Morgunblaðið - 15.07.2019, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019
VIÐTAL
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Við erum að vinna að því að koma á
fót varanlegu ritveri eða barna-
menningarhúsi þar sem krakkar
gætu komið í öruggt og skapandi
umhverfi og fengið aðstoð við að
skrifa,“ segir Markús Már Efraím,
sem hefur starfrækt rithöfunda-
skóla fyrir börn í Menningarhúsinu í
Gerðubergi. Verkefnið hlaut vegleg-
an styrk úr Velferðarsjóði barna og
er rekið í samstarfi við velferðarsvið
Reykjavíkurborgar.
Markús segir þörf vera fyrir slíkt
ritver hér á landi. „Maður sér bara
svart á hvítu hvað þetta hefur skilað
miklum árangri erlendis. Ég sé það
líka með styttri námskeið sem ég
hef haldið.“ Hann nefnir sem dæmi
að foreldrar hafi haft samband við
hann og sagt að börnin þeirra hafi
miklu meiri áhuga á lestri og hafi al-
veg hætt að spyrja um tölvuna eða
sjónvarpið eftir að hafa verið á nám-
skeiðinu.
Gera börnum og samfélagi gott
„Læsi meðal barna er aðkallandi
vandamál hér, eins og víða, og þetta
getur bætt stöðuna. Þetta eflir les-
skilning, þau læra hvernig á að
skrifa og áhugi þeirra á bók-
menntum eykst. Það verður spenn-
andi að lesa í stað þess að það sé
kvöð. Þessi hugmyndafræði hefur
breitt úr sér víða og það er alveg
klárt mál að þetta á heima hérna á
Íslandi líka. Það er engin vanþörf á.
Auk þess sem ritver gera krökkum
ofsalega gott hafa þau góð áhrif á
samfélagið í kring,“ segir Markús
og bætir við að þau séu oft starf-
rækt í hverfum þar sem efnaminni
fjölskyldur búa eða innflytjendur
margir og að önnur starfsemi
spretti ósjaldan upp í kring í kjöl-
farið.
Ástæðu þess að verkefnið fór af
stað í Breiðholti segir Markús vera
meðal annars þá að þar sé þátttaka
barna í frístundum mun lægri en í
öðrum hverfum. „Við höfum líka
sérstaklega reynt að ná til barna af
erlendum uppruna því þetta hjálpar
þeim með tungumálið og fleira. En
við viljum auðvitað hafa þetta mjög
blandaðan hóp.“
Ritver mjög þróuð erlendis
Fyrirmynd verkefnisins er rit-
smiðjur sem rithöfundurinn Dave
Eggers og kennarinn Nínive Cale-
gari hafa komið á fót í Bandaríkj-
unum. „Það byrjaði sem lítið verk-
efni í San Francisco en nú er þetta
orðið að landssamtökunum 826 Nat-
ional sem eru með fjöldann allan af
verkefnum sem þjóna hundruðum
þúsunda barna.“ Fleiri ritver víðs
vegar um heiminn hafa byggt á
þessari hugmynd. „Ég hafði heyrt af
þessu og fannst þetta mjög merki-
legt starf. Draumurinn var því að
geta gert eitthvað svipað,“ segir
Markús.
Starfsemi ritveranna er orðin
mjög þróuð erlendis. „Á skólatímum
koma bekkir í heimsóknir og svo er
staðurinn opinn eftir skóla fyrir
krakka. Þar eru sjálfboðaliðar sem
bjóða upp á aðstoð við heimanám og
haldnar eru ritsmiðjur þar sem leið-
beinendur hjálpa krökkum að
skrifa. Svo eru bækur með verkum
krakkanna gefnar út,“ segir hann
og nefnir einnig að ritverin eigi að
vera eins ólík skólastofunni og
mögulegt er. „Krakkarnir eiga ekki
að upplifa þetta sem einhverja
framlengingu á skólastofunni held-
ur algjörlega nýtt umhverfi sem ýt-
ir undir sköpun. Það væri auðvitað
hægt að gera það ef maður hefði
varanlegt húsnæði en þetta er á
fæðingarstigi hjá okkur svo það höf-
um við ekki enn.“
Á að standa öllum til boða
Um 40 krakkar á aldrinum 7-13
ára sóttu ritverið vikulega á vorönn.
„Þar voru þau í rauninni að læra að
skrifa og fara í gegnum sköpunar-
ferlið. Þetta er ekki gert í formi fyr-
irlestra heldur reynir maður frekar
að kveikja neista hjá þeim og skapa
umræður. Það er mikilvægt að þau
fái að tjá sig. Við reyndum að hafa
þetta áhugavert og skemmtilegt og
krakkarnir voru alveg einstaklega
duglegir og höfðu gaman af.“
Markús leggur áherslu á að rit-
verið eigi að vera ókeypis. „Maður
vill náttúrulega að þetta standi öll-
um til boða óháð stöðu. Þetta eru
ýmist krakkar sem bara vantar eitt-
hvað að gera eftir skóla eða krakkar
sem koma jafnvel langt að vegna
þess að þau hafa mikinn áhuga á
skrifum og sköpum. Stundum eru
þetta krakkar sem eru jaðarsettir í
nærumhverfi sínu en blómstra svo
þegar þau eru í kringum aðra með
sömu áhugamál.“
Stefnan er að halda áfram með
námskeið í Gerðubergi í haust í
svipaðri mynd og í vor. „Við erum
að vinna í því að fá fjármagn vegna
þess að við viljum geta boðið þetta
ókeypis. Það er draumurinn að geta
komið upp almennilegu barnamenn-
ingarhúsi. Það er á stefnuskránni að
vera með varanlegan stað þar sem
krakkar geta komið í skapandi um-
hverfi og unnið að ýmsum formum
sköpunar.“
Mikill máttur í samstarfi
Markús situr í ráðgjafarnefnd al-
þjóðlegs nets ritvera, The Inter-
national Alliance of Youth Writing
Centers. Þangað geta þau sem hafa
áhuga á að opna ritver eða ráðast í
önnur svipuð verkefni leitað og
fengið aðstoð. „Þetta snýst voða
mikið um að hjálpast að. Það er svo
mikill máttur í samstarfinu. Í stað
þess að fólk sé að gera þetta eitt og
sér getur það leitað til fólks sem er
með reynslu og þekkingu og getur
hjálpað. Það munar svo miklu.“
Markús nefnir sem dæmi um
gagnsemi þessarar nefndar að
krakkarnir í ritverinu í Gerðubergi
hafi tekið þátt í alþjóðlegu sam-
starfi. Þau hafi tekið að sér að vera
blaðamenn fyrir bandaríska tímarit-
ið Illustoria sem er tímarit fyrir
börn og ungmenni og verið hluti af
verkefninu Young Editors Project.
„Þar starfa þau í rauninni svolítið
eins og ritstjórar. Þau fá send óút-
gefin handrit frá þekktum erlendum
barnabókahöfundum. Þau lesa þessi
handrit og koma með ábendingar og
þannig getur höfundurinn komist að
því hvað markhópur hans vill.“
Að lokum minnir Markús á mikil-
vægi starfsemi eins og þessarar.
„Aðaltilgangurinn með þessu er að
sýna krökkunum ákveðna virðingu,
koma fram við þau sem þessar skap-
andi, hugsandi verur sem þau eru og
virkja rödd þeirra í gegnum skáld-
skap. Það þarf að kenna krökkum að
vera virkir þátttakendur í samfélag-
inu. Það er mikilvægt að minna þá á
að þeir hafa rödd og fólk ætti að
vera tilbúið að hlusta á þá. Það er
ótrúlegt hvað krakkarnir eru næmir
og klárir. Þeir hafa rödd og eiga að
nota hana.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Rithöfundaskóli „Tilgangurinn með þessu er að sýna krökkunum ákveðna virðingu og koma fram við þau sem skapandi, hugsandi verur,“ segir Markús.
Virkja rödd barna með skáldskap
Markús Már Efraím starfrækir rithöfundaskóla fyrir börn í Gerðubergi Dreymir um að koma
upp barnamenningarhúsi „Læsi meðal barna er aðkallandi vandamál og þetta getur bætt stöðuna“
» „Krakkarnir eigaekki að upplifa þetta
sem framlengingu á
skólastofunni heldur al-
gjörlega nýtt umhverfi
sem ýtir undir sköpun.“