Morgunblaðið - 16.07.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 16.07.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Biomecanics Útsöluverð 5.596 Verð áður 7.995 Stærðir 18-24 30-70%afsláttur Útsalan í fullum gangi Tökur standa nú yfir á 25. kvik- myndinni um James Bond og hafa þær samkvæmt fréttum gengið brösuglega. En nú hafa þær upp- lýsingar lekið út frá tökum að í myndinni nýju hafi James Bond, sem Daniel Craig leikur, sagt skil- ið við njósnastofnunina MI6, sé sestur í helgan stein og hafi öðr- um njósnara verið úthlutað hans fræga númeri, 007. Í dagblaðinu The Mail er haft eftir nafnlausum innanbúðarmanni við tökur myndarinnar að þegar yfirmaðurinn M kallar á 007 og segir njósnaranum að koma inn á skrifstofuna, gangi þar inn svört og falleg kona og það sé augna- blik þegar unnendur sagnabálks- ins muni missa poppkornið sitt á gólfið. Leikkonan sem leikur hinn nýja 007-njósnara er hin breska Lashana Lynch, en hún er 31 árs gömul. Fyrsta kvikmyndahlutverk hennar var í Fast Girls árið 2011 en hún sló fyrst í gegn fyrir al- vöru fyrr á þessu ári, í hlutverki flugkappans Maria Rambeau í kvikmyndinni Marvel kafteinn. AFP 007 Karl Bretaprins heilsaði Lashana Lynch þegar hann heimsótti Pine- wood-kvikmyndaverið og fylgdist með tökum á 25. Bond-myndinni. Hörundsdökk kona verður njósnarinn 007 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þrátt fyrir það brautryðjandastarf sem Hulda vann er nafn hennar lítið þekkt meðal okkar kynslóðar, sem er miður,“ segir Harpa Dís Hákonar- dóttir sem ásamt Hjördísi Grétu Guðmundsdóttur stendur að sýning- unni „Óþreyju barn, kom innst í lundinn“ sem nýverið var opnuð í Listasal Mosfellsbæjar. Titill sýning- arinnar vísar í ljóðið „Þar dali þrýt- ur“ eftir Huldu sem var dulnefni skáldkonunnar Unnar Benedikts- dóttur Bjarklind (1881-1946). Aðspurð segir Harpa Dís sýning- una vera hluta af rannsóknarverkefni sem hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna fyrir sumarið 2019, en Harpa Dís og Hjördís Gréta útskrif- uðust báðar í vor frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Í rannsóknar- verkefninu, sem nefnist „Farsæl, fróð og frjáls“, er skyggnst inn í líf og list Huldu skáldkonu og áhrif hennar á íslenska menningararfleifð skoðuð. „Titill rannsóknarverkefnisins er fenginn úr ljóðinu „Hver á sér fegra föðurland“. Þar er verið að tala um þjóðina, en okkur fannst þessi lýsing líka geta átt við Huldu sjálfa. Hún var frjálsari en margar aðrar konur á sínum tíma og fékk bæði tækifæri til að ferðast og skrifa. Titillinn að sýn- ingunni í Mosfellsbæ vísar til þess að skynja má ákveðna óþreyju í fyrstu ljóðum Huldu þar sem hún lýsir þrá sinni eftir að komast út í heim og fá sömu tækifæri og karlskáldin. Hún hefur greinilega ögrað bókmennta- senunni á sínum tíma. Í gömlum rit- dómum um bækur hennar má sjá að það er eins og karlarnir viti ekki al- veg hvað þeir eigi að skrifa um verk hennar og kalla hana ýmist barn eða sveitastúlku.“ Hugleiðing um fantasíu Spurð um tilurð rannsóknarverk- efnisins rifjar Harpa Dís upp að þær Hjördísi Grétu hafi langað að gera eitthvað í tengslum við fullveldis- afmælið í fyrra. „Við fórum því að skoða ljóð um Ísland og þeirra á með- al var „Hver á sér fegra föðurland“. Við þekktum ljóðið en ekki höfund- inn, sem okkur fannst umhugsunar- vert. Okkur langaði að leggja okkar af mörkum til að vekja athygli á henni, enda mikilvæg skáldafyrir- mynd sem ruddi brautina fyrir aðrar skáldkonur.“ Að sögn Hörpu Dísar bjóða þær Hjördís Gréta sýningargestum á „Óþreyju barn, kom innst í lundinn“ að stíga inn í ákveðinn hugarheim sem endurspeglar samtal milli þeirra. „Í aðdraganda sýningarinnar lögðum við leið okkar norður í Huldulundinn á Auðnum í Laxárdal þar sem Hulda ólst upp,“ segir Harpa Dís og tekur fram að lund- urinn myndi rauðan þráð á sýning- unni. „Lundurinn birtist okkur hér í hugleiðingu um fantasíuna sem skáldkonan orti svo oft um. Læk- urinn rennur frá sýningarsalnum og inn á gólf bókasafnsins,“ segir Harpa Dís og bendir á að í verkum þeirra Hjördísar Grétu reyni þær að fanga andblæ Huldu og viðfangsefni ljóða hennar, en Hulda orti mikið um nátt- úruna. Listakonurnar standa fyrir dag- skrá á Húsavík þar sem Hulda bjó um langt árabil. „Á Mærudögum munum við 27. júlí standa fyrir upp- lestrarmaraþoni á ljóðum Huldu í Safnahúsinu,“ segir Harpa Dís og tekur fram að þær reikni ekki með að komast yfir allar bækur Huldu á þeim átta tímum sem safnið er opið, enda hafi Hulda verið afkastamikið skáld og sent frá sér fjölbreytt verk. „Í tengslum við sýninguna höfum við fengið bókasöfnin á höfuðborgar- svæðinu til liðs við okkur. Meðan á sýningunni stendur stilla söfnin upp þeim bókum eftir Huldu sem til eru á hverju safni til að auka sýnileika hennar,“ segir Harpa Dís. Þess má að lokum geta að sýningin stendur til og með 9. ágúst. Opið er kl. 12-18 virka daga og kl. 12-16 á laugar- dögum. Aðgangur er ókeypis. „Óþreyju barn“ Ljósmynd/Alex Fälting Sýnendur Harpa Dís Hákonardóttir og Hjördís Gréta Guðmundsdóttir.  Listasýning um Huldu skáldkonu í Listasal Mosfellsbæjar  Standa fyrir upplestrarmaraþoni á Húsavík 27. júlí Óþreyjufull Hulda skáldkona. Mexíkóska listakonan Frida Kahlo (1907-1954), sem bar einnig skírnar- nöfnin Magdalena Carmen, var í lif- anda lífi þekktari fyrir að vera eig- inkona hins kunna listamanns Diegos Rivera en fyrir áhrifamikla list sína. Það hefur snúist við og í dag má kalla hana dáðasta lista- mann Mexíkó á 20. öld. Margir aðrir listamenn minnast Kahlo í verkum sínum, nú síðast Írinn Fin Dac. Hann málaði í liðinni viku þessa flennistóru mynd á vegg fjölbýlis- húss í borginni Guadalajara. AFP Veggmynd Flennistór mynd Fins Dac, „Magdalena“, á vegg í Guadalajara í Mexíkó. Í henni hyllir Dac listakonuna Magdalenu Carmen Fridu Kahlo. Hyllir Fridu Kahlo Tónleikunum með Sól- veigu Sigurðardóttur og Gerrit Schuil, sem vera áttu í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld, er frestað vegna veikinda. Verða þeir fluttir aftur fyrir röðina og haldnir þriðjudagskvöldið 20. ágúst kl. 20.30. Tónleikum frestað vegna veikinda Frestast Gerrit Schuil og Sólveig Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.