Morgunblaðið - 16.07.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019
60 ára Birkir er Reyk-
víkingur en býr á Sel-
fossi. Hann er raf-
fræðingur frá
Fjölbrautaskóla Suður-
lands og er rafvirki hjá
Fossrafi ehf.
Maki: Sigurlaug Helga
Stefánsdóttir, f. 1962, afgreiðslukona
hjá Guðna bakara.
Börn: Berglind Rún Birkisdóttir, f.
1990, og stjúpsonur er Stefán Reyr
Ólafsson, f. 1979.
Foreldrar: Páll Björnsson, f. 1932, tré-
smiður, og Guðrún Albertsdóttir, f.
1936, fyrrverandi verslunarkona. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Birkir
Pálsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki draga þig inn í ómerki-
legar deilur þótt nákomnir aðilar eigi þar
hlut að máli. Þú breytir ekki öðrum, bara
þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er eitt varðandi hið fullkomna
samband, það er ekki til. Þú hefur gott af
einveru í dag.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er erfitt að meta hvenær
maður gefur of mikið. Líttu inn á við og
skoðaðu hvað má lagfæra í samskiptum
þínum við aðra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér leiðist í dag. Það er ekkert
hættulegt og gott að upplifa það af og til.
Þú færð beiðni í dag sem á eftir að valda
þér heilabrotum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gerðu ráð fyrir að rekast á alls konar
fólk úr fortíðinni næstu vikurnar. Hugsaðu
þig um og leyfðu tímanum að vinna með
þér í ákvarðanatöku.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ástvinir kynna þér hugmyndir sem
eru svo langt frá því sem þér hugnast.
Gerðu bara það allra nauðsynlegasta í dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þér finnst uppástungur þínar fá
tregar undirtektir skaltu bara nálgast hlut-
ina úr annarri átt. Haltu bara þínu striki og
þú munt ná þínu takmarki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hlauptu í átt að tækifær-
unum, tilbúin/n til að taka ákvörðun. Þú
ættir að þakka meira fyrir það sem þú hef-
ur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert nú að taka til í eigin
garði og sérð hvað undir býr. Ef engin svör
er að finna verður þú að halda áfram að
leita.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki vænta of mikils af maka
þínum eða vinum í dag. Þú átt það til að of-
hlaða á þig verkefnum, það veldur streitu
sem er ekki holl.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þegar við vitum hvað við viljum
þá fara allar tafir afskaplega í taugarnar á
okkur. Gættu þess að stíga ekki á tærnar á
öðrum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Erfiðleikar hafa svo sannarlega látið
á sér kræla upp á síðkastið. Frelsið til þess
að eltast við drauma sína er hið endanlega
takmark þitt.
forstöðumaður stærðfræðistofu
Raunvísindastofnunar HÍ 1977-81,
varaforseti verkfræði- og raun-
vísindadeildar 1979-81 og deildar-
forseti 1981-83.
Hann hefur átt sæti í Rannsókn-
arráði Íslands í um átta ár og setið
í ýmsum nefndum, var formaður
náttúruvísindadeildar Vísindaráðs
og sat í stjórn þess 1991-94. Hann
hefur verið félagi í Bandaríska
stærðfræðifélaginu frá 1967 og er
félagi í Vísindafélagi Íslands. Hann
sat einnig í stjórn verðlaunasjóðs
erlendum stærðfræðitímaritum.
Má þar nefna tvær fyrstu, dipl-
ómaritgerð, Die Krummung des
Raumes SP(2)/SU(2) von Berger, í
Math. Annalen, 1966, og doktors-
ritgerð hans, Über die Anzahl
geschlossener geodatischer in ge-
wissen Riemannschen Mannig-
faltigkeiten í Math. Annalen, 1966.
Halldór var ritstjóri Mathematica
Scandinavica fyrir hönd Íslands
1973-97, formaður stærðfræði-
skorar verkfræði- og raunvísinda-
deildar HÍ 1973-75 og 1989-91, var
H
alldór Elíasson fædd-
ist á Ísafirði 16. júlí
1939 og ólst upp á
Bakka í Hnífsdal til
1945. „Fjölskyldan
flutti þá til Skagastrandar og ég
bjó þar í sex ár og síðan á Akur-
eyri sex ár en flutti ekki til
Reykjavíkur fyrr en ég hafði lokið
doktorsnámi mínu. Ég var í sveit á
sumrin, aðallega í Húnavatnssýsl-
unni, lengst á Leysingjastöðum
sem er næsti bær við Þingeyrar.“
Halldór lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri vorið
1958 og hóf um haustið nám í eðl-
isfræði og stærðfræði við háskól-
ann í Marburg í Þýskalandi og
lauk diplómaprófi í stærðfræði frá
Háskólanum í Göttingen 1963 og
dr. rer.nat.-prófi frá Háskólanum í
Mainz 1964. Halldór var einn af
þremur til að hljóta styrk frá ís-
lenska ríkinu 1958. „Þetta var stór
styrkur sem ríkið veitti á þessum
tíma og gerði mér kleift að fara í
námið í Þýskalandi.“
Veturinn 1964-65 var Halldór
stundakennari við MR en fór síðan
til Bandaríkjanna og vann um eins
árs skeið við stærðfræðilegar
rannsóknir við Princeton Institute
for Advanced Studies. „Það er
merkasta stofnun þar í landi á
sviði stærðfræði.“ Halldór var fé-
lagi við Princeton í Bandaríkjunum
1965-66 og aðstoðarprófessor við
Brown University í Rhode Island
1966-67.
Halldór var sérfræðingur á
Raunvísindastofnun HÍ 1967-70 og
dósent í hlutastarfi við HÍ 1967-69,
var stundakennari við Tækniskóla
Íslands 1969-70, gistiprófessor við
Háskólann í Bonn í Þýskalandi
1970-71 og við Warwick University
í Englandi 1971-72, dósent í verk-
fræði- og raunvísindadeild HÍ
1972-73 og hefur verið prófessor
þar frá 1973. Hann var í leyfum
frá HÍ og starfaði þá við Kaup-
mannahafnarháskóla 1975-76, við
Háskólann í Bonn 1984, við Há-
skólann í Warwick 1990-91 og við
Háskólann í Bonn 1997-98.
Halldór hefur birt margar
stærðfræðigreinar í viðurkenndum
dr. phil. Ólafs Daníelssonar og Sig-
urðar Guðmundssonar arkitekts.
„Mitt sérfag má segja að hafi
verið línuleg og rúmfræðileg al-
gebra. Ég stundaði rannsóknir
alveg fram undir sjötugt, en svo
gat ég það ekki lengur. Heilinn
þarf algjörlega að vera í lagi, en
ég er orðinn gleyminn.“ Halldór
nýtti rannsóknaleyfin vel, en þau
voru fjölmörg, og dvaldi hann um
lengri og skemmri tíma á ýmsum
stöðum í Evrópu og nutu börnin
og eiginkona hans, sem ferðuðust
með honum, góðs af því.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 25.3. 1970
Björgu Cortes Stefánsdóttur, f.
2.9. 1947, BA í þýsku, kennara og
læknaritara. Foreldrar hennar
voru hjónin Stefán Valdimar
Þorsteinsson, f. 2.6. 1919, d. 30.10.
2012, feldskeri í Reykjavík, og
Anna Margrét Cortes, 18.8. 1921,
d. 12.5. 2014, húsmóðir og dagmóð-
ir. Þau voru búsett í Reykjavík.
Börn Halldórs og Bjargar eru:
1) Stefán Valdimar Halldórsson, f.
8.12. 1968, stúdent frá MR, starfar
hjá Tollgæslunni á Keflavíkur-
flugvelli; 2) Dr. med. Anna Mar-
grét Halldórsdóttir, f. 18.9. 1973,
sérfræðilæknir hjá Blóðbankanum,
eiginmaður hennar er dr. Haraldur
Darri Þorvaldsson, tölvunar-
fræðingur, f. 27.10. 1973. Börn
þeirra eru: Halldór Alexander, f.
2001, Jökull Ari, f. 2003, og Hug-
rún Eva, f. 2007; 3) Steinar Ingi-
mar Halldórsson, f. 13.5. 1975,
M.Sc. byggingaverkfræðingur,
verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun,
eiginkona hans er Xue Li, f. 23.12.
1978, BA í alþjóðaviðskiptum.
Börn þeirra eru tvíburarnir Ari
Cortes Li Steinarsson og Aron
Cortes Li Steinarsson, f. 24.10.
2015.
Systkini Halldórs eru Jónas I.
Elíasson, f. 26.5. 1938, prófessor
emeritus í verkfræði við HÍ; Þor-
varður Rósinkar Elíasson, f. 9.7.
1940, fyrrv. skólameistari Versl-
unarskóla Íslands; Elías Bjarni
Elíasson, f. 13.3. 1942, fyrrv. yfir-
verkfræðingur hjá Landsvirkjun,
Dr. Halldór I. Elíasson, stærðfræðingur og prófessor emeritus við HÍ – 80 ára
Brúðkaup Halldór og fjölskylda í brúðkaupi Steinars og Xue Li árið 2009.
Ferðaðist víða vegna starfsins
Stærðfræðingur Halldór árið 1989. Afastrákar Aron og Ari.
50 ára Halla er frá
Laxamýri, S-Þing. en
býr á Akureyri. Hún er
lögfræðingur að
mennt frá HÍ og er
með LLM-gráðu í Evr-
ópurétti frá Stokk-
hólmsháskóla. Hún er
lögreglustjóri á Norðurlandi eystra.
Maki: Kjartan Jónsson, f. 1971, raf-
magnsiðnfræðingur hjá Verkís.
Börn: Jón Kjartansson, f. 2003, og Jóna
Birna Kjartansdóttir, f. 2006.
Foreldrar: Björn Gunnar Jónsson, f.
1933, d. 1997, bóndi á Laxamýri, og
Kristjóna Þórðardóttir, f. 1938, húsfreyja
á Laxamýri.
Halla Bergþóra
Björnsdóttir
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Óskírður Boyo fæddist
6. júlí 2019 kl. 6.30. Hann vó 3.650 g
og var 52 cm langur. Foreldrar hans
eru Ragnheiður Sif Kristjánsdóttir og
Toju Boyo.
Nýr borgari