Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
Veitingar af öllum stærðum,
hvort sem er í sal eða
heimahúsi
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja
Nú bendir allt til þess að BorisJohnson verði forsætisráð-
herra Bretlands eftir viku.
Næstu þrír mán-uðir munu svo
skera úr um hvort
hann verður stutt
eða lengi í því emb-
ætti.
Flokkssystkinihans sum, sem
hafa ESB en ekki
Bretland í fyrsta
sæti, hóta enn að
gera hvað eina til að
koma í veg fyrir að
hið forna ríki heimti
hluta fullveldis síns á nýjan leik.
Og þetta gerist þótt Johnson hafifengið yfirburðafylgi í eigin
þingflokki, þvert á spár, og vænti
enn meiri stuðnings hjá almennum
flokksmönnum.
Hunt, sem enn er utanríkis-ráðherra, gerði aldrei at-
hugasemd, svo vitað sé, við fram-
göngu frú May er hún þóttist ætla
að tryggja að ákvörðun þjóðar-
innar næði fram að ganga, en segir
nú að einungis viðurkenndum at-
vinnumanni í stjórnmálum eins og
honum sé treystandi til að knýja
ESB til samninga.
Í gær sagði Hunt einnig að ennmætti „bjarga“ kjarnorkusamn-
ingum við Íran. Sá samningur hafði
endapunkt í að klerkarnir myndu
eftir hálfan áratug hafa sjálfræði
um það hvort þeir lykju kjarnorku-
tilburðum sínum og „alþjóða-
samfélagið“ þá ekki hafa heimildir
til að fara gegn því!
Hunt trúir enn að vika sé mjöglangur tími í hans pólitíska
lífi.
Jeremy Hunt
Jafnöflugur og May
STAKSTEINAR
Boris Johnson
Engin ástæða er að ætla annað en að staða of-
lækninga sé svipuð á Íslandi og í Noregi, segir
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.
Sigríður telur að heimilislæknar grípi oft til
víðtækari aðgerða en þeir telji nauðsynlegt vegna
pressu af ýmsum toga. Nefnir hún m.a. umfjöllun
í samfélaginu, áhyggjur og tímaskort lækna sem
hafi ekki nægan tíma til þess að bíða og sjá þró-
unina eða meðhöndla einstaklinga skynsamlega.
Sigríður segir að nauðsynlegt sé að bjóða upp á
önnur úrræði sem minnki inngrip og lyfjanotkun.
Í Læknablaðinu kemur einnig fram í máli Reynis
Arngrímssonar, formanns Læknafélagsins, að fé-
lagið stefni á að kanna með sambærilegum hætti
og gert var í Noregi viðhorf lækna til fullyrðinga
um að oflækningar séu stundaðar hér á landi.
Reynir segir að ráðist verði í átakið snjallt val
eða þekkingarmiðað val í heilbrigðisþjónustu þar
sem læknar og notendur heilbrigðisþjónustu
spyrja sig lykilspurninga, fáist til þess fjármagn.
ge@mbl.is
Kanna oflækningar á Íslandi
Snjallt val tekið upp ef
fjármagn fæst til þess
Morgunblaðið/Golli
Læknar að störfum Vanda þarf valið þegar
ákveðið er hvernig meðhöndla eigi sjúkdóma.
Togskip Gjögurs hf. á Grenivík,
Áskell EA 748 og Vörður EA 748,
eru nú í Slippnum í Reykjavík. Er
unnið að því að pússa og mála
skipin áður en þau verða afhent
nýjum eiganda, FISK á Sauðár-
króki, fyrir mánaðarlokin.
Fisk Seafood á Sauðárkróki
gekk frá kaupum á skipunum
tveimur í lok árs 2018. Skipin voru
seld án kvóta en í sérstökum við-
skiptum með aflaheimildir keypti
Fisk Seafood af Gjögri tæplega
350 tonna kvóta í ufsa og 245 tonn
í djúpkarfa auk heimilda í fleiri
tegundum. Verðmæti viðskiptanna
miðað við þáverandi gengisskrán-
ingu var tæplega 1,7 milljarðar
króna.
Gjögur hf. á Grenivík er að láta
smíða tvö ný togskip í stað hinna
fyrri sem nú hafa verið seld. Fjög-
ur útgerðarfélög sömdu við VARD
í Noregi um smíði sjö skipa. Það
voru auk Gjögurs Bergur-Huginn
(Síldarvinnslan) í Vestmanna-
eyjum, Skinney-Þinganes á Horna-
firði og Samherji á Akureyri.
Vörður, sem er fyrra skip Gjögurs,
er væntanlegur í september.
Nokkur skipanna voru smíðuð að
hluta í Víetnam. sisi@mbl.is
Skipin tvö gerð klár
fyrir eigendaskiptin
Morgunblaðið/sisi
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/