Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þegar ég var ungur að árumvann fólkið að heyskapmeð svipuðum hætti og þaðhafði gert í þúsund ár. Margir slógu með orfi og ljá, en það voru líka komnar sláttuvélar. Óseng- ið á Holtsmýri var rennislétt og með miklu og góðu grasi ár hvert, en allt hey var flutt heim á klyfjahestum. Mikil kaflaskipti urðu rétt fyrir miðja síðustu öld með tilkomu trakt- ora, þannig að fólkið fór umsvifalaust úr þessari fortíð beint inn í nú- tímann. Gervöll menning þjóðar- innar breyttist á þeim tíma, þessi gamla sveitamenning sem ég ólst upp við, hún er algerlega horfin og ný menning hefur tekið við og nýir atvinnuhættir á öllum sviðum,“ segir Þórður Tómasson, sem ævinlega er kenndur við Byggðasafnið í Skógum, en hann er alinn upp við aldarhátt frá 19. öld, enda á maðurinn aðeins tvö ár í að verða 100 ára. „Ég byggði þessa bók um hey- annir bæði á mínum eigin minning- um og frásögnum annarra. Þegar ég byrjaði að safna gömlum hlutum fyr- ir Byggðasafnið í Skógum var mjög auðvelt að nálgast þá, því fólk hafði lagt öllum gömlum tækjum til hliðar og þeirra beið ekkert annað en eyð- ing. Það var því tiltölulega auðvelt að byggja upp safn með þessum gömlu minjum og atvinnutækjum,“ segir Þórður og bætir við að allt annar blær hafi verið yfir mannlífi í þá tíð þegar hann var ungur maður. „Mörg býli voru í hverju hverfi og öllu landi var skipt niður í skákir. Mikið var að gera hjá fólkinu við heyskaparstörfin og heylestirnar gengu upp og fram sléttuna. Um heyskapartímann var mikið fjör og þetta voru góðir tímar, margt fólk kom saman og rómantíkin blómstr- aði. Fólk kom syngjandi heim af engjunum á kvöldin þótt það væri uppgefið, því það átti líka sína gleði og hamingju í heyskaparstritinu, sérstaklega þegar allt gekk vel. Ég á margar mjög góðar minningar frá heyskaparstundum yngri áranna. Ég nærist á þeim núna í hárri elli.“ Niðrandi að vera sláttuskussi „Mér er minnisstætt úr heyskap úti á Holtsmýri þegar komu flengj- andi austan óveður og fólk var nauð- beygt til þess að taka sig upp og fara heim. Það gat rignt í tvo til þrjá sólarhringa samfellt. Það var sérkennilegt að oft og einatt barst út á engið það sem kallað var jöklafýla, eða megn brenni- steinslykt, austan frá Jök- ulsá á Sólheimasandi. En þrátt fyrir vætu sem gat komið ofan í heyið er mikil birta yfir öllu sviðinu þegar ég horfi til baka. Ég sé bændurna ennþá fyrir mér þar sem þeir stóðu saman í teignum og röbbuðu saman um lífið og líðandi stund og tóbaksbaukurinn gekk á milli þeirra. Þetta var skemmtilegt mannlíf og fallegur blær yfir því öllu og mikil friðsæld.“ Góðir sláttumenn voru vinsælir á þessum tíma og Þórður segir að auðvitað hafi verið mikils vert að það lægi góður og stór teigur eftir menn að kvöldi dags. „Þess voru dæmi á góðu ósengi að menn gátu slegið næstum heilt kýrfóður á einum degi, um fjörutíu hesta, því ósinn frjóvgaði landið þeg- ar hann var í uppistöðu. Þar var mjög auðvelt að afla heyja og þessi stóru byggðarhverfi byggðust á því líka. Harðduglegir sláttumenn sem voru fljótir að slá voru mjög eftir- sóttir, til dæmis kaupamenn sem voru góðir sláttumenn, það voru mikil meðmæli með mönnum á þeim dögum. Að vera sláttuskussi var aft- ur á móti mjög niðrandi orð. Stúlkurnar hafa sjálfsagt verið skotnar í flinkum sláttumönnum, því auðvitað dafnaði ástin á milli fólks. Unga fólkið sem vann saman við heyskapinn dróst hvert að öðru. Margar kaupakonur sem komu í byggðina til að vinna við heyskapinn fóru ekki aftur, heldur tóku saman við einhvern manninn.“ Gamalt fólk sagði mér sögur Þórður er einn af örfáum núlif- andi mönnum sem muna af eigin reynslu hvernig heyskapur var á fyrri hluta tuttugustu aldar. Hann segir það vera mikils vert að fólk hafi skilning á lífinu eins og það var á þessum fyrri dögum, og því hafi hann alla tíð lagt sig eftir að safna heimildum, bæði hlutum og frásögn- um. „Þegar ég var ungur að árum var nánast á hverju einasta heimili í minni sveit gamalt fólk sem gat frætt mig um gamla tímann, sagt mér sög- ur, líka dularsögur af huldufólki og hulduverum, sem og daglegu hvers- dagslífi. Víðs vegar um sveitina leit- aði ég til gamals fólks og allir tóku mér vel og fræddu mig. Í dag fer enginn um sveitir til að safna fróð- leik með þeim hætti. Þetta gamla fólk kunni sagnir sem náðu langt aft- ur í tímann, jafnvel aftur til átjándu aldar. Ég ólst upp með konu sem var fædd 1860, Arnlaugu Tómasdóttur, og hún var að vissu leyti skóli minn í æsku. Hún gaf mér efni í heila bók, ættarsögur hennar sem hún sagði mér og þær náðu til átjándu aldar. Þessar sögur bregða björtu ljósi á fólkið frá þeim tíma, fólk sem var öll- um gleymt. Það var dýrmætt fyrir mig að fá að kynnast Arnlaugu.“ Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson Glaðar rakstrarkonur Mynd tekin í Húnavatnssýslu um 1937. Ljósmynd/Úr safni Daniels Bruun Ung að árum Hún er ekki há í loftinu stúlkan með heybandslestina. Ljósmynd/Magnús Ólafsson Heyband Karlinn batt en konan hélt á móti. Fólk kom syngjandi heim af engjum „Ég sé bændurna ennþá fyrir mér þar sem þeir stóðu saman í teignum og röbbuðu saman um lífið og líðandi stund og tóbaksbaukurinn gekk á milli þeirra,“ segir Þórður í Skógum þegar hann rifjar upp heyskapartíð fyrri ára. Nú þegar heyskapur stendur sem hæst er ekki úr vegi að glugga í bók Þórðar sem kom út á síðasta ári og heitir Heyannir. Þar fjallar hann um heyskap fyrri alda, en undirtitill bókarinnar, Um baráttu þjóðar fyrir lífi sínu, vísar til þess að hvert sumar var hinn frumstæði heyskapur barátta upp á líf og dauða. Ljósmynd/Úr ljósmyndasafni búnaðarblaðsins Freys. Tekið til hendinni Þessar eru heldur betur röskar með hrífurnar. Myndin er tekin um 1950. Morgunblaðið/RAX Þórður Á góðum degi við Byggðasafnið í Skógum. Bók hans um heyannir er falleg og fróðleg. Ljósmynd/Margrét Árnadóttir Sláttumaður Magnús Jóhannesson, bóndi á Alviðru í Ölfusi, gengur léttklæddur að slætti um 1930. T ÍBRÁ Ef keyptir eru miðar á alla 10tónleika raðarinnar fæst 50%afsláttur af miðaverði. Salurinn.is 2019–20 ÁSKRIFTARSALA HAFIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.