Morgunblaðið - 15.07.2019, Qupperneq 26
FRJÁLSAR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Alls voru þrjú mótsmet sett á 93.
Meistaramóti Íslands í frjálsum
íþróttum sem fram fór á Laugar-
dalsvelli í Reykjavík um helgina.
Spennan var mismikil en fremsta
fRjálsíþróttafólk landsins vann mjög
afgerandi sigra í sínum greinum og
þurfti ekki að hafa mikið fyrir hlut-
unum.
Tvö mótsmet voru sett í sleggju-
kasti, en Hilmar Örn Jónsson úr FH
setti mótsmet í karlaflokki í gær þeg-
ar hann kastaði sleggjunni 73,42
metra. Hilmar vann öruggan sigur,
en hann kastaði sleggjunni tæplega
fimmtán metrum lengra en Vil-
hjálmur Árni Garðarsson, sem hafn-
aði í öðru sæti.
„Ég vissi ekki alveg hverju ég
mátti eiga von á. Ég er búinn að vera
nokkuð stöðugur að undanförnu en
samt veit maður einhvern veginn
aldrei. Það er alltaf gaman að setja
mótsmet og ég fæ helling af stigum
líka í nýja stigakerfinu hjá Frjáls-
íþróttasambandi Íslands þannig að
þetta var bara fínn dagur heilt yfir,“
sagði Hilmar Örn Jónsson í samtali
við Morgunblaðið á Laugardalsvelli í
gær.
Tímabilið hefur verið langt og
strangt hjá Hilmari og hann viður-
kenndi fúslega að vera farinn að
finna fyrir þreytu í líkamanum.
„Þetta hefur verið mjög langt
tímabil hjá mér og ég er í raun bara
búinn að vera á fullu síðan í mars á
þessu ári. Ég get alveg viðurkennt
það að ég finn það að líkaminn er að-
eins farinn að þreytast en samt sem
áður er ég í hörkuformi og það er
aldrei að vita nema nýtt Íslandsmet
verði sett á næstu vikum.“
Hilmar setur stefnuna á HM í
Doha í Katar sem hefst í lok septem-
ber og segir að markmiðið á næstu
vikum verði að kasta eins langt og
hann getur.
„Ég er alveg á grensunni með að
komast inn á HM. Þeir taka inn 32 og
eins og staðan er í dag er ég í 28. sæti
og það kemur ekki í ljós fyrr en 6.
september hverjir komast inn á HM.
Ég ætla þess vegna að reyna að
keyra á metið og reyna að kasta eins
langt og ég get til þess að hækka mig
á listanum, næstu tvær vikurnar, og
svo held ég bara áfram að æfa fyrir
HM.“
Fagnar aukinni samkeppni
Vigdís Jónsdóttir úr FH setti
mótsmet í sleggjukasti kvenna þegar
hún kastaði 59,67 metra en hún fagn-
aði því að vera loksins komin með
samkeppni í greininni í samtali við
blaðamann eftir að úrslitin lágu fyrir.
„Ég er búin að detta aðeins niður
eftir að ég sneri heim frá Bandaríkj-
unum en 59,67 metrar eftir slaka
byrjun á sumrinu er nokkuð sem ég
get lifað með. Það er auðvitað alltaf
gaman að setja mótsmet og vinna,
þar sem mér leið í raun bara illa á
ákveðnum tímapunkti í vetur. Ég er
hins vegar með frábært fólk í kring-
um mig og þetta er allt á uppleið hjá
mér,“ sagði Vigdís.
Vigdís breytti um ákveðna taktík í
vetur ásamt þjálfara sínum í Banda-
ríkjunum og er stefnan núna sett á
að toppa seinna á árinu, en hún hefur
venjulega verið að kasta best á fyrstu
mánuðum ársins.
„Þetta hefur verið langt og strangt
tímabil hjá mér. Ég byrjaði að keppa
í janúar á þessu ári úti í Bandaríkj-
unum og er í raun bara búin að vera
að keppa samfleytt í einhverja sex
mánuði núna og það tekur smá tíma
að venjast þessu álagi. Planið var
samt sem áður að reyna að toppa í
júní/júlí og mér finnst það hafa geng-
ið nokkuð vel eftir. Venjan hjá mér í
gegnum tíðina hefur verið að toppa í
mars en þjálfarinn minn í Bandaríkj-
unum hefur sett stefnuna á að reyna
að seinka því aðeins þannig að ég sé
að ná stærri árangri á stærri
mótum.“
Markmið Vigdísar á næstu vikum
er að koma sér í lið Íslands sem tek-
ur þátt í Evrópubikarnum sem fram
fer í Bydgoszcz í Póllandi um miðjan
ágúst.
„Ég er að vinna í því að reyna að
koma mér í liðið fyrir Evrópubikar-
inn en ég mun fá alvöru keppni líka.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir úr ÍR er
að koma mjög sterk inn, sem er frá-
bært fyrir greinina. Ég þarf virki-
lega að hafa fyrir hlutunum en það
hefur ekki alltaf verið þannig því ég
hef meira og minna verið ein í þessu
síðan ég byrjaði sjálf. Það er frábært
að sjá hversu stór grein sleggjukast
er orðin á Íslandi og vonandi er þessi
framgangur kominn til þess að
vera.“
Ætlaði ekki að taka þátt
Kolbeinn Höður Gunnarsson úr
FH kom fyrstur í mark í 200 metra
hlaupi karla sem fram fór í gær og
hafði betur gegn Ara Braga Kára-
syni sem hafnaði í öðru sæti. Engir
tímar voru skráðir í hlaupinu þar
sem tímatakan klikkaði en Kolbeinn
vann nokkuð öruggan sigur og
hefndi þar fyrir 100 metra hlaupið á
laugardeginum þar sem Ari Bragi
fór með sigur af hólmi á tímanum
10,76 sekúndur en Kolbeinn hafnaði í
öðru sæti, tveimur hundruðustu úr
sekúndu á eftir Ara.
„Ég sá ekki neitt, hvorki í hlaupinu
né eftir hlaupið, þannig að við verð-
um bara að gera ráð fyrir því að
þetta hafi verið nokkuð sannfærandi
sigur,“ sagði Kolbeinn í samtali við
blaðamann eftir að úrslitin lágu fyrir
en hann var svekktur með að sjá ekki
tíma sinn í hlaupinu.
„Ég bjóst við miklum bardaga á
lokakaflanum en ég náði að halda
þetta út sem betur fer. Þetta er extra
sætt þar sem ég ætlaði mér ekki að
keppa neitt í sumar. Ég kom heim í
vor eftir erfitt tímabil í Bandaríkj-
unum og ég ætlaði mér ekki að keppa
neitt í sumar. Planið var einfaldlega
bara að koma heim, vinna, æfa og
sofa en svo kom einhver andi yfir mig
fyrir tveimur vikum og ég ákvað að
láta verða af því að taka þátt hér í
dag.“
Kolbeinn vildi ekki gefa það út
hvort hann ætlaði sér að hlaupa
meira í sumar, en planið hjá þessum
öfluga spretthlaupara var einfald-
lega að taka því rólega næstu daga.
„Því verður ekki neitað að það er
alltaf gaman að taka Íslands-
meistaratitil en planið núna er bara
að fara heim og taka því rólega. Við
sjáum svo bara hvað verður en það er
best að segja sem minnst og plana
ÍR liðameistari þriðja árið í röð
Öryggið upp-
málað hjá
þeim bestu
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019
Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is
STIMPILPRESSUR
Loftpressur af öllum
stærðum og gerðum
Mikið úrval af aukahlutum
HANDBOLTI
EM U19 kvenna
B-deild í Búlgaríu:
Grikkland – Ísland................................ 13:22
Ísland mætir Búlgaríu í dag, Serbíu á
miðvikudag og Bretlandi á fimmtudag.
EM U20 karla
B-deild í Portúgal:
Írland – Ísland ...................................... 61:85
Rússland – Ísland................................. 90:69
Ísland er með einn sigur í þremur leikj-
um og mætir Ungverjalandi í lokaumferð
riðlakeppninnar á miðvikudaginn.
EM U18 kvenna
B-deild í Norður-Makedóníu:
Keppni um sæti 13-16:
Úkraína – Ísland................................... 77:60
Leikur um 15. sætið:
Eistland – Ísland .................................. 75:76
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Mustad-völlur: Grindavík – ÍA............ 19.15
Víkingsvöllur: Víkingur R. – Fylkir.... 19.15
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Þórsvöllur: Þór/KA – Valur...................... 18
Nettóvöllur: Keflavík – Fylkir ............ 19.15
Jáverkvöllur: Selfoss – Stjarnan......... 19.15
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Norðurálsvöllur: ÍA – Augnablik........ 19.15
Í KVÖLD!
Rússland
Rostov – Orenburg .................................. 2:1
Ragnar Sigurðsson lék allan tímann með
Rostov og var fyrirliði en Björn Bergmann
Sigurðarson kom inn á á 83. mínútu.
Krilia Sovetov – CSKA Moskva ............. 2:0
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
tímann með CSKA en Arnór Sigurðsson
fór af velli á 88. mínútu.
Akhmat Grozní – Krasnodar ................. 1:0
Jón Guðni Fjóluson var ónotaður vara-
maður hjá Krasnodar.
Danmörk
Bröndby – Silkeborg............................... 3:0
Hjörtur Hermannsson lék allan tímann
með Bröndby.
SönderjyskE – Randers .......................... 2:1
Eggert Gunnþór Jónsson kom inn á á 67.
mínútu í liði SönderjyskE en Frederik
Schram var varamarkvörður liðsins.
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Torpedo Zhodino ....... 4:1
Willum Þór Willumsson lék allan tímann
með BATE og lagði upp eitt mark.
Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason, leikmaður
sænska úrvalsdeildarliðsins Malmö, gæti orðið frá keppni
í langan tíma, en leikmaður Djurgården braut illa á hon-
um undir lok fyrri hálfleiks í viðureign liðanna í gær, sem
endaði 1:1. Arnór var borinn af velli eftir að Haris Radet-
inac, leikmaður Djurgården, traðkaði ofan á sköflungi
Arnórs sem lá óvígur eftir, greinilega sárþjáður.
Morgunblaðið náði í gærkvöld tali af Arnóri, sem vildi
ekki tjá sig að svo stöddu en sagði að meiðslin skýrðust í
dag eftir myndatöku.
Uwe Rösler, þjálfara Malmö, var heitt í hamsi eftir leik-
inn, en hann sagði að um afar ruddalegt brot hefði verið
að ræða og Arnór kynni að vera fótbrotinn.
„Þetta var virkilega ljótt brot og svona vill fólk ekki sjá í fótbolta. Arnór
gæti orðið lengi frá keppni,“ sagði Rösler eftir leikinn, en dómari leiksins sá
ekki ástæðu til að spjalda Radetinac fyrir þetta ruddalega brot sem verð-
skuldaði rautt spjald. Eftir jafnteflið er Malmö með fjögurra stiga forskot á
Kolbein Sigþórsson og félaga hans í meistaraliði AIK, en Kolbeinn opnaði
markareikning sinn með liðinu á laugardaginn. gummih@mbl.is
Arnór gæti orðið lengi frá
Arnór Ingvi
Traustason