Morgunblaðið - 12.07.2019, Blaðsíða 29
Umfangsmikil sýning með 40 fjöl-
breytilegum verkum eftir Ólaf Elí-
asson var opnuð í Tate Modern-
safninu í London í vikunni. Sýn-
ingin kallast In Real Life og með
henni snýr Ólafur aftur í safnið þar
sem segja má að hann hafi öðlast
heimsfrægð í heimi myndlistar-
innar er verk hans, The Weather
Project, var sett upp í Túrbínu-
salnum árið 2003 og er enn vinsæl-
asta verkið í þeirri sýningaröð en
um tvær milljónir manna sáu það.
Á sýningunni nú upplifa gestir
allrahanda verk sem fjalla um og
takast á við skynjun og umhverfi,
og þá er í mörgum af þeim nýrri
undirliggjandi umfjöllunarefni sú
ógn sem stafar af hlýnun vegna
loftslagsbreytinga. Í öðrum er unn-
ið með geómetrísk form, mynstur
og litapælingar.
Í viku hverri munu gestir geta
verið í sambandi við starfsmenn á
vinnustofu Ólafs í Berlín, þar sem
starfa yfir eitt hundruð manns, og
þá hefur veitingastað Tate Modern
verið breytt og er matseðillinn í
anda þess sem gert er í eldhúsi
vinnustofu listamannsins.
Ólafur setur líka að nýju mark
sitt á Túrbínusalinn en gestum
býðst að byggja þar framtíðarborg
úr hvítum Lego-kubum í innsetn-
ingu sem mun smám saman stækka.
Hans þokuverk best
Þegar hafa mörg helstu dagblöð
Bretlands og ýmsir aðrir miðlar
birt ýmiskonar gagnrýni um sýn-
ingu Ólafs. Gagnrýnandi The Gu-
ardian, Adrrian Searle, gefur sýn-
ingunni þrjár stjörnur og segir
náttúrulegan efnivið eins og hann
noti mikið vera í tísku; hann hafi
séð þar þokuverk í fimmta sinn á
stuttum tíma – en Ólafur megi eiga
það að hans verk hafi verið falleg-
ast og elst, frá árinu 2010. Searle
segir síðan að verkin búi yfir meiru
en „ódýrum furðum og röku lofti“.
Ólafur sé „uppfinningamaður, arki-
tekt, hann kljúfi ljósið og jafnvel
sjálf atómin, hann er heimsborgari,
listamaður – sannkallaður endur-
reisnarmaður“. Þá eigi listamað-
urinn í vandaðri sýningaskránni í
samskiptum við vísindamenn, heim-
spekinga, hagfræðinga, taugavís-
indamenn og mannfræðinga,“ auk
meistarakokks, fyrrverandi for-
seta, hipphopp-tónlistarmanns og
sérfræðings í loftslagsmálum. Allt
sé það áhugavert og í raun frábært
en Ólafur sé einstaklega fróð-
leiksfús maður og listinn yfir verk-
efni hans langur. Rýnirinn bætir
svo við og gætir efasemda: „Maður
veltir hins vegar fyrir sér hvort það
sé tími til að skapa listaverk.“
Margt á sýningunni heillar þó
rýninn, á ýmsan hátt, en í niður-
lagsorðum veltir hann fyrir sér
hversu ferk og ný sköpunin sem þar
birtist sé.
Meistari ægifegurðarinnar
Rosemary Waugh skrifar í Time
Out og er hæstánægð, gefur fimm
stjörnur, og segir fáa listamenn
samtímans jafn „epíska“. Ólafur
takist á við frumkrafta náttúrunn-
ar, en bæði í verkum sem byggjast
á náttúrunni og hinum sem virkja
skynjunina takist honum að gera
gestina meðvitaða um líkama sinn
og stöðu. „Elíasson er meistari 21.
aldar í að takast á við ægifegurð,“
skrifar hún og að hann noti þann
styrk til að vekja athygli á því hvað
maðurinn sé að gera náttúrunni.
Mark Hugson í The Telegraph
gefur sýningunni þrjár stjörnur og
segir í fyrirsögn metnaðinn mikinn
en innihaldið rýrara. Eins og Searle
segir hann Ólaf vera endurreisnar-
meistara samtímalistarinnar, því
svo virðist sem hann vilji takast á
við alla þætti lífisins í einu, „frá því
hvernig við upplifum heiminn
gegnum skilningarvitin, til
umhverfisins, neysluhyggju og
samstöðumáttar manna“. Í heildina
sé sýningin frekar „dauf og stofn-
analeg“ sem komi ekki á óvart því
Ólafur hafi breytt sér og vinnustofu
sinni í einskonar stofnun. Rýninum
finnst að hin mikla breidd í við-
fangsefnum listamannsins leiði til
skorts á dýpt í sköpun hans.
Áhrifaríkt samtal
Loks skrifar Ben Luke í Evening
Standard og er mun ánægðari, gef-
ur sýningunni fjórar stjörnur. Hann
talar um að Ólafur hafi gegnum
hina fjölmennu vinnustofu sína unn-
ið jafnt með stórfyrirtækjum og rík-
isstjórnum og úrtölumenn hafi kall-
að hann „Bono myndlistarheims-
ins“. En verk hans séu þó að mestu
leyti virkilega góð. Einhver nái ekki
flugi en önnur búi yfir ríkulegum
tilfinningum og miðli á áhugaverð-
an hátt hugmyndum listamannsins
og sýn á það hvernig náttúran og
vísindi geti mætt listinni. Bestu
verkin „trufla skynjun okkar en
skapa jafnfram meðvitund um sjón-
ræna úrvinnslu, í áhrifaríku samtali
hugar og líkama“.
Viðamikil sýning endurreisnarmanns
40 stór verk og innsetningar eru á sýningu Ólafs Elíassonar í Tate Modern í London Veitinga-
staður safnsins settur upp eins og eldhús vinnustofu Ólafs Gagnrýnendur breskra miðla mishrifnir
AFP
Einlitt Hér er horft gegnum gulan glervegg í innsetningunni „Room for one
colour“ inn í sal með ljósmyndum sem sýna hörfandi íslenska jökla.
Lita- og ljósbrot Eitt margra verka sem heilla gesti á sýningu Ólafs er
„Cold Wind Sphere“, þar sem litum og formum er varpað af kúlu.
Litskuggar Fjölskylda stillir sér upp fyrir myndatöku við verk er nefnist „Your uncertain shadow“.
Listamaðurinn Ólafur stillir sér upp við verkið „Your Spiral View“ í Tate
Modern. Um hálsinn er hann með birtugjafann umhverfisvæna Little Sun.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Chrysler Pacifica Hybrid
Limited
3,6 L Hybrid. Glæsilegur 7 manna bíll.
Einn með öllu, t.d. hita/kæling í sætum, glerþak,
leðursæti, bakkmyndavél, Dvd spilari, Harman
Kardon hljómflutningskerfi ofl. ofl.
VERÐ
7.990.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500
Nýtt útlit 2019! Litur: Perlurauður/ svartur að innan
(einnig til Granite Crystal). Nýr 6,7L Cummins Turbo
Diesel, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitan-
leg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing
technology pakki.
VERÐ
11.790.000 m.vsk
2019 Ford F-350 Lariat 35”
Litur: Ruby red/ gray, svartur að innan.
6-manna bíll. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque.
35” dekk. Með FX4 off-road pakka, quad beam
headlights, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall,
fjarstart, Driver altert-pakki, Trailer tow camera
system og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
10.990.000 m.vsk
2019 F-350 Limited 35” breyttur
Litur: Perluhvítur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450
Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20”
felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, top-
pljós (ekki á mynd), upphituð/loftkæld sæti, heithúð-
aðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper
eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
12.490.000 m.vsk