Morgunblaðið - 12.07.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fuglalífið í Drangey dafnar vel,“
segir Skagfirðingurinn Viggó Jóns-
son. Á líðandi sumri eins og mörg
undanfarin eru Viggó og Helgi Rafn
sonur hans með daglegar ferðir í
eyna frá Sauðárkróki. Lagt er af stað
kl. 10 á morgnana. Alls heimsóttu um
1.600 manns eyjuna á sl.ári og væntir
Viggó þess að Drangeyjarfarar í ár
verði ekki færri.
Á hraðskreiðum Sómabát er hálf-
tíma stím frá Króknum í Drangey,
sem er á miðjum Skagafirði og um
margt táknmynd héraðsins alls. Þeg-
ar að eyjunni er komið er bátnum
lagt við flotbryggju í Uppgönguvík.
Þar er gengið í land og svo prílað upp
brekkurnar. Svo þarf að fara um ein-
stigi utan í hamrastáli, svo fikra sig
upp snarbratta brekku og loks fara í
stiga á hamrastáli, upp á efstu brún
eyjunnar sem er 180 m á hæð.
Stofninn stendur vel
Í Drangey ber mest á lunda, en
talið er að þar hafi í sumar verpt um
41 þúsund pör. Einnig ber mikið á
svartfuglstegundum í eynni; svo sem
langvíu, álku og stuttnefju. Einnig
sést nokkuð af fýl, teistu, ritu og ein-
staka fálki.
„Lundastofninn í Drangey stendur
vel um þessar mundir og við sjáum
mörg jákvæð merki um framvindu
hans,“ segir Erpur Snær Hansen, líf-
fræðingur hjá Náttúrustofu Suður-
lands, en hann fylgist vel með stöðu
lundastofnsins á landsvísu. „Ábúð í
Drangey er góð. Þar á ég við að verpt
er í 90,5% af holum lundans í eynni.
Við sjáum svo í sumarlok hver við-
koman verður. Það sem annars
styrkir fuglinn nú er sú staðreynd að
þörungablóminn í sjónum við landið
er mikill og þar með ætið. Allt svona
spilar saman.“
Ævintýrastaður
Á kolli Drangeyjar fylgir Helgi
Rafn fólki um brúnir; sýnir og segir
frá því sem fyrir augu ber. Hann fer
líka aldrei þar um nema biðja Fað-
irvorið bæði á leiðinni upp og niður
björgin. Er þetta gert í varúðar-
skyni, því príl um eyjuna er ekki
hættulaust.
„Fyrir mér er Drangey ævintýra-
staður,“ segir Viggó Jónsson sem
með Helga Rafni hefur verið með
reglulegar ferðir í eyna frá árinu
2011. Þeir tóku þá við merkinu af
Jóni Eiríkssyni, föður Viggós, sem
hafði verið með þessar siglingar í
áratugi. Standa ferðirnar fram til 20.
ágúst og er sjón sögu ríkari.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vængjasláttur Prófastar á syllu og annar býr sig undir að taka flugið.
Lundinn dafnar
Dagsferðir í Drangey Verpt í yfir
90% hola í eynni Samhengi í lífríkinu
Feðgar Viggó Jónsson og Helgi
Rafn fara daglega í Drangey.
Dragney Séð að eynni úr suðri.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
COMPONIBILI
Hirslur 3ja hæða – fleiri litir
Verð frá 18.900,-
IITTALA
TOIKKA VUONOL 2019
VERÐ 59.900,-
STELTON Kertastjaki
Verð 23cm 8.990,-
17cm 7.990,-
Vandaðar
brúðargjafir
KAY BOJESEN
Ástarfuglar
Verð 14.990,-
HOLMEGAARD
Kertalukt grá
Verð frá 9.990,- stk.
IITTALA TOOLS
Eldfast mót
Verð frá 37.900,-
JUST RIGHT STOFF
Kertastjaki
Verð 5.750,- stk. Króm/svartur
KORRIDOR
Steypudýr – fleiri teg. til
Verð frá 6.990,-
RITZENHOFF
Aspergo glös
Verð 4.900,- 6 stk. í pakka
KARTELL BOURGIE
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 39.900,-
IITTALA KASTEHELMI
Kökudiskur 31.5 cm
Verð 8.900,-
ALESSI
KÖKUSTANDUR
Verð 37.900,-
Allir sem gera gjafalista hjá okkur fá kaupauka að verðmæti 15% af öllu því sem keypt er af gjafalistanum.
Guðjón Skarphéðinsson, einn þeirra
sem sýknaðir voru af ákæru í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálinu, hefur
stefnt ríkinu til greiðslu bóta. Ragn-
ar Aðalsteinsson, lögmaður Guð-
jóns, staðfesti þetta í samtali við
mbl.is í gær. Málið var þingfest í
lok júní.
Ragnar vill ekki gefa upp hver
bótakrafan er en gera má ráð fyrir
af fyrri yfirlýsingum að hún sé í
kringum milljarð króna.
Guðjón var árið 1980 fundinn sek-
ur um að hafa orðið Guðmundi og
Geirfinni Einarssyni að bana sex
árum áður, en auk hans voru Krist-
ján Viðar Viðarsson, Sævar Cie-
sielski, Albert Klahn, Tryggvi Rún-
ar Leifsson og Erla Bolladóttir
sakfelld. Sexmenningarnir fengu
mislanga dóma, en Guðjón var
dæmdur í 10 ára fangelsi. Hann sat
þó aðeins inni í
fjögur og hálft ár
og fékk árið 1995
uppreist æru.
Hæstiréttur
sýknaði alla sak-
borninga sl.
haust, að Erlu
undanskilinni.
Í Silfrinu á
RÚV í maí sl.
greindi Ragnar
Aðalsteinsson frá því að Guðjón
krefðist milljarðs króna í skaðabæt-
ur en hann hefur áður vísað í dóma-
fordæmi frá árinu 1983 þar sem
mönnum voru dæmdar bætur upp á
535 þúsund krónur á dag, núvirt,
vegna óréttmæts gæsluvarðhalds.
Samsvarar það tæpum 880 millj-
ónum króna fyrir fjögurra og hálfs
árs fangelsisvist.
Stefnir ríkinu til
greiðslu bóta
Guðjón
Skarphéðinsson
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ekki er útilokað að í haust verði til-
mæli um varúð við Svínafellsjökul
endurskoðuð. Síðastliðinn vetur hef-
ur sprunga í Svínafellsheiði, sem
valdið gæti berghlaupi, opnast hæg-
ar en meðaltalið frá árinu 2010 segir
til um. Engar skipulagðar ferðir hafa
verið á jökulinn frá því síðasta sum-
ar, en talið er að sprungan hafi
myndast eftir að aðhald frá jöklinum
minnkaði vegna hopunar hans.
Hópur vísindamanna heldur að
jöklinum í næstu viku til að undirbúa
uppsetningu fleiri mælitækja, að
sögn Tómasar Jóhannessonar, fags-
tjóra á sviði jöklafræði hjá Veður-
stofu Íslands. Skynjararnir verða
settir upp í ágúst eða september.
„Við ætlum að mæla á öðrum stöð-
um þar sem við munum koma fyrir
viðmiðunarboltum og gera greiningu
með gervihnattargögnum til að kom-
ast að því hvort aðrir staðir eru með
jafn hægri hreyfingu. Það getur ver-
ið mismunandi ef sprungurnar liggja
þannig að eitthvað opnast á bak við
þá bolta sem mældir eru,“ segir
Tómas, en umrædd sprunga opnað-
ist aðeins um örfáa millimetra á síð-
asta ári samkvæmt mælitækjum
sem þegar eru á staðnum.
Í rólegum aðdraganda
Sprungan í Svínafellsheiði er 20-
40 sentimetrar að breidd að sögn
Tómasar. „Hún hefur opnast það
mikið síðan árið 2010. Hreyfingin á
stykkinu í heild sinni hefur að með-
altali verið tveir til fjórir sentimetrar
á ári. Hún er enn ekki að herða mikið
á sér. Við vitum að í Hítardal og í
Öskju, þar sem orðið hafa stór hlaup,
þá herðir hreyfingin á sér talsvert
löngu áður en berghlaup verður. Það
þarf svolitla hreyfingu til þess að
helstu staðir sem stykkið hangir á
safni upp spennu til að þar geti orðið
brot,“ segir Tómas, en með mæli-
tækjunum má spá fyrir um hrun með
talsverðum fyrirvara sem hefur
„augljósa þýðingu“ fyrir almanna-
varnir að sögn Tómasar. „Við virð-
umst vera í rólegum aðdraganda að
einhverju sem við vitum ekki hvað
verður. Það eru engin ummerki um
það í okkar mælingum núna að neitt
sé byrjað að herða á sér. Ef eitthvað
er, þá er hreyfingin rólegri en hún
hefur verið, en við sjáum það betur í
næstu viku hvort sýnileg eru á yf-
irborði merki um ný jarðföll og nýja
sprungumyndun,“ segir hann.
Á nokkrum stöðum í heiminum
eru sambærilegar aðstæður og nýj-
ustu mælingar við Svínafellsjökul
sýna. Jafnvel þar sem vegir og járn-
brautarteinar eru undir.
„Ef menn mæla að þetta gerist
jafnt og þétt á óbreyttum hraða frá
ári til árs, þá getur verið að þetta
verði endurskoðað í samráði við
heimamenn og Almannavarnir. Það
hefur engin ákvörðun verið tekin um
það, en það er alls ekki útilokað,“
segir Tómas.
Áformað er að skila inn hættumati
fyrir svæðið í haust þar sem metin
verður hætta af flóði við Svínafells-
jökul, falli skriða ofan í lónið við jök-
ulinn. „Það er unnið að líkanreikn-
ingum til þess að meta hversu mikil
flóð gætu hugsanlega átt sér stað,
hvert þau stefna og hve mikla hættu
þau gætu skapað,“ segir Tómas.
Síðasta sumar var gróflega áætlað
að um 60-70 milljónir rúmmetrar af
efni væru á hreyfingu vegna sprung-
unnar. Yrði berghlaup yrði það mjög
stórt á íslenskan mælikvarða. Tómas
segir að magnið sé mjög mikið, lík-
lega tugir milljóna rúmmetra, en
kostnaðarsamt sé að meta það með
nákvæmum hætti. „Í Noregi kemur
fyrir að þar sem hagsmunir eru
miklir og miklar líkur eru á slysum,
bori menn á jafnvel fleiri en einum
stað með mjög miklum tilkostnaði og
taki kjarnaholur og sjái þá hvar
bergið er uppbrotið og skrið á sér
stað. Við eigum ekki von á því að fara
út í slíkt hér,“ segir Tómas.
Gætu aflétt viðvörun
við Svínafellsjökul
Morgunblaðið/RAX
Svínafellsjökull Engar skipulagðar ferðir hafa verið farnar frá því síðasta
sumar vegna hættu á berghalupi, en hún hefur opnast hægt frá því í vetur.
Sprunga í Svínafellsheiði hefur opnast hægt frá því í fyrra