Morgunblaðið - 15.07.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 15.07.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gættu þess að gera ekki of miklar kröfur til þín, þú talar þig of oft niður. Ekki gefa þumlung eftir þegar einhver ætlar að valta yfir þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú veist sitt af hverju en til allrar hamingju ekki allt, enda væri það mjög þreytandi fyrir félagana. Ekki vera sífellt á varðbergi, slakaðu á. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú verður að grípa gæsina þeg- ar hún gefst og notfæra þér þær að- stæður sem eru heppilegar hverju sinni. Njóttu þess sem er þitt og láttu af allri græðgi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur verið erfitt að standa frammi fyrir því að aðrir haldi mann vita meira en raunin er. Allt félagsstarf mun gera þér gott. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Taktu þér smáhvíld frá daglega amstrinu. Þú kynnist manneskju sem á eftir að lífga upp á tilveru þína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu vera að taka áhættu í pen- ingamálum í dag. Farðu á fætur fyrir allar aldir og nýttu þér tímann þar til allir vakna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Kraftur þinn liggur í loftinu, taktu af skarið og náðu forskoti. En ef þú leggur þig fram geta allir þínir draumar ræst. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Við notum sjaldnast tækifær- ið til að tjá okkur við fólk er við hittum á förnum vegi en á því verður breyting í dag. Mest spennandi verkefni dagsins teygjast vel fram á kvöld. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ættir að láta það eftir þér að leita hugsvölunar í góðri bók, kvikmynd eða tónlist. Þú tekur spor í rétta átt í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ferð að öllu með gát í dag. Taktu engu sem sjálfsögðum hlut og þakkaðu fyrir það líf sem þú átt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Stutt ferðalög fela í sér ýmis- legt óvænt. Njóttu þess að ræða málin við makann og freista þess að fá botn í hlut- ina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér er óhætt að treysta eigin til- finningum í vandasamri ákvörðun sem nú bíður þín. Vertu örlát/ur og þú munt upp- skera ríkulega. M agnús Björnsson er fimmtugur í dag. „Samkvæmt kenn- ingu Konfúsíusar er ég að renna inn í besta skeið ævi minnar. Nú á ég að vita allt og þekkja allt. Það stenst nú reyndar engan veginn,“ segir hann glaður í bragði við blaðamann. „En ég á alla vega að geta kennt öðrum núna,“ segir hann og það er í vissum skilningi hlutverk hans sem for- stöðumanns Konfúsíusarstofnunar- innar Norðurljósa við Háskóla Ís- lands. Hann fer fyrir þessari kínversku menningar- og mennta- stofnun sem teygir anga sína inn í 500 menntastofnanir um allan heim og sinnir kennslu og kynningu á kín- verskum fræðum. Því er það ekkert annað en viðeigandi að á þessum tímamótum vísi Magnús í Konfúsíus, kínverska heimspekinginn fræga frá 5. öld f.Kr., enda skyldi maður ætla að hann væri ákveðinn leiðtogi lífs hans. Magnús er ánægður, hann er stolt- ur af þessum störfum. „Það eru alger forréttindi að fá að vinna við það sem stendur manni hjarta næst. Svo fel- ast í þessu mikil samskipti við Kín- verja, sem þó þau geti verið svolítið þreytandi stundum færa mér mikla ánægju,“ segir hann. Hann er altal- andi á kínversku eins og vænta má en samband hans við landið má rekja til hálfgerðrar heimsreisu sem hann fór í eftir útskrift úr menntaskóla. „Ég fór í Síberíuhraðlestina svoköll- uðu og endaði þá í Kína. Þar tók ég ástfóstri við landið. Mér leist svo vel á það að ég ákvað að ég yrði að koma aftur,“ segir Magnús, sem eignaðist á meðan á þessari dvöl stóð kínversk- an vin sem hann heldur enn tengslum við fram til þessa dags. Hann vissi að hann yrði að koma aftur og það gerði hann. „Þetta var bara tímaspursmál. Það sem verður til þess að ég drífi mig loksins aftur út árið 1995 er námsstyrkur. Ég skellti mér til Peking í tungumála- skóla í tvö ár en tók svo meistara- gráðu í alþjóðastjórnmálafræði við Renmin-háskóla í sömu borg,“ segir hann og lýsir því að sá skóli sé al- gengt val meðal verðandi embættis- manna innan kínverska kommún- istaflokksins. Í Renmin kynntist Magnús eiginkonu sinni, Xin Shi, en þá var hún að lesa sagnfræði við sama skóla. „Hún og vinkonur henn- ar tóku einn kúrs í stjórnmálafræð- inni. Þar kynntumst við. Það var ánægjuleg lukka,“ segir Magnús, sem hefur búið ásamt konu sinni og börnum á Íslandi frá því upp úr alda- mótum. Eftir að Magnús útskrifaðist úr meistaranáminu í Peking vann hann þar í íslenska sendiráðinu í ár en sneri svo aftur til Íslands, þar sem hann hefur fengist við ýmsa kennslu síðan og tekið þátt í að stofna ferða- þjónustufyrirtæki sem kona hans rekur í dag. Hann hefur sem sagt verið í stöðugum tengslum við Kína frá upphafi 10. áratugarins og hefur séð margt breytast. „Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa séð Kína fara í reynd frá 19. öldinni og inn í nýja öld. Þessar breytingar eru gríðar- legar og til marks um það var að fyrst á mínum námsárum mátti fara að nefna kapítalisma á nafn. Árið 1995 ferðuðust til dæmis flestir þarna um á hjólum og bílar voru fá- ir,“ segir Magnús, sem sjálfur er einnig stjórnmálafræðingur í grunn- inn frá Háskóla Íslands 1994. Magnús er fæddur og uppalinn á Hólabaki, Þingi í Austur-Húnavatns- sýslu. Hann ólst þar upp elstur fjög- urra systkina og fékk þar „klassískt sveitauppeldi“ eins og hann orðar það. „Ég byrjaði snemma að vinna og svona. Ég hefði ekki viljað alast upp neins staðar annars staðar,“ segir Magnús Björnsson, forstöðumaður Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa – 50 ára Kínamúrinn Magnús og Xin Shi eiginkona hans kynntust við nám í Peking undir lok síðustu aldar. Hér eru þau ásamt börnum sínum á Kínamúrnum. Minnugur Konfúsíusar í dag Heiðraður Magnús tekur við heiðursmerki úr hendi varaforsætisráðherra Kína fyrir framúrskarandi störf í þágu Konfúsíusarstofnunarinnar. Ísland Feðgin í sveit að sumri. Björn og Jenný eiga sér einnig kínversk nöfn. 30 ára Þór er uppalinn í Reykjavík og býr þar. Hann er með BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og stundar þar meistaranám í lög- fræði. Þór var fram- kvæmdastjóri InnX inn- réttinga og vann einnig sem aðstoðar- maður fasteignasala. Hann hefur starfað á ritstjórn mbl.is og Morgunblaðsins frá 2018. Hann er í fríi á afmælinu. Foreldrar: Steinar Örn Ingimundarson, f. 1969, d. 2013, eigandi InnX innréttinga og knattspyrnuþjálfari úr Breiðholti, og Jóna Margrét Sigurðardóttir, f. 1967, starfs- maður í Almenna lífeyrissjóðnum úr Árbæ. Móðurfaðir Þórs er Sigurður Atli Elísson prentari og þeir eru bestu vinir. Þór Steinarsson Til hamingju með daginn V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is 60 ára Daðey Þóra er fædd á Þingeyri við Dýrafjörð og býr á Akra- nesi. Hún er sviðsstjóri þjónustusviðs hjá Sýslumanninum á Vest- urlandi og hefur unnið þar samfleytt frá 1996 en hóf þar upphaflega störf 1982. Hún er rekstrarfræðingur. Dóttir: Ólöf Vala Schram, f. 19.5.1989. Hún er lagerstarfsmaður hjá Heilsu ehf. Foreldrar: Ólafur Jón Þórðarson frá Auð- kúlu við Arnarfjörð, fæddur á Hrafnseyri 24.9. 1930, látinn 8.3. 2004. Hann vann ýmis skrifstofustörf, síðast hjá Rafveitu Akraness. Þórey Jónsdóttir frá Þorvalds- stöðum í Breiðdal, fædd 5.5. 1936, látin 10.9. 2011. Hún var fótaaðgerðafræðingur. Daðey Þóra Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.