Morgunblaðið - 12.07.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.07.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019 M.BENZ C350e AVANTGARDE nýskr. 03/2018, ekinn 14 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, glerþak ofl. ofl. Stórglæsilegur! TILBOÐSVERÐ 5.690.000 kr. Raðnúmer 259502 BMW 530e IPERFORMANCE nýskr. 06/2018, ekinn 10 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, vel búinn aukahlutum. Stórglæsilegur! Verð 6.490.000 kr. Raðnúmer 380510 VW PASSAT GTE PREMIUM nýskráður 02/2018, ekinn 31 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, leður, glerþak ofl. Geggjaður bíll! Verð 5.150.000 kr. Raðnúmer 259510 M.BENZ E 350e EXCLUSIVE nýskr. 05/2017, ekinn 34 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, tvöfalt stafræntmælaborð ofl. Glæsilegt eintak! TILBOÐSVERÐ 6.290.000 kr. Raðnúmer 259503 LAND ROVER RANGE ROVER HSE LIMITED nýskr. 02/2015, ekinn 53 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 13.900.000. Raðnúmer 259534 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is hjálpa til við að sinna íslenska markaðnum,“ segir Heimir. Frá því að Heimir tók við sem framkvæmdastjóri Microsoft á Ís- landi hefur rekstur félagsins tekið stakkaskiptum. Aðspurður segir hann að breytingar síðustu ára þurfi ekki að koma á óvart enda hafi í talsverðan tíma staðið til að draga úr umsvifum félagsins. „Þetta er búið að gerjast ansi lengi og stefnubreytingin var síðan ansi kröpp fyrir tveimur árum. Í stað þess að setja fjölda fólks á bak við stærstan hóp okkar viðskiptavina, minni og meðalstór fyrirtæki, ákváðum við að setja aukinn kraft í þjónustu við stærri viðskiptavini,“ segir Heimir og bætir við að með þessu sé Microsoft að færa aukna ábyrgð í hendur samstarfsaðilum sínum. „Við erum að treysta aðilum á borð við Origo, Advania auk ann- arra til að annast þjónustuna. Þeirra tækifæri felst í því að fanga þessa viðskiptavini betur en þeir hafa áður gert. Þannig geta þeir tekið við því hlutverki sem Micro- soft sinnti til ákveðins tíma,“ segir Heimir. Mörg tæknifyrirtæki á Írlandi Spurður hvort viðskiptavinir verði varir við breytingar á starf- semi félagsins segir Heimir að svo kunni að vera. Enn séu þó sex starfsmenn starfandi hjá Microsoft sem beina munu málum í réttan farveg. „Við skiptum okkur upp þannig að ákveðinn hluti sinnir við- skiptavininum á meðan hinn gætir hagsmuna fyrirtækisins. Þannig sinna færri hendur sama hlutverki auk þess sem meira traust verður lagt á okkar samstarfsaðila,“ segir Heimir sem sjálfur mun starfa áfram sem talsmaður Microsoft á Íslandi. Að sögn Heimis svipar ákvörðun Microsoft mjög til aðgerða annarra erlendra tæknifyrirtækja. Líkt og áður hefur komið fram hefur fjöldi erlendra tæknifyrirtækja flutt starfsemi sína til Írlands. Þar búa þau við hagstæðara skattaumhverfi, en fyrirtæki á borð við Amazon og Google gera hluta starfseminnar út þaðan. „Sögulega séð hafa mörg fyrirtæki farið til Írlands vegna skattaumhverfis og þar er fjöldi fyrirtækja með sambærilega starf- semi. Hingað til hefur öll reikn- ingagerð Microsoft hér heima verið á Írlandi þannig að það breytist ekki. Þarna hefur nú átt sér stað mikil uppbygging á góðu teymi og í kjölfarið færist stærri hluti starf- seminnar í þeirra hendur,“ segir Heimir. Umsvifin dragast saman Borgartún Höfuðstöðvar Microsoft á Íslandi hafa verið í Borgartúni.  Einungis sex starfsmenn eftir hjá Microsoft á Íslandi  Írskir aðilar sjá um þjónustuna í auknum mæli  Fjöldi tæknifyrirtækja með starfsemi á Írlandi Microsoft » Starfsmönnum Microsoft á Íslandi hefur fækkað úr átján árið 2013 í sex árið 2019. » Starfsemin færist í meira mæli til Írlands. Þar í landi er fjöldi þekktra tæknifyrirtækja, en með því skapa þau sér skattalegt hagræði. BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Fyrirtækið fór í ákveðnar kúvend- ingar á starfseminni og þetta er einn angi þess,“ segir Heimir Fann- ar Gunnlaugsson, framkvæmda- stjóri Microsoft á Íslandi. Vísar hann í máli sínu til uppsagna þriggja starfsmanna fyrirtækisins á dögunum. Einungis sex einstakling- ar starfa nú hjá Microsoft á Íslandi, en til samanburðar voru starfs- mennirnir átján talsins árið 2013. Að sögn Heimis var ráðist í tals- verðar breytingar á rekstrinum fyr- ir tveimur árum. Farið var í um- fangsmikla vinnu við stefnumörkun ásamt breyttum áherslum í rekstri félagsins. Reksturinn breyst gríðarlega „Það urðu miklar breytingar á því hvernig fyrirtækið hugsar fram- tíð sína og stefnu. Við gjörbreyttum því hvernig við seljum og vinnum með samstarfsaðilum,“ segir Heim- ir og bætir við að meðfram þessu hafi byggst upp sterkt söluteymi Microsoft á Írlandi. Þjónusta við ís- lensk fyrirtæki verði nú í auknum mæli í þeirra höndum. „Í millitíð- inni hefur verið að byggjast upp mjög sterkt söluteymi á Írlandi sem mun sinna íslenska markaðnum þaðan. Á þeirra snærum er hópur sérfræðinga, bæði sölu- og mark- aðsfólk, sem er að hjálpa viðskipta- vinum og samstarfsaðilum. Þess ut- an höfum við frá stofnun Microsoft á Íslandi verið í góðu sambandi við danska teymið, sem einnig mun mest, eða tæpir 39,4 milljarðar króna, og næst á eftir því komu frystar þorskafurðir upp á 35,3 milljarða. Bretlandsmarkaður var verðmætasti markaður fyrir ís- lenskar sjávarafurðir á árinu 2018 og stóð hann undir 15,3% útflutn- ingsverðmætisins. Þar á eftir kom Frakkland með 11,3%. Spánn, Nor- egur og Bandaríkin náðu hins veg- ar ekki 10% hvert. Reyndust hlut- föllin milli markaðanna svipuð og á árinu 2017. Á síðasta ári nam útflutnings- verðmæti sjávarafurða frá Íslandi 239,8 milljörðum króna og jókst það um 21,7% frá fyrra ári. Í magni talið nam útflutningurinn 671 þús- und tonni og nam aukningin 61 þús- und tonni frá árinu 2017. Af útflutningsverðmætinu stóðu frystar sjávarafurðir undir 46,7% verðmætanna, ísaðar afurðir undir 24,9% og mjöl og lýsi 14,3%. Þegar litið er til einstakra tegunda reynd- ist verðmæti ísaðra þorskafurða Fluttu út 670 þúsund tonn 2018  Verðmætið nemur 240 milljörðum Markaðir Mestu verðmætin fengust af viðskiptum við Bretlandsmarkað. 12. júlí 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.17 126.77 126.47 Sterlingspund 157.37 158.13 157.75 Kanadadalur 96.1 96.66 96.38 Dönsk króna 18.958 19.068 19.013 Norsk króna 14.583 14.669 14.626 Sænsk króna 13.311 13.389 13.35 Svissn. franki 127.18 127.9 127.54 Japanskt jen 1.1578 1.1646 1.1612 SDR 174.1 175.14 174.62 Evra 141.5 142.3 141.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.8707 Hrávöruverð Gull 1395.45 ($/únsa) Ál 1782.5 ($/tonn) LME Hráolía 64.78 ($/fatið) Brent Ferðaþjónustufyrirtækin Allra handa GL ehf. og Reykjavik Sight- seeing Invest ehf. hafa tilkynnt Sam- keppniseftirlitinu um fyrirhugaða sameiningu á næstu mánuðum, en fyrirtækin eru bæði með áætlunar- akstur til og frá Keflavíkurflugvelli, auk afþreyingarferða og hópferða. Sameiningin er með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum. Taprekstur síðustu ár Rekstur fyrirtækjanna hefur ekki gengið vel síðustu ár. Þannig var 195 milljóna króna tap á rekstri Allra- handa árið 2017 og 54 milljóna króna tap árið á undan. Tap á rekstri Reykjavik Sightseeing Invest ehf. var 97 milljónir króna árið 2017 og árið 2016 tapaði það 71 milljón. Starfsemi Allrahanda GL er rekin undir vörumerkjunum Gray Line og Airport Express. Vörumerki Reykjavík Sightseeing Invest eru Airport Direct, Reykjavik Sight- seeing og Smart Bus. Í tilkynningunni segir að meg- inástæða sameiningarinnar sé óhag- stæð rekstrarskilyrði sem leitt hafi til óviðunandi afkomu. tobj@mbl.is Rútufyrir tæki sam- einast  Óhagstæð rekstr- arskilyrði ástæða Taprekstur Bæði félögin hafa átt erfitt uppdráttar síðustu ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.