Morgunblaðið - 13.07.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.07.2019, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2019 Um þessar mundir er rætt um fyrirsjáanlegan orkuskort á Íslandi og það blasir við að raf- orkudreifikerfið þarfnast upp- byggingar. Dreifikerfið tryggir ekki næga flutningsgetu og nauðsynlegt öryggi í öllum landshlutum. En sem betur fer er mjög víða hægt að virkja og framleiða raforku. Fyrirsjáanleg þróun orkumála Í þessu ljósi og vegna mjög harkalegrar umræðu um svokallaðan þriðja orkupakka, hefur rifjast upp fyrir mér sú mikla vinna sem fór fram til þess í að tryggja uppbygg- ingu og framfarir á sviði fjarskipta um leið og Síminn var seldur og samkeppni á sviði fjarskipta hófst fyrir alvöru. Þau átta ár sem ég fór með samgöngu- málin í ríkisstjórn árin 1999 til 2007 var rík áhersla lögð á áætlanagerð og löggjöf sem tryggði uppbyggingu í takt við þá miklu framþróun sem var á sviði upplýsingatækni, samgangna og ferðaþjónustu. Þegar þessi verkefni voru sett af stað fór ekki á milli mála að ég naut öflugs stuðnings Davíðs Oddssonar forsætisráðherra enda þekkti hann vel sem fyrrverandi borgarstjóri að framkvæmdir eru forsenda framþróunar. Sett voru sérstök lög um fjar- skiptaáætlun þar sem kveðið var á um fjarskiptasjóð, sam- þykkt löggjöf um um sam- gönguáætlun og um ferða- málaáætlun. Ég leyfi mér að fullyrða að þessi sterka áhersla á ítarlegar áætlanir til langs tíma hafa reynst vel og orðið til þess að uppbygging var tryggð á forsendum vandaðra vinnu- bragða. Um þetta vinnulag má lesa í skýrslunni Verkefna- áætlun samgönguráðuneytis 2003 til 2007 sem gefin var út og er á netinu undir þessum tengli: https:// www.stjornarradid.is/media/innanrikisrad- uneyti-media/media/Skyrsla/verkefnatl- unin10082004.pdf. Ísland altengt Sérstök lög um fjarskipti tóku gildi 25. júlí árið 2003 og í kjölfarið var samþykkt á Al- þingi Fjarskiptaáætlun 2005-2010 og Fjar- skiptasjóður var stofnaður með tryggri fjár- mögnun til þess að byggja upp fjarskiptakerfið milli landshluta. Með þeirri lagasetningu var stefnt að því að tryggja hagkvæm og örugg fjarskipti og efla sam- keppni. Í kjölfar þessarar vinnu fór ég sem ráðherra fjarskiptamála um allt land og efndi til um 30 kynningarfunda þar sem farið var yfir áætlunina Ísland altengt sem byggðist á áformum í Fjarskiptaáætlun og verkefnum sem Fjarskiptasjóði var ætlað að fjármagna. Þessi tæki stjórnvalda Fjarskiptaáætlun og Fjarskiptasjóður eru enn í fullu gildi og vinna sitt verk og eiga að tryggja uppbygg- ingu dreifikerfisins og tengingu ljóðsleiðara um allt land. Auðvitað hefðum við viljað að það verk gengi hraðar en það stefnir í rétta átt, þökk sé ríkum vilja þeirra sem með þau verkefni hafa farið og öflugri samkeppni á fjarskiptamarkaði. Tryggjum dreifingu raforku um allt land Því nefni ég þetta að ég tel að með sama hætti eigi, í ljósi þess að orkumálin eru í brennidepli og allt stefnir í að svokallaður orkupakki verði samþykktur og sæstrengur lagður í framtíðinni, að setja upp áætlun á sviði orkumálanna og gert var á sviði upplýs- ingatækni og fjarskipta. Sæstrengur mun væntanlega verða lagður. Áður en það verður eigum við að tryggja hagsmuni okkar með því að stilla upp áætlun miðað við það og setja okkur það takmark að orkukaup heim- ilanna verði, svo sem fjarskiptaþjónustan er, seld á sama verði um allt land. Jafnframt verði tryggt að arðurinn af orkunýtingu hvort sem það verður nýting jarðvarma, vatnsorku, vindorku eða virkjun sjávarfalla tryggi hagsmuni landsmanna en gangi ekki til þeirra sem kaupa orku á grundvelli reglu- verks sem við ráðum engu um og er jafnvel þröngvað upp á okkur. Það hafa ekki komið fram skýr svör um hvað verði þegar orkusal- an hefst um sæstreng. Til þess að fást við Brusselvaldið í orkumálunum treysti ég eng- um betur en formanni Sjálfstæðisflokksins Bjarna Benediktssyni. Vegna þeirrar stöðu sem uppi er í orkumálum þurfum við sjálf- stæðismenn að móta okkur nýja og skýra stefnu og hefja þá umræðu á flokksráðsfund- inum sem framundan er í haust. Ég hvet nú- verandi og fyrrverandi forystumenn flokksins til þess að leggjast á árar og skapa grundvöll samstöðu um orkumálin. Okkar bestu fjöl- miðlar verða að vinna með stjórnvöldum við að skapa nauðsynlega samstöðu í þjóðar þágu með upplýsandi umræðu. Höfnum rugl- inu í Viðreisnarliðinu sem sveik okkur sjálf- stæðismenn. Þau reyna sjáanlega að halda þeirri iðju áfram á leið sinni til Brussel. Eftir Sturlu Böðvarsson » Því nefni ég þetta að ég tel að með sama hætti eigi … að setja upp áætlun á sviði orkumálanna og gert var á sviði upplýsingatækni og fjarskipta. Sturla Böðvarsson Höfundur er fv. bæjarstjóri, samgönguráðherra og forseti Alþingis. Orkupakkar og áætlun um orkumál Stund milli stríða Það gengur á ýmsu í heyskap og verkin geta verið misjöfn – til að mynda að bíða eftir því að komast út á bráðabirgðaveginn milli Hveragerðis og Selfoss í þéttri umferð. Hari Ég sótti nýlega fyrsta fund varnarmálaráðherra NATO síð- an ég tók við embætti. Við fór- um yfir mörg mikilvæg mál á tveggja daga fundi okkar, frá brotum Rússa gegn Samn- ingnum um meðaldræg kjarn- orkuvopn (Intermediate-Range Nuclear Forces Treaty, INF) til aðlögunar NATO að breyttum ógnum við öryggi okkar. Ákvarðanirnar sem við tókum munu hjálpa til við að halda NATO færu um að mæta áskorunum fram- tíðarinnar og tryggja öryggi borgara banda- lagsríkjanna. Margir álitu að NATO yrði úrelt stofnun þegar kalda stríðinu lauk. En ógnirnar sem við stöndum nú frammi fyrir eru jafn alvar- legar og áður. Með Rússland í ögrandi stór- veldisham, storkandi alþjóðalögum; stöðugri hryðjuverkaógn; og nýrri tækni sem skapar bæði nýjar ógnir en líka tæki- færi fyrir öryggi okkar, þá þurf- um við á sterku Atlantshafs- bandalagi að halda, sem aldrei fyrr. Gætum öryggis Evrópu Bretland er staðráðið í að leggja sitt af mörkum til öryggis Evrópu, eftirleiðis sem hingað til. Við trúum því að öryggi okk- ar sé betur tryggt ef öryggi ná- granna okkar er það. Skuldbind- ing okkar að þessu marki er öllum ljós. Þúsundir breskra hermanna manna verkefni á vegum NATO víða um heim, frá Eistlandi til Afganistans. Orrustuþotur okkar gæta lofthelgi Eystra- saltslandanna og munu fljótlega sinna loftrýmisgæslu á Íslandi líka. Skip breska flotans halda sjóránum í skefjum og kafbátar okkar hafa í meira en hálfa öld lagt sitt af mörkum til öryggis bandalagsins. Breski her- inn hefur boðið að leggja til stóran hluta við- bragðssveita NATO, í lofti, á láði og legi. Framtíðarflaggskip breska flotans, flugmóð- urskipið HMS Queen Elizabeth, og nýjar F-35 orrustuþotur munu mynda kjarna þessa framlags. Fæling er betri en íhlutun. En það kostar sitt að verja lýðræðið, gildi okkar og hvert annað. Það krefst varnarbúnaðar og -getu af fullkomnustu gerð. Sem bandamenn þurfum við öll að leggja okkar af mörkum. Bretland hefur jafnan uppfyllt skilyrðið um að leggja minnst tvö prósent af þjóðarframleiðslu til varnarmála, og hyggst gera það áfram. Þótt tveggja prósenta markmiðið eigi síður við í herlausu landi eru landi eins og Íslandi samt margar leiðir færar til að leggja sitt af mörk- um sem virkur meðlimur í þessu varn- arbandalagi. Traustir bandamenn gulls ígildi Það sem mér þótti mest um vert við að hitta starfsfélaga mína frá hinum NATO- ríkjunum var hvernig 29 ráðherrar frá ólík- um löndum og bakgrunni, en með sameig- inlega hagsmuni og gildi að leiðarljósi, geta komið sér saman um sameiginlegar aðgerðir í sumum af erfiðustu viðfangsefnum samtím- ans. Í óöruggum heimi er það gulls ígildi að eiga bandamenn að sem hægt er að treysta. Það er breskum stjórnvöldum mikil ánægja að vera gestgjafar afmælisleiðtoga- fundar NATO í London í desember. Þær áskoranir sem við nú stöndum frammi fyrir eru ólíkar þeim sem stofnríki NATO stóðu frammi fyrir árið 1949, en engu síður mikil- væg. Og við munum halda áfram að mæta þeim í sameiningu. Eftir Penny Mordaunt » Orrustuþotur okkar gæta lofthelgi Eystrasaltsland- anna og munu fljótlega sinna loftrýmisgæslu á Íslandi. Penny Mordaunt Höfundur tók við embætti varnarmálaráðherra Bretlands 1. maí. Þurfum sterkt NATO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.