborg- inni í heimsókn til þeirra og gista, fyrst á Melhaga 14 þar sem þau bjuggu til 1981 og svo á Heiðvang 7 í Hafnarfirði þar sem þau bjuggu þar til amma dó 2003. Eftir að mín fjölskylda flutti í Hafnarfjörð í nágrenni við afa fyrir 18 árum vorum við oftar í sambandi en áður. Hann kom oft til okkar í mat og þá fengum við okkur oft drykk fyrir matinn og spjölluðum saman um heima og geima. Afi var skemmtilegur, það var gaman að tala við hann og það var gaman þegar hann kom í heimsókn. Afi var bóhem, en með fæturna á jörðinni. Hann hafði gaman af öllu sem var fallegt; tónlist, myndlist, fólki, fótbolta, lífinu. Hann hafði gaman af því að gera lífið og umhverfið fallegt, var handlaginn og alltaf að. Hann hætti að vinna 1986 þeg- ar hann og Pétur seldu P&Ó. Afi var 65 ára gamall og hann og amma flutt í Hafnarfjörðinn í gott hús með stórum garði. Afi ræktaði blóm í gróðurhúsinu sínu og garðurinn var hans líf og yndi í þau rúm 20 ár sem þau bjuggu þar. Afi sá um garðinn, amma var að mestu í öðru, og Hafnarfjarð- arbær verðlaunaði þau nokkrum sinnum fyrir garðinn glæsilega. Hann tók líka upp á því eftir að hann var fluttur í fjörðinn að mála myndir, en sem ungur mað- ur langaði hann að verða mynd- listarmaður Hann sótti námskeið og málaði, en örlögin höguðu því þannig að lítið varð úr því fyrr en hann var kominn á sjötugsaldur og hættur að vinna. Í bílskúrnum hlustaði hann á músík og málaði. Fyrstu myndlistarsýninguna hélt hann eftir að hann varð áttræður og þá síðustu á Hrafnistu núna á þessu ári. Hugurinn var eld- skarpur til síðasta dags. Við fórum stundum saman á tónleika ég og afi eftir að hann varð fullorðinn. Við fórum á Blúshátíð, jólatónleika Borgar- dætra, Van Morrison í Laugar- dalshöllinni og eitt og annað og alls staðar vakti hann athygli þessi fullþroskaði flotti og vel klæddi gaur, hrókur alls fagnað- ar. Hann hafði yndi af músík og spilaði á gítar þegar hann var ungur maður með hljómsveit sem hét Hawaii-kvartettinn og þar voru með honum menn eins og Ólafur Gaukur og Haukur Mort- hens. Afi var líka golfari þangað til fyrir tveimur til þremur árum. Var nú ekki góður sagði hann, en fannst gaman og golfið og fé- lagsskapurinn gerðu honum gott. Afi var ekki bara afi minn, við vorum nefnilega vinir, góðir vinir og nú er afi vinur minn farinn. Takk fyrir allt spjallið og sam- veruna. Ólafur Páll Gunnarsson. Afi Óli var mikið uppáhald. Góður, skemmtilegur og hlýr. Hann var okkur afar kær og mik- ilvægur. Góður afi og langafi sem kom oft í mat þau 18 ár sem við bjuggum í Hafnarfirði. Hann sagði sögur, gerði galdur, fékk sér gjarnan einn drykk fyrir kvöldmat og kaffi og súkku- laðimola í eftirrétt og spjallaði við okkur um heima og geima. Það var fastur liður að fá hann til okkar í hádeginu á aðfangadag í möndlugraut. Hátíðleg og mjög jólaleg stemning því eftir mat söng hann alltaf Heims um ból og Óli Páll spilaði undir á gítar. Aðdáunarvert að horfa á og hlusta. Þetta var fastur liður al- veg þangað til að við fluttum á Akranes fyrir tæpum tveimur ár- um. Góðir tímar og góðar minn- ingar fylgja. Óli var góður afi sem hafði áhuga á að heyra hvað börnin okkar væru að gera og hvernig þeim liði, sem sagt lang- afa börnin hans. Spurði þau spjörunum úr og var inni í þeirra helstu málum, meira að segja ástamálum. Hann hafði stál minni og fylgdi gjarnan eftir mál- um næst þegar hann kom í heim- sókn. Hann knúsaði og hrósaði þeim óspart. Óli Mar og Óli Páll voru nánir vinir og bauð sá yngri hinum eldri stundum með sér á tónleika, gjarnan djass sem var hans uppáhald. Ég minnist afa Óla og ömmu Gullu með hlýju í hjarta, blómahafi og gleði. Hvíl í friði, elsku vinur, og takk fyrir kærleik og góða vináttu. Stella María Arinbjargardóttir. Ólafur Maríusson var einn af 17 félögum sem stofnuðu Lions- klúbbinn Ægi hinn 6. mars 1957 og var því stofnfélagi klúbbsins. Ólafur var til margra ára einn af ötulustu sjálfboðaliðum í klúbbn- um og Lionshreyfingunni. Hann tók meðal annars þátt í myndar- legri uppbygginu Lionsklúbbsins Ægis á Sólheimum í Grímsnesi um árabil, bæði með því að safna fé til þeirra góðu verka og ekki síður í fjölda sjálfboðaliðaferða til Sólheima þar sem hendur voru látnar standa fram úr ermum og verkin látin tala. Ólafur var í far- arbroddi klúbbfélaga við að koma á legg einni öflugustu fjáröflun klúbbsins fyrr og síðar, en það var hið rómaða kútmagakvöld Lionsklúbbsins Ægis sem haldið hefur verið óslitið síðan við góðan orðstír í rúm sextíu ár. Á þessu kútmagakvöldi hafa safnast í gegnum árin miklir fjármunir sem notaðir hafa verið til góðra verka, t.d. á Sólheimum, Grens- ásdeild Landspítalans og svo mætti lengi telja. Jafnframt því að vera einn aðalhvatamaður að kútmagakvöldinu sjálfu þótti Ólafur einnig ómissandi á skemmtikvöldum klúbbsins því hann var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi, svo eftir var tek- ið. Ólafur var ritari Lionsklúbbs- ins Ægis árin 1968-1969 og einnig var hann formaður klúbbsins árin 1973-1974. Ólafur var handhafi Melvin Jones-orðunnar, sem er æðsta viðurkenning sem hver Lionsfélagi getur hlotið, og auk þess var hann gerður að ævi- félaga í Lionsklúbbnum Ægi í virðingarskyni fyrir fórnfús störf sín í þágu klúbbsins og skjólstæð- inga hans. Við eftirlifandi og starfandi félagar í Lionsklúbbn- um Ægi hugsum með hlýhug til þessa merka stofnfélaga klúbbs- ins okkar og færum fjölskyldu hans og aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. Lionsklúbbsins Ægis, Rúnar Örn Rafnsson, formaður. Ólafur Maríusson ✝ Pálmar ÁrniSigurbergsson fæddist í Reykjavík 3. apríl 1940. Hann lést á Landspít- alanum 19. júní 2019. Foreldrar hans voru þau Sig- urbergur Árnason forstjóri og Lydía Pálmarsdóttir, hús- freyja í Reykjavík. Bræður Pálmars eru Ólafur Viggó endurskoð- andi, f. 1943, Grétar geðlæknir, f. 1946, og Friðrik barnalæknir, f. 1957. Pálmar eignaðist tvö börn með Guðnýju Kristjönu Pálmarsdóttur, f. 1939, Vilberg, f. 1956, og Lydíu, f. 1957. Pálm- ar kvæntist Kristrúnu Jóns- dóttur, f. 22.1. 1942. Þau eign- uðust tvö börn, Ágústínu Guðrúnu, f. 10.3. 1959, og Einar Berg, f. 16.1. 1961. Þau Krist- rún skildu. Pálmar kvæntist á ný árið 1967, Auði Péturs- dóttur, f. 16.7. 1942. Dóttir þeirra er Unnur, f. 4.2. 1979. Pálmar og Auður skildu. Eftirlifandi eig- inkona Pálmars er Jóhanna Snorra- dóttir, f. 15.7. 1942. Pálmar átti ellefu barnabörn. Pálmar lauk verslunarprófi frá Verslunarskól- anum í Reykjavík. Hann stundaði einnig nám í pí- anóleik við tónlistarskólann. Hann lærði hljóðfærasmíð og stillingar hjá afa sínum, Pálm- ari Ísólfssyni, og fór að því loknu til frekara náms í hljóð- færasmíð í Svíþjóð og Þýska- landi. Að því loknu stofnaði hann eigið fyrirtæki, Hljóð- færaverslun Pálmars Árna ehf., og starfaði þar alla tíð til ársins 2017. Útför Pálmars fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 8. júlí, klukkan 13. Faðir minn var einstakur tón- listarmaður. Hann var lærður hljóðfærasmiður og rak um ára- bil Hljóðfæraverslun Pálmars Árna. Einnig rak hann orgel- skóla, þar sem kennt var á raf- magnsorgel. Hann var mikill smekkmaður bæði á tónlist, myndlist og þegar hann var yngri fylgdist hann mjög vel með tískunni. Ég man eftir honum í bítlafötum með engum kraga og ökklastígvélum, sem var algjör nýlunda. Pabbi var mikill húmoristi og gleðigjafi og hló dátt að því sem honum fannst spaugilegt. Við hjónin nutum þeirra for- réttinda að sækja tónleika með pabba og Jóhönnu með Sinfón- íuhljómsveitinni í áraraðir. Var síðan farið heim og drukkið kaffi og haldið áfram að tala um tón- leikana. Pabbi hlustaði mikið á tónlist, bæði djass, blúss og sí- gilda. Hann spilaði á flygilinn sinn á hverjum degi og jólalögin byrjuðu að hljóma strax í byrjun desember. Elsku pabbi, ég og fjölskylda mín erum búin að halda jól og áramót saman í yfir 30 ár. Þín verður sárt saknað. Hvíl í friði. Ágústína Guðrún Pálmarsdóttir. Eftir fráfall Pálmars Árna Sigurbergssonar, tengdaföður míns, koma margar góðar minn- ingar fram í hugann. Eftirminnilegar samveru- stundir allt árið og hátíðlegar um jól og áramót. Pálmar var mikill sælkeri og fagurkeri. Tónlistin skipaði alltaf háan sess hjá honum en Pálmar rak Hljóðfæraverslun Pálmars Árna í áratugi með fullri þjón- ustu, enda menntaður hljóðfæra- smiður. Fjöldinn allur af gömlum dýrgripum, hljóðfærum sem hann gerði eins og ný, ber vott um handbragð hans. Við hjónin nutum þess að fara með honum og Jóhönnu, eigin- konu hans á fjölda tónleika heima og erlendis. Pálmari var boðið fyrir nokkr- um árum í 100 ára afmæli til Bö- sendorf í Leipzig. Bauð hann mér með í þá frábæru tónlist- arveislu. Eigendur þessa heims- þekkta fyrirtækis báru mikla virðingu fyrir Pálmari. Skoðuðum við Tómasarkirkj- una sem er tengd tónlistarsögu heimsins órjúfanlegum böndum. Orgelið þar er magnað að fegurð og gæðum en frændi Pálmars, Páll Ísólfsson, var þar aðstoðar- organleikari í tvö ár. Á fimmtugsafmæli Pálmars bauð hann til veislu á Manor House, hótelinu í Torquay, Eng- landi. Einstök og ógleymanleg gleðiferð. Einnig ferð um landið fyrir ófáum árum. Nutum við kvöldverðar á veitingastað á Ak- ureyri. Spilað var á píanó undir borðhaldinu og takmörkuð hrifn- ing var hjá gestum yfir lagaval- inu. Eftir að undirleikari til- kynnti hlé var ekkert klappað. Pálmar stóð þá upp og settist við píanóið og spilaði flott lög með djasssveiflu. Vel var klappað eft- ir það. Takk, Pálmar, fyrir allar góðu gleðistundirnar. Sigurður Örn Sigurðarson. Pálmar og mamma kynntust árið 1982. Þegar við sáum hann fyrst var það á sólríkum sum- ardegi í Akraselinu og Ítalir og Þjóðverjar að keppa til úrslita í heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu. Hann var klæddur í ljósblá föt í nýlenduherrastíl og á hvítum skóm. Var það í fyrsta skipti sem við sáum karlmann á hvítum skóm. Pálmar var mikill fagurkeri og hafði yndi af fal- legum fötum og myndlist en mest yndi hafði hann af tónlist. Pálmar flutti fljótlega inn til mömmu og þau gengu í hjóna- band árið 1983 og höfðu verið saman í þrjátíu og sjö ár þegar hann var hrifinn á brott frá henni svo snögglega 19. júní sl. Í þeirra hjónabandi skiptust á skin og skúrir eins og gengur og gerist, en milli þeirra var sterkur þráður, kærleikur sem fyrirgaf allt. Þau skemmtu sér vel saman og höfðu ávallt um sitthvað að spjalla. Þau höfðu bæði vænan skammt af kímnigáfu og höfðu gaman af því að stríða hvort öðru í glettni. Pálmar ferðaðist mörg sumur hringinn um landið til að stilla hljóðfæri og mamma var oft með honum í för. Hún fylgdist með full aðdáunar þegar hann sat við hljóðfærin, stillti og gerði við. Enginn var betri hljóðfærasmið- ur í hennar augum en Pálmar og sagði hún sögur af illa leiknum flyglum í félagsheimilum vítt og breitt um landið, sem hann hafði með töfrum blásið nýju lífi í. Pálmar kom inn í líf okkar systra þegar við vorum á ung- lingsaldri, sem var á stundum erfitt. Oft var þó glatt á hjalla og mestu skipti að móðir okkar hafði valið Pálmar til að eyða líf- inu með. Þau ferðuðust mikið, sérstaklega framan af. Fóru í eftirminnilega ferð til Moskvu og oftsinnis til Bretlandseyja og var Jersey þeim sérstaklega kær. Pálmar keypti þá falleg föt á mömmu, sem hún á enn. Níu barnabörn mömmu köll- uðu Pálmar ávallt afa og Hró- bjartur og Álfdís börn Elfu Bjarkar voru mikið hjá ömmu og afa Pálmari, deildu með þeim jól- um til fullorðinsára, kíktu oft í heimsókn og fengu þau hjón ávallt til að hlæja. Pálmari þótti vænt um „barnabörnin“ og var að rifna úr stolti þegar Hrói út- skrifaðist úr lögregluskólanum um árið. Dætur Bergdísar, Sal- vör og Katla, tóku miklu ástfóstri við afa sinn og dvöldu löngum stundum á Nýbýlaveginum, eld- uðu fyrir þau hjón mat, sem þeim þótti stundum framandi en alltaf góður. Þau voru ófá myndskeiðin sem við fengum send af Pálmari við flygilinn að taka nokkur létt og leikandi lög. Hvergi leið hon- um betur en einmitt þar, við flyg- ilinn við gluggann, umkringdur málverkum af ýmsu tagi með þakkláta áheyrendur í stofunni. Pálmar fór snögglega og öll- um að óvörum, sérstaklega móð- ur okkar. Hún sagði hann of þrjóskan til að gefast upp fyrir dauðanum. Hennar harmur er mikill, hún hefur misst lífsföru- naut sinn og besta vin. Samúðarkveðjur til allra þeirra sem syrgja hann. Bergdís, Elfa Björk og Elín Jóhönnudætur. Hann Pálmar, bróðir minn, er látinn. Hann sem var svo ánægð- ur að hafa komist á spítalann nokkrum dögum áður. Hann hafði fengið andarteppu heima og hafði verið ráðlagt að fara á spítalann ef það gerðist. Honum leið vel þar og var á góðum bata- vegi, þegar hann varð fyrir því óláni að detta á spítalaganginum og mjaðmarbrotna. Það reyndist vera meira en líkaminn þoldi, enda hafði hann um alllangt ára- bil aðeins notast við eitt lunga. Hitt hafði verið fjarlægt vegna krabbameins. Þrátt fyrir þá fötl- un hafði Pálmar verið það sprækur, að maður átti til að gleyma því að hún væri til stað- ar. Hann fór allra sinna ferða um borgina á bíl sínum og gekk upp og niður langar tröppur og stiga heima fyrir til að bera björg í bú og lét engan bilbug á sér finna. Inn á milli reyndi hann eftir megni að sinna starfi sínu. Heima fyrir sá hann oftast um matseldina og flest annað, enda var hans ágæta eiginkona, Jó- hanna, ekki heil heilsu hin síðari ár. Pálmar var elstur okkar fjög- urra bræðra. Foreldrar okkar, Lydía Pálmarsdóttir og Sigur- bergur Árnason, bjuggu á Mím- isveginum þegar hann fæddist. Nokkrum árum síðar flutti fjöl- skyldan í Eskihlíð 5. Foreldrar okkar voru gott og trúrækið fólk og ólumst við bræður upp við kristilegt og gott atlæti og virð- ingu fyrir þeim, sem minna máttu sín í samfélaginu. Oft var af þeim sökum mannmargt heima, ekki síst á matartímum. Snemma kom í ljós að Pálmar var afar músíkalskur og var sett- ur í Tónlistarskólann, þar sem afabróðir hans, Páll Ísólfsson, var skólastjóri. Sóttist honum námið einkar vel. Í KFUM, þar sem faðir okkar spilaði á orgelið undir sálmasöng unglingadeild- arinnar, spilaði Pálmar iðulega á flygilinn, föður sínum til samlæt- is. Síðar lærði Pálmar píanósmíð og -stillingar hjá afa sínum, Pálmari Ísólfssyni. Í framhaldi af því fór hann til frekara náms í Stokkhólmi og síðan Ludvigs- burg í Þýskalandi. Pálmar var einkar laghentur og sóttist nám- ið vel. Með tímanum opnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Hljóðfæra- verslun Pálmars Árna, og virtist allt ætla að ganga honum í hag- inn. Pálmar var ætíð mjög létt- lyndur og fyndinn, að okkur bræðrum hans fannst, heima fyr- ir, á uppvaxtarárunum. En þegar gelgjuskeiðið tók að herja á hann, virtist stundum, sem hann hefði mætt ofjarli sínum. Hann lenti er frá leið í vaxandi tilfinn- ingalegum erfðleikum, sem höfðu truflandi áhrif, ekki bara á líf hans sjáfs, heldur, því miður, stundum einnig þeirra sem síst skyldi. Honum tókst ekki að stilla sína sálastrengi að ráði fyrr en seinna á ævinni. Pálmar var alla tíð mjög vin- margur og vinsæll heim að sækja. Það sást best á píanó- verkstæðinu. Það brást varla, þegar ég heimsótti hann þar, að þar sætu fyrir vinir hans og kunningjar að spjalli. Við Pálmar urðum góðir vinir og félagar með árunum. Tónlist- in sameinaði okkur. Ég lærði margt af honum. Fyrir það verð ég honum ævinlega þakklátur. Þá vil ég ekki síður þakka Jó- hönnu fyrir að hafa umborið mín- ar tíðu heimsóknir og bið góðan Guð að styðja hana og styrkja á þessum erfiðu tímamótum. Grétar Sigurbergsson. Pálmar Árni Sigurbergsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.