Morgunblaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Pepsi Max-deild karla Grindavík – ÍA .......................................... 1:1 Víkingur R. – Fylkir................................. 1:1 Staðan: KR 12 9 2 1 23:11 29 Breiðablik 12 7 1 4 23:15 22 ÍA 12 6 3 3 18:13 21 Stjarnan 12 5 4 3 19:16 19 FH 12 5 4 3 18:18 19 Valur 12 5 1 6 21:18 16 Fylkir 12 4 4 4 19:21 16 HK 12 4 2 6 15:16 14 Grindavík 12 2 7 3 8:10 13 Víkingur R. 12 2 6 4 16:19 12 KA 12 4 0 8 17:21 12 ÍBV 12 1 2 9 10:29 5 Pepsi Max-deild kvenna Þór/KA – Valur......................................... 0:3 Keflavík – Fylkir ...................................... 2:0 Selfoss – Stjarnan .................................... 3:0 Staðan: Valur 10 9 1 0 36:7 28 Breiðablik 9 8 1 0 27:7 25 Þór/KA 10 5 2 3 19:16 17 Selfoss 10 5 1 4 12:13 16 Stjarnan 10 3 1 6 5:17 10 ÍBV 8 3 0 5 13:12 9 Keflavík 9 3 0 6 16:17 9 KR 9 2 1 6 8:18 7 Fylkir 9 2 1 6 7:23 7 HK/Víkingur 8 2 0 6 5:18 6 Inkasso-deild kvenna ÍA – Augnablik......................................... 0:1 Þórdís Katla Sigurðardóttir 19. Staðan: FH 8 6 1 1 21:9 19 Þróttur R. 8 6 0 2 28:7 18 Tindastóll 8 5 0 3 25:18 15 Afturelding 8 4 1 3 10:9 13 Augnablik 8 4 0 4 7:7 12 ÍA 8 3 2 3 8:7 11 Grindavík 8 3 2 3 11:13 11 Haukar 8 3 0 5 12:9 9 Fjölnir 8 2 2 4 11:18 8 ÍR 8 0 0 8 3:39 0 Svíþjóð Sundsvall – Hammarby........................... 2:3  Viðar Örn Kjartansson spilaði allan leik- inn með Hammarby og skoraði sigurmark- ið í uppbótartíma, en Aron Jóhannsson var ekki í hópnum. Staða efstu liða: Malmö 16 10 5 1 28:11 35 AIK 16 9 4 3 20:11 31 Djurgården 15 8 5 2 25:12 29 Häcken 15 8 3 4 23:12 27 Gautaborg 15 7 5 3 23:14 26 Hammarby 15 7 4 4 29:22 25 Norrköping 16 6 6 4 23:19 24 Danmörk Hobro – AGF ............................................ 1:1  Jón Dagur Þorsteinsson kom inn af varamannabekk AGF á 77. mínútu. Búlgaría Dunav Ruse – Levski Sofia..................... 1:4  Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Levski er frá keppni vegna meiðsla. KNATTSPYRNA AKUREYRI/SELFOSS/ KEFLAVÍK Baldvin Kári Magnússon Guðmundur Karl Jóhann Ingi Hafþórsson Stórleikur 10. umferðar Pepsi Max- deildar kvenna í knattspyrnu fór fram á Akureyri í gærkvöld þegar Valskonur heimsóttu Þór/KA. Eftir að hafa tapað fyrir norðankonum í bikarnum á dögunum unnu Vals- konur 3:0, en sigurinn var gríðar- lega mikilvægur fyrir liðið í topp- baráttunni. Þetta var fyrsti sigur Valskvenna gegn Þór/KA á útivelli í deildinni síðan árið 2010. Leikurinn var í járnum í upphafi og ljóst að mikið var undir. Það skipti því miklu máli hvort liðið yrði fyrra til að skora. Valskonur náðu inn fyrsta markinu, en Fanndís Friðriksdóttir skoraði það með glæsilegu skoti rétt við vítateigslín- una. Eftir markið róaðist leikurinn töluvert og ekki var mikið um opin færi. Heimakonur í Þór/KA byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og settu pressu á gestina. Þær fengu nokkur fín tækifæri til að skora en vörn Valskvenna hélt vel. Það var svo Hlín Eiríksdóttir sem gerði út um leikinn þegar hún skor- aði annað mark Vals á 74. mínútu og var svo aftur á ferðinni með ann- að mark sitt átta mínútum fyrir leikslok. Þór/KA varð fyrir áfalli í seinni hálfleik þegar fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir meiddist á kálfa. Meiðsli hennar urðu til þess að breyta þurfti uppstillingu og við það missti liðið taktinn. Það er spurning hversu lengi Arna verður frá en Þór/KA mætir KR í undan- úrslitum bikarsins á laugardag. sport@mbl.is Selfoss mun framar Stjörnunni Selfyssingar unnu mjög sann- færandi sigur á Stjörnunni þar sem lokatölur urðu 3:0 og öll mörkin komu í seinni hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var í góðu jafnvægi en um leið og Hólmfríður Magnúsdóttir hafði komið Selfyss- ingum yfir í upphafi seinni hálf- leiks hrapaði Stjarnan og eftirleik- urinn var auðveldur. Þær vínrauðu efldust eftir því sem leið á leikinn en Stjörnukonur virtust alveg bún- ar á því undir lokin. Styrktarþjálf- unin greinilega að skila sér á Sel- fossi. Stjarnan hefur ekki skorað deildarmark síðan í maí og ólán þeirra endurspeglaðist kannski best í tveimur dauðafærum sem Aníta Ýr Þorvaldsdóttir fékk á 64. mínútu. Kelsey Wys varði frábær- lega í tvígang af örstuttu færi og boltinn dansaði á marklínunni. Stjörnukonum virðist ekki ætlað að skora. Selfoss hélt hreinu í þriðja deildarleiknum í röð og þeim fjórða ef bikarleikurinn gegn HK/Víkingi er talinn með. Liðið byggir þennan góða árangur að undanförnu á frá- bærum varnarleik og baráttu og sjálfstraustið í sóknarleiknum er mjög mikið. sport@mbl.is Ólíkt gengi nýliðanna Keflavík komst upp úr fallsæti og sendi Fylki þangað með 2:0-sigri er liðin mættust í Keflavík. Sigurinn var verðskuldaður og kom lítið á óvart miðað við gengi liðanna upp á síðkastið. Keflavík hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum en Fylkir hefur ekki unnið deildarleik síðan í þriðju umferð. Keflavík hefur lært betur á efstu deild með hverjum leiknum. Liðið hefur haldið hreinu í þremur af síðustu fjórum leikjum og hinum megin er Sveindís Jane Jónsdóttir alltaf líkleg til að skora. Keflavík spilar ekki blússandi sóknarbolta eða tiki taka. Keflavík spilar einfaldan og árangursríkan fótbolta og spilar á sínum styrk- leikum. Fylkir er nú í fallsæti en í undanúrslitum í bikar. Það er spurning hvort bikarkeppnin hafi slæm áhrif á liðið í deildinni. Fylkir vann tvo af fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni á meðan Keflavík vann ekki leik fyrr en í sjöttu umferð. Síðan þá hafa liðin algjörlega farið í sitt hvora áttina. johanningi@mbl.is Fyrsti sigur Vals í níu ár fyrir norðan  Stjarnan ekki enn skorað síðan í maí  Keflavík sendi Fylki niður í fallsæti Ljósmynd/Þórir Tryggvason Tvenna Hlín Eiríksdóttir berst gegn Biöncu Sierra og Stephany Mayor. 0:1 Fanndís Friðriksdóttir 21. 0:2 Hlín Eiríksdóttir 74. 0:3 Hlín Eiríksdóttir 81. I Gul spjöldEngin. Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson, 8. Áhorfendur: 322. ÞÓR/KA – VALUR 0:3 M Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA) Karen M. Sigurgeirsd. (Þór/KA) Lára Kristín Pedersen (Þór/KA) Þórdís Hrönn Sigfúsd. (Þór/KA) Dóra María Lárusdóttir (Valur) Fanndís Friðriksdóttir (Valur) Hallbera Guðný Gísladóttir (Valur) Hlín Eiríksdóttir (Valur) Lillý Rut Hlynsdóttir (Valur) 1:0 Hólmfríður Magnúsdóttir 48. 2:0 Magdalena Anna Reimus 68. 3:0 Hólmfríður Magnúsdóttir 82. I Gul spjöldJasmín Erla Ingadóttir (Stjörnunni). Dómari: Helgi Ólafsson, 7. Áhorfendur: 286. SELFOSS – STJARNAN 3:0 MM Hólmfríður Magnúsd. (Selfoss) M Anna M. Friðgeirsdóttir (Selfoss) Grace Rapp (Selfoss) Kelsey Wys (Selfoss) Þóra Jónsdóttir (Selfoss) Jasmín Erla Ingadóttir (Stjarnan) Sigrún Ella Einarsd. (Stjarnan) Sóley Guðmundsdóttir (Stjarnan) 1:0 Sophie Groff 39. 2:0 Sveindís Jane Jónsdóttir 59. I Gul spjöldÍris Una Þórðardóttir, Sophie Groff, Kristrún Ýr Holm, Sveindís Jane Jónsdóttir (Keflavík). Dómari: Steinar Berg Sævarsson, 7. Áhorfendur: 175. KEFLAVÍK – FYLKIR 2:0 M Aytac Sharifova (Keflavík) Sophie Groff (Keflavík) Maried Fulton (Keflavík) Sveindís Jane Jónsdóttir (Kefla.) Kristrún Ýr Holm (Keflavík) Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Fylkir) Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylkir)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.