Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 4

Morgunblaðið - 08.07.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 Er heitt í vinnunni? Þín eigin skrifborðs- kæling! Á vinnustað eða hvar sem er! Kæli-, raka- og lofthreinsitæki, allt í einu tæki. Hægt að tengja bæði við rafmagn eða USB tengi. Verð aðeins kr. 24.900 m.vsk. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reynir Árnason, framkvæmdastjóri Póst- markaðarins, telur ákvörðun Póst- og fjar- skiptastofnunar (PFS) um að taka til greina 1,5 milljarða bótakröfu Íslandspósts setta fram „í pólitískum tilgangi“. Markmiðið sé „að reyna að réttlæta að stjórnvöld bjargi fyrirtækinu úr þeirri þröngu stöðu sem stjórnendur og stjórn þess höfðu komið því í“. Fjallað var um ákvörðun PFS í Morg- unblaðinu á laugardag. Sá hluti bótakröfu Íslands- pósts sem PFS tók til greina varðar erlendar sendingar Íslandspósts (ÍSP) 2013-2017. Reynir segir bæturnar ekki eiga sér lagastoð. „Það er ljóst að ákvörð- un PFS um greiðslu úr tómum jöfnunarsjóði [al- þjónustu] getur ekki stað- ið, enda engin heimild að lögum fyrir afturvirku fjárframlagi úr jöfn- unarsjóði alþjónustu. Í ljósi þess hversu aug- ljóst það er að ákvörðun PFS er ólögmæt er mikilvægt að hafa í huga þá hagsmuni sem stofnunin kann að hafa af niðurstöðu hennar,“ segir Reynir. Eftirlit PFS til skoðunar „Það liggur fyrir að samgönguráðuneytið er með til skoðunar hvernig PFS hefur sinnt eftirliti með ÍSP vegna alvarlegrar fjárhags- stöðu fyrirtækisins. Slæma fjárhagsstöðu má samkvæmt gögnum málsins rekja til gjald- skrár alþjónustu sem PFS bar lögum sam- kvæmt að hafa eftirlit með og framfylgja að hún uppfyllti skilyrði 4. mgr. 16. gr. laga um póstþjónustu. PFS kaus hins vegar að sitja með hendur í skauti meðan ÍSP stefndi hrað- byr í þrot. Þótt fjárhagsvanda ÍSP megi rekja til slæmra ákvarðana stjórnar ÍSP þá hefði virkt eftirlit komið í veg fyrir að stjórn og stjórnendur ÍSP kæmu ríkisfyrirtækinu í þá stöðu sem það er í dag, en á því ber PFS fulla ábyrgð.“ – Hvaða áhrif hafði það á samkeppnisstöðu ÍSP að geta aukið við hlut sinn í erlendum pakkasendingum þrátt fyrir tap, sem hafi safnast saman í trausti þess að verða bætt? „Með því að stunda áralanga undir- verðlagningu á virkum markaðssvæðum í trausti þess að fá tapið bætt úr ríkissjóði hef- ur ÍSP augljóslega skapað sér forskot gagn- vart keppinautum.“ Setja hlutina í nýtt samhengi – Nýr forstjóri Íslandspósts ræddi í viðtali við ViðskiptaMoggann 3. júlí um óhagræði í rekstri félagsins sem ekki hafi verið tekið á. Hvaða áhrif hafa þessar upplýsingar þegar kemur að túlkun alþjónustubyrði ÍSP? Er rétt að ræða um alþjónustubyrði þegar tap vegna óhagræðis er mögulega jafn mikið síð- ustu ár og nýi forstjórinn lýsir? „Þótt svör nýs forstjóra komi ekkert á óvart hljóta þau að setja hlutina í annað sam- hengi gagnvart alþjónustubyrðinni. Það er al- veg ljóst að óhagkvæmur rekstur ÍSP á und- anförnum árum getur ekki fallið undir alþjónustubyrði, en við mat á alþjónustubyrði verður að hafna öllum kostnaði sem ekki er nauðsynlegur við að veita þjónustuna. Nú virðast stjórnendur ÍSP hafa komist að þeirri niðurstöðu að hægt sé að hagræða um hundruð milljóna á ári. Samkvæmt sam- þykktum ÍSP ber stjórn ÍSP ábyrgð á því að setja gjaldskrá í samræmi við ákvæði laga. Það hlýtur því að vera hafin vinna við að end- urskoða gjaldskrár félagsins þar sem hag- ræðinu verður skilað til notenda í samræmi við lögin.“ Snýr að viðskiptavinum – Hvernig birtist óhagræði í rekstri ÍSP gagnvart samkeppnisaðilum? „Ég held að málið snúi fyrst og fremst að viðskiptavinum ÍSP innan einkaréttar þar sem óhagkvæmur rekstur er lagður til grund- vallar lögbundinni gjaldskrá. PFS hefur haft fulla heimild til að hafna kostnaði sem ekki telst nauðsynlegur við að veita þjónustuna. Það hefur stofnunin hins vegar ekki gert þótt fullt tilefni hafi verið til líkt og svör forstjóra fyrirtækisins staðfesta. Fram hefur komið að tap ÍSP megi rekja til mikillar magnaukningar erlendra sendinga árið 2013 og að það skýri rekstrarvanda ÍSP. Ef ársreikningar félagsins eru skoðaðir þá virðist hins vegar sem tap af alþjónustunni megi fyrst og fremst rekja til þess að skipt var um kostnaðarlíkan milli áranna 2012 og 2013 og eftir það hafi alþjónustan verið látin bera allan fastan kostnað fyrirtækisins, m.a. vegna sóknar á hina ýmsu samkeppnismark- aði,“ segir Reynir. Morgunblaðið/Rósa Braga Dýrkeypt Íslandspóstur tapaði árum saman fjármunum á erlendum pakkasendingum. Björgun í pólitískum tilgangi  Framkvæmdastjóri Póstmarkaðarins telur standa til að bæta Póstinum upp tap af undirverðlagningu Reynir Árnason Samkeppniseftirlitið birti á þriðjudaginn var tilkynningu á vef sínum. Kom þar m.a. fram að eftirlitinu hafi „undan- farið borist fyrirspurnir er varða mögulega skekkingu á samkeppn- isstöðu á vettvangi Ís- landspósts“. Þær fyrir- spurnir tengist að hluta nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst. „Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram í málsgrein efst á bls. 43 að við út- reikning á kostnaði við þá starfsemi Ís- landspósts sem félagið hefur einkarétt á sé gengið út frá því að einkarétturinn standi undir öllum sameiginlegum og föstum kostnaði og að önnur starfsemi, þ.m.t. samkeppnisstarfsemi, sé ekki látin bera neina hlutdeild í slíkum kostnaði. Þetta skekki samkeppnisstöðu keppi- nauta,“ segir í tilkynningunni. Síðan er minnt á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2017 sem byggist á sátt sem Ís- landspóstur gerði við eftirlitið. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam- keppniseftirlitsins, segir ákvörðun 8/ 2017 hafa verið ætlað að tryggja eðlileg- an samkeppnisgrundvöll og að ekki væri með ólögmætum hætti verið að nýta tekjur af einkarétti til að eiga í sam- keppni á sviðum þar sem hún á að ríkja. „Við áréttum jafnframt að sérstakri eft- irlitsnefnd sem starfar samkvæmt skil- yrðum eftirlitsins sé ætlað að tryggja að farið sé að leikreglum í þessu efni,“ seg- ir Páll Gunnar. Að fengnum frekari skýringum á álykt- unum Ríkisendurskoðunar muni Sam- keppniseftirlitið taka afstöðu til þess hvort nauðsynlegt sé að taka uppgjör og þ.m.t. kostnaðarskiptingu Íslandspósts til skoðunar á vettvangi eftirlitsnefnd- arinnar eða Samkeppniseftirlitsins. Skekki ekki sam- keppnisstöðu SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ RIFJAR UPP SÁTT VIÐ ÍSLANDSPÓST Páll Gunnar Pálsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Látrabjarg þarf vernd því álag á svæðið er mikið,“ segir Edda Kristín Eiríksdóttir, sérfræðingur hjá Um- hverfisstofnun. Hún sinnir land- vörslu og öðrum verkefnum á sunn- anverðum Vestfjörðum, meðal annars við Látrabjarg sem nú stend- ur til að friðlýsa. Frestur til að skila inn umsögum þar rennur út þann 18. júlí og þarf samþykki allra landeig- enda svo friðlýsing, sem umhverfis- ráðherra undirritar, nái í gegn. Svæðið sem er undir í tillögunni nær frá Bjargtöngum og þaðan alllangt inn til austurs að þeim stað sem heit- ir Bæjarbjarg. Stærsta fuglabjarg Evrópu Látrabjarg er stærsta fuglabjarg Evrópu og hvergi á landinu verpa jafn margir sjófuglar, til dæmis teg- undir eins og álka og lundi sem eru á válista. Einnig þykir vera eftirtektarverð flóra og jarðfræði á þessu svæði, hvar aukinheldur má finna ýmsar menningarminjar. „Svæðið hefur mikið aðdráttarafl fyrir gesti sem heimsækja Vestfirði og mikilvægt er að stýra þeirri um- ferð með verndarráðstöfunum,“ seg- ir á vef Umhverfisstofnunar. Friðlýsing Látrabjargs og ná- lægra slóða er mikilvæg, segir Edda Kristín. Það helst í hendur við að setja þurfi stjórnar- og verndar- áætlun fyrir svæðið og vinna deili- skipulag þess. Í framhaldinu verður svo farið í framkvæmdir, svo sem stígagerð. „Við skynjum jákvæðar undirtektir fyrir friðlýsingu og höf- um hvatt landeigendur hér – svo og alla aðra – til þess að senda inn um- sagnir,“ segir Edda Kristín. Þörf á mótvægi „Af hálfu sveitarfélagsins er mikill vilji til þess að friðlýsing verði að veruleika,“ segir Rebekka Hilm- arsdóttir, sveitarstjóri Vestur- byggðar. „Margir koma að Látra- bjargi og álag á svæðið er mikið. Því er þörf á mótvægisaðgerðum og slík verkefni styðjum við heilshugar.“ Friðlýsing er mikilvæg  Látrabjarg þarf vernd vegna álags  90 þúsund manns á svæðið árlega Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson Látrabjarg Horft af bjargbrúninni að vitanum á Bjargtöngum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.