Morgunblaðið - 08.07.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.07.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a 595 1000 tur br ey st án fyr irv ar a. Verona g y 17. október í 4 nætur 119.595 Borg frægustu elskenda allra tíma, Rómeó og Júlíu. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Grunur um fleiri E. coli-sýkingar  Annað barnanna sem lögð voru inn vegna alvarlegrar sýkingar er útskrifað Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Grunur leikur á að fleiri séu smit- aðir af E. coli-bakteríu sem valdið getur blóðugum niðurgangi og í al- varlegum tilfellum nýrnabilun og blóðleysi. Þetta staðfestir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Fjögur börn á aldrinum fimm mánaða til sjö ára greindust með al- varlega sýkingu af völdum bakterí- unnar og voru tvö þeirra lögð inn á Barnaspítala Hringsins síðastliðinn fimmtudag, alvarlega veik og með nýrnabilun. Annað barnið var út- skrifað síðastliðinn föstudag. „Það er verið að leita víðar núna. Þegar við förum að leita meira þá förum við að finna meira en það er enginn sem er svona veikur eins og þessi börn,“ segir Þórólfur. Uppsprettan í Bláskógabyggð Spurður hvort fleiri hafi smitast svo staðfest sé segir Þórólfur: „Það er verið að kanna það en það liggur ekki alveg ljóst fyrir.“ Aðallega eru það börn sem eru talin smituð enda eru þau viðkvæm- ari fyrir bakteríunni og veikjast frekar af hennar völdum en full- orðnir. Uppruni smits barnanna sem sýktust er talinn vera í Bláskóga- byggð í Árnessýslu og eru önnur möguleg tilvik einnig þaðan. „Við vinnum eftir því að þetta sé ein uppspretta,“ segir Þórólfur. Enn er óljóst hvaðan smitið kem- ur nákvæmlega en unnið er að því að greina það. Fólk getur smitast af bakteríunni með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða úrgang dýra. Gæti haft varanleg áhrif Eins og áður sagði liggur eitt barnanna enn á Barnaspítala Hrings- ins. Viðar Örn Eðvarðsson, læknir á spítalanum, segir að meðferðin gangi vel. „Þetta gengur samkvæmt áætlun eins og við má búast. Þetta er hættulegur sjúkdómur sem er verið að meðhöndla og það gengur vel.“ Spurður hvort sýkingin muni hafa varanleg áhrif á heilsu barnanna segir Viðar: „Flestir ná sér vel en það er ekki útilokað að nýrnastarfsemin geti verið eitthvað skert þegar frá líður. Það er ómögulegt að segja á þessu stigi málsins og það verður bara að fá að koma í ljós. Við munum fylgja börnunum vel eftir.“ Aðhaldsaðgerðir eru áætlaðar á Landspítalanum og eru þær að hluta til hafnar, samkvæmt forstjórapistli Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans, sem birtist síðastliðinn fimmtudag. Í pistlinum segir að þrátt fyrir að fjárframlög til heilbrigðisþjónust- unnar hafi aukist séu þau „ekki í samræmi við þá hratt vaxandi þjón- ustuþörf sem við þurfum að mæta“. Af þeim sökum séu nú hafnar að- gerðir „í því augnamiði að draga úr rekstrarkostnaði og horfum [við] sérstaklega til tækifæra sem liggja í öflugu umbótastarfi spítalans og annarra leiða að sama markmiði,“ segir í pistli Páls. Þessar aðhaldsaðgerðir felast í því að ekki verði ráðist í ný verkefni nema fjármögnun sé tryggð, niður- skurði á ferðakostnaði, endurskoðun á yfirvinnu og að ekki verði ráðið í nýjar stöður „nema þar sem brýn klínísk þörf krefur. Þá er unnið er að því að tryggja að ábyrgð og ákvarðanir fari saman og að skýr fjármálaáætlun styðji við reksturinn“, segir í pistli Páls. Einnig segir Páll að tækifæri til hagræðingar séu fólgin í endurröð- un innan skipurits Landspítalans. „Þá er unnið að því að tryggja að ábyrgð og ákvarðanir fari saman og að skýr fjármálaáætlun styðji við reksturinn,“ segir í pistli Páls. Páll segir að fleira muni koma til en nánari útfærsla á hagræðingunni sé væntanleg í ágústmánuði. Í pistlinum tekur Páll fram að reynt verði að komast hjá því að láta hagræðinguna bitna á sjúklingum. Hagræðing mikilvæg „Leiðarljós í slíkri vinnu sem og annarri hér á spítalanum er að sjúk- lingar eru í öndvegi og því sjáum við fyrir okkur að aðhaldsaðgerðir verði mestar í öðrum rekstrarþáttum en beinni klínískri þjónustu.“ Páll segir takmörkun kostnaðar nauðsynlega í heilbrigðiskerfinu og að best gangi þegar einblínt er á skilvirkni og dregið sé úr sóun. „Með þessari aðferðafræði hefur okkur einnig tekist að draga úr kostnaði á ýmsum sviðum og það er mikilvægt í því umhverfi sem við störfum í.“ ragnhildur@mbl.is Rekstrarhagræðing fyrirhuguð á Landspítala  Niðurskurður á ferðakostnaði og yfirvinna endurskoðuð Páll Matthíasson Dómstólasýslan hefur áhyggjur af stöðu Lands- réttar á meðan rétturinn er ekki fullskipaður en málsmeðferðar- tími hans heldur áfram að lengj- ast. Greint var frá þessu í fréttum Stöðvar tvö og RÚV um helgina. Síðan Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið rétt staðið að skipan dómara við réttinn hafa fjórir dómarar af fimmtán ekki ver- ið við störf. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir dómsmálaráðherra útilokar ekki að dómarar verði settir tíma- bundið við Landsrétt eða viðbót- ardómarar skipaðir til að vinna á uppsöfnuðum málafjölda. Skrifstofustjóri Landsréttar hef- ur sagt að ófremdarástand muni skapast innan skamms þar sem ell- efu dómarar hafi ekki undan og tæp 500 mál verði óafgreidd um næstu áramót. ragnhildur@mbl.is Fjölgar mögulega dómurum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir  Um 500 mál óaf- greidd um áramótin Færri fengu snæðing en vildu á matarmark- aðnum í Laugardalnum um helgina en maturinn kláraðist hjá flestum söluaðilum tveimur tímum fyrir lokun á laugardaginn vegna mikillar að- sóknar. Hinir sársvöngu kúnnar máttu því bíða með að smakka á lystugum kræsingum mark- aðarins til hádegis daginn eftir. Markaðurinn verður haldinn aftur um næstu helgi. Ætli þá verði nóg til að bíta og brenna? Maturinn kláraðist tveimur tímum fyrir lokun Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Gestir matarmarkaðarins röðuðu í sig veitingum 9.092 skattgreiðendur eiga inneign hjá ríkisskattstjóra sem nemur um 500 milljónum króna. Er ástæðan fyrir þessu sú að embættið er ekki með bankaupplýsingar hjá viðkom- andi og getur þar af leiðandi ekki lagt inn peningana. Frá þessu var greint á mbl.is í gær. Er þetta að- eins tölfræði fyrir höfuðborgar- svæðið, þar sem þeir sem búa er- lendis eru jafnframt skráðir. 7.761 gjaldandi er einstaklingur en 1.159 þeirra eru lögaðilar. Tæp- lega helmingur einstaklinganna er búsettur erlendis og 919 þeirra eru látnir og inneignin því í eigu dánar- búsins. Í pósti embættisins til mbl.is seg- ir að ríkisskattstjóri sé, í samstarfi við Fjársýslu ríkisins og Stafrænt Ísland, að vinna í að gjaldendum sem eigi inneign hjá ríkissjóði sé gert viðvart. 500 milljónir ósótt- ar hjá skattinum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.