Morgunblaðið - 16.07.2019, Page 15

Morgunblaðið - 16.07.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Gáð til veðurs Þegar ferðast er um Ísland er gott að hafa kíki meðferðis, eins og þessi ferðamaður, til að skoða umhverfið og gá til veðurs. Eggert Í fréttatilkynningu á heimasíðu utanríkis- ráðuneytisins var nú nýlega sagt frá því að svonefnt Mannréttinda- ráð Sameinuðu þjóð- anna hefði að frum- kvæði Íslands nú nýlega samþykkt álykt- un, þar sem vikið var að stöðu mannréttinda- mála á Filippseyjum. Með samþykkt álykt- unarinnar lýsti ráðið formlega yfir áhyggjum af ástandinu á Filipps- eyjum, hvatti stjórn- völd í landinu til að stöðva aftökur á fólki án dóms og laga og draga þá til ábyrgðar, sem hefðu staðið fyrir slíku. Tilefni þessa fram- taks eru samfelldar fréttir um að á Filipps- eyjum hafi stjórnvöld látið hersveitir sínar taka borgara af lífi á götum úti án dóms og laga ef grunur hefur verið uppi um fíkni- efnabrot þeirra. Hefur mátt skilja að ekki hafi þurft hersveitir til, heldur hafi öðrum borgurum verið heimilað að svipta menn lífi ef slíkar sakir voru hafðar uppi. Í þessari ályktun var enn fremur farið fram á að stjórnvöld á Filippseyjum sýndu skrifstofu mann- réttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem og stofnunum mannréttindaráðsins, fullan samstarfs- vilja. Þá var mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna falið að standa fyrir skýrslugerð um stöðu mannréttindamála á Filippseyjum og leggja fyrir mannréttindaráðið að ári liðnu. Ástæða er til að lýsa ánægju með þetta framtak Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Það til- heyrir grunnreglum í réttarríkjum að stjórnvöld beiti fólk ekki refsingum nema að undangenginni málsmeðferð fyrir dómi, þar sem sakborningar hafa óskert tækifæri til að verjast ásökunum. Þessi réttindi eru núlifandi Íslendingum í blóð borin, enda snerta þau grundvallarmannréttindi borgara í hvaða ríki sem er. Fagna skal því sem vel er gert. Ástæða er til þess nú. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » „Það til- heyrir grunnreglum í réttarríkjum að stjórnvöld beiti fólk ekki refs- ingum nema að undangenginni málsmeðferð fyrir dómi“ Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Gott framtak Bruninn mikli í Kirkju vorrar frúar í Parísarborg vakti menn til umhugsunar um hversu háttað sé brunavörnum og ör- yggi kirkna hér á landi. Hætt er við að brunavarnir séu víða bágbornar, einkum í gömlu timburkirkj- unum úti á lands- byggðinni og hættan þar geti sums staðar verið mikil. Í þéttbýli er víðast þjálfað slökkvilið og fast brunavarnaeftirlit. Hér hafa orðið kirkjubrunar á öllum tímum. Á árunum 1901-2000 brunnu hér að minnsta kosti sex kirkjur og talið er að kveikt hafi verið í tveimur þeirra af ásetningi. Í flestum tilvikunum brunnu allir gripir kirknanna, ómetanlegt dýr- mæti. Á einum stað brann íbúðar- hús prestsins einnig og þar mikið af kirkjubókum héraðsins. En fleira getur steðjað að en brunar. Nýlega lauk útgáfu hins merka ritverks, Kirkjur Íslands, alls 31 bindi, með ítarlegum ritgerðum um sögu kirkjustaðar og kirkju, nákvæmum lýsingum og sögulegri greinargerð, og nákvæmri umfjöll- un um kirkjugripi, bæði helgigripi og kirkjuskart, einnig um gripi sem komir eru í söfn eða til ann- ars staðar, og loks er fjallað um minn- ismerki og legsteina í kirkjugörðum. Reynd- ar er í ritverkinu að- eins fjallað um þær kirkjur sem friðaðar eru aldurs síns vegna eða hafa verið frið- lýstar vegna sérstaks gildis síns, þótt nýleg- ar séu. Allar þessar greinar eru byggð- ar á rannsóknum og vandlegri könnun heimilda, máldaga frá miðöldum, vísitasíu- og bréfabóka biskupa og prófasta og kirkju- reikninga. Í ljós kom við skráningu kirkju- gripanna það sem reyndar var vit- að fyrir, að í kirkjum landsins eru mikil dýrmæti varðveitt, bæði í gripum til helgihaldsins og lista- verkum gömlum og nýjum og fag- urri listiðn. Í mörgum kirkjum eru forn og merk altarisáhöld, gamlir altarisstjakar og altaristöflur, sumar dýrmæt listaverk en sumar hinar gömlu á vissan hátt frum- stæðar, „heimagerðar“, en vitna um hagleiksmennt og listsköpun alþýðu, og víða eru fornar kirkju- klukkur. Þá má finna gamla og merka prédikunarstóla, suma skorna og málaða af þekktum listamönnum fyrri alda, og enn eiga margar kirkjur forn og merk altarisklæði og messuklæði. Allt eru þetta þjóðardýrmæti, en ekki er alls staðar nógu vel hugað að varðveizlu þessa þáttar þjóðararfsins, og eru þar sums staðar slæmir brestir. Hætt er við að margir gripir kirknanna geti verið í hættu og kunni að lenda í greipum manna sem vildu komast yfir þá í hagn- aðarskyni. Segja má að sumar gömlu kirkjurnar séu vart mannheldar, ekki sízt þær sem friðaðar eru. Byggingargerðin er einföld og frágangur á hurðum og gluggum ekki alls staðar traustur, enda er reynt að breyta friðuðu kirkj- unum sem minnst frá því sem í öndverðu var. Ýmsir fornir kirkjustaðir eru nú í eyði, föst búseta engin þar lengur og kirkjurnar því án fasts eftirlits. Í kirkjunum er samt geymt margt dýrmæti. Nú er ferðamannastraumur nánast um allt land mikinn hluta ársins. Sumar kirkjur mega jafnvel kall- ast „ferðamannakirkjur“. Eftir að fækkaði í sóknum og sumar sveit- ir tæmdust nálega að fólki, eru kirkjurnar margar hverjar afar sjaldan nýttar til helgihalds, en margar standa á fornfrægum kirkjustöðum, þekktum úr sög- unni og vekja því sérstaka athygli ferðafólks. Hvarvetna er sú hætta að óhlutvant fólk ásælist og taki gripi úr kirkjunum, enda hefur það gerzt. Má nefna að fyrir fáum árum var stolið kaleik úr sjálfri Skálholtsdómkirkju, smíðuðum af þekktum íslenzkum gullsmið í Kaupmannahöfn á 19. öld. Svipað hefur gerzt víðar. Að auki hafa ýmsir gripir glatazt úr kirkjum fyrir vangá eða af skilningsleysi og þekkingarskorti á menningar- gildi þeirra. Nýlega var skýrt frá að um landið færu hópar glæpamanna, færu inn á heimili fólks og rændu, tækju reiðhjól úr kjöllurum og húsagörðum og brytu upp bíla á bílastæðum og stælu úr þeim. Þjófagóssið er sagt sent úr landi nær samstundis og ekkert af því finnanlegt, þjófarnir gangi lausir, jafnvel sumir sagðir njóta opin- bers framfæris hér. Þá vaknar spurningin: Hvenær verða kirkjurnar fyrir barðinu á slíkum óheillalýð? Hér er því fullrar aðgæzlu þörf. Í reynd ætti hvergi að hafa uppi við í kirkjum gripi sem peninga- verðmæti hafa og freistað gætu þjófa og eiginlega helgigripi ekki nema meðan notaðir eru, heldur geymdir sem öruggast. Spurning er einnig hvort hægt væri að ör- merkja gripi og tengja viðvör- unarkerfi sem gæfi til kynna ef þeir eru fjarlægðir úr kirkjunni. Einnig er athugandi hvort söfn gætu séð um varðveizlu dýrmætra kirkjugripa en væru samt áfram eign kirkjunnar. Suma hina merk- ari mætti jafnvel sýna þar í sem fyllstu öryggi. Hér verða ráðamenn kirkjunnar og prestar og umráðamenn kirkna að athuga vel um úrlausn. Við get- um ekki lengur í einfeldni okkar treyst á heiðarleika fólks einvörð- ungu. Trúin á ekki fastan sess í huga allra núorðið og sumum eru kirkjurnar lítt heilagir staðir lengur. Eftir Þór Magnússon » Í reynd ætti hvergi að hafa uppi við í kirkjum gripi sem pen- ingaverðmæti hafa og freistað gætu þjófa og eiginlega helgigripi ekki nema meðan notaðir eru, heldur geymdir sem öruggast. Þór Magnússon Höfundur er fv. þjóðminjavörður. Öryggi kirknanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.