Morgunblaðið - 16.07.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019
Eitt
ogannað
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í
Everton fengu Englandsmeistara til
liðs við sig frá Manchester City í gær.
Miðjumaðurinn Fabian Delph er kom-
inn til Gylfa og félaga og kostar Ever-
ton 10 milljónir punda, tæplega 1,6
milljarð íslenskra króna. Hinn 29 ára
gamli Delph hefur því yfirgefið City
eftir fjögurra ára dvöl í Manchester,
en hann á að baki 20 landsleiki með
Englandi og var með liðinu á heims-
meistaramótinu í Rússlandi síðasta
sumar.
Blakdeild HK hefur gengið frá
ráðningu á Vladislav Mandic og mun
hann þjálfa meistaraflokk karla hjá
félaginu á næstu leiktíð. Mandic, sem
er frá Serbíu, mun einnig koma að
þjálfun yngri flokka og aðstoða við
þjálfun meistaraflokks kvenna. Hann
hefur lengi spilað og þjálfað blak í
Frakklandi og var áður sigursæll í
heimalandinu.
Íslenska U19 ára landslið Íslands
tapaði fyrir Búlgaríu, 24:16, í öðrum
leik sínum í B-deild Evrópumótsins í
handknattleik sem nú
fer fram í Búlgaríu.
Berta Rut Harðar-
dóttir skoraði átta
mörk fyrir Ísland í
leiknum, eða
helming marka
liðsins. Ísland
er með tvö
stig eftir tvo
leiki eftir sig-
ur á Grikkjum í
fyrsta leik sín-
um fyrir helgi. Liðið á
eftir að mæta Serbíu
og Bretlandi í riðl-
inum.
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Þetta er orðin skemmtileg hefð
að skrifa undir á afmælisdaginn.
Þetta er þriðja árið í röð sem það
gerist og það hefur alltaf hitt
þannig á að þetta er á sama tíma
og Símamótið þar sem er iðulega
mikil stemning, þannig að þetta er
bara gaman,“ sagði Gunnleifur
Gunnleifsson í samtali við
Morgunblaðið í gær en hann skrif-
aði undir nýjan eins árs samning
við knattspyrnudeild Breiðabliks á
sunnudaginn, þegar hann hélt upp
á 44 ára afmælisdaginn.
Gunnleifur er kominn í þriðja til
fjórða sæti yfir leikjahæstu leik-
menn Breiðabliks í efstu deild frá
upphafi með 143 leiki, er leikja-
hæsti leikmaður HK í deildinni
með 39 leiki og þá er hann í þriðja
til fjórða sæti yfir leikjahæstu
leikmenn efstu deildar frá upphafi
með 294 leiki. Fyrr á þessu sumri
varð Gunnleifur leikjahæstur allra
í deildakeppninni á Íslandi en þar
hefur hann nú leikið alls 429 leiki í
fjórum efstu deildunum. Hann
spilar í ár sitt 25. tímabil í meist-
araflokki þar sem hann lék fyrst
með HK árið 1994 og í efstu deild
lék hann fyrst með KR árið 1998.
„Eitt ár er bara fínt fyrir alla
aðila og það gerist ekki mikið eðli-
legra. Ég veit nákvæmlega að
hverju ég geng hjá Breiðabliki og
þeir vita nákvæmlega hvað þeir fá
frá mér í staðinn. Þetta voru ekki
langar samningaviðræður á milli
mín og klúbbsins. Ég vil vera
áfram hjá félaginu og þeir vilja
halda mér þannig að þetta tók
skjótt af. Mér finnst alltaf gaman
að slá met og ég hef mjög gaman
af allri tölfræði. Ég er rosalega
stoltur af öllum þeim metum sem
ég hef slegið í gegnum tíðina en
það er samt ekki kveikjan að því
að ég vil halda áfram að spila.“
Spáir lítið í framtíðinni
Markmaðurinn gerir sér fulla
grein fyrir því að hann sé ekki að
fara spila knattspyrnu endalaust
en ítrekar samt sem áður að þang-
að til það gerist, sé hann ekki einu
sinni að leiða hugann að því að
hætta.
„Ég geri mér grein fyrir því að
ég er ekki að fara spila að eilífu
en ég er hins vegar einbeittur á
líðandi stund og hlakka bara til að
spila næsta leik. Ég veit að ég
mun á einhverjum tímapunkti
leggja hanskana á hilluna en mig
langar bara ekki að pæla í því.
Mig langar bara að vera í þessu
sporti sem ég elska og ég vil satt
best að segja hugsa sem minnst
um framtíðina. Það getur ýmislegt
gerst í lífinu og af hverju ekki að
njóta alls þess á meðan maður
getur. Það er svo tilgangslaust að
vera velta sér upp úr því hvenær
maður ætlar að hætta, á meðan
maður hefur ennþá ánægjuna af
þessu. Ég er ennþá góður í marki,
mér finnst þetta hrikalega gaman
og ég er þakklátur fyrir fótbolt-
ann og á meðan það er þannig er
ég ekki að fara kveðja íþróttina.“
Ferðalagið stendur upp úr
Gunnleifur lék sinn fyrsta
meistaraflokksleik með HK árið
1994, þá 19 ára gamall, en hann á
erfitt með að festa hendur á því
hvað það er sem stendur upp úr á
afar farsælum ferli en ítrekar þó
að hann eigi fótboltanum allt að
þakka.
„Það er svo margt sem stendur
upp úr og auðvitað eru
titlarnir sem maður hefur
unnið í gegnum tíðina
ákveðinn hápunktur,
Íslandsmeistara-
titillinn og
bikarmeist-
aratitillinn með
FH. Að sama
skapi finnst
mér ferðalagið
mitt í heild
sinni miklu
merkilegra en
einhver ákveð-
inn punktur á
ferlinum. Ég
átti frábæra
tíma með HK og
að fara með þeim
upp um tvær deild-
ir var magnað. Eins
var Evrópuævintýrið
með Breiðabliki mikil
upplifun en svo á ég líka
fullt af hápunktum utan
vallar. Ég hef spilað á
móti Cristiano Ronaldo, ég
hef spilað á Hampden
Park og fyrir framan
70.000 Mexíkóa en það
sem stendur kannski mest
upp úr er vinasamböndin
og tengslin sem ég hef
myndað við fólk í gegnum
tíðina. Ég kynntist konunni
minni af því að ég er í fót-
bolta og íþróttin er í raun-
inni bara líf mitt. Ég hætti
að drekka á sínum tíma til
þess að geta gert eitthvað við
líf mitt og þar kom fótboltinn
sterkur inn þannig að ég á
honum í raun allt að þakka,“
sagði Gunnleifur Gunnleifsson í
samtali við Morgunblaðið. Hann
er nú á leið með Breiðabliki til
Vaduz í Liechtenstein, í seinni leik
liðanna í fyrstu umferð Evrópu-
deildarinnar, en Gunnleifur lék
einmitt með Vaduz í sviss-
nesku úrvalsdeildinni ár-
ið 2009.
Gunnleifur ekki farinn að huga að
því að leggja hanskana á hilluna
Morgunblaðið/Hari
Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í knattspyrnu,
verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðslanna
sem hann varð fyrir í leik með Malmö gegn Djurgården í
sænsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Arnór fékk þó þá
jákvæðu niðurstöðu úr myndatökum í gærmorgun að
hann væri ekki fótbrotinn eins og óttast var.
„Ég óttaðist það versta en það er jákvætt að það sást
ekkert brot í fætinum eftir myndatökuna. Læknarnir
halda að liðböndin séu illa farin en ég fer í frekari
myndatöku á morgun (í dag) og þá kemur þetta betur í
ljós. Ég dofnaði allur upp þegar hann braut á mér og ég
óttaðist að um fótbrot hefði verið að ræða. Ég er því
þokkalega ánægður að svo reyndist ekki vera. Þetta var ljótt og heimsku-
legt brot. Ég er búinn að horfa á þetta einu sinni af myndbandi og ég gat
ekki horft á það aftur,“ sagði Arnór í viðtali við mbl.is í gær.
Hann hefur leikið alla sextán leiki Malmö í deildinni í ár, fimmtán þeirra
í byrjunarliðinu, og skorað tvö mörk. Þá hefur Arnór komið inná sem vara-
maður í öllum fjórum leikjum Íslands í undankeppni EM á árinu.
Betra en á horfðist hjá Arnóri
Arnór Ingvi
Traustason
„Ég veit ekki betur en að þetta hafi verið síðasti leikur
minn og ég vildi skora,“ sagði Viðar Örn Kjartansson,
landsliðsframherji í knattspyrnu, en hann er orðinn leik-
maður Rostov í Rússlandi á ný eftir að hafa verið í láni
hjá Hammarby í Svíþjóð. Sá lánssamningur rann út á
miðnætti og náði hann því leik Hammarby og Sundsvall í
sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Óhætt er að segja að Viðari hafi orðið að ósk sinni, en
hann kvaddi með dramatísku sigurmarki í uppbótartíma
og tryggði Hammarby 3:2-sigur. Þetta var sjöunda mark
hans í 15 deildarleikjum og kveður hann Hammarby á
meðal markahæstu leikmanna sænsku deildarinnar.
„Ég veit ekki betur en að ég sé að fara aftur til Rússlands á morgun [í
dag] eða á miðvikudaginn. Ég mun ræða við stjórnina þar en það kemur í
ljós á næstu 4-5 dögum hvar ég spila næst. Ég veit ekkert núna,“ sagði Við-
ar Örn Kjartansson. yrkill@mbl.is
Viðar Örn kvaddi með stæl
Viðar Örn
Kjartansson
44 Gunnleifur Gunnleifsson hélt
upp á afmælið á sunnudaginn
með því að skrifa undir
nýjan samning.
Ég á fótboltanum
allt að þakka