Morgunblaðið - 13.07.2019, Page 38
Framkvæmdastjóri Geðhjálpar
Félagið Geðhjálp var stofnað 9. október 1979
og er baráttu- og hagsmunasamtök einstaklinga
sem glíma við geðheilbrigðisvandamál,
aðstandenda þeirra og annarra sem láta sig
málaflokkinn varða.
Tilgangur félagsins er að vinna að
geðheilbrigðismálum með valdeflingu og með
bættan hag barna og fullorðinna sem eiga við
geðheilbrigðisvandamál að stríða að leiðarljósi.
Félagið vinnur að tilgangi sínum meðal annars
með því að sinna hagsmunagæslu, að standa
vörð um mannréttindi og eflingu samtakamáttar.
Gildi félagsins eru:
Hugrekki - Mannvirðing - Samhygð.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á
www.gedhjalp.is
Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225.
Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá
og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Gætt er trúnaðar varðandi fyrirspurnir
og umsóknir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
! "
! " #$
%
!
&'
! '
Ábyrgðarsvið:
(
)
*
) %
!
!
"
$ '"
)
'
)
!
"
+
!
"
$ "
) + &
,--.+
Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Óskum eftir að ráða sérfræðing í fjármálateymi Eignaumsjónar hf.
Helstu verkefni eru:
● Stýring fjármuna viðskiptavina Eignaumsjónar í samvinnu við fjármálastjóra
● Gerð kostnaðar- og innheimtuáætlana fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
● Samskipti við viðskiptavini Eignaumsjónar varðandi reikninga, innheimtu og áætlanir
● Stýring greiðslu reikninga fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
● Samskipti við þjónustuaðila fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
● Framkvæmdauppgjör ásamt fjármálagreiningum fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
● Önnur fjölbreytt dagleg störf
Hæfniskröfur: Menntun á sviði fjármála-/viðskiptafræði eða sambærileg menntun. Marktæk starfsreynsla af sambærilegum störfum
er skilyrði. Áhersla er lögð á frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð. Viðkomandi þarf einnig að vera lipur í mannlegum
samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí nk. Um framtíðarstarf er að ræða og verður gengið frá ráðningu sem fyrst.
Óskum eftir að ráða bókara hjá Eignaumsjón hf.
Helstu verkefni eru:
● Færsla bókhalds og reikningagerð fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
● Ýmis uppgjör, afstemmingar og almenn bókhaldsstörf
● Önnur störf með fjármálateymi Eignaumsjónar við úrlausn fjölbreyttra verkefna
Hæfniskröfur: Marktæk starfsreynsla af sambærilegum störfum er skilyrði. Þekking af DK hugbúnaði ásamt góðri almennri tölvukun-
náttu. Áhersla er lögð á frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð. Viðkomandi þarf einnig að vera lipur í mannlegum
samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí nk. Um framtíðarstarf er að ræða og verður gengið frá ráðningu sem fyrst.
Sérfræðingur hjá
Eignaumsjón
Bókari hjá
Eignaumsjón
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ veitir frekari upplýsingar um starfið í síma: 588 3031. Símaviðtalstími er frá kl.13-15 alla virka daga meðan á
umsóknarferlinu stendur. Vinsamlega sendið umsóknir og meðfylgjandi gögn til stra@stra.is. Þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi geta
hringt eða sent rafpóst og tilkynnt þátttöku. Unnið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Eignaumsjón er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög húseigna og býður heildarlausnir í rekstri
fjöleignarhúsa, bæði íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis. Félagið hefur umsjón með daglegum rekstri um
470 hús- og rekstrarfélaga. Áhersla okkar til framtíðar er að mæta vaxandi þörfum eigenda fasteigna með góðri
þjónustu og skilvirkum lausnum sem byggja á gagnsæi upplýsinga og umhverfisvænum gildum.