Morgunblaðið - 15.07.2019, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógum 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Opin handavinnustofa
kl. 9 -12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Félagsvist með vinningum
kl. 12.45. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur
kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Mánudagur: Bingó kl. 13.00. Magnús Einarsson hrossa-
ræktandi frá Kjarnholtum er með myndasýningu í matsalnum næstu
vikur, allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við
hringboðið kl. 8:50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hugmyndasamkepp-
nin um nafn á nýju útitækjunum í fullum gangi lýkur að kveldi 17. júlí.
Hádegismatur kl. 11:30. Handavinnuhornið kl. 13-15. Félagsvist
kl. 13. Gáfumannakaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Núvitund í handverkstofu kl. 10.30.
Göngutúr um hverfið kl. 13.00. Heitt á könnunni fyrir hádegi.
Hádegismatur frá 11.30 til 12.30 alla daga vikunnar og kaffi frá 14.30
til 15.30 alla virka daga. Verið hjartanlega velkomin á Vitatorg.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10.00. Bridge í Jónshúsi
kl. 13.00.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 13.15 Canasta.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45.
Hádegismatur er kl. 11.30, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum
með Margréti kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45,upplestur
kl.11, hádegisverður kl.11.30, ganga m.starfsmanni kl.14, síðdegiskaffi
kl.14.30, bíó í betri stofunni kl.15.30.Uppl í s.4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, vatnsleikfimi í sundlaug
Seltjarnarness kl. 18.30. Minnum á harmonikkuballið á fimmtudaginn
klukkan 15.00 - 17.00.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16.
Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegis-
matur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður.
Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu
frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
✝ Fanney Eiríks-dóttir fæddist á
Landspítalanum
10. mars 1987. Hún
lést á líknardeild
LSH 7. júlí 2019.
Foreldrar henn-
ar eru Rósa Lára
Guðlaugsdóttir, f.
7.1. 1955, og Eirík-
ur Sturla Jóhann-
esson, f. 22.2. 1955.
Fanney var yngst
þriggja systra. Systur hennar
eru: Linda Björk Eiríksdóttir, f.
27.8. 1978, og Gyða Eiríksdóttir,
f. 3.10. 1983.
Eiginmaður Fanneyjar er
Ragnar Snær Njálsson, f. 20.4.
1986. Foreldrar hans eru Njáll
skrifaðist sem stúdent úr Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ.
Fanney vann alla tíð með skól-
anum og var verslunarstjóri í
GS skóm Kringlunni. Síðar
starfaði hún í nokkur ár á lög-
mannsstofu Guðmundar Ólafs-
sonar sem aðstoðarkona lög-
manns.
Fanney bjó í Garðabæ þar til
hún og Ragnar stofnuðu saman
heimili í Hafnarfirði. Fanney
helgaði sig móðurhlutverkinu
eftir að dóttir þeirra Ragnars,
Emilý Rósa, kom í heiminn. .
Fanney æfði dans og knatt-
spyrnu á sínum yngri árum. Hún
var alla tíð iðin við líkamsrækt
og var Boot Camp hennar helsta
áhugamál síðustu árin.
Útför Fanneyjar fer fram frá
Vídalínskirkju Garðabæ í dag,
15. júlí 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Harðarson, f. 27.10.
1961, og Marsibil
Fjóla Snæbjarnar-
dóttir, f. 5.11. 1963.
Systir Ragnars er
Svala Fanney
Njálsdóttir, f. 1.2.
1981.
Fanney og Ragn-
ar gengu í hjóna-
band í Hafnar-
fjarðarkirkju 16.
júlí 2016. Börn
þeirra eru Emilý Rósa Snædahl
Ragnarsdóttir, f. 27.12. 2014, og
Erik Fjólar Snædahl Ragnars-
son, f. 24.9. 2018.
Fanney ólst upp í Garðabæ
þar sem hún gekk í Flataskóla
og síðar Garðaskóla. Hún út-
Elsku Fanney frænka, ef ég
mætti lýsa þér með einu orði, þá
væri það hetja. Þú sýndir það og
sannaðir hversu mikill styrkur
bjó í þér í þinni baráttu. Þegar ég
hugsa til þín koma upp svo marg-
ar skemmtilegar minningar. Ég
gleymi því aldrei hvað þú varst
hrædd við unglinga. Við vorum
kannski 11 eða 12 ára þegar við
vorum á leiðinni út í sjoppu af því
að það þurfti að kaupa stóran
nammipoka til að hafa fyrir kósí-
kvöldið okkar. Allir sem þekkja
þig vita að þú varst alltaf með
besta og stærsta nammipokann.
Við gengum af stað út í sjoppu og
skyndilega stoppaðir þú og
hljópst svo yfir götuna. Ég hljóp á
eftir þér og spurði hvað væri eig-
inlega í gangi. Þú sagðir: „Æi, það
eru unglingar þarna, ég er svo
hrædd um að þeir elti okkur.“ Það
voru ófá skiptin sem við gistum
saman og alltaf var jafn gaman
hjá okkur. Skemmtilegast fannst
okkur þegar Gyða vildi hafa okk-
ur með. Að passa fannst okkur
mjög gaman, sérstaklega ef það
var eitthvað fram eftir kvöldi.
Eitt sinn þegar við vorum að
passa fyrir Beggu frænku gerð-
irðu nokkuð sem ég mun aldrei
gleyma. Þú talaðir oft upp úr
svefni en oft skildist ekkert hvað
þú varst að segja. Þetta kvöld
skildi ég allt sem þú sagðir. Ég
ýtti í þig til að vekja þig og spurði
hvort að við ættum ekki að
hringja í Beggu. Þú settist upp
með lokuð augun og sagðir: „Fáðu
þér bara sjálf vatn í krananum.“
Ég passaði mig að hlæja ekki og
spurði aftur hvort við ættum ekki
að hringja í Beggu og þá sagðir
þú: „Úlpan þín er inni á klósetti.“
Þá sprakk ég úr hlátri og þú vakn-
aðir. Þú varst alltaf svo skemmti-
leg og hafðir mikinn húmor fyrir
sjálfri þér. Alls staðar þar sem þú
varst var gaman, þú eignaðist vini
alls staðar og varst góð við alla.
Þú varst jafn falleg að innan sem
utan og það var alltaf hægt að
leita til þín í erfiðleikum. Þegar ég
fékk bílpróf var oft farið á rúntinn
og þú varst yfirleitt búin að skrifa
geisladisk með nýjustu tónlist-
inni. Þú klikkaðir aldrei í tónlist-
inni og kunnir öll skemmtilegustu
lögin utan að og varst ótrúlega
fljót að ná þeim. Það var mikið
hlegið og spjallað í þessum bíltúr-
um. Þegar við urðum mömmur
fannst okkur ekki leiðinlegt að
hittast og gera eitthvað skemmti-
legt saman. Það er svo margt sem
ég get skrifað um þig því þú varst
hrókur alls fagnaðar. Ég mun
minnast þín með gleði og söknuði
þar til ég kem og hitti þig. Þú
munt alltaf vera bjartasta stjarn-
an á himninum.
Þín frænka
Elva Rut Ólafsdóttir.
Lítið fallegt stelpuskott fagnar
frænku sinni með innilegu knúsi
þegar hún kíkir í heimsókn til fjöl-
skyldunnar í Kjarrmóunum. Sú
stutta bíður róleg á meðan frænk-
an nælir sér í kaffibolla og kemur
sér fyrir í notalegum hægindastól
í stofunni. Þá kemur stelpuskottið
upp að hægindastólnum, styður
sig við sætisarminn, horfir með
sínum fallegu augum á frænku
sína og segir: „Sjóka, má blása?“
Fátt þykir henni nefnilega
skemmtilegra en þegar frænka
dregur eldspýtur upp úr veskinu
sínu og leyfir henni að blása á log-
ann. Á þessum árum voru nefni-
lega slík verkfæri iðulega í tösk-
unni hennar frænku. Þónokkuð
margir eldspýtustokkar fóru í
þessa iðju okkar Fanneyjar.
Frænka kveikti logann á eldspýt-
unni sem sú stutta blés á með
miklum tilþrifum. Þessi minning
hefur ætíð verið mér hugleikin en
hefur nú verið færð í kistu dýr-
mætustu minninganna ásamt öðr-
um sem ég á frá hennar allt of
stuttu ævi.
Minningabrotin líða hjá í huga
mínum. Minning um fallega og
lífsglaða stúlku í ógleymanlegri
ferð með fjölskyldunni til Mal-
lorca þar sem hún sigraði í lim-
bódansi með glæsibrag. Minning
um unga og glæsilega stúdínu
sem voru allir vegir færir og lífið
brosti við. Minning um fegurðar-
dís sem geislaði af og mér þótti
bera af öðrum fögrum dísum.
Minning um unga stolta móður og
fagra brúði. Minning um unga
konu með mikinn baráttuvilja og
þrek.
Björt sumarnóttin var eins og
þær gerast fegurstar á Íslandi
þegar lífslogi minnar elskuðu
bróðurdóttur, Fanneyjar, slokkn-
aði í hinsta sinn. Loginn sem hún
reyndi, af öllum þeim mætti sem
hún átti til, að halda lifandi en
varð að lokum að játa sig sigraða.
Við, sem eftir sitjum hnípin,
syrgjum en á sama tíma fögnum
við lífi þessarar fögru mannveru.
Lífi sem skilur eftir sig tvö yndis-
leg börn og minningar sem við
getum yljað okkur við.
Ég og fjölskylda mín biðjum al-
mættið um að veita ykkur styrk í
sorginni, kæri Ragnar og börn,
Eiríkur, minn kæri bróðir, Rósa
mágkona, Linda, Gyða og fjöl-
skyldur. Minningin um mannveru
sem var jafn fögur að utan sem
innan lifir með okkur öllum.
Ég kveð þig, elsku Fanney
mín, með þessum ljóðlínum
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar
nætur.
(Jóhann Sigurjónsson)
Snjólaug (Snjóka frænka).
Elsku fallega Fanney mín. Það
er ósanngjarnt hversu hratt líf
manns getur breyst og ég trúi því
ekki enn að þú sért farin frá okk-
ur. Ég vildi óska þess að mig væri
að dreyma vondan draum! Fyrir
ári varst þú í blóma lífs þíns og
geislandi af hamingju komin um
20 vikur á leið. Eftir að þú greind-
ist með krabbamein kom ekki
annað til greina en að berjast og
það hart. Ég hef aldrei kynnst
eins mikilli hetjudáð og þú sýndir
síðastliðna 11 mánuði.
Ég er óendanlega þakklát fyrir
að hafa fengið þig inn í líf mitt fyr-
ir meira en áratug og ég þakka
Kristbjörgu vinkonu okkar fyrir
það. Endalausar minningar koma
upp í hugann þegar ég hugsa til
baka og sem betur fer auðveldar
tæknin manni að geyma dýrmæt-
ar minningar. Elsku fallegu gim-
steinarnir þínir, Emilý Rósa og
Erik Fjólar fá að sjá myndir og
myndbönd af mömmu sinni þegar
þau verða eldri.
Elsku Fanney þú passaðir að
öllum liði vel og varst ávallt til
staðar fyrir vini þína. Takk fyrir
alla aðstoðina í gegnum tíðina og
takk fyrir að vera svona góð við
dóttur mína, Ásu. Þú gafst henni
margar fallegar gjafir og fullt af
dóti frá Emilý. Ég mun varðveita
þetta allt og hlakka til að segja
Ásu sögur af fallega englinum
sem vakir yfir okkur.
Mörg voru kvöldin sem við átt-
um saman í Fellsmúlanum, sér-
staklega hér áður fyrr þegar þú
komst með harða diskinn þinn til
þess að fá ný lög. Tónlist var stór
partur af lífi þínu og það er gaman
að horfa á myndbönd þar sem þú
rappar alla undir borðið! Þrátt
fyrir að hafa verið mikið kvalin og
þreytt á líknardeildinni þá gastu
muldrað textann og dillað hönd-
um við lög Cardi B. Þetta getur
enginn nema elsku besta Fanney!
Dýrmætu stundunum sem við
áttum síðustu vikur og mánuði
mun ég aldrei gleyma en engan
grunaði að þetta myndi gerast
svona hratt. Ég er svo glöð fyrir
þína hönd að þú ákvaðst að halda
upp á afmælið þitt í mars síðast-
liðnum. Sá dagur er besta minn-
ingin sem ég á um þig og þú geisl-
aðir af gleði umkringd dásam-
legum vinkonum!
Barátta þín síðastliðið ár hefur
kennt mér að taka ekkert sem
sjálfsagðan hlut og einblína enn
meira á að lifa lífinu núna með
dóttur minni.
Vin sínum
skal maður vinur vera,
þeim og þess vin.
(Úr Hávamálum)
Elsku Raggi, Emilý, Erik,
Rósa, Eiki, Linda og Gyða, ég
votta mína dýpstu samúð og þið
hafið staðið ykkur af mikilli dáð í
baráttu Fanneyjar. Nú er elsku
hetjan okkar komin í ró og fylgir
okkur að himnum ofan.
Elska þig Fanney!
Ingveldur (Inga Kristjáns)
og Ása.
Elsku Fanney.
Elsku lífsglaða vinkona mín
sem ég elska svo mikið. Drættir
pennans eru þungir og það er
sárara en öll orð fá lýst að þurfa
að kveðja þig. Við sem áttum allt
lífið saman framundan. Við töluð-
um svo oft um hvað það yrði gam-
an hjá okkur á elliheimilinu í
framtíðinni að rifja upp gamlar
fyndnar minningar og skoða
myndir.
Ég er svo þakklát fyrir okkar
einstöku vináttu og allt sem henni
fylgdi. Þú varst svo ótrúlega dýr-
mætt eintak og heimurinn mætti
læra fullt af þér. Þú tókst lífið
ekki of alvarlega og það átti alltaf
að vera gaman. Bros þitt og gleði
þín lýsti upp hvert herbergi sem
þú komst inn í og þú heillaðir alla
upp úr skónum með persónuleika
þínum. Þú varst sterkasta mann-
eskja sem ég hef á ævi minni
kynnst og alltaf með jákvæðnina
að leiðarljósi. Þessi illkvittni sjúk-
dómur átti ekki að buga þig og
hann gerði það ekki, þú barðist af
hetjudáð fram á síðustu mínútu
og kvartaðir aldrei. Þú talaðir
alltaf um að það ætti ekki að vor-
kenna þér því það væru margir
aðrir sem ættu erfitt. Þetta lýsir
svo vel þeirri manneskju sem þú
ert, mesti nagli í heimi og með
hjarta úr gulli.
Ég á eftir að sakna þess að
vera með þér í bíl og hlusta á
skrítna rapptónlist sem ég þekkti
ekki en þú kunnir alla texta við,
hlátursins, símtalanna og faðma-
laganna sem sögðu meira en þús-
und orð.
Minning þín mun lifa alla ævi.
Emilý Rósa og Erik Fjólar munu
fá að heyra óteljandi sögur af lífs-
glöðu mömmu sinni sem var tekin
frá þeim alltof snemma.
Ég mun sakna nærveru þinnar
og kveð þig með tár í augum og
tómarúm í hjarta.
Englar eins og þú:
Þú tekur þig svo vel út
hvar sem þú ert.
Ótrúlega dýrmætt eintak,
sólin sem yljar
og umhverfið vermir.
Þú glæðir tilveruna gleði
með gefandi nærveru
og færir bros á brá
svo það birtir til í sálinni.
Sólin sem bræðir hjörtun.
Í mannhafinu
er gott að vita
af englum
eins og þér.
Því að þú ert sólin mín
sem aldrei dregur fyrir.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Þín vinkona
Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir.
Elsku besta vinkona mín, þeg-
ar ég hitti þig fyrst datt mér aldr-
ei í hug að þú myndir hafa svona
gríðarleg áhrif á líf mitt og verða
ein mikilvægasta manneskjan í
mínu lífi. Allar dýrmætu stund-
irnar sem við áttum saman mun
ég geyma með mér svo lengi sem
ég lifi. Árið 2010 eignaðist ég
bestu vinkonu mína. Næstu ár á
eftir eru eftirminnilegustu ár lífs
míns þar sem við eyddum fleiri
dögum saman en í sundur, við
gerðum allt saman, einu stundirn-
ar sem við vorum ekki saman var
á næturnar, svona nánast. Það
var orðið þannig að ef ég mætti
ein í ræktina þá spurðu allir:
„Hvar er Fanney?“ Fólki fannst
athugavert að sjá okkur hvora í
sínu lagi. Við vorum ein heild. Þú
lagðir mér lífsreglurnar, passaðir
ávallt upp á mig og hafðir alltaf vit
fyrir mér, fyrir utan þau skipti
sem þú manaðir mig upp í að gera
eitthvað heimskulegt sem við
hlógum svo mikið að. Þú settir
alltaf þá sem voru þér næstir í
fyrsta sæti og passaðir að okkur
liði ekki illa, líka þegar þér leið
hvað verst þá passaðirðu upp á að
okkur liði vel. Þú hafðir svo mikið
að gefa öðrum með þitt stóra
hjarta. Það var ómögulegt að rök-
ræða við þig, þú varst ein sú
þrjóskasta. Þú stóðst alltaf föst á
þínu og hafðir oftast rétt fyrir
þér. Það fór einmitt þannig að
þrjóskan í þér og vitleysan í mér
varð til þess að við töluðumst ekki
við í eitt ár. Sá tími var sá erfiðasti
sem ég hef upplifað ásamt síðast-
liðnu ári þar sem þú barðist hetju-
lega við krabbameinið. Ég man að
ég hringdi í þig niðurbrotin eftir
að hafa ekki talað við þig í eitt ár.
Eftir það símtal tókum við upp
þráðinn þar sem frá var horfið
eins og ekkert hefði gerst. Allt
var orðið eins og það var, þegar
við mættum hvor í sínu lagi á Bo-
otcamp-æfingar var ég spurð
hvar þú værir. Eftir þetta ár sem
við töluðumst ekki við hét ég því
að missa þig ekki aftur en hér er-
um við í dag þar sem ég kveð þig í
hinsta sinn. Í þetta skipti get ég
ekki hringt í þig og fengið þig til
baka. Þú ætlaðir ekki að tapa
þessari baráttu fyrir börnin þín,
þú vildir lifa fyrir þau. Við munum
sjá til þess á hverjum degi að þau
viti að mamma þeirra elskar þau
og fái að vita hversu yndisleg
mamma þeirra var. Þú náðir að
snerta mörg hjörtu þar á meðal
hjarta litlu systur minnar sem leit
á þig sem vinkonu sína og teiknaði
hún margar myndir handa þér
sem þér þótti svo vænt um. Hún á
margar minningar með þér og
stendur upp úr þegar við bökuð-
um lakkrístoppa fyrir þig og fór-
um með á spítalann til þín, henni
fannst svo gott að geta glatt þig,
því þú gladdir hana alltaf. Þú
elskaðir tónlist, það var alltaf tón-
list í kringum þig og við sungum
hástöfum saman við Celine Dion,
það voru dýrmætar stundir. Þú
varst með náðargáfu í að læra
texta við ótrúlegustu rapplög og
allt fram á síðustu stundu muldr-
aðir þú textana þrátt fyrir að vera
kvalin. Ég votta börnunum þín-
um, Emilý Rósu og Erik Fjólari,
Ragnari og dásamlegu fjölskyldu
þinni mína dýpstu samúð. Minn-
ing þín lifir í okkur öllum.
Ég elska þig, Fanney mín.
Þín vinkona
Thelma Rut Svansdóttir.
Það er sárt að þurfa að kveðja
Fanneyju, einstaka unga konu.
Kynni við Fanneyju voru í
gegnum samstarf á Jarðhitasýn-
ingunni í Hellisheiðarvirkjun sem
hófst árið 2016. Fanney var alltaf
tilbúin þegar þörf var á. Hún var
glaðlynd, vandvirk, með þægilega
nærveru og átti einstaklega gott
með að ná til fólks. Alltaf var stutt
í hláturinn í kringum Fanneyju og
ekki sjaldan að hún kom með
bakkelsi sem hún hafði búið til
sjálf handa hópnum. Síðastliðið
sumar tilkynnti Fanney að þau
ættu von á barni, sem voru mikil
gleðitíðindi. Stuttu síðar sagði
hún mér þær sorgarfréttir að hún
hefði greinst með krabbamein.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá,
en þó eru margir, sem ferðalaginu
kvíða.
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
en aðrir setjast við hótelgluggann og
bíða.
(Tómas Guðmundsson)
Fyrir hönd starfsfólks Jarð-
hitasýningar ON sendi ég Ragn-
ari Snæ eiginmanni Fanneyjar,
börnum og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur. Megi Guð
styrkja ykkur á erfiðum tímum.
Minning um einstaka konu mun
lifa með okkur.
Kristín Ýr Hrafnkelsdóttir,
rekstrarstjóri ON.
Fanney Eiríksdóttir