Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Bandaríski
söngvarinn Ro-
bert Kelly, sem
ber listamanns-
nafnið R. Kelly,
var handtekinn í
gær og ákærður
fyrir mansal.
Fram hefur kom-
ið að ákæra í
þrettán liðum
hafi borist á hendur Kelly, meðal
annars fyrir barnaníð og vörslu
barnakláms.
Hinn 52 ára Kelly hefur þegar
lýst yfir sakleysi sínu af yfir 20 kyn-
ferðisbrotum en hann hefur verið
ásakaður um fjölda slíkra brota síð-
astliðna tvo áratugi.
Heimildarþættirnir Surviving R.
Kelly hafa vakið aukna athygli á
meintum brotum Kellys. Þeir fjöll-
uðu ítarlega um tilraunir hans til að
ná til ungra stúlkna í byrjun lista-
mannsferils síns.
Þá var Kelly ákærður fyrir 10
kynferðisbrot í febrúar en hann
lýsti yfir sakleysi sínu og var sleppt
gegn tryggingargjaldi.
R. Kelly handtekinn
fyrir mansal
BANDARÍKIN
R. Kelly
Að minnsta kosti 37 manns slös-
uðust, níu þeirra alvarlega, í mikilli
ókyrrð um borð í flugvél Air Ca-
nada í fyrradag, sem flaug frá Van-
couver til Sydney.
Vélin þurfti að nauðlenda í Honu-
lulu á Havaí vegna ókyrrðarinnar
en farþegar vélarinnar sögðu vél-
ina blóðuga og raskaða eftir að far-
þegar tókust á loft og skutust í loft
vélarinnar.
Myndir innan úr vélinni sýna að
súrefnisgrímur féllu úr lofti og
þjónustuvagnar féllu um koll á
meðan á ókyrrðinni stóð.
Í tilkynningu sem barst frétta-
stofu BBC í gær sögðu forsvars-
menn Air Canada að allir særðu
hefðu fengið aðhlynningu en þrjá-
tíu manns þurftu að leggjast inn á
spítala í Honululu.
„Við skullum öll í loftið og allt
féll um koll,“ sagði Jess Smith, sem
var um borð í vélinni, við sjónvarps-
stöðina KHON. „Fólk flaug bara,“
sagði hún.
Alex Macdonald frá Brisbane
ssgði við kanadíska miðilinn CBC
News að farþegar um borð hefðu
verið í áfalli. „Ég sá fólkið fyrir
framan mig kastast í handfarang-
ursgeymsluna og aftur í sætin sín,“
sagði hann.
37 slösuðust í
flugferð til Sydney
KANADA
Air Canada Mikil ókyrrð var um borð.
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Tyrklandi barst í gær fyrsta sending
rússneska loftvarnakerfisins S-400 í
flugstöð höfuðborgar landsins, Ank-
ara. Fyrsti hluti kerfisins er kominn
þrátt fyrir andstöðu Bandaríkjanna
og Atlantshafsbandalagsins
(NATO), sem Tyrkir eiga aðild að.
Fyrr í vikunni vöruðu bandarísk
yfirvöld við kaupum á loftvarnakerf-
inu og sögðu að þau myndu hafa
„raunverulegar og neikvæðar afleið-
ingar“, að því er fram kemur á
fréttavef AFP.
Kerfið samræmist
ekki kerfi NATO
NATO hefur lýst yfir áhyggjum af
viðskiptunum og ítrekað varað við
því að rússneska loftvarnakerfið
samræmist ekki loftvarnakerfum
NATO og hinu nýja F-35 herþotu-
kerfi.
Bandarísk yfirvöld óttast að ef
Tyrkland innleiði S-400 kerfið, og
það verði þar með hluti af varnar-
kerfi landsins, sé aukin hætta á því
að viðkvæm gögn um F-35 kerfi
Bandaríkjanna gætu lekið til Rússa.
Þá hafa bandarísk yfirvöld hótað að
svipta Tyrki aðild að F-35 kerfinu
verði viðskiptin að veruleika. Tyrk-
nesk yfirvöld hafa borið fyrir sig að
varnarkerfin verði ekki á sama svæði
og að Bandaríkin hafi verið of sein að
bjóða Tyrkjum loftvarnakerfi.
Forseti Tyrklands, Recep Tayyip
Erdogan, hefur neitað að hætta við
kaupin og lýsti því yfir að Tyrkir
myndu ekki sitja undir refsiaðgerð-
um af hendi Bandaríkjamanna. Þá
sagði hann eftir að hafa fundað með
Donald Trump Bandaríkjaforseta að
hann tryði því ekki að Bandaríkin
myndu beita refsiaðgerðum.
Restin kemur „á næstu dögum“
Varnarmálaráðuneyti Tyrklands
greindi frá því í gær að næstu hlutar
sendingarinnar myndu berast „á
næstu dögum“.
Tyrknesk yfirvöld höfðu samið um
kaup á 100 bandarískum F-35 her-
þotum og lagt mikla fjármuni í F-35
kerfið en tyrknesk fyrirtæki fram-
leiða 937 hluti í hverri þotu.
Þrátt fyrir það hefur Tyrkland
tekið upp sjálfstæðari varnarstefnu
vegna stirðra samskipta ríkisins við
Evrópu og Bandaríkin. Ríkið keypti
rússneska S-400 varnarkerfið fyrir
2,5 milljarða og hefur einnig sent
hersveitir í þjálfun til Rússlands til
að aðlagast hinu nýja kerfi.
Flugskeyti streyma til Tyrklands
Fyrsta sending S-400 loftvarnakerfisins komin til Tyrklands Tyrkir keyptu
loftvarnakerfið af Rússum NATO hefur lýst yfir áhyggjum vegna viðskiptanna
AFP
Sending Tyrkir fengu fyrstu sendingu varnarkerfisins S-400 í gær. Kerfið
er framleitt í Rússlandi og hafa viðskiptin vakið ólgu innan NATO.
Fjöldi ólöglegra innflytjenda hópaðist inn í Pantheon-
hofið í París í gær og kröfðust þeir þess að fá dvalar-
leyfi í landinu. Samtök sem aðstoða þennan hóp í París
telja að um 700 ólöglegir innflytjendur og stuðnings-
menn þeirra hafi mætt. Franska lögreglan var með
mikinn viðbúnað við hofið á meðan á mótmælunum stóð
og þurftu ferðamenn að yfirgefa hofið, sem geymir
jarðneskar leifar margra af helstu hugsuðum Frakk-
lands. Til einhverra átaka kom og fékk þessi mótmæl-
andi aðhlynningu frá slökkviliðsmönnum á staðnum.
Kröfðust þess að fá dvalarleyfi
AFP
Bretar munu senda annað herskip
til Persaflóa við íranska lögsögu
vegna tilraun Írana til að hertaka
breskt olíuskip á miðvikudaginn.
Var tilraunin andsvar við hertöku
Breta á írönsku olíuskipi við
strendur Gíbraltar. Bretar hafa
þegar sent eitt herskip á svæðið
og verða því bresk herskip á
svæðinu tvö talsins. Bresk stjórn-
völd sögðu að sending herskipsins
væri liður í skipulagðri siglingu.
Hún væri einnig til þess að
tryggja nærveru Breta í einni af
mikilvægustu en jafnframt óstöð-
ugustu siglingaleiðum heims, þeg-
ar olíuskip eiga í hlut.
Írönsk stjórnvöld hafa þegar
farið fram á að Bretar láti íranska
olíuskipið laust, sem þeir hertóku í
síðustu viku við strendur Gíbralt-
ar. Fyrir lá grunur um að olíu-
skipið væri á leið til Sýrlands til
að eiga í olíuviðskiptum þar, sem
myndi brjóta í bága við kjarnorku-
samning nokkurra stórvelda frá
árinu 2015. Íranskur embætt-
ismaður sagði í samtali við frétta-
stofu IRNA að bresk yfirvöld
ættu ekki að taka þátt í þessu
„hættuspili“.
Bretar
senda ann-
að herskip
Herskipin tvö
við íranska lögsögu