Morgunblaðið - 12.07.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 12.07.2019, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  162. tölublað  107. árgangur  ÁRÁSIR OG OFSÓKNIR GEGN BLAÐAMÖNNUM FLESTAR ÚR BREIÐABLIKI ÓLAFUR ELÍASSON MÆTTUR AFTUR Í TATE MODERN LIÐ 9. UMFERÐARINNAR 24 MISJAFNIR DÓMAR 29FJÖLMIÐLAFRELSI 14 Tap gæti myndast » Forstjóri Íslandspósts segir tap geta myndast á vissum landsvæðum vegna kröfu um eitt verð fyrir alþjónustu. » Óvíst er hvort einkaaðilar munu sinna dreifbýlinu. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Óvissa er uppi um áhrif nýs ákvæðis í póstlögum á samkeppni í póstþjón- ustu. Gæti túlkun þess haft mikil áhrif á samkeppnisumhverfi póst- þjónustunnar til frambúðar hér á landi. Ný póstlög taka gildi um næstu áramót og þá verður einkaréttur Ís- landspósts á bréfasendingum undir 50 grömmum afnuminn. Umrætt ákvæði snýr að gjaldskrá fyrir alþjón- ustu og að hún skuli vera sú sama um allt land. Í nýju lögunum er alþjón- usta skilgreind sem sú lágmarksþjón- usta sem notendum póstþjónustu skal standa til boða á jafnræðisgrund- velli. Stjórnvöld feli alþjónustuveit- anda að sinna henni, sem verður þá Íslandspóstur en vinna við gerð nýs þjónustusamnings stendur yfir. Mun ákvæðið um sama verð ná til stórs hluta póstsendinga, jafnt innan lands sem milli landa, eða fyrir bréf allt að 2 kg, pakka allt að 10 kg innanlands og 20 kg milli landa. Birgir Jónsson, for- stjóri Íslandspósts, segir þetta ákvæði hafa komið öllum á óvart og óljóst hver áhrifin verði. Áhrif póstlaga mjög óljós  Krafa um sama verð fyrir alþjónustu gæti haft áhrif á samkeppnisumhverfi póstþjónustu  Forstjóri Íslandspósts segir margt í nýjum póstlögum vera óskýrt MÓvissa uppi um áhrif … »10 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Drangey Virðulegir fuglarnir sitja á hverri syllu í eyjunni. Lundastofninn í Drangey í Skaga- firði stendur vel um þessar mundir, en skv. mælingum verptu þar í sum- ar alls um 41 þúsund pör. Alls voru 90,5% holanna í eynni setin í ár. Það mun svo sjást þegar lengra er liðið á sumarið hver viðkoman er, það er hve margir ungar hafa komist úr eggi og þaðan svo flögrað úr holu út í veröldina. Óvíða á landinu er jafn stórt varp lunda og í Drangey, þar sem ennig má sjá talsvert af svart- fuglstegundum eins og langvíu, álku og stuttnefju. Þar sjást fálkar flögra fyrir. Skýringuna á góðri stöðu lunda- stofnsins í Drangey segir Erpur Snær Hansen líffræðingur vera þá að þörungablóminn í sjónum við landið sé mikill um þessar mundir. Með því eflist stofn sandsílis sem sé mikilvæg undirstaða í fæðu lundans. Daglegar ferðir eru út í Drangey frá Sauðárkróki. Njóta þær vin- sælda en alls lögðu um 1.600 manns þangað leið sína á síðasta ári. „Fyrir mér er Drangey ævintýrastaður,“ segir Viggó Jónsson sem stendur að rekstri Drangeyjarferða. sbs@mbl.is »6 Sterkur Drangeyjarlundi  Alls um 41 þúsund pör verptu í skagfirsku eynni í vor Tónlistarhátíðin Eistnaflug í Neskaupstað er komin á gott skrið í Egilsbúð. Þangað munu um 40 hljómsveitir mæta um helgina og von er á 500-600 gestum en hátíðin er nú haldin í 15. sinn. Harðkjarnasveitin Une Misère, sem skrifaði á dögunum undir útgáfusamning við Nuclear Blast, er meðal þeirra sem koma fram á Eistna- flugi. Hér hefur einn gítarleikarinn náð miklu flugi á sviðinu við góðar undirtektir viðstaddra. Hátt er flogið á Eistnaflugi Ljósmynd/Eydís Klara Þorleifsdóttir  Heilbrigðisráðherra staðfesti í gær samkomulag Sjúkratrygginga og Rauða kross Íslands um fram- lengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabíla til ársins 2022. Fyrirliggjandi samningur rann út fyrir fjórum árum og hefur end- urnýjun flotans tafist á þeim tíma. Strax verða 25 nýir sjúkrabílar keyptir, samkvæmt útboði sem nú stendur yfir. Verða fyrstu bílarnir teknir í notkun á næsta ári. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra lýsir ánægju með að samkomulag náðist. Öllum ágrein- ingi hafi verið ýtt til hliðar og hags- munir almennings og heilbrigðis- kerfisins settir í forgang. »14 Samið um sjúkra- bíla og 25 keyptir Verulega hefur dregið úr umsvifum Microsoft á Íslandi síðustu ár. Starfsmenn fyrirtækisins voru 18 ár- ið 2013 en eru nú einungis sex tals- ins. Heimir Fannar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Microsoft á Ís- landi, segir að ráðist hafi verið í mikl- ar breytingar á rekstrinum. „Við höfum verið að breytast mik- ið síðustu ár. Þetta hefur síðan gerst virkilega hratt síðustu tvö ár og segja má að farið hafi verið í ákveðnar kúvendingar á rekstrin- um,“ segir Heimir og bætir við að starfsemin muni í auknum mæli fær- ast til Írlands. Þá verði aukið traust lagt á samstarfsaðila fyrirtækisins hér á landi. „Með þessu erum við að treysta aðilum á borð við Origo og Advania auk annarra til að annast þjón- ustuna. Þeirra tækifæri felst í því að fanga þessa viðskiptavini betur en þeir hafa gert áður og taka þannig við því hlutverki sem Microsoft sinnti í ákveðinn tíma,“ segir Heimir. Vitað er til þess að fjöldi erlendra tæknifyrirtækja færi starfsemi sína til Írlands sökum skattalegs hag- ræðis. aronthordur@mbl.is »12 Færa starfsemina út fyrir landsteinana  Aðeins hafa um 3.200 laxar veiðst það sem af er laxveiðitímabilinu en 45.000 veiddust allt síðasta sumar. Þótt lítillega hafi glaðnað yfir undanfarna daga, samkvæmt sam- antekt Landssambands veiðifélaga, er veiðin í flestum ám landsins, sér- staklega vestanlands, langt undir því sem venjulegt er á þessum tíma. Sumarið er ekki búið og binda veiðimenn vonir við smálaxa- göngur næstu daga. „Það eru komnar ákveðnar vís- bendingar um að ekki séu líkur á stórveislu framundan. Það verða engin veiðimet slegin í sumar,“ seg- ir Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatnslífríkis á Hafrannsókna- stofnun. Hann segir að mælingar hafi lengi sýnt að árgangur laxanna sem áttu að bera uppi veiðina í sum- ar sé lítill. »10 Morgunblaðið/Einar Falur Háfað Laxveiðin er misjöfn í sumar. Aðeins 3.200 laxar hafa veiðst í sumar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.