Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019
50 ára Brynja er fædd
og uppalin í Vestur-
bænum í Reykjavík. Síð-
ustu þrjú ár hefur hún
búið í Kópavogi. Hún
starfaði við Hagaskóla
2001-2017 og Lang-
holtsskóla 2017-2018.
Svo hóf hún störf hjá InfoMentor í sér-
fræðiráðgjöf. Hún er með kennarapróf og
meistaragráðu í alþjóðasamskiptum.
Börn: Silja Rós Ragnarsdóttir, f. 1993,
leikari og söngkona, og Valdimar Þór
Ragnarsson, f. 1995, hagfræðingur.
Eiginmaður: Ragnar Þór Valdimarsson
tölvunarfræðingur, f. 1969.
Foreldrar: Baldur Ingólfsson flugstjóri, f.
1944, ættaður úr Landeyjum, og Rós Ben-
der tölvunarfræðingur, f. 1949, ættuð af
Norðurlandi.
Brynja Baldursdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Berðu framtíðaráform þín undir
vini og vandamenn. Vertu tilbúinn að taka
við hrósi frá ókunnugum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú lendir líklega í spennandi ástar-
ævintýri næstu daga. Gleði þín og ánægja
snerta aðra. Að vera bjartsýnn gerir allt
auðveldara.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þeir hlutir sem þú hefur látið þig
dreyma um svo lengi eru ekki eins fjar-
lægir og þú heldur. Stígðu fram og segðu
hug þinn umbúðalaust ef þú ert beðinn
um það.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Passaðu þig að ofhugsa ekki.
Vandamálin hverfa ekki þó að þú sópir yfir
þau.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það gengur ekki að þú ríghaldir í alla
skapaða hluti á vinnustaðnum og viljir
drottna yfir öllu. Einhver fegrar hlutina um
of.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Aldur er bara tala. Ekki láta neinn
segja þér hvað er viðeigandi og hvað ekki.
Farðu þínar eigin leiðir, það er löngu orðið
tímabært.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hagaðu máli þínu svo að enginn sé í
vafa um hvað þú vilt. Einhver nýr aðili
kemur inn í líf þitt eins og stormsveipur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft ekki að vera stöðugt
með þessar áhyggjur af öllum sköpuðum
hlutum. Gefðu þér tíma til að njóta feg-
urðar náttúrunnar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mundu að góð vinátta er gulli
betri. Skoðaðu dæmið af fullri skynsemi ef
þú ætlar að ráðast í breytingar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er eitthvert valdatafl í
gangi í vinnunni svo að þér er skapi næst
að gefast upp. Hinkraðu samt aðeins og
sjáðu hvað verður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gjafmildi felst ekki bara í því að
gefa peninga sem maður hefur aflögu; það
má líka gefa upplifun. Ef þú tekur að þér
verkefni og ert útkeyrður verður þér ekk-
ert úr verki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt ýmsir erfiðleikar steðji að þér
máttu ekki láta þá stjórna lífi þínu. Fólk
tekur mark á því sem þú segir, þú ert góð
fyrirmynd.
komandi frumbyggja á Löndum í
Stöðvarfirði, en þar ólst Guðrún sjálf
upp í 10 systkina hóp. „Við ólumst
upp á þríbýli tíu börn á mismunandi
aldri. Við vorum þó öll ung og gátum
leikið okkur saman. Annars gerði
maður ekki kröfur um mikið á þess-
um tíma. Við vorum hálftíma að
ganga í skólann,“ segir Guðrún. 16
ára fór hún í Kvennaskólann í
Reykjavík og var þar fjóra vetur.
„Þar áttum við til dæmis allar í mesta
landsins, stofnað 1904. Hún varð for-
maður þess fyrst kvenna árin 1973-
84. „Þetta var bæði lærdómsríkt og
gott. Ég hafði gott fólk með mér,“
segir Guðrún en í hennar tíð hóf
stjórn félagsins að gefa út blað sem
sent var til fólks af Austurlandi bú-
setts í Reykjavík og nágrenni en allur
ágóði af starfsemi félagsins fór aust-
ur, eins og af Austfirðingamótum.
Guðrún er Austfirðingur sjálf langt
aftur í ættir og er nánar tiltekið af-
G
uðrún Kr. Jörgensen fé-
lagsmálafrömuður er 90
ára í dag. „Ég hef sagt
að á meðan ég hef séns-
inn held ég áfram. Það
er engin ástæða til að vera að leika
eitthvert gamalmenni,“ segir Guðrún,
sem í dag fer á afmælismót sér til
heiðurs í sal Bridgesambandsins. Þar
verða að spila um hundrað manns og
var ekki annað að heyra á Guðrúnu í
gær en að hún væri sérstaklega
spennt fyrir deginum. „Mér finnst
mjög gott að halda upp á þetta með
fólkinu sem ég umgengst mest,“ segir
hún, en hún hefur spilað brids í 55 ár.
„Þetta hefur verið líf mitt.“ Guðrún
kemur til með að þakka fyrir sig í af-
mælinu í dag, „enda ekki óvön að fara
í pontu eftir allt þetta vafstur í fé-
lagsmálum í gegnum tíðina,“ segir
hún.
Guðrún ætlaði að nýta tækifærið og
safna í bauk fyrir Kvenfélag Hrings-
ins, sem rekur Barnaspítalann, en
keppnisstjórar bættu um betur og
ákváðu að láta allan aðgangseyri fyrir
spilið í dag renna til Hringsins. Guð-
rún segir ekki veita af um þessar
mundir, ekki síst í ljósi frétta af E.
coli-smiti barnanna. Hún hefur fylgst
með málinu frá upphafi til enda, enda
„dálítið fréttasjúk“ eins og hún orðar
það. „Þetta er voðalega skrýtið og
mikið rannsóknarefni,“ segir hún.
Þetta er ekki í fyrsta og ekki síð-
asta sinn sem Guðrún leggur sitt af
mörkum til starfsemi Hringsins,
nema síður sé: hún hefur verið í kven-
félaginu frá árinu 1981 og var í stjórn
þess árin 1993-1996. Hún tekur enn
virkan þátt í starfsemi félagsins, eins
og nú síðast í jólakaffinu, þar sem hún
stýrði aðgerðum. „Ég var komin nið-
ur eftir hálfníu. Ég þyki góð að
stjórna og þær eru fegnar að ég geri
það. Ég sníkti hangikjötið á 300 flat-
kökur á sex stöðum og passaði að
smjörið sem við fengum hjá Mjólkur-
samsölunni væri mátulega mjúkt. Og
ég er dálítið stolt af því að vera í
þessu,“ segir hún.
Önnur félagsmálastörf sem Guðrún
getur verið hreykin af eru þau sem
hún vann áratugum saman fyrir Aust-
firðingafélagið, elsta átthagafélag
lagi tvennt til að skipta um, en krakk-
ar í dag eiga miklu meira af fötum.
Þeir eiga alltof mikið af fötum,“ segir
hún.
Eftir útskrift úr Kvennaskólanum
árið 1949 fór Guðrún aftur austur,
þangað sem helst þurfti að ferðast
siglandi. Þar var henni boðin vinna í
kaupfélaginu þar sem hún vann til
1954. Þá fór hún aftur suður, vann hjá
Karli Jónssyni gigtarlækni til 1957,
en hafði gift sig árið 1955. Fyrsta
barn sitt eignaðist hún 1956. Guðrún
vann svo sem ráðskona kennara í
Álftamýrarskóla árin 1985-1999.
Guðrún hefur lifað tímana tvenna.
„Ég er ekki með tölvu og ætla ekkert
að fá mér tölvu. Ég held að þegar fólk
eldist sé það mikilvæga hreyfing og
samskipti, en ekki að sitja fyrir fram-
an tölvuskjáinn,“ segir hún. Það hefur
ýmislegt annað breyst frá því að hún
var ung, eins og hlutverk kynjanna.
„Okkur óraði til dæmis ekki fyrir því
að síðar gengju drengir í Kvennaskól-
ann þegar við vorum þar,“ segir hún
og talar um að um miðja öld hafi það
ekki tíðkast í sama mæli og nú að kon-
ur væru að vinna úti, þó hún hafi gert
það á köflum. Á sama hátt hafi barn-
laust fólk ekki getað fengið sömu
læknisfræðilegu aðstoð við að eignast
börn, en á móti hafi komið að algeng-
ara var að börn væru tekin í fóstur,
enda féllu foreldrar oftar frá.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar var Bent
Bjarni Jörgensen, bifvélavirkjameist-
ari og einn af eigendum Sveins Egils-
sonar. Hann var fæddur í Danmörku
25.8. 1927, d. 19.1. 2016. Þau gengu í
hjónaband 19.11. 1955. Foreldrar
Bents voru Alfred Christian Jörg-
ensen, f. 25.4. 1901, d. 5.11. 1960, og
Bjarney Ingimundardóttir Jörg-
ensen, fædd á Patreksfirði 21.1. 1901,
d. 18.10.1982.
Börn Guðrúnar og Bents eru: 1)
Aðalheiður S. Jörgensen, f. 11.5. 1956,
tryggingafulltrúi, maki Friðgeir Sv.
Kristinsson fjármálastjóri, f. 20.2.
1955. Börn Aðalheiðar eru: a) María
Guðrún Nolan, f. 3.1. 1979, fram-
kvæmdastjóri í Englandi, maki Þor-
steinn Böðvarsson, f. 10.8. 1976, dóttir
Guðrún Kr. Jörgensen, fyrrverandi formaður Austfirðingafélagsins – 90 ára
Fjölskyldan á sjötugsafmæli Bents Frá vinstri Alfreð Bjarni, svo hjónin,
Guðrún og Bent Bjarni, svo Aðalheiður og á endanum er Árni Ómar.
„Ég þyki góð að stjórna“
Stjórn Austfirðingafélagsins 1979 Frá vinstri í efri röð eru Brynjólfur
Ingólfsson, Birgir Stefánsson og Grímur Helgason. Í neðri röð eru Sigrún
Haraldsdóttir, Guðrún sjálf og Sonja Berg.
40 ára Jón er fæddur
og uppalinn í Víðilundi í
Skagafirði. Hann er
organisti í Skálholts-
dómkirkju og hefur
verið í 10 ár. Hann hef-
ur píanókennarapróf úr
Tónlistarskólanum í
Reykjavík og kantorspróf og einleiks-
áfanga úr Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann
hefur síðasta áratug búið í Reykholti, Bisk-
upstungum, og flytur nú á Laugarvatn.
Dóttir: Hildur Inga Jónsdóttir, f. 2012.
Maki: Bergþóra Ragnarsdóttir djákna-
kandídat, f. 1979. Hún er frá Akurnesi,
Nesjum í Hornafirði.
Foreldrar: Bjarni Á. Jóhannsson kennari,
f. 1926, d. 2002, og Ingibjörg Jónsdóttir
húsfreyja, f. 1946. Þau eru bæði úr Skaga-
firði.
Jón Bjarnason
Til hamingju með daginn
Vinirnir Alexía Krist-
ínardóttir Mixa og
Hergill Frosti Frið-
riksson seldu mar-
engstoppa, smákökur,
djús og kaffi 17. júní.
Þau seldu veitingar
fyrir 33.000 kr. sem
þau gáfu Rauða
krossinum að gjöf.
Rauði krossinn þakkar
Alexíu og Hergli fyrir
þetta rausnarlega
framlag.
Hlutavelta