Morgunblaðið - 13.07.2019, Side 56
Margrét Eir flytur djasssöng-
leikjalög á Jómfrúnni í dag kl. 15.
Með henni leika Andrés Þór
Gunnlaugsson á gítar, Jón Rafns-
son á kontrabassa og Jóhann
Hjörleifsson á trommur. Á efnis-
skránni eru lög á borð
við Summertime eft-
ir Gerswhin, Cheek
to Cheek eftir Irv-
ing Berlin og
þekktir slagarar
eftir Cole Porter.
Aðgangur er
ókeypis.
Margrét Eir djassar
á Jómfrúnni í dag
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 194. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn ungi Arnór
Sigurðsson leikur fyrsta leik sinn á
nýju tímabili með CSKA í Rússlandi
í dag, en Skagamaðurinn sló í gegn
með liðinu síðasta vetur. „Stærra
hlutverk kemur með góðri frammi-
stöðu og það er bara spennandi
tímabil fram undan hérna í
Moskvu,“ segir Arnór í viðtali við
Morgunblaðið. »46
Stærra hlutverk með
góðri frammistöðu
Guðný Guðmundsdóttir og Cary
Lewis flytja tvær sónötur fyrir fiðlu
og píanó eftir J.S. Bach og Cesar
Franck á stofutónleikum á Gljúfra-
steini á morgun, sunnudag, kl. 16.
Guðný og Lewis fagna því að um
þessar mundir eru 50 ár frá því að
þau fluttu sónötu Franck saman á
tónleikum í Eastman School of
Music. Guðný þá fyrsta árs nem-
andi og Cary á síð-
asta ári í dokt-
orsnámi. Miðar
eru seldir í safn-
búð Gljúfra-
steins sam-
dægurs.
Flytja sónötur eftir
Bach og Franck
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
,,Mamma segir að ég hafi alltaf
sungið og þegar ég vaknaði úti í
kerru söng ég í stað þess að gráta
eins og mörg börn gera. Ég hélt
líka fyrsta „giggið“ mitt sjö ára
gömul á sjúkrahúsinu í Vest-
mannaeyjum og tók 1.000 kr.
fyrir,“ segir Silja Elsabet
Brynjarsdóttir óperusöngkona,
sem fékk inngöngu í starfsnám við
Royal Academy of Music í London
án þess að vera með masters-
gráðu. Silja útskrifaðist frá sama
skóla með BM í söng og tónlist á
miðvikudag og hlaut Charles
Norman-verðlaunin, fyrir frábær-
an árangur í námi.
„Ég var eini Íslendingurinn sem
útskrifaðist í ár frá skólanum en
það eru fleiri í námi við skólann.
Ég veit ekki til þess að Íslend-
ingur hafi komist í starfsnám án
mastersgráðu en aðsóknin að
starfsnáminu í Royal Academy of
Music í London er mikil.
Ég held að tvennt valdi því að
ég fékk undanþágu, annars vegar
er ég meðal eldri nemenda og hins
vegar hlýt ég að hafa eitthvað til
brunns að bera,“ segir Silja, sem
bætir við að í starfsnáminu öðlist
nemendur reynslu í því að syngja
í óperum og á tónleikum. Sam-
hliða náminu hefur Silja sungið á
tónleikum í Bournemouth og
London.
Geggjað að syngja í Hörpu
Silja var í vetur valin til þess að
syngja með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í keppninni Ungir einleik-
arar, á vegum Listaháskólans og
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
„Það var geggjað að fá að
syngja í Hörpunni með fullt af
áhorfendum og heila sinfóníu-
hljómsveit á bak við sig. Það small
allt saman á þessum tónleikum, öll
vinnan og námið,“ segir Silja, sem
segir tónlistarkennara sína vera
fyrirmyndir sínar ásamt fjölskyldu
sinni sem kenndi henni að takast á
við lífið og hvernig eigi að koma
fram við aðra.
Silja og Helga Bryndís Magnús-
dóttir héldu tónleika á gosloka-
hátíð í Eyjum þar sem þær fluttu
m.a. lög Oddgeirs Kristjánssonar í
útsetningum hans.
,,Flestir þekkja betur útsetn-
ingar Ólafs Gauks á lögum Odd-
geirs. Við Helga Bryndís stefnum
á að gefa út lögin í hans útsetn-
ingum sem eru í mörgum tilfellum
mun styttri en Óla Gauks, einnig
erum við með lög sem sjaldan eða
aldrei hafa verið spiluð opinber-
lega,“ segir Silja, sem hóf ung
tónlistarnám á píanó, sem henni
fannst lítið spennandi. Hún samdi
við kennarann um að hún myndi
spila eitt lag í hverjum tíma og
kennarinn spila eitt sem hún gæti
sungið með.
Útskrifuð Silja Elsabet Brynjarsdóttir óperusöngkona tekur stolt á móti
BM-útskriftarskírteininu og viðurkenningu fyrir frábæran árangur í námi.
Hélt fyrsta „giggið“ sjö
ára og tók 1.000 kr. fyrir
Silja Elsabet hlaut Charles Norman-verðlaunin