Morgunblaðið - 12.07.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019
50 ára Bjarni Pétur
Hafliðason er fæddur í
Reykjavík en ólst upp í
Lúxemborg. Pétur býr
nú í Hafnarfirði og hef-
ur búið þar með hléum
síðan 2002. Hann er
flugrekstrarfræðingur
frá Florida Institute of Technology frá
árinu 1993 og vinnur í flugdeild hjá flug-
félaginu Bláfugli.
Maki: Margrét Benediktsdóttir, kennari í
Áslandsskóla í Hafnarfirði, f. 1971.
Börn: Hafliði Þór, f. 1991 í Reykjavík,
Benedikt, f. 2003 í Brussel, og Snædís, f.
2008 í Reykjavík.
Foreldrar: Hafliði Örn Björnsson flug-
maður, f. 1941, og Maja Þuríður Guð-
mundsdóttir húsmóðir, f. 1941. Þau eru
úr Reykjavík og búa í Hafnarfirði.
Pétur
Hafliðason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur alltaf verið á undan
þinni samtíð og það sannast í dag. Þú
munt líklega skipta um vinnu í lok sum-
ars.
20. apríl - 20. maí
Naut Haltu ró þinni hvað sem á dynur.
Þú hrósar sigri í dag. Láttu vissan aðila
sigla sinn sjó.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Bíddu til morguns með
ákvarðanir um sameiginlegar eignir eða
fjármál. Taktu með í reikninginn að
sumir eru farnir að reskjast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hugsaðu þig tvisvar um áður en
þú talar. Það hafa ekki allir eins harða
skel og þú.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sumir dagar eru auðveldari en
aðrir og í dag þarftu að hafa fyrir hlut-
unum. Segðu því aðeins skoðun þína að
þér finnist efnið þess virði að sinna því.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Taktu stjórnina í þínar hendur og
þá munu hjólin fara að snúast þér í
hag. Sigldu milli skers og báru í sam-
skiptum þínum við ungmennið á heim-
ilinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú vinnur vel muntu uppskera
samkvæmt því. Allar tilraunir þínar til
að koma á sáttum milli aðila mistakast.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er kominn tími til þess
að gera eitthvað skemmtilegt með fjöl-
skyldunni. Þú skýtur skjólshúsi yfir ein-
hvern sem er þér kær.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Losaðu þig við það sem þú
þarft ekki og notar ekki lengur. Nú
skiptir máli að halda út því betra starf
er hugsanlega í boði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Heppnin ætti að vera með
þér í dag og því ekki úr vegi að taka
áhættu. Komdu á fundi milli aðila sem
deila.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú mátt ekki láta aðfinnslur
samstarfsmanna þinna draga úr þér
kjarkinn. Ástamálin ganga glimrandi
vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú þarftu að taka bæði áhættu
og þora að láta til skarar skríða. Bittu
endahnútinn á verkefnin heima fyrir og
farðu síðan í gott frí.
að ég ílentist,“ segir Jóhannes,
feginn að svo hafi orðið. Hann
starfaði sem skrifstofustjóri fram
til ársins 1978 og varð þá aðstoð-
arframkvæmdastjóri og síðar
framkvæmdastjóri til ársins 1995.
Þegar Borgarspítalinn var samein-
aður Landakoti og úr varð Sjúkra-
hús Reykjavíkur, varð Jóhannes
forstjóri þess allt til aldamótanna
2000 þegar Sjúkrahús Reykjavíkur
var sameinað Landspítala. Þá varð
hann yfirlögfræðingur Landspítala
til ársins 2008, þegar hann fór á
in voru þau sömu og þau eru í dag:
sala víns og sælgætis.
Að loknu námi við háskólann fór
hann frá sölu síður heilsusamlegs
varnings yfir í störf við heilbrigð-
isgeirann, sem eins og komið hefur
fram varð að hans ævistarfi. „Það
var kannski eins og svo margt
annað í lífinu, bundið tilviljunum
hreinum. Mér gafst kostur á að
hefja störf sem skrifstofustjóri
Borgarspítalans árið 1972 og fann
mig ágætlega þar. Svo virtist fólki
líka vel við mig sömuleiðis, þannig
J
óhannes Pálmason er 75
ára í dag. Hann hefur
haldið upp á stórafmæli
en lætur það vera að
þessu sinni. Þó stenst
hann ekki mátið að bjóða upp á
„lágstemmd hátíðahöld“ fyrir fólk-
ið sitt, sem munu felast í kvöld-
máltíð þar sem fjölskyldan kemur
saman og nýtur lífsins. „Ég
kannski flagga,“ segir hann í sam-
tali við blaðamann og hlær við.
Þetta eru eftir allt tímamót.
Jóhannes er sáttur. „Þetta er in-
dælt líf. Við hjónin erum ánægð
með það og horfum sátt í okkar
baksýnisspegla,“ segir hann. Enda
er rétt á tímamótum sem þessum
að líta um öxl, það er beinlínis ætl-
ast til þess, og í tilfelli Jóhannesar
er margs að geta. Hann hefur
staðið vaktina á heilbrigðisvæng
þjóðfélagsins, hann hefur verið
mikilvirkur kirkjunnar maður um
áratugabil og hann hefur komið að
rekstri kirkjugarða landsins, svo
fá dæmi af mörgum séu tekin.
Hann er fyrir nokkru sestur í
helgan stein en er þó hvergi nærri
hættur. Hann ferðast, hann er í
sóknarnefnd Hallgrímskirkju og
hann kemur að lífi og atvinnu-
rekstri afkomenda sinna eftir at-
vikum. „Og svo þarf auðvitað að
bóna bílinn mánaðarlega, þú veist
það,“ segir hann við blaðamann.
Jóhannes er Eyfirðingur en á
rætur að rekja í móðurætt vestur
á firði í Tálknafjörð og Patreks-
fjörð. Hann ólst upp á Akureyri,
vann við sveitastörf á Hofsá í
Svarfaðardal á yngri árum og varð
stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1964. Hann fluttist
til Reykjavíkur og las lögfræði við
Háskóla Íslands, þaðan sem hann
lauk prófi árið 1971. Tafirnar eru
skýrðar með því, meðal annars, að
honum og konu hans Jóhönnu
Árnadóttur fæddust tvö börn á
námsárum hans. „Þetta gekk vel
en auðvitað var þetta ekki alltaf
auðvelt,“ segir hann um þessa
tíma. Aðgangur að námslánum var
ekki sá sami og hann er í dag og
því vann Jóhannes fyrir sér í Frí-
höfninni í Keflavík, þar sem störf-
eftirlaun. „Þessi ár voru erfið. Það
var að mörgu að hyggja, það var
verið að sameina sjúkrahús. Það
þurfti að vanda til verka en menn
lögðust á eitt í þeim efnum og skil-
uðu árangri sem ég held að hafi
verið ansi góður,“ segir hann, al-
mennt ánægður með unnin störf.
Eftir að hann fór á eftirlaun hef-
ur Jóhannes fyrst og síðast varið
kröftum sínum í kirkjustarf, sem
hann hefur þó gert alla tíð. Hann
hefur verið formaður sóknar-
nefndar Hallgrímskirkju frá árinu
1990, en tók fyrst sæti árið 1989.
Hann hefur séð tímana tvenna hjá
þeirri stofnun og fellst á að kalla
ferðamannastrauminn hvalreka
fyrir kirkjuna, sem veltir miklu
meiru en þekkist í nokkurri ann-
arri kirkjusókn landsins. „Þetta
hefur bjargað fjárhag kirkjunnar
og okkur hefur gefist kostur á að
ráðast í endurbætur og viðgerðir
upp á vel á annan milljarð króna
frá árinu 2007 til dagsins í dag,“
segir Jóhannes og segir stoltur frá
nýrri lyftu sem þeytist upp göngin
með ferðamenn á 30 sekúndum, en
sú gamla tók sér heilar 57 sek-
úndur í verkið.
Jóhannes hefur gegnt fjölda
ólíkra trúnaðarstarfa á ýmsum
vettvangi. Hann var formaður
stjórnar Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæma frá 1994-2018.
Hann varð heiðursfélagi Kirkju-
garðasambands Íslands 2019. Jó-
hannes sat í stjórn sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar 1975-82 og í
stjórn Félags forstöðumanna
sjúkrahúsa árin 1977-97. Hann var
formaður byggingarnefndar Borg-
arspítalans 1984-98, formaður
Landssambands sjúkrahúsa 1985-
2000, í samvinnunefnd sjúkrahúsa
1985-2000 og í daggjaldanefnd
sjúkrahúsa 1985-1991. Hann sat í
stjórn Lyfjaverslunar ríkisins og
síðar Lyfjaverslunar Íslands hf.
1988-1995. Svo var hann í stjórn
Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga
1997-2008 og var formaður stjórn-
ar Heyrnar- og talmeinastöðvar
1998-2001. Eftir starfslok á Land-
spítala hefur Jóhannes starfað fyr-
ir stjórnarráðið í ýmsum nefndum,
Jóhannes Pálmason, fyrrverandi forstjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur – 75 ára
Fjölskyldan Jóhannes á góðri stundu með dætrum og eiginkonu. Frá vinstri
eru Auður, Jóhanna, Magný, Jóhannes sjálfur og svo Guðrún.
Hann kannski flaggar
Hallgrímskirkja Jóhannes hefur ver-
ið formaður sóknarnefndar frá 1990.
Hjónin Jóhannes og Jóhanna í Mjan-
mar á gullbrúðkaupsdeginum 2015.
30 ára Hanna Jóna er
fædd og uppalin á
Húsavík. Nú býr hún á
Hálsi í Fnjóskadal með
bónda sínum. Hún er
hjúkrunarfræðingur
frá Háskólanum á
Akureyri frá árinu
2016 og hefur síðan unnið á geðdeild á
Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hanna Jóna er
sveitarstjórnarfulltrúi í Þingeyjarsveit frá
síðustu kosningum, fulltrúi Ð-lista Fram-
tíðarinnar svonefnds.
Sonur: Stefán Leó Sigurðsson, f. 2017.
Maki: Sigurður Jóhann Freygarðsson,
bóndi á Hálsi, f. 1973, frá Akureyri.
Foreldrar: Stefán Geir Jónsson stýri-
maður frá Húsavík, f. 1965, d. 2017, og
Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, leikskóla-
kennari á Húsavík, f. 1966.
Hanna Jóna
Stefánsdóttir
Til hamingju með daginn
Selfoss Hjalti Þór Haraldsson fædd-
ist 15. nóvember 2018 klukkan 4.11 í
Reykjavík. Hann vó 3.188 g og var 49
cm langur. Foreldrar hans eru
Haraldur Óli Kjartansson og
Gunnhildur Þórðardóttir.
Nýr borgari
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Losnaðu
við ör eftir
bólur