Morgunblaðið - 15.07.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019
Það er allgamall íslenskur ósið-ur að birta árlega álagða
skatta einstaklinga og slá svo upp
meintum reiknuðum tekjum út frá
þeim upplýsingum. Ríkisvaldið,
sem á að verja rétt fólks til einka-
lífs, stendur sjálft fyrir þessum
ósköpum. Sennileg skýring á því
að þetta viðgengst er að þetta
hófst áður en farið var að huga
mjög að réttinum til einkalífs.
Umræður um þann rétt hafa auk-
ist með vaxandi og réttmætum
áhyggjum
af því að
tæknin ógni
einkalífinu
mjög.
Vernd einkalífs fólks er mikil-væg og áherslan á hana á að
fara vaxandi. Stofnunin Persónu-
vernd er eitt af því sem á að
stuðla að aukinni persónuvernd,
en varla verður sagt að stofnunin
standi undir nafni í nýjum úr-
skurði.
Þar er fjallað um heimildir tilbirtingar fyrrgreindra við-
kvæmra persónuupplýsinga og
kemst Persónuvernd að þeirri
niðurstöðu að birting sé heimil,
en að óheimilt sé að upplýsa um
gjöld einstaklinga í framkvæmda-
sjóð aldraðra og til Ríkis-
útvarpsins! Þá megi í þessu sam-
bandi ekki birta kennitölu fólks,
en nafn, heimilisfang og
fæðingardag megi birta!
Þetta er hlægilegt en því miðurekki grín. Og Persónuvernd
vísar í lög úrskurðinum til stuðn-
ings, þannig að vandinn virðist
liggja hjá löggjafanum.
Er ekki tímabært, ekki síst íljósi aukins mikilvægis
persónuverndar, að einhverjir
þingmenn taki sig saman og ráði
bót á þessu?
Hlægilegt en
þó ekkert grín
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Þetta verður svolítið bara svona
áfram. Vikan er voðalega einsleit,“
sagði Páll Ágúst Þórarinsson,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu Ís-
lands, þegar Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans í gærkvöldi og
spurðist fyrir um veðurhorfur í vik-
unni.
Eftir góða byrjun á sumrinu, þ. á
m. júnímánuð sem klóraði í Íslands-
met í sólskinsstundum á höfuð-
borgarsvæðinu, hefur verið nokkuð
þungbúið um helgina og er útlit fyr-
ir að slíkt haldi áfram. „Það voru
þessi skil núna, sem fóru yfir í [gær]
og endast út bróðurpart [dagsins í
dag]. Svo fáum við aðeins aðra gusu
á þriðjudag og miðvikudag, sem
snertir eiginlega mest allt landið,“
sagði Páll Ágúst.
Sagði hann að síðar í vikunni, á
fimmtudag og föstudag, væri útlit
fyrir rigningarveður á Suðaustur-
landi og Austurlandi, „og gengur
svo yfir Norðurlandið. Suðvestur-
og Vesturlandið sleppur örugglega.
Svo það sést örugglega í eitthvað
blátt á milli þar.“
Aðspurður sagði hann að áfram
yrði hiti þó tiltölulega mildur. „Það
munu áfram sjást ágætis hitatölur.
Svona tíu til fimmtán gráður hérna
suðvestanmegin og svona fimmtán
til tuttugu gráður norðaustanlands.“
Útlit fyrir „aðra gusu“ á morgun
Veður í vikunni voðalega einsleitt
Sést örugglega í „eitthvað blátt“
Morgunblaðið/Hari
Þungbúið Ef að líkum lætur verða
grá ský algeng sjón í vikunni.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Á annað hundrað keppenda voru
skráðir til leiks í frjálsíþróttum á
þriðja og síðasta degi Sumarhátíðar
Ungmenna- og íþróttasambands
Austurlands (UÍA) í gær, en sumar-
hátíðin hefur verið haldin árlega frá
árinu 1983. Fjölmennasta keppnis-
greinin á laugardag var sund en á
föstudag var keppt í örlítið óhefð-
bundnari greinum, þar á meðal í
stígvélakasti. Var sú keppnisgrein
hluti af góðgerðarmótinu sem haldið
var á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum,
en góðgerðarmótið markaði upphaf
hátíðarinnar. Safnað var í þágu geð-
heilbrigðismála á Austurlandi.
Spurð hvers vegna geðheilbrigðis-
mál hefði verið valin í þetta sinn
sagði Gréta Sóley Arngrímsdóttir,
hjá UÍA, málefnið hafa þurft á fjár-
stuðningi að halda, en til stæði að
byggja upp geðheilbrigðisþjónustu
fyrir átján ára og eldri.
„Geðheilbrigðisþjónusta fyrir
þann hóp hefur svolítið setið á hak-
anum,“ sagði hún.
Auk frjálsra íþróttir og sunds var
keppt í hinum ýmsu greinum, þar á
meðal fjallahjólreiðum, bogfimi og
kökuskreytingum.
Lögðu áherslu á fjölbreytni
Spurð hvort lögð hefði verið
áhersla á að bjóða upp á keppnir í
„óhefðbundnari íþróttum“, en ekki
stórum íþróttum eins og körfubolta
og fótbolta, sagði Gréta að fyrst og
fremst hefði verið lögð áhersla á fjöl-
breytni í keppnisgreinum. „En við
vorum með keppni í brennibolta,“
bætti hún við.
Þá var í fyrsta skipti keppt í raf-
íþróttum á sumarhátíð UÍA. „Keppt
var í FIFA og Rocket League,“
sagði Gréta, en fyrrnefndi tölvuleik-
urinn er knattspyrnuleikur og sá
seinni bílaleikur.
Keppt bæði í sundi
og stígvélakasti
Rafíþróttir á með-
al keppnisgreina á
Sumarhátíð UÍA
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Vaskir Ungir menn munda bogann í
bogfimikeppninni fyrir austan.