Morgunblaðið - 16.07.2019, Page 27

Morgunblaðið - 16.07.2019, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði GLÆSILEGUR BORÐBÚNAÐUR FYRIR HÓTEL OG VEITINGASTAÐI HANDBOLTI EM U19 kvenna B-deild í Búlgaríu: Búlgaría – Ísland .................................. 24:16 Bretland – Grikkland ........................... 18:40  Staðan í B-riðli: Búlgaría 4, Serbía 4, Grikkland 2, Ísland 2, Bretland 0. Ísland mætir Serbíu á morgun og Bretlandi á fimmtudag. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Kópavogsvöllur: Breiðablik – ÍBV........... 18 Meistaravellir: KR – HK/Víkingur..... 19.15 1. deild karla, Inkasso-deildin: Þórsvöllur: Þór – Njarðvík ....................... 18 Nettóvöllur: Keflavík – Magni ................. 18 Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Grótta .. 19.15 Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Haukar.... 19.15 Extra-völlur: Fjölnir – Fram .............. 19.15 Leiknisv.: Leiknir R. – Afturelding .... 19.15 Í KVÖLD! HK/Víkingur mun tefla fram nýjum aðalþjálf- ara þegar liðið heimsækir KR í Pepsi Max-deild kvenna í knatt- spyrnu í kvöld. Tæpum sólar- hring fyrir leik í gærkvöldi var tilkynnt að Þór- hallur Víkingsson væri hættur sem þjálfari eftir að samkomulag þess efnis náðist við félagið. Rakel Logadóttir, sem var honum til að- stoðar, stýrir liðinu út tímabilið hið minnsta og fær fyrsta leikinn upp í hendurnar strax í kvöld. Þórhallur tók við HK/Víkingi eftir að liðið tryggði sér sæti í efstu deild haustið 2017. Hann stýrði því í 7. sætið í fyrra en nú er liðið í botnsætinu með sex stig eftir átta leiki. Rakel er níunda leikjahæsti leik- maður efstu deildar kvenna frá upphafi með 216 leiki og spilaði 26 A-landsleiki. yrkill@mbl.is Rakel mun stýra fyrsta leik í kvöld Rakel Logadóttir GRINDAVÍK/FOSSVOGUR Víðir Sigurðsson Bjarni Helgason Jafntefli Grindavíkur og Skaga- manna kom líklega fáum á óvart mið- að við það sem á undan er gengið hjá þessum liðum í úrvalsdeild karla í fót- bolta síðustu vikurnar. Niðurstaðan í Grindavík í gærkvöld var 1:1, úrslit sem kæta hvorugan aðilann, enda Grindvíkingar í brýnni þörf fyrir stig í botnbaráttunni sem þeir hafa sogast inn í og Skagamönnum veitir ekki af sigrum til þess að halda sér í barátt- unni um Evrópusæti. Miðað við leikinn í gærkvöld væri eðlileg niðurstaða beggja liða að vera um deildina miðja. Grindvíkingar eru með nægilega öflugt lið til að berja af sér falldrauginn en Skagamenn þurfa að lyfta leik sínum um eitt þrep til að vera alveg á pari við þau lið sem lík- legast er að sláist um efstu sætin á lokasprettinum. Skagamenn sóttu þó meira, sér- staklega í seinni hálfleik, en gekk bölvanlega að skapa sér opin færi gegn vel skipulögðum varnarleik Grindvíkinga þar sem fátt fer í gegn- um miðverðina öflugu Marc McAusl- and og Josip Zeba. Tryggvi Hrafn Haraldsson hefði þó átt að gera betur snemma í seinni hálfleik þegar hann slapp einn gegn Vladan Djogatovic, sem varði frá honum. Grindvíkingar fengu hins vegar fleiri og betri marktækifæri í leiknum í heild en virðist fyrirmunað að skora. Spánverjinn Óscar Conde fékk óska- byrjun í byrjunarliðinu, skoraði gott mark í fyrri hálfleik, mínútu eftir að Hörður Ingi Gunnarsson hafði komið Skagamönnum yfir. Landi hans Diego Diz leysti hann af hólmi síðustu 20 mínúturnar og bjó til úrvalsfæri fyrir Aron Jóhannsson á lokakafla leiksins. Grindvíkingar þurfa gott framlag frá þessum tveimur til að bæta úr markaleysinu sem hrjáir þá. Átta mörk í tólf leikjum er óviðunandi tölfræði, þótt Grindavík með sitt vel skipulagða lið hafi fengið á sig fæst deildarmörk allra. vs@mbl.is Fjörug lið sem skila litlu Það vantaði ekkert upp á færin þegar Víkingar og Fylkismenn gerðu 1:1 jafntefli á Víkingsvelli. Rétt eins og í Grindavík var hvorugt liðið ánægt með úrslitin eftir leikinn í Fossvoginum. Geoffrey Castillion kom Fylkis- mönnum yfir á 17. mínútu eftir horn- spyrnu Kolbeins Birgis Finnssonar. Ásgeir Eyþórsson skallaði boltann niður fyrir Castillion, sem skoraði af stuttu færi úr markteignum. Guð- mundur Andri Tryggvason jafnaði metin fyrir Víkinga á 25. mínútu með stórglæsilegu marki, en hann tók boltann á lofti og þrumaði honum í slána og inn með viðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf Ágústar Eðvalds Hlynssonar. Víkingar héldu áfram að skemmta knattspyrnuáhugamönnum með flottum fótbolta í Víkinni en enn og aftur skilaði það liðinu engu. Liðið fékk á sig mark úr föstu leikatriði, sem á eiginlega ekki að vera hægt þegar með gæja eins og Kára Árna- son og Sölva Geir Ottesen í vörninni. Sóknarmenn liðsins fóru illa með nokkur færi, meðal annars Erlingur Agnarsson sem ákvað að vippa bolt- anum af 20 metra færi í fyrri hálfleik þegar hann slapp í gegn. Galin ákvörðun og ef liðið fellur í vor má al- veg skrifa það að einhverju leyti á hrokann í yngri leikmönnum liðsins. Fylkismenn voru sprækir í leikn- um en eins og svo oft áður í sumar skilaði það þeim ekki miklu. Varn- arleikur liðsins var hins vegar nokkuð þéttur og Ólafur Ingi Skúlason átti stórleik á miðsvæðinu og tapaði varla tæklingu allan leikinn. Castillion fékk nokkur dauðafæri til þess að skora sigurmark leiksins en fór illa að ráði sínu. Þá komst Orri Sveinn Stef- ánsson vel frá sínu varnarlega en sóknarlega var hann í tómu basli og var gjörsamlega fyrirmunað að koma boltanum fyrir markið. Jafntefli var svekkjandi niðurstaða fyrir bæði lið. Víkingar halda áfram að spila skemmtilegan fótbolta sem skilar litlu og það er ekki laust við að menn spyrji sig hvort liðið sé tilbúið að fórna sæti í efstu deild fyrir áferðarfallegan fótbolta. Að sama skapi gengur Fylkismönnum ekkert að slíta sig úr neðri hlutanum og yfir í efri hlutann. Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Fylki, sem er með mannskap sem á að vera að berjast í efri hlutanum. bjarnih@mbl.is Úrslitin kættu hvorugan  Grindvíkingar gerðu sjöunda jafntefli sitt í sumar en voru nær sigri gegn Skagamönnum  Fórna Víkingar sætinu fyrir áferðarfallegan fótbolta? Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Jafnt Kolbeinn Birgir Finnsson lagði upp mark Fylkis og eltir Víkinginn Guðmund Andra Tryggvason sem skoraði. 0:1 Hörður Ingi Gunnarsson 26. 1:1 Óscar Conde 27. I Gul spjöldElias Tamburini, Vladimir Tu- fegdzic, Rodrigo Gómez og Marinó Helgason (Grindavík), Jón Gísli Ey- land (ÍA). Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson, 7. Áhorfendur: 817. GRINDAVÍK – ÍA 1:1 M Marc McAusland (Grindavík) Josip Zeba (Grindavík) Vladan Djogatovic (Grindavík) Rodrigo Gómez (Grindavík) Alexander V. Þórarinss. (Grindav.) Árni Snær Ólafsson (ÍA) Hörður Ingi Gunnarsson (ÍA) Jón Gísli Eyland (ÍA) Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) 0:1 Geoffrey Castillion 17. 1:1 Guðmundur A. Tryggvason 25. I Gul spjöldErlingur Agnarsson (Víkingi), Ragnar Bragi Sveinsson, Ólafur Ingi Skúlason (Fylki). I Rauð spjöldErlingur Agnarsson (Víkingi). Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 5. Áhorfendur: 1.052. VÍKINGUR R. – FYLKIR 1:1 MM Þórður Ingason (Víkingi) Ólafur Ingi Skúlason (Fylki) M Guðmundur A. Tryggvason (Vík.) Halldór Smári Sigurðsson (Vík.) Kwame Quee (Víkingi) Sölvi Geir Ottesen (Víkingi) Ari Leifsson (Fylki) Ásgeir Eyþórsson (Fylki) Kolbeinn Birgir Finnsson (Fylki) Stefán Logi Magnússon (Fylki)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.