Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 1

Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 1
Lífið varalls ekkibúið Suðrænnseyðin Jón Gunnar Benjamínssonþarf að nota hjólastól eftirbílslys árið 2007 14. JÚLÍ 2019SUNNUDAGUR kki í þessu tileignast vini gur Teitur Magnús-son lofarhuggulegristemmn-ingu á PikknikktónleikumNorrænahússins 2 E að Sigruðu illgresiðBolvíkingar hafa ráðið niðurlögum kerfilsinseftir áralanga baráttu við illgresið 20 Bandaríska landsliðiðlék á alls oddi á HM 14L A U G A R D A G U R 1 3. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  163. tölublað  107. árgangur  BJARTSÝNIR Á GOTT GENGI Á HM Á SPÁNI HULK TALAR ÍSLENSKU GEFA ÚT MYNDASÖGUR MARVELS 51U21 LIÐIÐ Í HANDBOLTA 48 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Síðustu þrjá mánuði hafa verið greiddir um fimm milljarðar króna í atvinnuleysisbætur. Með sama áframhaldi verða greiddir rúmir 15 milljarðar króna í atvinnuleysisbæt- ur á tímabilinu frá apríl til áramóta og um 19 milljarðar á árinu öllu. Margt getur breytt þeirri tölu til lækkunar eða hækkunar á árinu. Til að setja 19 milljarða í samhengi samsvarar sú fjárhæð um 42% af kostnaði við uppbyggingu nýs með- ferðarkjarna við Landspítalann. Samkvæmt júnískýrslu Vinnu- málastofnunar voru þá rúmlega 6.700 manns á atvinnuleysisskrá. Til samanburðar bendir vinnumarkaðs- rannsókn Hagstofunnar til að um 10 þúsund hafi verið án vinnu í maí. Mikil umskipti urðu á íslenskum vinnumarkaði í kjölfar gjaldþrots flugfélagsins WOW air. Um 1.100 misstu vinnuna en haft var eftir Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar, að aldrei hefðu jafnmargir misst vinnuna á Íslandi í einu. Hún áætlaði aðspurð í gær að miðað við efnahagshorfur yrðu bótagreiðslur hærri á síðari hluta ársins. Samdrátturinn á vinnumarkaði birtist meðal annars í því að starfs- fólki starfsmannaleiga fækkar úr 1.552 í júní í fyrrasumar í 913 í júní í ár, eða um 41% milli ára. Bótagreiðslur aukast  Með sama áframhaldi verða 19 milljarðar greiddir í atvinnuleysisbætur í ár  Um 41% færri störfuðu hjá starfsmannaleigum í júní en í sama mánuði í fyrra MAtvinnuleysi minnkar … »2 Um 22 milljarðar » Greiddir voru um níu millj- arðar króna í atvinnuleysis- bætur á fyrri hluta ársins en miðað við meðaltal síðustu þriggja mánaða munu 10 millj- arðar bætast við til áramóta. » 22 ma. voru í atvinnuleysis- tryggingasjóði í ársbyrjun. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjöldi íbúða verður byggður á Akra- nesi á næstu árum, ef áætlanir ganga eftir, með tilheyrandi fjölgun íbúa. Stefnir í að íbúum fjölgi um 3.000 á næstu 6-10 árum og verði orðnir yfir 10 þúsund. Gangi það eft- ir mun íbúafjöldinn tvöfaldast á þrjátíu árum. Nú eru 100 íbúðir í byggingu á Akranesi og lóðir uppseldar. Búið er að skipuleggja tvo nýja byggingar- reiti og sá þriðji er í skipulagsferli. Gert er ráð fyrir tæplega 1.100 íbúð- um í þessum hverfum. Búist er við að mikil eftirspurn verði eftir lóðum á svokölluðum Sementsreit þar sem verksmiðju- byggingar Sementsverksmiðjunnar voru. Þar er ætlunin að byggja 368 íbúðir, auk aðstöðu fyrir verslun og þjónustu. Reiknað er með að fyrstu lóðunum verði úthlutað fyrir lok árs- ins. Sævar Freyr Þráinsson bæjar- stjóri segir hverfið einstakt. „Það segja mér fjárfestar sem hafa verið að banka á dyrnar að þetta sé flott- asta byggingarland sem í boði er á landinu.“ »16 Fjölgar um 3.000 á Skaga Morgunblaðið/Eggert Akratorg Miðbærinn mun teygja sig inn í nýtt hverfi á Sementsreit.  1.100 íbúða hverfi skipulögð á Akranesi Fjölmenni var við setningu Símamótsins í Kópavogi í gær og gengu þátt- takendur fylktu liði undir merkjum síns liðs. Þetta er í 35. sinn sem mótið er haldið, en þar etja kappi ungar knattspyrnukonur úr 5., 6. og 7. flokki. Hafa því margar af okkar efnilegustu og bestu knattspyrnukonum stigið sín fyrstu skref á mótinu. Að þessu sinni munu um 2.300 manns úr 41 félagi taka þátt og er mótið því hið stærsta sem haldið er hér á landi. Símamótið sett með miklum glæsibrag Morgunblaðið/Árni Sæberg  Álag hefur aukist á heilsugæslu- stöðvar í kjölfar E. coli-faraldursins vegna fjölda fyrirspurna og fjölg- unar saursýna sem komið er með. Eitt barn greindist í gær með E. coli STEC-sýkingu og hafa nú 17 börn greinst í heildina. Bendir flest til þess að orsökina sé að finna í ís sem framleiddur og seldur var í Efstadal II, skammt frá Laugar- vatni. Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir segir í samtali við Morgunblaðið að hann sé áhyggju- fullur yfir erlendum ferðamönnum sem komið hafa í Efstadal II. Reynt hafi verið að ná sambandi við þá en óvinnandi vegur sé að ná í alla sem hlut eigi að þessum faraldri. »4 Álag vegna E. coli  Bolvíkingar hafa upprætt með öllu kerfilinn sem hafði náð fótfestu í bænum í kjölfar umhverfisátaks á vegum íbúa bæjarins. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkur, segir íbúa bæjarins hafa unnið hörðum höndum að átakinu sem á upptök sín á Face- book-síðunni Kerfilinn burt úr Bol- ungarvík. Bolvíkingar leituðu aðstoðar tveggja grísa við verkið, sem notið hafa mikilla vinsælda meðal bæj- arbúa. Gylturnar bera nöfnin Gná og Glóð og þær eru, að sögn bæj- arstjóra, miklar stjörnur í bænum. „Fólkið í bænum er búið að vera ótrúlega duglegt og þessi hópur, íbúarnir, sveitarfélagið og Gná og Glóð, er loksins búinn að klára síð- asta kerfilinn,“ segir Jón Páll. Nánar má lesa um málið í Sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins. Bolvíkingar sigra kerfilinn Ljósmynd/Helgi Hjálmtýsson Grísirnir Gná (til hægri) og Glóð (til vinstri) aðstoðuðu við átakið.  Aðgengi fatlaðra hjá nýjum bað- stöðum úti á landi mætti stórbæta að sögn Jóns Gunnars Benjamíns- sonar, forstjóra Iceland Unlimited. Hann þarf að nota hjólastól eftir bílslys árið 2007 og segir sögu sína í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. „Núna snýst þetta mikið um gott aðgengi að baðstöðum sem spretta upp úti um allt land. Þeir taka mis- vel í aðfinnslur en það virðist sem þessi mál sitji ansi oft á hakanum. Þá er ég að tala um staði eins og Vök á Egilsstöðum, Krauma í Borg- arfirði og Geosea á Húsavík. Þar er gert ráð fyrir aðgenginu, að vissum hluta. Svo stoppar allt,“ segir hann. „Ég er að vona að þeir lagi þessi mál hjá sér á Húsavík, þeir taka best í þetta. Hinir hafa ekki sýnt því mikinn áhuga en vonandi breytist það.“ Baðstaðir þurfa að bæta aðgengi fatlaðra Morgunblaðið/Árni Sæberg Krauma Jón Gunnar gagnrýnir aðgengi að nýjum baðstöðum víða um land.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.