Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019
Sumar Sólelskandi höfuðborgarbúar sýndu dagstjörnunni lotningu sína í Nauthólsvík um helgina í stað þess að æða til útlanda og var það býsna klókt því það sást varla ský á himni í Reykjavíkurborg.
Arnþór Birkisson
Fiskimiðin, landið
og orkan eru þeir
þættir sem skapa
fyrst og fremst þá
möguleika að við get-
um skapað okkur það
viðurværi að hér á
landi er öflug þjóð í
gjöfulu landi. Það
snertir okkur því flest
djúpt hvernig er
haldið á málum og
umgjörð nýtingar og meðferðar
þessara gjafa er fyrir komið.
Við deilum um tilgang og gildi
staðfestingar á orkupakka 3. Rót
er á umræðunni og þingmálinu að
mörgu leyti ætlað að vera eitthvað
annað en það í raun og veru er.
En einu ber að fagna – orkumál í
sinni breiðustu mynd hafa fengið
verðskuldaða athygli og áhuginn
aukist .
Umræða um orkupakka snertir
þá grundvallarþætti sem tengja
okkur saman sem þjóð. Rétt eins
og landhelgin og sjálfbær nýting
hennar, eignarhald á landi, bú-
jörðum og náttúruperlum lands-
ins. Yfirráð yfir
orkunni eru okkur
heilög. Það er því al-
vörumál að vera ætlað
að vilja framselja
yfirráð og eignarhald
á orkuauðlindum
landsins. Ekkert er
fjær okkur.
Rót umræðunnar
liggur ekki síst í
hvernig við höfum hér
áður innleitt svo
nefnda orkupakka.
Aðskilnaður á flutn-
ingi og framleiðslu orku varð hér
á árunum eftir 2003. Þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, Guðjón Guð-
mundsson, var einn þeirra sem
vöruðu við þeirri vegferð. Segja
má að flest hans viðvörunarorð
hafi ræst. Þannig er veruleikinn
sá að flutningur rafmagns hefur
stórhækkað í verði. Leiða má líkur
að því að við höfum áður verið lítt
meðvituð um kostnað um upp-
byggingu dreifikerfis og rekstur
þess. Greiddum bara einn orku-
reikning. Veruleikinn er sagna
bestur og reynslan. Dreifbýlisnot-
andi rafmagns hjá Rarik hefur séð
reikning vegna flutnings á raf-
magni frá árinu 2005-2018 hækka
um 108% meðan almennt verðlag
hækkaði um 45%. Þrátt fyrir að á
sama tíma hafi niðurgreiðslur til
jöfnunar á flutningskostnaði úr
ríkissjóði hækkað um liðlega
300%.
Er því ekki að undra að van-
traust sé á enn einum orkupakk-
anum.
Það er því fagnaðarefni að iðn-
aðarráðherra hefur þegar hafið
vinnu til að vinda ofan af því mis-
rétti á milli landsmanna sem inn-
leiðing á orkupakka 1 og 2 var.
Það er almennur stuðningur við að
allir landsmenn njóti þess að hafa
sambærilegan aðgang að orku-
framleiðslunni. Að því verður að
vinna og er kannski ein helsta nið-
urstaða umræðunnar undanfarna
mánuði um orkumál.
Tenging við raforkukerfi ann-
arra landa er afdrifarík. Góð
þekking er á hvernig orkureikn-
ingar heimila í nágrannalöndum
okkar hafa hækkað gríðarlega.
Það er von að ótti sé við slíka þró-
un hér. Tenging um sæstreng er
því grundvallarmál og mun því
verða forsendubreyting. Það gildir
einu þó að sagt sé í opinberri um-
ræðu að Ísland hafi burði til að
jafna slíkan kostnað fyrir neyt-
endur – reynslan er önnur.
Sú hugmynd er hér sett fram að
áskilja það í innleiðingu orku-
pakka 3 að setja lagaákvæði um
að slík tenging verði aðeins með
samþykki þjóðarinnar í sérstakri
atkvæðagreiðslu. Sæstrengur og
bygging grunntengivirkja fyrir
slíka tengingu verði því aðeins að
meirihluti landsmanna samþykki
það í atkvæðagreiðslu.
Umræða um eignarhald á bú-
jörðum og landsvæðum er önnur
umræða sem einnig verður að
taka. Um það er meiri stuðningur
en áður að búa lagaumgjörð með
þeim hætti að eignarhald jarða
verði af ábyrgð og til byggðafestu.
Ríkið er stærsti einstaki eigandi
bújarða. Það færi vel á því að
hefja nú átak í sölu ríkisjarða
undir merkjum nýrrar stefnu í
eignarhaldi á bújörðum. Stefnu
sem styrkir byggð og búsetu, því
blómlegar byggðir eru helsta að-
dráttarafl landsins.
Fjármunum af sölu ríkisjarða
mætti ráðstafa til eflingar á heil-
brigðisstofnunum um land allt,
sem margar hverjar hafa nú þurft
að þola takmarkað viðhald og end-
urbætur á húsum og tækjakosti.
Uppbyggingu á nútímalegri heil-
brigðisþjónustu sem er nær fólki
en skapar öllum aðgang að fær-
ustu sérfræðingum. Þar höfum við
vart enn nýtt bestu tækni sem
auðveldar slíkt aðgengi og gerir
þjónustuna hagkvæmari.
Þessi mál eru nefnilega öll sam-
ofin í vitund okkar sem viljum efla
byggð og fullveldi okkar. Nýting
og yfirráð landhelginnar, yfirráð
og eignarhald á landi og ekki síst
full yfirráð yfir orkuauðlindum
okkar.
Eftir Harald
Benediktsson » Sæstrengur og
bygging grunn-
tengivirkja fyrir slíka
tengingu verði því að-
eins að meirihluti lands-
manna samþykki það í
atkvæðagreiðslu.
Haraldur Benediktsson
Höfundur er 1. þingmaður NV
kjördæmis.
Það sem gerir okkur að þjóð