Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 2019 RESOURCE DRYKKIR MÁLTÍÐ Í FLÖSKU Resource drykkirnir frá Nestle eru sérstaklega orku- og próteinríkir næringardrykkir sem henta fyrir einstaklinga sem þurfa viðbótarnæringu. Hægt er að fá drykkina með eða án trefja. Ein flaska samsvarar einni máltíð. Fæst í öllum helstu apótekum Þróttur átti ekki í neinum vandræðum með að vinna Magna á heimavelli er liðin mættust í 10. umferð 1. deildar karla í fótbolta, Inkasso-deildinni, á laugardag. Þróttur skoraði tvö mörk á innan við mínútu eftir tæp- lega hálftíma leik og þurfti ekki að spyrja að leikslokum eftir það. Þróttur var kominn í 3:0-forystu eftir 35 mínútur og vann að lokum ótrúlega sannfærandi 7:0-sigur. Besta tækifæri Magna kom á 38. mínútu en Gunnar Örvar Stef- ánsson nýtti ekki vítaspyrnu. Belginn Jasper Van Der Heyden skoraði tvö mörk fyr- ir Þrótt og Sindri Scheving, Árni Þór Jakobsson, Daði Bergsson, Rafael Victor og Baldur Hannes Stefánsson komust einnig á blað. Mörk þeirra Árna Þórs og Baldurs Hannesar voru þeirra fyrstu deild- armörk hér á landi. Baldur Hannes er 17 ára og fastamaður í U17 ára landsliði Íslands. Þróttur er nú í áttunda sæti með 13 stig, en Magni er í neðsta sæti með aðeins sex stig og einn sigur í tíu leikjum. johanningi@mbl.is Þróttarar skoruðu sjö mörk Daði Bergsson 0:1 Atli Arnarson 42. 0:2 Atli Arnarson 60. 1:2 Þórir Guðjónsson 89. I Gul spjöldDamir Muminovic, Elfar Freyr Helgason, Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki), Björn Berg Bryde, Arn- þór Ari Atlason, Ásgeir Börkur Ás- geirsson (HK). MM Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK) BREIÐABLIK – HK 1:2 M Aron Bjarnason (Breiðablik.) Höskuldur Gunnlaugsson (Breið.) Björn Berg Bryde (HK) Arnar Freyr Ólafsson (HK) Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK) Atli Arnarson (HK) Leifur Andri Leifsson (HK) Valgeir Valgeirsson (HK) Dómari: Guðmundur Ársæll Guð- mundsson, 6. Áhorfendur: 2.483. KÓPAVOGUR/EYJAR/ AKRANES Jóhann Ingi Hafþórsson Arnar Gauti Grettisson Bjarni Helgason HK vann sterkan 2:1-sigur á Breiða- bliki í Kópavogsslag í 12. umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í gærkvöldi. HK er nú með ellefu stig, eins og Víkingur R., og áfram í hörð- um fallslag. Sigurinn gerði það hins vegar að verkum að ÍBV er lang- neðst og tap Breiðabliks varð til þess að KR er langefst. Það virtist vera spurning hvenær en ekki hvort Breiðablik kæmist yfir í fyrri hálfleik. Thomas Mikkelsen fékk hvert færið á fætur öðru, en gekk illa að hitta á markið. Í efstu deild getur lið í fallsæti refsað liði í toppbaráttunni og það er nákvæm- lega það sem HK gerði. HK-ingar stóðu af sér storminn og Atli Arn- arson skoraði einfalt mark seint í hálfleiknum. Eftir hlé hélt þemað áfram. Mikkelsen klikkaði á færum og aftur refsaði Atli. Blikar hentu öllum sínum mönnum fram undir lokin og tókst að minnka muninn, en þrátt fyrir gríðarlega pressu hélt HK út. Einhverjir HK-ingar voru eflaust skíthræddir í stöðunni 2:1, þar sem Breiðablik náði í ótrúlegt 2:2- jafntefli í fyrri leik liðanna í deildinni í sumar. Þá komst HK einmitt líka í 2:0. Í þetta skiptið sluppu HK-ingar með skrekkinn. Á öðrum degi hefði Breiðablik unnið þennan leik stórt. Ef Thomas Mikkelsen hefði nýtt færin sín hefði leikurinn verið allt öðruvísi. Ef, var og hefði og allt það. HK-ingar voru að mörgu leyti heppnir, en þeir sköpuðu sér sína eigin heppni. Vinnslan í liði HK var gríðarleg og Ásgeir Börkur Ásgeirs- son var í essinu sínu á miðjum vell- inum að brjóta upp sóknir og gera leikmönnum Breiðabliks erfitt fyrir. Fyrir aftan hann var Arnar Freyr Ólafsson sterkur í markinu og Björn Berg Bryde og Leifur Andri Leifs- son skipuðu flott miðvarðapar. HK var langt því frá að spila leiftrandi sóknarbolta í mörkunum. Einfald- leikinn réði ríkjum og var árangurs- ríkur. Gunnleifur Gunnleifsson er aug- ljóslega ekki alveg heill heilsu og hann átti sína sök í fyrra markinu. Viktor Örn Margeirsson átti líka erf- itt uppdráttar og lítið kom úr Brynj- ólfi Darra Wilumssyni. Thomas Mikkelsen gerði vel í að koma sér í færi, en afskaplega illa í að klára þau. Þetta eru leikirnir sem KR finnur leið til að vinna, en lið eins og Breiðablik getur misstigið sig í. Þess vegna munar sjö stigum á liðunum og KR er að stinga af. HK finnur leiðir til að ná í stig hér og þar, sem ÍBV nær ekki í. Þess vegna eru HK og önnur lið að skilja Eyjamenn eftir í rykinu. johanningi@mbl.is KR-ingar eru óstöðvandi KR-ingar unnu sinn áttunda sig- urleik í röð þegar þeir sigruðu Eyja- menn á Hásteinsvelli á laugardag, 2:1. Óskar Örn skoraði frábært mark á 21. mínútu þegar hann fór illa með Óskar Zoëga og lúðraði boltanum á nærstöngina. Besti mað- ur vallarins, Arnþór Ingi Krist- insson, bætti við öðru marki KR á 63. mínútu en Guðmundur Magn- ússon klóraði svo í bakkann fyrir Eyjamenn á 90. mínútu þegar hann skoraði með laglegum skalla. KR-ingar virðast vera nánast óstöðvandi en í leiknum voru þeir ekki að spila sinn besta fótbolta enda bauð Hásteinsvöllur ekki upp á það. Þeir vinna samt leikinn nokkuð örugglega og var sigur þeir aldrei í hættu. Það segir kannski jafnframt til um það hvar liðin eru í deildinni en Eyjamenn sitja á botninum og KR-ingar á toppnum en það leit þannig út að Eyjamenn höfðu bara hreinlega ekki trú á því að þeir væru að fara vinna þennan leik. Eyjamenn frumsýndu tvo nýja leikmenn í þessum leik; miðjumann- inn Benjamin Prah og framherjann Gary Martin. Það vita allir sem horfa eitthvað á fótbolta hvað Gary Martin getur, þrátt fyrir að hann hafi ekki sýnt neitt í þessum leik fyr- ir Eyjamenn. Benjamin heillaði und- irritaðan alls ekki og miðað við spila- mennsku hans í þessum leik er hann ekki að fara að hjálpa Eyjamönnum í þeirri baráttu sem þeir eru í, en eins og staðan er núna lítur allt út fyrir það að ÍBV spili í næstefstu deild- inni á næsta ári. sport@mbl.is ÍA leitaði aftur í einfaldleikann ÍA er komið aftur á sigurbraut eftir 2:0-sigur gegn Fylki á Akranesi á laugardaginn. Tryggvi Hrafn Har- aldsson kom Skagamönnum yfir strax á 13. mínútu og Viktor Jónsson tvöfaldaði forystu Skagamanna á 80. mínútu og þar við sat. Línur að skýr- ast á toppi og við botninn  HK vann Kópavogsslaginn  KR að stinga af og ÍBV að dragast aftur úr Pepsi Max-deild karla ÍA – Fylkir ................................................ 2:0 ÍBV – KR................................................... 1:2 Breiðablik – HK........................................ 1:2 Staðan: KR 12 9 2 1 23:11 29 Breiðablik 12 7 1 4 23:15 22 ÍA 11 6 2 3 17:12 20 Stjarnan 12 5 4 3 19:16 19 Valur 12 5 1 6 21:18 16 Fylkir 11 4 3 4 18:20 15 FH 10 3 4 3 15:17 13 Grindavík 11 2 6 3 7:9 12 KA 11 4 0 7 16:19 12 Víkingur R. 10 2 5 3 15:17 11 HK 11 3 2 6 13:15 11 ÍBV 11 1 2 8 9:27 5 Inkasso-deild karla Þróttur R. – Magni .................................. 7:0 Sindri Scheving 26., Jasper van der Hey- den 27., 35., Árni Þór Jakobsson 43., Daði Bergsson 50., Rafael Victor 56., Baldur Hannes Stefánsson 84. Staðan: Fjölnir 10 7 1 2 20:9 22 Grótta 10 6 2 2 22:14 20 Þór 10 6 1 3 18:10 19 Víkingur Ó. 10 5 2 3 11:6 17 Fram 10 5 2 3 15:14 17 Keflavík 10 4 3 3 15:11 15 Leiknir R. 10 5 0 5 16:17 15 Þróttur R. 10 4 1 5 23:15 13 Haukar 10 2 4 4 14:16 10 Afturelding 10 3 0 7 12:23 9 Njarðvík 10 2 1 7 9:20 7 Magni 10 1 3 6 10:30 6 2. deild karla Völsungur – Selfoss................................. 2:1 Ásgeir Kristjánsson 28., Sverrir Páll Hjaltested 58. – Hrvoje Tokic 62. Fjarðabyggð – KFG ................................ 3:1 Gonzalo Bernaldo 29., 81., Nikola Kristinn Stojanovic 79. (víti) – Kristófer Konráðsson 34. Rautt spjald: Daníel Andri Baldursson (KFG) 78. Vestri – Leiknir F .................................... 1:0 Pétur Bjarnason 61. Staðan: Leiknir F. 10 6 3 1 20:9 21 Vestri 10 6 0 4 13:15 18 Selfoss 10 5 2 3 22:12 17 Völsungur 10 5 2 3 13:13 17 Fjarðabyggð 10 5 1 4 16:12 16 Víðir 10 5 1 4 17:14 16 Þróttur V. 10 3 4 3 12:14 13 Dalvík/Reynir 10 2 6 2 13:13 12 ÍR 10 3 3 4 13:13 12 KFG 10 4 0 6 17:22 12 Kári 10 3 2 5 20:21 11 Tindastóll 10 0 2 8 8:26 2 Ameríkubikarinn Úrslitaleikur: Brasilía – Perú ......................................... 3:1 Everton 15., Jesus 45., Richarlison 90. (víti) – P. Guerrero 44. (víti). Rautt spjald: Gabr- iel Jesus (Brasilíu) 90. Bronsleikur: Argentína – Síle....................................... 2:1 Agüero 12., Dybala 22. – A. Vidal 59. (víti). KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.