Morgunblaðið - 15.07.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 15.07.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Pepsi Max-deild karla ÍBV – FH .................................................. 1:2 HK – KA.................................................... 2:1 Staðan: KR 12 9 2 1 23:11 29 Breiðablik 12 7 1 4 23:15 22 ÍA 11 6 2 3 17:12 20 Stjarnan 12 5 4 3 19:16 19 FH 12 5 4 3 18:18 19 Valur 12 5 1 6 21:18 16 Fylkir 11 4 3 4 18:20 15 HK 12 4 2 6 15:16 14 Grindavík 11 2 6 3 7:9 12 KA 12 4 0 8 17:21 12 Víkingur R. 11 2 5 4 15:18 11 ÍBV 12 1 2 9 10:29 5 2. deild karla Þróttur V. – Völsungur........................... 2:0 Sjálfsmark 8., Alexander Helgason 76. Tindastóll – Vestri................................... 2:1 Arnar Ólafsson 23., Alvaro Cejudo 50.– Aaron Spear 15. Dalvík/Reynir – Víðir ............................. 1:0 Þröstur Mikael Jónasson 49. Staðan: Leiknir F. 11 6 4 1 22:11 22 Selfoss 11 6 2 3 26:12 20 Vestri 11 6 0 5 14:17 18 Fjarðabyggð 11 5 2 4 18:14 17 Völsungur 11 5 2 4 13:15 17 Víðir 11 5 1 5 17:15 16 Þróttur V. 11 4 4 3 14:14 16 ÍR 11 4 3 4 16:15 15 Dalvík/Reynir 11 3 6 2 14:13 15 KFG 11 4 0 7 19:25 12 Kári 11 3 2 6 20:25 11 Tindastóll 11 1 2 8 10:27 5 Noregur Bodö/Glimt – Ranheim ........................... 1:0  Oliver Sigurjónsson var ekki í leik- mannahópi Bodö/Glimt. Lilleström – Strömsgodset..................... 2:1  Arnór Smárason lék allan tímann með Lilleström og skoraði bæði mörkin. Mjöndalen – Odd...................................... 2:0  Dagur Dan Þórhallsson kom inn á á 90. mínútu í liði Mjöndalen og lék sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni. Rosenborg – Viking ................................ 5:1  Samúel Kári Friðjónsson lék allan tím- ann með Viking. Axel Óskar Andrésson er frá keppni vegna meiðsla. Staðan: Molde 15 9 3 3 35:15 30 Bodø/Glimt 14 9 2 3 33:23 29 Odd 15 9 2 4 22:17 29 Vålerenga 14 7 3 4 28:18 24 Rosenborg 15 7 3 5 20:18 24 Brann 15 6 5 4 17:15 23 Kristiansund 14 6 3 5 17:15 21 Haugesund 15 5 5 5 24:18 20 Viking 14 5 4 5 20:23 19 Lillestrøm 15 5 3 7 18:24 18 Mjøndalen 15 3 7 5 20:24 16 Tromsø 15 5 1 9 15:28 16 Ranheim 15 4 3 8 17:26 15 Stabæk 13 4 2 7 10:16 14 Sarpsborg 13 2 6 5 12:16 12 Strømsgodset 15 2 4 9 15:27 10 KNATTSPYRNA Serbinn Novak Djokovic fagnaði sigri í einliðaleik karla á Wimbledon- mótinu í tennis annað árið í röð og í fimmta skipti í sögunni þegar hann bar sigurorð af Svisslendingnum Roger Federer í mögnuðum úrslita- leik í gær þar sem úrslitin réðust í oddasetti. Leikurinn stóð yfir í fjór- ar klukkustundir og 57 mínútur og er lengsti úrslitaleikurinn í sögu mótsins. Djokovic, sem er 32 ára gamall, hefur þar með unnið 11 risatitla á ferlinum en hinn 37 ára gamli Fede- rer hefur 20 sinnum fagnað sigri á risamótum og hefur unnið Wimble- don-mótið átta sinnum, síðast fyrir tveimur árum. Djokovic hefur nú haft betur gegn Federer í níu af síð- ustu ellefu viðureignum þeirra og í þremur af fjórum síðustu viður- eignum þeirra á Wimbledon-mótinu. „Ég held að þetta hafi verið mest spennandi úrslitaleikur sem ég hef tekið þátt í á ferlinum og það á móti einum þeim allra besta í sögunni, Roger Federer, sem ég ber mikla virðingu fyrir. Því miður þurfti ann- ar að tapa,“ sagði Djokovic eftir sigurinn, en með sigrinum í gær jafnaði hann Svíann Björn Borg, sem hrósaði fimm sinnum sigri á Wimbledon-mótinu. „Þetta var langur leikur sem hafði allt. Ég hafði svör, Djokovic líka og við spiluðum frábært tennis. Ég vona að ég gefi sumu fólki sem er 37 ára þá tilfinningu að þetta sé ekki búið,“ sagði Federer eftir ósigurinn. Fyrsti sigur Rúmena Hin rúmenska Simona Halep hafði betur gegn Serenu Williams frá Bandaríkjunum í úrslitaleiknum í kvennaflokki. Þetta var fyrsti sigur Halep á Wimbledon-mótinu en ann- ar sigur hennar á risamóti. Halep, sem er 27 ára gömul, bar sigur úr býtum á opna franska meistara- mótinu í fyrra. Williams, sem freist- aði þess að vinna 24. risatitil sinn á ferlinum, átti aldrei möguleika gegn Halep, sem vann í tveimur settum, 6:2 og 6:2, og hún varð þar með fyrsti Rúmeninn sem fagnar sigri á Wimbledon-mótinu. Williams, sem er 37 ára gömul, hefur hins vegar sjö sinnum hrósað sigri á Wimbledon- mótinu en hún vann síðast risamót fyrir tveimur árum þegar hún vann opna ástralska mótið. ,,Mamma mín sagði þegar ég var tíu ára gömul að ef ég ætlaði að vera í tennis þá yrði ég að spila til úrslita á Wimbledon-mótinu. Ég sagði það þegar mótið byrjaði að ég ætlaði að reyna að vinna það og það tókst. Ég hef aldrei spilað betri leik,“ sagði Halep eftir sigurinn, en fyrir úrslita- leikinn hafði hún aðeins einu sinni haft betur á móti Williams í níu viðureignum þeirra; í úrslitaleik á móti í Singapúr fyrir fimm árum. gummih@mbl.is Djokovic vann í spennutrylli  Vann Wimbledon-mótið í 5. sinn AFP Meistari Novak Djokovic með bikarinn eftir sigurinn á Wimbledon-mótinu. Gunnleifur Gunnleifsson, mark- vörður og fyrirliði knattspyrnuliðs Breiðabliks, skrifaði í gær undir nýjan samning við félagið, á 44 ára afmælisdegi sínum. Gunnleifur hef- ur leikið með Breiðabliki frá árinu 2013 og er kominn í þriðja til fjórða sæti yfir leikjahæstu leikmenn Kópavogsfélagsins í efstu deild með 143 leiki. Hann hefur áður leikið með FH, HK, Keflavík og KR í deildinni og er leikjahæsti leik- maður HK í efstu deild, en Gunn- leifur lék fyrst á Íslandsmóti meistaraflokks árið 1994. vs@mbl.is Nýr samningur á afmælisdaginn Morgunblaðið/Hari Samningur Gunnleifur Gunn- leifsson samdi við Blika í gær. Breski ökuþórinn Lewis Hamilton fagnaði í gær 80. sigri sínum í Form- úlu 1 þegar hann vann breska kapp- aksturinn á Silverstone-brautinni. Hamilton nálgast jafnt og þétt Þjóð- verjann Michael Schumacher, en hann hefur oftast allra unnið sigur í Formúlu 1, eða 90 sinnum. Þetta var í sjötta sinn sem Hamilton vinnur breska kappasturinn, en heims- meistarinn fimmfaldi hefur nú 39 stiga forskot á Finnann Valtteri Bottas í stigakeppni ökuþóra. Bottas varð annar í gær og Frakkinn Charles Leclerc hafnaði í 3. sæti. 80. sigur Hamil- ton í Formúlu eitt AFP Fyrstur Lewis Hamilton fagnar sigri sínum á Silverstone í gær. Landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson opnaði marka- reikning sinn með sænska meistaraliðinu AIK um helgina þegar hann skoraði tvö fyrstu mörk liðsins í 3:0 sigri gegn Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni. Þetta voru fyrstu deildarmörk Kolbeins í fimm ár, eða frá því hann skoraði þrennu með Ajax í hollensku úrvalsdeildinni í september 2014, en Kolbeinn skoraði síðast mark með félagsliði þegar hann skoraði fyrir franska liðið Nantes í bikarleik á móti Bordeaux fyrir þremur árum. „Þetta var frábært. Ég hef beðið í þrjú ár eftir marki með félagsliði og þetta hefur verið langur tími. Það var því svolítið sérstakt fyrir mig að skora. Þetta hefur ekki verið auðvelt en það er þess virði núna þegar ég fæ þessa tilfinningu. Núna finnst mér að það sé þess verði eftir alla erfiðu tíma sem ég hef gengið gegnum,“ sagði Kolbeinn við sænska fjölmiðla eftir leikinn, en hann lék fyrstu 75 mínúturnar. Kolbeinn samdi við AIK í mars til tveggja ára, en lið- ið er í öðru sæti deildarinnar á eftir Malmö. gummih@mbl.is Hef beðið í þrjú ár eftir marki Kolbeinn Sigþórsson Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari karlaliðs FH í knatt- spyrnu, reiknar með að færeyski landsliðsmaðurinn Ják- up Thomsen verði frá keppni næstu fjórar til sex vik- urnar vegna meiðsla sem hann hlaut í 2:1 sigri FH gegn ÍBV í Pepsi Max-deildinni í Eyjum á laugardaginn. Jákup varð fyrir meiðslum á 34. mínútu þegar brotið var á honum innan vítateigs og þurfti hann að hætta leik í kjölfarið. „Það tognuðu liðbönd í hné hans og ég reikna með að hann verði frá keppni í fjórar til sex vikur. Hann hittir lækni á morgun (í dag) og þá kemur þetta betur í ljós,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið í gær. Ólafur vonast til að bæta sóknarmanni í lið sitt á næstunni. „Við ætlum að reyna að taka erlendan framherja og erum að fara yfir stöðuna hvað þau mál varðar,“ sagði Ólafur. FH-ingar voru á höttunum eftir Kristjáni Flóka Finnbogasyni frá norska B-deildarliðinu Start en allar líkur eru á að hann gangi í raðir KR-inga. gummih@mbl.is Jákup úr leik næstu vikurnar Jákup Thomsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.