Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Byggðarráð Norðurþings hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi á Húsavík- urhöfða vegna fyrirhugaðrar upp- byggingar hótels við Vitaslóð. Búið er að byggja upp baðstað, sjóböð, og ganga frá bílastæðum á grundvelli gildandi deiliskipulags. Baðstaðurinn tók til starfa í sept- ember í fyrra og hefur notið mikilla vinsælda, bæði meðal Íslendinga og erlendra ferðamanna. Baðstaðurinn stendur fremst á Húsavíkurhöfða, við hlið vitans, og er með stór- glæsilegu útsýni yfir Skjálfandaflóa og til Kinnarfjalla. Stærra hótel og stærri lóð Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir hóteli á svæðinu, en sú lóð er talin óheppileg til uppbyggingar og of lítil fyrir þær hugmyndir sem nú liggja fyrir. Því er gert ráð fyrir nýrri lóð norðan núverandi skipu- lagsmarka þar sem byggja megi allt að 200 herbergja hótel sem gæti staðið allt að 20 metra upp fyrir nú- verandi landhæð. Almennt skulu byggingar vera 1-4 hæðir en hluti bygginga má vera 5-6 hæðir. Á þeirri lóð sem ætluð er undir hótelbyggingu á gildandi deiliskipu- lagi er nú gert ráð fyrir að byggja megi allt að 200 m² hús undir bor- holu og dælustöð fyrir heitt vatn. Samhliða verður auglýst tillaga að aðalskipulagsbreytingu. Hún felst í því að verslunar- og þjónustusvæði er stækkað úr 5,4 hekturum í 6,7 ha. til norðurs og austurs á kostnað grænna svæða og íbúðasvæðis. Fram kemur í gögnum með tillög- unum að nú sé gert ráð fyrir tölu- vert stærra hóteli en áður var áformað. „Forsenda fyrir stækk- uninni er að hótelið sjálft verði ein- stakt, bæði staðsetning þess og hönnun, og að það verði eftirsókn- arvert vegna sérstöðu sinnar. Unnið verði að markaðssetningu á hótelinu út frá þessum forsendum og að gest- ir heimsæki Ísland sérstaklega til að gista á því.“ Bent er á að miklir möguleikar séu á svæðinu til að bjóða upp á heilsutengda ferðaþjónustu. Hægt sé að byggja upp eftirsóknarverðan áfangastað í nágrenni við sjóböðin, þéttbýlið og náttúrutengda upplifun. Bent er á að fjölskrúðugt fuglalíf sé í björgum á Húavíkurhöfða og margar og fjölbreyttar gönguleiðir séu á Húsavíkurhöfða og nágrenni. Á Húsavík eru nú starfrækt tvö hótel með um 260 gistiplássum, sex misstór gistiheimili með um 120 gistiplássum, auk nokkurra minni gististaða. Áætlaður fjöldi gisti- plássa er 400-500. Ferðamannastraumur til Húsa- víkur hefur farið mjög vaxandi hin síðari ár, sérstaklega vegna hvala- skoðunarferða sem boðið er upp á. Biðlistar eru eftir gistirými yfir há- annatímann á sumri og því er talin þörf fyrir aukið framboð á þeim tíma. Hægt er að kynna sér skipulags- tillögurnar á heimasíðu Norður- þings, www.nordurthing.is. At- hugasemdafrestur er sex vikur. Áform um 200 herbergja hótel  Nýtt skipulag fyrir Húsavíkurhöfða auglýst til umsagnar  Miklir möguleikar fyrir heilsutengda ferðaþjónustu sem gæti tengst sjóböðunum á höfðanum  Skortur á gistirými á hánnatíma á Húsavík Ljósmynd/Gaukur Hjartarson Sjóböðin á Húsavíkurhöfða Baðstaðurinn hefur notið mikilla vinsælda frá því hann var opnaður í fyrrahaust. Útsýnið er einstakt út yfir Skjálfandaflóa. skoðið úrvalið á facebook Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu okkar og fengið sent hvert á land sem er. Opið: Mánudaga-laugardaga frá 10-18, sunnudaga frá 11-17. ÚTSALAN Í FULLUM GANGI Í ÁLNÁVÖRUBÚÐINNI ALLT AÐ60%AFSLÁTTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.