Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 4

Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir ökuskírteinið, passann, ferilskrána o.fl. Góð passamynd skiptir máli Engar tímapantanir Skjót og hröð þjónusta Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Almennt talað fer ástand sjávar suð- ur af landinu batnandi,“ sagði Héðinn Valdimarsson, sviðsstjóri umhverf- issviðs Hafrannsóknastofnunar, um helstu niðurstöður vorleiðangurs stofnunarinnar 2019. Hlýsjórinn sunnan og vestan við landið hefur hlýnað. Hitinn var um og yfir meðallagi hita síðustu fimm ára- tugi þegar hann var mældur í maí og júní. Þetta kemur fram í frétt frá Hafrannsóknastofnun. Selta sjávar á þessum slóðum er enn talsvert undir meðallagi líkt og síðustu fjögur ár. Lækkun seltu sjáv- ar jafnast á við hafísárin þegar varð mikil seltulækkun. Þá bráðnaði mikið af ís og mikið af ferskum sjó kom úr Íshafinu. Seltan er nú á uppleið mið- að við árið 2017 þegar efri lög sjávar voru hvað ferskust. Selta í norðvest- anverðu Atlantshafi lækkaði sér- staklega árið 2012. Það var tengt óvenjulegu vindafari sem rak talsvert af seltulitlum sjó af landgrunni Kan- ada inn í hringstreymið um Labra- dorhaf. Ferski sjórinn barst síðan út í Atlantshafið og lækkaði seltuna þar. Talið er að það hafi verið einstakur atburður. Hlýsjór fyrir norðan Hiti og selta sjávar fyrir norðan land mældust nú yfir meðallagi. Al- mennt var útbreiðsla hlýsjávar mikil fyrir Norðurlandi og austur með því. Hlýsjávar gætti austur fyrir Langa- nes. Hiti á landgrunni norðaustur af Langanesi var með því hæsta sem hefur mælst undanfarna áratugi. Sjávarhitinn jafnaðist á við hlýju árin 2003 og 2005. Hiti og selta fyrir aust- an voru um og yfir meðallagi. Héðinn sagði að ákveðin breyting hefði orðið sunnan og vestan við land- ið árið 2015 þegar sjávarhiti í yfir- borðslögum á þessum slóðum lækk- aði um allt að tveimur gráðum. Ástandið varði þar til í fyrra. „Þetta var tengt við miklar breytingar á vindafari. Það barst hingað sjór frá Labrador, svæðinu suður af Græn- landi og Grænlandshafi milli Íslands og Grænlands,“ sagði Héðinn. Hann sagði talið að þetta hefði m.a. haft áhrif á humarinn og smábátasjómenn hefðu orðið varir við þetta. Þetta virðist hafa verið tímabundið ástand og hitastig sjávar á þessum slóðum komið yfir meðallag og er að nálgast fyrri hita. Sjávarhitinn var hæstur á árunum 2003-2010. Héðinn sagði að þessar sveiflur í sjávarhita, sunnan og norðan við landið, væru meiri en hægt væri að segja að tengdust beint gróðurhúsa- áhrifum. Menn vissu þó ekki til fulls hvaða áhrif þau hefðu haft á vindafar. „Við erum í nýjum kafla nú norðan við landið. Þar er miklu stærra svæði en áður sem er íslaust lengri tíma á árinu. Það gæti haft í för með sér breytingar á orkuskiptum sjávar og lofts á því hafsvæði.“ Niðurstöður vorleiðangursins sýndu að styrkur næringarefna í haf- inu vestanlands og norður af Vest- fjörðum var hár. Átumagn í yfir- borðslögum var nálægt langtíma- meðaltali. Það var undir meðallagi á Vestur- og Austurmiðum en um eða yfir meðallagi á Norður- og Suður- miðum. Ástand sjávar fer batn- andi suður af landinu  Hiti og selta sjávar er yfir meðallagi fyrir norðan land Morgunblaðið/Eggert Hafið Sjávarhiti og selta hafa mikil áhrif á lífríkið í hafinu. Mun stærra svæði norður af landinu er nú íslaust stærri hluta ársins en áður. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Ekki er hægt að segja að grund- vallarmunur sé á því hvernig neyslu- útgjöld heimilanna skiptast að með- altali hér á landi annars vegar og almennt í löndum Evrópusambands- ins (ESB) en munurinn er samt nokkur á sumum sviðum. Þetta sýnir ný samantekt sem birt hefur verið á vef Hagstofu Evrópu (Eurostat). Miðast hún við gögn frá árinu 2017. Mestur er munurinn á útgjöldum vegna hótela og veitingastaða. Hér á landi falla 14,2% heimilisútgjalda í þennan flokk en í ESB-löndunum er meðaltalið 8%. Hér á landi verja heimilin 11,2% teknanna í tómstund- ir og menningu en í ESB-löndunum er talan 8,5% að meðaltali. Íslend- ingar verja lægri fjárhæðum í hús- næðiskostnað, vatn, rafmagn og hita, 22,1%, en ESB-þjóðir, sem verja 24,2% að meðaltali. Sérfræðingar Eurostat segja að útgjöld heimilanna í Evrópu séu mismunandi vegna mismunandi tekna fólks, menningarlegra hefða og landfræðilegra aðstæðna. Að meðaltali fer stærstur hluti tekna fólks í ESB-löndum í rekstur hús- næðis, síðan ferðir og flutninga og loks mat. Þegar rýnt er í tölurnar sést að mynstrið er aðeins öðruvísi í Eistlandi, Litháen og Rúmeníu, þar sem matur er fjárfrekasti útgjalda- liðurinn, og á Kýpur og Möltu, þar sem hótel og veitingastaðir voru í efsta sæti. Hér á landi hefur Hagstofan aflað gagna um neysluvenjur fólks um langt árabil. Er það gert með könn- unum sem taka til fjölmenns hóps á nokkurra ára fresti. Niðurstöðurnar eru notaðar við útreikning vísitölu neysluverðs. Útgjöld landsmanna sem varið er í mat- og drykkjarvörur hafa lækkað markvert á undanförn- um áratugum og er það talið skýrt merki aukinnar velmegunar. Árið 1995 vörðu heimilin hér á landi að meðaltali 17,4% tekna sinna í mat og drykk en árið 2002 hafði hlutfallið lækkað í 15,9%. Á árunum 2011 til 2014 voru þessi útgjöld 14,6%. Árið 2017 vörðu Íslendingar að meðaltali 14,6% tekna sinna í sam- göngur, en á sama tíma var meðaltal í löndum ESB 13%. Minna fer í matarkaup en áður  Útgjöld landsmanna til hótela og veitinga meiri en í ESB 24,2% 22,1% Neyslumynstur Íslendinga í samanburði við ESB-löndin Útgjöld heimila sem hlutfall af heildarútgjöldum* Heimild: Hagstofa Evrópu (Eurostat) *Ekki tæmandi listi, 7% falla undir liðinn „annað“ á Íslandi og 11,5% í ESB 13,0% 14,6% 12,2% 12,7% 8,5% 11,2% 5,5%5,4% 3,8% 4,0% 4,9% 3,1% 4,0% 2,6% 1,1%1,1% 8,8% 14,2% Tómstundir og menning Matur og drykkjarvörur Hótel og veitingastaðir Samgöngur Húsnæði, rafmagn, vatn og hiti Heimili á Íslandi Í löndum Evrópusambandsins Húsgögn, heimilis- búnaður o.fl . Áfengi og tóbak Föt og skór Heilsa Símar og net Skólar og námskeið 2,5% 2,0% Skýrast ætti í næstu viku hvort verði af sölu Vigurs í Djúpi. Hugsanlegur kaupandi er útlendingur, búsettur í Evrópu, en ekki fengust nánari upp- lýsingar um hann. Sá kom nýlega með tilboð í eyjuna, sem síðasta árið hefur verið á söluskrá. Ásett verð er 330 milljónir króna að sögn Davíðs Ólafs- sonar, löggilts fasteignasala hjá Fast- eignasölunni Borg í Reykjavík. Þessa dagana er verið að vinna í ýmsum formsatriðum og fyrirvörum í kauptilboði. „Frágangur og pappírs- vinna í svona málum er oft tímafrek og flókin,“ segir Davíð, sem vill ekki upplýsa frá hvaða landi hinn áhuga- sami kaupandi sé, að öðru leyti en því að hann sé frá Evrópu. Í Vigur, sem oft er kölluð Perlan í Ísafjarðardjúpi, hefur verið stundað- ur búskapur um aldir og sama ættin hefur setið staðinn lengi. Þá er Vigur í vaxandi mæli ferðamannastaður, en um 10 þúsund manns koma árlega í Vigur; þar eru fallegar byggingar og margvíslegar menningarminjar. Staðurinn er öllum opinn en ekki ligg- ur fyrir hvort svo verði af hálfu nýs eiganda verði tilboði hans tekið. sbs@mbl.is Erlendur aðili vill kaupa eyjuna Vigur í Djúpi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.