Morgunblaðið - 12.07.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16.
Opið hús kl. 13-15. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni,
Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Hugvekja kl. 13.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og blöðin við hringborðið
kl. 8:50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-
16. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Gáfumannakaffi kl. 14.30.
Hugmyndasamkeppni um nafn á nýju æfingartækin. Allir velkomnir
óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Föstudagshópurinn hittist og boccia
kl. 10 í dag. Göngutúr um hverfið kl. 13. Vöfflukaffi kl. 14.30. Opið hjá
okkur alla virka daga. Hádegismatur frá 11:30 til 12:30 og kaffi frá
14.30 til 15.30 alla daga vikunnar. Verið hjartanlega velkomin á
Vitatorg. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabæ Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10.00.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 20.00 Félagsvist.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, bingó kl. 13.30, síðegiskaffi
kl. 14.30 Uppl. í s. 4112760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansleikur í Stangarhyl 4
sunnudagskvöld 14. júlí kl. 20.00. Hljómsveit hússins. Mætum öll og
njótum.
Smáauglýsingar
Bækur
Hornstrandabækurnar eru
svolítið sérstakar
„Ég vona að þú verðir ekki fyrir
vonbrigðum með þær“, sagði
forlagsstjórinn.
„Ég á þær allar“, sagði
viðkomandi. „Og nú er ég farinn
að kaupa þær til að gefa öðrum.
Þetta eru frábærar bækur.“
Allar Hornstrandabækurnar 5 =
7,500 kr. Frítt með póstinum
Vestfirska forlagið
jons@snerpa.is
Bókaveisla
Bókaveisla- 50% afsláttur af
bókum hjá Þorvaldi í
Kolaprtinu. Allt á að seljast
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
TUNIKA – 3900
ST.36-52
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
BOLIR – 1800
ST.14-30
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
200 mílur
✝ Bjarki MárSigvaldason
fæddist í Reykjavík
12. apríl 1987.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
27. júní 2019.
Foreldrar
Bjarka Más eru
Sigvaldi Einarsson,
f. 2. apríl 1963, og
Guðlaug Birgis-
dóttir, f. 4. febrúar 1963. Systur
hans eru Hrefna Björk Sig-
valdadóttir, f. 18. júlí 1983, í
sambúð með Guðmundi Ágústi
Ólafssyni, f. 27. júní 1975, og
Ingibjörg Sigvaldadóttir, f. 25.
september 1992, í sambúð með
Kára Tristan Helgasyni, f. 12.
september 1992. Börn Hrefnu
úr fyrra sambandi eru Aníta
Ósk Kjærnested, f. 2. febrúar
2003, og Sigurður Þorvaldsson,
f. 27. október 1960, kvæntur
Guðrúnu S. Reynisdóttur, f. 19.
febrúar 1962, sem eiga saman
bræður Ástrósar þá Anton Inga,
f. 4. júní 1997, og Róbert Leó
Sigurðarsyni, f. 6. janúar 1994.
Bjarki Már ólst upp með fjöl-
skyldu sinni í Kópavogi. Hann
lauk grunnskólagöngu frá Snæ-
landsskóla og hóf nám við
Verzlunarskóla Íslands. Hann
útskrifaðist með stúdentspróf
frá Menntaskólanum í Kópavogi
árið 2009. Bjarki var alla tíð
mikill HK-ingur, æfði með fé-
laginu frá fjögurra ára aldri og
var snemma talinn mjög efni-
legur. Hann spilaði sem miðju-
maður og byrjaði snemma að
æfa með meistaraflokki HK. Á
ferlinum spilaði hann með þeim
87 leiki og skoraði 11 mörk.
Hann var einnig mikilvægur
leikmaður í ungmennalands-
liðum Íslands. Bjarki starfaði
sem sölufulltrúi hjá Icepharma
fyrir Nike-vörur.
Útför Bjarka Más fer fram
frá Hallgrímskirkju í dag, 12.
júlí 2019, klukkan 11.
2001, og Óðinn Örn
Kjærnested, f. 19.
mars 2008, og börn
Guðmundar úr
fyrra sambandi eru
Ólafur Jürgen
Ólafsson, f. 28. apr-
íl 2005, og Gabríel
Óðinn Ágústsson, f.
9. apríl 2007.
Bjarki kvæntist
æskuást sinni Ást-
rós Rut Sigurðar-
dóttur, f. 18. maí 1988, þann 8.
júlí 2017 og þau eignuðust sam-
an dóttur sína Emmu Rut
Bjarkadóttur 7. september
2018. Foreldrar Ástrósar eru
Aldís Hafsteinsdóttir, f. 6. ágúst
1968, gift Ívari Bragasyni, f. 20.
júní 1969, sem eiga saman
bræður Ástrósar þá Garibalda,
f. 22. ágúst 1998, og Rúrik Lár-
us Ívarssyni, f. 8. desember
Elsku ástin mín, mér fallast
einfaldlega hendur þegar ég sest
niður og þarf að fara að skrifa
minningargrein um þig. Ég bara
sé ekkert út fyrir tárum.
Mig langar að skrifa svo
margt og segja svo margt við þig,
þú varst svo stórkostlegur maður
með endalausa kosti að ég yrði
hér í allan dag að telja þá upp.
Ég elska þig svo innilega heitt
og mikið og söknuðurinn er bú-
inn að vera mér næstum óbæri-
legur. Ég finn samt svo mikið
fyrir þér og þú gefur mér svo
mikla ró og yfirvegun.
Takk fyrir að vera ennþá hjá
mér þótt þú sért farinn, ég þarf
svo sannarlega á því að halda.
Þú ert ástæðan fyrir því hvað
ég er sterk í dag og breytt mann-
eskja til hins betra. Þú gerðir
mig að betri manneskju með
hugarfari þínu, visku og þolin-
mæði. Ég get alveg sagt þér það,
elsku besti minn, að það verður
erfitt að fara aftur út í lífið án þín
og læra að lifa af án þess að hafa
þig við hliðina á mér. Þú ert besti
vinur minn og sálufélagi, hvernig
í ósköpunum varð ég ekkja 31
árs? Og hvernig á ég að fara að?
Þú ert svo stór partur af mínu
lífi, þú ert hinn helmingurinn af
mér og þetta verður erfiðasta og
stærsta verkefni sem ég hef
fengið, að læra á lífið upp á nýtt.
Ég veit að þó þú hafir ekki
viljað fara strax þá ertu hvíldinni
feginn. Það eru engir verkir
lengur en það var orðið óbæri-
legt að sjá þig þjást. Eigingirnin
í mér er bara svo sterk að vilja
hafa þig lengur hjá mér.
Ég veit þó að þú verður alltaf
hjá mér í huga og hjarta.
Takk fyrir að hafa komið inn í
líf mitt þegar ég var 16 ára göm-
ul, ég varð ástfangin við fyrstu
sýn og er það enn í dag. Takk
fyrir að ferðast með mér um
heiminn, giftast mér og eignast
besta barn í heimi með mér sem
mun bera öll góðu genin þín um
ókomna tíð. Ég ætla að standa í
stykkinu fyrir þig, ég mun ala
Emmu upp eftir okkar lífsgildum
alveg eins og við töluðum um og
mun ávallt passa upp á að hún
eigi fullt af fallegum minningum
um þig.
Þú ert besti maður sem ég hef
kynnst, svo klár, góðhjartaður og
með fallega og skýra hugsun.
Þessi dásamlegu fótboltalæri
munu ávallt lifa með mér, þú
varst einfaldlega toppurinn á til-
verunni í mínu lífi! Að sjá þig
dúllast með Emmu var einstök
gjöf, þú ert svo yndislegur pabbi.
Ég elska þig meira en allt, ástin
mín, að eilífu.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þangað til við sjáumst næst,
elsku ástin mín, þín
Ástrós.
Elsku hjartans barnið mitt,
það er þyngra en tárum taki að
rita minningarorð um þig. Engin
orð eru nógu máttug til að lýsa
tilfinningum mínum núna.
Þú varst einstakur drengur,
hjartahlýr og góðhjartaður.
Þessi barátta þín var einstök,
enda einstakur drengur.
Ekkert verkefni var of stórt
fyrir þig, það sýndir þú svo
sannarlega í gegnum fótboltann,
frábær fyrirliði og fyrirmynd
fyrir svo marga.
Takk, ástin mín, fyrir að vera
minn besti drengur, takk fyrir öll
faðmlögin, ástina og kærleikann,
takk fyrir að koma með Ástrós
Rut inn í líf okkar og takk fyrir
hana Emmu Rut okkar, sem við
munum styðja og styrkja svo
lengi sem við lifum.
Eins erfitt og það er að segja
það þá veit ég að þú ert hvíldinni
feginn.
Draumalandið verður bara
betra með þig innanborðs og ég
veit að þú ert með góðum ástvin-
um og honum Guffa þínum.
Hvíldu í friði, ástin mín, og við
sjáumst svo seinna.
Þín elskandi móðir
Guðlaug Birgisdóttir.
Ég trúi ekki ennþá að þú sért
farinn frá okkur, elsku besti
brósinn minn. Við sitjum öll eftir
með brotin hjörtu og tómleikinn
er svo stór.
Mikið væri ég til í að fá að
halda utan um þig, finna góða
ilminn af þér, heyra þig hlæja og
segja þér einu sinni enn hvað
mér þykir vænt um þig og minna
þig á hversu mikið þú breyttir lífi
mínu til hins betra. Þú varst
nefnilega enginn venjulegur
bróðir.
Síðustu dagar hafa verið svo
skrýtnir; eina stundina er sorgin
óbærileg og ég næ varla andan-
um fyrir stingandi sársauka í
hjartanu en þá næstu er ég skæl-
brosandi að hugsa um allar ynd-
islegu stundirnar sem við áttum
saman.
Með einstökum baráttuvilja
þínum og æðruleysi gafstu okkur
nefnilega svo mikinn tíma til að
eyða saman.
Það er svo erfitt að sætta sig
við að fá ekki að eldast með ykk-
ur litlu fjölskyldunni, að fá ekki
að ferðast meira um heiminn
með þér, borða góðan mat, hlæja
yfir góðri bíómynd og spjalla um
allt og ekkert. Á sama tíma er ég
svo óendanlega þakklát fyrir allt
sem við náðum að gera saman og
ég á feikinóg af minningum til að
ylja mér við út ævina.
Það var svo gott að eiga þig
að. Þú varst svo yndislega þol-
inmóður, fordómalaus, hjálpsam-
ur og sniðugur. Þú komst mér í
gegnum mín erfiðustu ár, stóðst
alltaf þétt við bakið á mér og
minntir mig á að stoppa og njóta
augnabliksins. Þó að þú hafir
fengið alltof fá ár á þessari jörðu
skildirðu svo sannarlega eftir þig
stór spor í hjörtum svo margra
og þar muntu áfram lifa.
Takk fyrir að treysta mér fyr-
ir að fylgja litla gullinu þínu í
gegnum lífið.
Eins og ég lofaði munum við
systurnar sjá til þess að Emma
Rut þín fái að heyra fullt af sög-
um af besta pabbanum og að
hana muni ekkert skorta. Ég
spara svo bestu sögurnar af
henni þar til við hittumst næst.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi)
Elska þig alltaf,
þín litla systir og mesti aðdá-
andi,
Ingibjörg.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Eg veit einn
að aldrei deyr:
dómur um dauðan hvern.
(Úr Hávamálum)
Þrátt fyrir að hafa vitað lengi í
hvað stefndi er maður aldrei
undirbúinn þegar kallið kemur.
Við vorum systkinabörn og
það er skrítið að hugsa til þess að
einhver sem maður hefur þekkt
alla hans ævi sé farinn. Bjarki
var ótrúlega sætt barn með hvítt
hár og fallegt bros sem bræddi
alla.
Það kom fljótt í ljós að dreng-
urinn var hæfileikaríkur með
knöttinn og þrátt fyrir að hann
væri í röngu félagi í Kópavog-
inum fylgdumst við stolt með af-
rekum hans. Það var mikið áfall
fyrir alla fjölskylduna þegar
hann veiktist en þá kom bersýni-
lega í ljós hvaða mann hann hafði
að geyma. Allir fylgdust af að-
dáun og lotningu með því hvern-
ig þau Ástrós tókust á við þetta
ósanngjarna og mikla verkefni
sem það er að kljást við ólækn-
andi krabbamein. Sér í lagi þegar
maður er ekki orðinn þrítugur.
Það sem þau áorkuðu var og er
ótrúlegt og ber vitni um þroska
sem enginn gerir ráð fyrir hjá
þetta ungu fólki. Það sem þau
kenndu okkur hinum í viðhorfi
sínu til lífsins er og verður okkur
systkinunum ógleymanlegt.
Það var aðdáunarvert að sjá
hvernig öll fjölskyldan stóð sam-
an í þessu ferli og við vottum
ykkur öllum innilega samúð okk-
ar.
Eyrún, Hreiðar og Katrín.
Elsku hjartans vinur okkar.
Við kveðjum þig með sorg í
hjarta en minningin um þig lifir í
hugum okkar og hjörtum. Þú
varst einstakur maður. Fyrir-
mynd svo margra og þar á meðal
okkar. Þú hafðir svo sterka og yf-
irvegaða lífssýn og kenndir okkur
svo margt. Það að lifa núna og
hugsa um það sem raunverulega
skiptir máli. Það var svo gott að
tala við þig. Þrátt fyrir allt sem
þú þurftir að ganga í gegnum
varstu alltaf tilbúinn að gefa öðr-
um tíma og góð ráð.
Þú varst svo góður hlustandi.
Það var eins og þú værir miklu
eldri en við. Miklu skynsamari og
lífsreyndari. Þegar við hugsum
um þær góðu stundir sem við átt-
um saman síðustu ár eru nokkrar
sem eru okkur efst í huga. Þegar
við fögnuðum saman óvænta af-
mælinu þínu sem Ástrós hafði
planað eins og henni einni er lag-
ið með búningaþema og öllu til-
heyrandi. Brúðkaupsdagurinn
ykkar fallegi þar sem þið ljóm-
uðuð af ást. Þegar við vorum í
Bjallavaðinu og þið sprengduð
blöðruna og í ljós kom að þið Ást-
rós ættuð von á stúlku. Þegar við
sátum saman á Kaffi Laugalæk
og ræddum um lífið og tilveruna.
Ógleymanlega steikin sem þið
buðuð okkur í á Álftanesinu með
einstaklega góðu spjalli og kræs-
ingum eftir matinn. Þegar við
fórum í jólapeysur á hlaðborð og
uppistand og þegar við hittumst í
kringum jólin síðustu og litlu
stelpurnar okkar voru svo sætar
saman. Allar þessar góðu minn-
ingar sem við upplifðum saman
munu lifa með okkur um ókomna
tíð og ljós þitt mun skína í gegn-
um dásamlegu Emmu Rut ykkar
Ástrósar.
Við erum þakklát fyrir að hafa
kynnst þér. Sjáumst síðar, kæri
vinur.
Þínir vinir,
Hrafntinna og
Þorvaldur Davíð.
Í dag kveðjum við einstakan
vin og samstarfsfélaga, yndið
okkar og Nike-goðsögnina
Bjarka Má.
Það kom fljótt í ljós þegar
hann hóf störf hjá okkur hversu
einstakur Bjarki var því fyrir ut-
an það hvað hann var duglegur
og samviskusamur fylgdi honum
alltaf gleði og jákvætt viðhorf,
sem heillaði okkur öll.
Bjarki tókst einmitt á við veik-
indin sín með lífsgleðina og bar-
áttuviljann að vopni. Hann
kenndi okkur að gefast aldrei
upp, láta drauma okkar rætast,
lifa lífinu og sýna hvert öðru vin-
áttu og kærleik.
Bjarki er og verður alltaf hluti
af Híþró-liðinu og hans verður
sárt saknað. Við erum stolt og
þakklát fyrir þau allt of fáu ár
sem við fengum að njóta með
honum en minning hans mun lifa
áfram í hjörtum okkar.
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Fyrir hönd vina þinna og
vinnufélaga á Heilsu- og íþrótta-
sviði Icepharma,
Þuríður Hrund
Hjartardóttir.
Bjarki Már
Sigvaldason
HINSTA KVEÐJA.
Það er komið að leiðar-
lokum og ég þarf að kveðja
þig, elsku kúturinn minn.
Með sorg og söknuð í
hjarta þá sé ég ljósið bjarta
sem fylgir þér og þú hefur
fengið hvíldina góðu eftir
erfiða baráttu.
Sjáumst síðar, elskan.
Þín tengdamamma,
Aldís.
Fleiri minningargreinar
um Bjarka Má Sigvalda-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.