Morgunblaðið - 16.07.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga
til og með 15. júlí 2019, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júlí 2019 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí
2019, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi,
gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi
af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteigna-
gjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis,
veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar
kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. júlí 2019
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti hef-
ur verið sakaður um kynþáttafor-
dóma vegna ummæla sinna um þing-
konur sem eru af erlendu bergi
brotnar. Forystumenn demókrata og
frambjóðendur í forkosningum
flokksins vegna forsetakosninganna á
næsta ári gagnrýndu ummælin en
forystumenn repúblikana viku sér
undan því að segja álit sitt á þeim.
Forsetinn sagði á Twitter í fyrra-
dag að þingkonurnar kæmu frá ríkj-
um sem væru gegnsýrð af spillingu
og glæpum. Hann hvatti þær til að
fara þangað aftur til að aðstoða við að
„laga“ löndin sem þær kæmu frá.
Forsetinn áréttaði þetta í gær og sak-
aði þingkonurnar um að „hata“
Bandaríkin.
Trump nefndi ekki konurnar á nafn
en talið er að orð hans hafi beinst að
fjórum konum úr röðum demókrata í
fulltrúadeild þingsins. Þær eru Alex-
andria Ocasio-Cortez frá New York,
Rashida Tlaib frá Michigan, Ilhan
Omar frá Minnesota og Ayanna
Pressley frá Massachusetts. Omar
fæddist í Sómalíu en flúði með fjöl-
skyldu sinni til Bandaríkjanna þegar
hún var barn og fékk ríkisborgararétt
þar árið 2000, sautján ára að aldri.
Hinar þingkonurnar fæddust allar í
Bandaríkjunum en eru afkomendur
innflytjenda. Ocasio-Cortez á ættir að
rekja til Púertó Ríkó, Tlaib er palest-
ínskur Bandaríkjamaður og Pressley
er af afrískum uppruna.
Sagður vilja „gera Bandaríkin
hvít aftur“
Konurnar eru allar nýjar á þinginu
og á meðal þingmanna sem hafa reynt
að færa Demókrataflokkinn lengra til
vinstri. Þær hafa átt í deilum síðustu
vikur við Nancy Pelosi, forseta full-
trúadeildarinnar, m.a. um málefni
farandmanna við suðurlandamæri
Bandaríkjanna.
Forystumenn demókrata, þeirra á
meðal Pelosi, sökuðu Trump um kyn-
þáttafordóma og útlendingahatur
vegna ummæla hans um þingkonurn-
ar. „Áform hans um að gera Banda-
ríkin mikil aftur hafa alltaf snúist um
það að gera Bandaríkin hvít aftur,“
sagði Pelosi.
Susan Collins, repúblikani í öld-
ungadeildinni, hvatti Trump til að
eyða tístinu á Twitter um konunar.
The Wall Street Journal sagði að for-
ystumenn repúblikana á þinginu
hefðu þó ekki viljað segja neitt um
ummæli forsetans. Mitch McConnell,
leiðtogi repúblikana í öldungadeild-
inni, hefði neitað að ræða málið og
Kevin McCarthy, leiðtogi flokksins í
fulltrúadeildinni, hefði ekki svarað
beiðni um að segja álit sitt á ummæl-
unum. The Wall Street Journal benti
á að nokkrir þingmenn repúblikana
gagnrýndu Trump á síðasta ári þegar
hann lýsti Afríkuríkjum sem „skíta-
bælum“. Blaðið hafði eftir Doug
Heye, stjórnmálaskýranda úr röðum
repúblikana, að ummælin væru til
marks um kynþáttafordóma en erfitt
væri fyrir þingmenn repúblikana að
ræða þau vegna mikilla vinsælda for-
setans meðal stuðningsmanna flokks-
ins. Stephen Collinson, fréttaskýr-
andi CNN-sjónvarpsins, tekur í sama
streng og segir að nýlegar skoðana-
kannanir bendi til þess að um 90%
repúblikana styðji Trump. Þing-
mennirnir veigri sér við því að gagn-
rýna forsetann þar sem það geti
stefnt þingsætum þeirra í hættu.
Collinson telur ummælin til marks
um að Trump hyggist reyna að ná
endurkjöri í kosningunum á næsta ári
með því að tryggja sem mesta kjör-
sókn meðal hvítra stuðningsmanna
repúblikana.
Biden með forskot
Ný skoðanakönnun The Wall
Street Journal og NBC-sjónvarpsins
bendir til þess að Joe Biden, fyrrver-
andi varaforseti Bandaríkjanna, sé
vinsælastur þeirra sem sækjast eftir
því að verða forsetaefni demókrata í
kosningunum á næsta ári. Um 42%
skráðra kjósenda sögðust myndu
kjósa Trump en 51% Joe Biden ef
kosið yrði á milli þeirra í kosningun-
um. Um 50% sögðust ætla að kjósa
öldungadeildarþingmanninn Bernie
Sanders en 43% Trump ef valið stæði
á milli þeirra. 48% sögðust myndu
kjósa Elizabeth Warren en 44%
Trump ef öldungadeildarþingkonan
yrði í framboði fyrir demókrata.
AFP
Óæskilegar? Alexandria Ocasio-Cortez (t.v.) og Ilhan Omar, tvær þing-
kvennanna sem Trump hefur sagt að fara aftur til heimalanda sinna.
Trump sakaður
um kynþátta-
fordóma
Forystumenn Repúblikanaflokksins
veigra sér við því að gagnrýna forsetann
Lýst sem „skítabælum“
» Donald Trump hefur lýst
straumi farandmanna frá Róm-
önsku Ameríku til Bandaríkj-
anna sem „innrás“ og hermt er
að hann hafi lýst Afríkuríkjum
sem „skítabælum“ á síðasta
ári.
» Fyrir kosningarnar árið 2016
lét Trump í ljós efasemdir um
að Barack Obama hefði fæðst í
landinu og mátt gegna emb-
ætti Bandaríkjaforseta.
Gestur virðir fyrir sér rýmisverk sem hangir í lofti sýn-
ingarsalar í Frönsku menningarmiðstöðinni í Hanoi í
Víetnam á sýningu sem nefnist „Minnkum ruslið“.
Hópur listamanna setti sýninguna upp og notaði ýmiss
konar rusl, meðal annars plastílát og dósir, til að vekja
athygli á því hvernig mengun af völdum úrgangs frá
heimilum getur skaðað umhverfið og stefnt heilsu
manna í hættu, að sögn fréttaveitunnar AFP.
AFP
Ruslið hangir í loftinu
Listamenn vara við skaðlegum áhrifum úrgangs frá heimilum