Morgunblaðið - 12.07.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.07.2019, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019 Inkasso-deild karla Fram – Leiknir R. ................................... 2:1 Helgi Guðjónsson 6., 45. – Sólon Breki Leifsson 59. Fjölnir – Keflavík .................................... 1:1 Albert Brynjar Ingason 36. – Rúnar Þór Sigurgeirsson 90. Afturelding – Þróttur R.......................... 1:1 Andri Freyr Jónasson 86. – Rafael Alex- andre Victor 45.(víti) Magni – Þór .............................................. 1:1 Kristinn Þór Rósbergsson 69.(víti) – Jó- hann Helgi Hannesson 90. Njarðvík – Víkingur Ó ............................ 3:0 Ivan Prskalo 40., Kenneth Hogg 45., 58. Rautt spjald: Emmanuel Keke (Víkingi) 49. Haukar – Grótta ...................................... 2:2 Gunnlaugur F. Guðmundsson 55., Oliver Helgi Gíslason 88. – Pétur Theódór Árna- son 44., Halldór Kristján Baldursson 70. Staðan: Fjölnir 11 7 2 2 21:10 23 Grótta 11 6 3 2 24:16 21 Þór 11 6 2 3 19:11 20 Fram 11 6 2 3 17:15 20 Víkingur Ó. 11 5 2 4 11:9 17 Keflavík 11 4 4 3 16:12 16 Leiknir R. 11 5 0 6 17:19 15 Þróttur R. 11 4 2 5 24:16 14 Haukar 11 2 5 4 16:18 11 Njarðvík 11 3 1 7 12:20 10 Afturelding 11 3 1 7 13:24 10 Magni 11 1 4 6 11:31 7 2. deild karla Leiknir F. – Fjarðabyggð ....................... 2:2 Arkadiusz Jan Grzelak 16., Daniel Garcia 83. (víti) – José Luis Vidal 45., Gonzalo Bernaldo 47. Selfoss – Kári ........................................... 4:0 Adam Örn Sveinbjörnsson 41., Ingi Rafn Ingibergsson 45., Kenan Turudija 52., Þór Llorens Þórðarson 59. Staðan: Leiknir F. 11 6 4 1 22:11 22 Selfoss 11 6 2 3 26:12 20 Vestri 10 6 0 4 13:15 18 Fjarðabyggð 11 5 2 4 18:14 17 Völsungur 10 5 2 3 13:13 17 Víðir 10 5 1 4 17:14 16 Þróttur V. 10 3 4 3 12:14 13 Dalvík/Reynir 10 2 6 2 13:13 12 ÍR 10 3 3 4 13:13 12 KFG 10 4 0 6 17:22 12 Kári 11 3 2 6 20:25 11 Tindastóll 10 0 2 8 8:26 2 3. deild karla KH – Höttur/Huginn ............................... 1:0 Staðan: Kórdrengir 11 8 2 1 30:13 26 KV 11 8 1 2 24:12 25 Vængir Júpiters 11 8 0 3 22:15 24 KF 11 7 2 2 26:12 23 Reynir S. 11 5 3 3 19:18 18 Einherji 11 4 3 4 15:13 15 Sindri 11 4 1 6 24:27 13 Álftanes 11 3 3 5 16:19 12 Höttur/Huginn 11 2 4 5 15:19 10 Augnablik 11 1 4 6 14:23 7 KH 11 2 1 8 15:32 7 Skallagrímur 11 2 0 9 14:31 6 KNATTSPYRNA bjargar með glæsilegum mark- vörslum úr dauðafærum Levadia- liðsins. Hilmari brást bogalistin af vítapunktinum Það var ekki sami kraftur í Stjörnuliðinu í seinni hálfleik. Eist- arnir byrjuðu hálfleikinn af krafti og gerðu sig líklega til skora en á 63. mínútu fékk Stjarnan dæmda vítaspyrnu eftir að markvörður Le- vadia hafði slegið til Ævars Inga Jóhannessonar. Hilmar Árni Hall- dórsson, sem að öllu jöfnu er öruggur af vítapunktinum, lét markvörð Levadia verja spyrnuna. Hilmar bætti upp fyrir mistök sín þegar hann átti gullfallega send- ingu á Þorstein á 74. mínútu sem afgreiddi boltann snyrtilega í stöng og inn. Liðsmenn Levadia brotnuðu hins vegar ekki við þetta mark og þeim tókst að skora mikilvægt úti- vallarmark rúmum tíu mínútum fyrir leikslok sem gæti reynst dýr- mætt þegar upp er staðið. Það verður ærið verkefni fyrir Stjörnuna að tryggja sér farseðil til Katalóníu og mæta Espanyol í 2. umferðinni. Lið Levadia er sýnd veiði en alls ekki gefin. Leikmenn liðsins eru líkamlega sterkir sem láta vel finna fyrir sér og inni á milli eru hættulegir leikmenn sem geta gert vel. Stjörnumenn þurfa að halda vel á spöðunum í Tallinn á fimmtudaginn. Þeir eru að mínu mati með betra lið og meiri gæði og ég myndi halda að Rúnar Páll Sig- mundsson, þjálfari liðsins, þyrfti að kreista allt það besta úr sínum mönnum til að slá Levadia úr leik. Vonandi tekst það. Markið gæti komið Stjörn- unni í koll  Til Tallinn með eins marks forskot  Stjarnan með eina sigur Íslands Morgunblaðið/Árni Sæberg Garðabær Kamerúninn Marcellin Gando sem var í framlínu Levadia Tallinn og Heiðar Ægisson sem lék á miðjunni hjá Stjörnunni í návígi í gærkvöld. Í GARÐABÆ Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Stjarnan var eina íslenska liðið sem hrósaði sigri í fyrri leikjunum á Evrópmótunum í fótbolta en Garðbæingar höfðu betur gegn eistneska liðinu Levadia Tallinn 2:1 á Samsung-vellinum í Garðabæ í gærkvöld. Sjálfsagt naga Stjörnumenn sig í handarbökin fyrir að hafa ekki landað stærri sigri og að hafa feng- ið á sig mark rúmum tíu mínútum fyrir leikslok sem gæti komið þeim í koll þegar liðin eigast við í seinni leiknum í Tallinn næsta fimmtudag en sigurliðið mætir spænska liðinu Espanyol í 2. umferðinni. Það var fínn bragur á Stjörnulið- inu í fyrri hálfleik þar sem boltinn gekk oft vel á milli manna, menn voru hreyfanlegir og baráttuglaðir. Grundfirðingurinn Þorsteinn Már Ragnarsson kom Garðbæingum yf- ir á 15. mínútu þegar hann fékk sendingu inn fyrir vörnina frá Daníel Laxdal. Stjörnumenn voru klárlega rændir vítaspyrnu á 33. mínútu en leikmaður Eistanna sló þá boltann með hendinni nánast á marklínu og afstýrði þar með að boltinn færi í netið. Stjarnan hefði réttilega átt að fá dæmda vítaspyrnu og leik- maður Eistanna vera sendur í bað en hvítrússneski dómarinn lokaði augunum fyrir þessu atviki, synd fyrir Stjörnumenn. Eistarnir áttu sín upphlaup í fyrri hálfleik og tvisvar sinnum kom Haraldur Björnsson sínum mönnum til 1:0 Þorsteinn Már Ragnarsson 15. 2:0 Þorsteinn Már Ragnarsson 73. 2:1 Nikita Andreev 79. I Gul spjöldDaníel (Stjörnunni), Podhol- juzin, Lepmets (Levadia). Stjarnan: (4-3-3) Mark: Haraldur Björnsson. Vörn: Jóhann Laxdal, Brynjar Gauti Guðjónsson, Martin Rauschenberg, Jósef Kristinn Jós- efsson (Ævar Ingi Jóhannesson 46). STJARNAN – LEVADIA TALLINN 2:1 Miðja: Heiðar Ægisson (Eyjólfur Héðinsson 62), Daníel Laxdal, Alex Þór Hauksson. Sókn: Þorsteinn Már Ragnarsson, Guðmundur Steinn Haf- steinsson (Baldur Sigurðsson 90), Hilmar Árni Halldórsson. Levadia: (4-3-3) Mark: Lepmets. Vörn: Jürgenson, Podholjuzin, Osi- pov, Kruglov (Dudarev 72). Miðja: Peetson (Marin 79), Kaljumäe, Mor- elli. Sókn: Gando, Andreev, Roosn- upp (Nesterov 40). Dómari: Denis Scherbakov, Hvíta- Rússlandi. Áhorfendur: 876. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Dramatíkin var alls ráðandi í hinni gríðarlega jöfnu 1. deild karla í fótbolta í gærkvöld þegar fyrri helmingi tímabilsins lauk með sex leikjum í elleftu umferð. Fjórir leikjanna enduðu með jafntefli, og allir á þann hátt að jafnað var á lokamínútunum.  Rúnar Þór Sigurgeirsson jafn- aði fyrir Keflavík á fjórðu mínútu í uppbótartíma gegn Fjölni í Graf- arvogi, 1:1.  Jóhann Helgi Hannesson jafn- aði fyrir Þór gegn Magna á Greni- vík, 1:1, þegar uppbótartími var að hefjast.  Oliver Helgi Gíslason jafnaði fyrir Hauka gegn Gróttu, 2:2, á Ásvöllum á 88. mínútu leiksins.  Andri Freyr Jónasson jafnaði fyrir Aftureldingu gegn Þrótti úr Reykjavík á Varmárvelli, 1:1, á 86. mínútu. Tvö efstu liðin, Fjölnir og Grótta, urðu því af tveimur stigum á allra síðustu stundu, og sama er að segja um botnlið Magna ásamt Þrótti.  Njarðvíkingar unnu mest af- gerandi sigur kvöldsins og hann kom nokkuð á óvart, 3:0 gegn Vík- ingi frá Ólafsvík. Njarðvík hafði tapað sex leikjum í röð en komst upp fyrir Aftureldingu og úr fall- sæti. Nýr Bosníumaður, Ivan Prskalo, skoraði fyrst og Skotinn Kenneth Hogg bætti við tveimur mörkum.  Fram styrkti stöðuna í topp- baráttunni með því að sigra Leikni í Reykjavíkurslag í Safamýri, 2:1. Hinn efnilegi Helgi Guðjónsson skoraði bæði mörk Framara. Fjögur jöfnunarm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.