Morgunblaðið - 15.07.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 15.07.2019, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 5. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  164. tölublað  107. árgangur  NÝ GESTASTOFA OPNUÐ HJÁ ORF LÍFTÆKNI DRÖG AÐ ÖRYGGISÁÆTLUN STARFRÆKIR RIT- HÖFUNDASKÓLA FYRIR BÖRN BÖRN ERU 37% SLASAÐRA 14 LÆSI BARNA ER VANDAMÁL 28TAKA Á MÓTI MÖRGUM 12 Lið ÍR-inga hrósaði sigri á 93. Meistaramóti Íslands í frjáls- um íþróttum sem lauk á Laugardalsvellinum í gær. Þetta var þriðji sigur ÍR-inga í röð á Meistaramótinu, en þeir höfðu betur gegn FH-ingum sem höfnuðu í öðru sætinu og Breiðabliki sem varð í þriðja sæti. Flest besta frjáls- íþróttafólk landsins tók þátt í mótinu. Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir kom fyrst í mark í 800 metra hlaupinu í gær og hér á myndinni má sjá hana fyrir miðju í hlaupinu. Við hlið hennar, önnur til hægri, er Iðunn Björg Arnalds- dóttir, systir Anítu, sem hafnaði í þriðja sæti, en Ingibjörg Sigurðardóttir, önnur frá hægri, varð í öðru sæti. Allar eru þær í ÍR. » Íþróttir Morgunblaðið/Árni Sæberg ÍR-ingar hrósuðu sigri á Meistaramóti Íslands Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Í nýjum umferðarlögum sem taka gildi í upphafi næsta árs er handhöf- um stæðiskorta (P-korta) fyrir hreyfi- hamlaða heimilað að keyra á vélknún- um ökutækjum á göngugötum og leggja þar í sérstök stæði. Í áætlunum Reykjavíkurborgar er einna mest um hugmyndir um göngugötur og stend- ur til að gera meirihluta Laugavegar að varanlegri göngugötu, en hingað til hefur Laugavegi aðeins verið lokað tímabundið fyrir bílaumferð. Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, segir það breyta ásýnd göngugatna ef fólk sem þar sé, t.d. með börn sín, þurfi að hafa varann á vegna bílaumferðar. „Ég held það sé betri lausn til framtíðar að búa til fallega og mann- væna miðborg í staðinn fyrir að líta alltaf til þess að bíllinn sé leið fólk til þess að komast sem næst verslunum eða fyrirtækjum,“ segir Pawel, en hann hefur óskað upplýsinga um fjölda handhafa stæðiskorta, sem virðist ekki liggja fyrir. Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, er ósammála Pawel, en hún lagði til að borgar- stjórn samþykkti sambærilega tillögu í haust sem fékk óblíðar móttökur að hennar sögn. „Þegar þetta er orðið að lögum efast ég um að þau geti komist hjá þessu. Borgin verður að virða lögin,“ segir hún. »6 Ósætti ríkir um bíla- umferð á göngugötum  Hreyfihömluðum veitt heimild til að keyra á göngugötum Morgunblaðið/Eggert Göngugata Á tilteknum tíma hingað til hefur akstur verið bannaður á hluta Laugavegar. Til stendur að hann verði varanleg göngugata innan tíðar.  Stefnan sem borgarmeirihlutinn fylgir til að minnka bílaumferð, með þéttingu byggðar, hefur snúist upp í andhverfu sína, segir Egill Þór Jóns- son borgarfulltrúi. Segist hann gjarnan vera þrjú korter að aka úr Breiðholti niður í Ráðhús en bróðir hans aki frá Þorlákshöfn í Grafar- vog á 35 mínútum. Hann á allar ræt- ur að rekja í Breiðholtið og segir mikilvægt að tekið verði á ýmsum þeim málum er snúa að almennri vel- ferð ungmenna og barna þar. »10 Mikilvægt að taka á málum í Breiðholti  Framkvæmdir hófust fyrir viku á húsnæði Safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri við Arnarfjörð á Vest- fjörðum. Verið er að skipta út hluta af gamalli múrhúð á framhlið húss- ins og mála það, en húsið er bæði nýtt sem íbúðarhús og undir Safn Jóns Sigurðssonar. Að sögn Valdimars Halldórs- sonar, staðarhaldara á Hrafnseyri, koma milli 5.000 og 6.000 ferða- menn yfir sumartímann á Hrafns- eyri. Að hans sögn eru fleiri á ferð- inni í ár en í fyrra og eru gestir skemmtiferðaskipa sem sækja Ísa- fjörð heim áberandi. »11 Unnið að viðgerðum á Hrafnseyri Sigurður Pétur Snorrason, stofn- andi RVK Brewing Company og for- maður samtaka íslenskra hand- verksbrugghúsa, segir marga bjórframleiðendur telja ótækt að lægri gjöld séu lögð á léttvín en bjór og vilji að lagaumhverfið verði endurskoðað. Hann og fleiri fram- leiðendur séu að skapa störf, ný- sköpun sé um allt land og framleið- endur fái til sín gesti og túrista. Á sama tíma búi bjórframleiðendur við mjög óþjált og íþyngjandi umhverfi áfengisgjalda. Agnes Anna Sigurð- ardóttir, eigandi Kalda segir að ekki sé nægjanlega hlúð að íslenskri bjór- framleiðslu og telur galið að kampa- vín og fleiri vinsælir drykkir beri lægri gjöld en bjór. »2 Vilja lægri gjöld á bjór Morgunblaðið/Eggert Mismunun Áfengisgjöld eru mest á sterk vín, svo bjór og loks á léttvín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.