Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 Sumar Sólelskandi höfuðborgarbúar sýndu dagstjörnunni lotningu sína í Nauthólsvík um helgina í stað þess að æða til útlanda og var það býsna klókt því það sást varla ský á himni í Reykjavíkurborg. Arnþór Birkisson Fiskimiðin, landið og orkan eru þeir þættir sem skapa fyrst og fremst þá möguleika að við get- um skapað okkur það viðurværi að hér á landi er öflug þjóð í gjöfulu landi. Það snertir okkur því flest djúpt hvernig er haldið á málum og umgjörð nýtingar og meðferðar þessara gjafa er fyrir komið. Við deilum um tilgang og gildi staðfestingar á orkupakka 3. Rót er á umræðunni og þingmálinu að mörgu leyti ætlað að vera eitthvað annað en það í raun og veru er. En einu ber að fagna – orkumál í sinni breiðustu mynd hafa fengið verðskuldaða athygli og áhuginn aukist . Umræða um orkupakka snertir þá grundvallarþætti sem tengja okkur saman sem þjóð. Rétt eins og landhelgin og sjálfbær nýting hennar, eignarhald á landi, bú- jörðum og náttúruperlum lands- ins. Yfirráð yfir orkunni eru okkur heilög. Það er því al- vörumál að vera ætlað að vilja framselja yfirráð og eignarhald á orkuauðlindum landsins. Ekkert er fjær okkur. Rót umræðunnar liggur ekki síst í hvernig við höfum hér áður innleitt svo nefnda orkupakka. Aðskilnaður á flutn- ingi og framleiðslu orku varð hér á árunum eftir 2003. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Guðjón Guð- mundsson, var einn þeirra sem vöruðu við þeirri vegferð. Segja má að flest hans viðvörunarorð hafi ræst. Þannig er veruleikinn sá að flutningur rafmagns hefur stórhækkað í verði. Leiða má líkur að því að við höfum áður verið lítt meðvituð um kostnað um upp- byggingu dreifikerfis og rekstur þess. Greiddum bara einn orku- reikning. Veruleikinn er sagna bestur og reynslan. Dreifbýlisnot- andi rafmagns hjá Rarik hefur séð reikning vegna flutnings á raf- magni frá árinu 2005-2018 hækka um 108% meðan almennt verðlag hækkaði um 45%. Þrátt fyrir að á sama tíma hafi niðurgreiðslur til jöfnunar á flutningskostnaði úr ríkissjóði hækkað um liðlega 300%. Er því ekki að undra að van- traust sé á enn einum orkupakk- anum. Það er því fagnaðarefni að iðn- aðarráðherra hefur þegar hafið vinnu til að vinda ofan af því mis- rétti á milli landsmanna sem inn- leiðing á orkupakka 1 og 2 var. Það er almennur stuðningur við að allir landsmenn njóti þess að hafa sambærilegan aðgang að orku- framleiðslunni. Að því verður að vinna og er kannski ein helsta nið- urstaða umræðunnar undanfarna mánuði um orkumál. Tenging við raforkukerfi ann- arra landa er afdrifarík. Góð þekking er á hvernig orkureikn- ingar heimila í nágrannalöndum okkar hafa hækkað gríðarlega. Það er von að ótti sé við slíka þró- un hér. Tenging um sæstreng er því grundvallarmál og mun því verða forsendubreyting. Það gildir einu þó að sagt sé í opinberri um- ræðu að Ísland hafi burði til að jafna slíkan kostnað fyrir neyt- endur – reynslan er önnur. Sú hugmynd er hér sett fram að áskilja það í innleiðingu orku- pakka 3 að setja lagaákvæði um að slík tenging verði aðeins með samþykki þjóðarinnar í sérstakri atkvæðagreiðslu. Sæstrengur og bygging grunntengivirkja fyrir slíka tengingu verði því aðeins að meirihluti landsmanna samþykki það í atkvæðagreiðslu. Umræða um eignarhald á bú- jörðum og landsvæðum er önnur umræða sem einnig verður að taka. Um það er meiri stuðningur en áður að búa lagaumgjörð með þeim hætti að eignarhald jarða verði af ábyrgð og til byggðafestu. Ríkið er stærsti einstaki eigandi bújarða. Það færi vel á því að hefja nú átak í sölu ríkisjarða undir merkjum nýrrar stefnu í eignarhaldi á bújörðum. Stefnu sem styrkir byggð og búsetu, því blómlegar byggðir eru helsta að- dráttarafl landsins. Fjármunum af sölu ríkisjarða mætti ráðstafa til eflingar á heil- brigðisstofnunum um land allt, sem margar hverjar hafa nú þurft að þola takmarkað viðhald og end- urbætur á húsum og tækjakosti. Uppbyggingu á nútímalegri heil- brigðisþjónustu sem er nær fólki en skapar öllum aðgang að fær- ustu sérfræðingum. Þar höfum við vart enn nýtt bestu tækni sem auðveldar slíkt aðgengi og gerir þjónustuna hagkvæmari. Þessi mál eru nefnilega öll sam- ofin í vitund okkar sem viljum efla byggð og fullveldi okkar. Nýting og yfirráð landhelginnar, yfirráð og eignarhald á landi og ekki síst full yfirráð yfir orkuauðlindum okkar. Eftir Harald Benediktsson » Sæstrengur og bygging grunn- tengivirkja fyrir slíka tengingu verði því að- eins að meirihluti lands- manna samþykki það í atkvæðagreiðslu. Haraldur Benediktsson Höfundur er 1. þingmaður NV kjördæmis. Það sem gerir okkur að þjóð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.