Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hlutfall innflytjenda og annarrar
kynslóðar innflytjenda af íbúafjöld-
anum á Norðurlöndum hefur breyst
mikið á þessari öld. Dæmi um það er
Svíþjóð en þar bjuggu í fyrra tvöfalt
fleiri innflytjendur en árið 2000. Árið
2000 voru þeir um milljón en um
tvær milljónir í fyrra. Við það bætast
innflytjendur af annarri kynslóð.
Samkvæmt gögnum frá hagstof-
um ríkjanna bjuggu um 3,7 milljónir
innflytjenda á Norðurlöndunum árið
2018. Þá voru rúmlega milljón íbúar
af annarri kynslóð innflytjenda, eða
samtals 4,7 milljónir manna. Sá fjöldi
fer nærri íbúafjölda Noregs en þar
búa um 5,3 milljónir manna.
Fjallað var um fjölgun erlendra
ríkisborgara í Reykjavík í blaðinu í
gær. Hefur hlutfall þeirra hækkað á
síðustu árum og íslenskum ríkis-
borgurum fækkað.
Um 44 þúsund innflytjendur voru
á Íslandi í byrjun síðasta árs og tæp-
lega 5 þúsund manns af annarri kyn-
slóð innflytjenda. Samtals voru þetta
48.600 manns, eða 13,9% íbúafjöld-
ans. Tölurnar eru sem fyrr segir frá
ársbyrjun 2018 og hafa síðan hækk-
að með aðflutningi fólks til Íslands.
Fólksfjölgun á Íslandi í fyrra var að
mestu vegna aðflutnings.
Einstaklingar fæddir erlendis
Á vef Hagstofu Íslands eru hug-
tökin innflytjandi og önnur kynslóð
innflytjenda skýrð svo: „Innflytjandi
er einstaklingur sem er fæddur er-
lendis og á foreldra sem einnig eru
fæddir erlendis, svo og báðir afar og
ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda
er einstaklingar sem fæddir eru á Ís-
landi og eiga foreldra sem báðir eru
innflytjendur.“
Er hér leitast við að bera saman
sambærilegar tölur milli landa.
Nærri 600 þúsund innflytjendur
bjuggu í Danmörku í fyrra og tæp-
lega 180 þúsund manns voru af ann-
arri kynslóð innflytjenda. Alls voru
þetta 770 þúsund manns, eða 13,3%
íbúafjöldans í Danmörku.
Fleiri innflytjendur voru í Noregi,
eða um 747 þúsund. Þá voru um 170
þúsund íbúar af annarri kynslóð inn-
flytjenda í Noregi. Alls 917 þúsund
manns, eða 17,3% íbúafjöldans.
Á vef norsku hagstofunnar segir
að árið 2018 hafi um 169 þúsund af
íbúum Óslóar verið innflytjendur og
rúmlega 54 þúsund verið af annarri
kynslóð innflytjenda. Þessar tvær
tölur hafi jafngilt samanlagt 33,1% af
heildaríbúafjölda borgarinnar.
Á sama stað segir að öll hverfi
Óslóar hafi verið yfir landsmeðaltal-
inu, sem var 17,3%. „Hverfin þar
sem hlutfall fólks með erlendan bak-
grunn var hæst voru Stovner,
Søndre Nordstrand, Alna og Grorud
en þar var hlutfallið yfir 50 prósent,“
sagði í greinargerð um þessa þróun á
vef norsku hagstofunnar.
Pólverjar voru flestir innflytjenda
í Noregi (98.200), svo komu Litháar
(38.400), þá Svíar (35.800) og Sómal-
ar voru í fjórða sæti (28.800).
Tæpar 2 milljónir innflytjenda
bjuggu í Svíþjóð í fyrra og tæplega
590 þúsund voru af annarri kynslóð
innflytjenda. Samanlagt voru þetta
ríflega 2,5 milljónir manna, eða um
fjórðungur íbúafjöldans. Hlutfallið
er hvergi hærra á Norðurlöndunum.
Fram kemur á vef sænsku hag-
stofunnar að um 400 þúsund manns,
sem fæddust utan landsins, hafi flust
búferlum til Svíþjóðar milli áranna
2016 og 2018. Þar af hafi um fjórð-
ungur verið frá Sýrlandi.
Segir þar jafnframt að á þessari
öld hafi nokkrir þættir átt þátt í
fjölgun innflytjenda. Þar með talið
hælisleitendur, endurkoma fólks
sem er fætt í Svíþjóð, aðflutningur
vegna vinnu og náms og aðflutningur
vegna sameiningar fjölskyldna inn-
fæddra sem og aðfluttra.
Má í þessu efni geta þess að Karl
Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnu-
málastofnun, hefur leitt líkur að því
að fjölskyldur fyrirvinnu sem sest
hefur að á Íslandi undanfarið muni
fylgja í kjölfarið og setjast hér að.
Hlutfallið lægst í Finnlandi
Rúmlega 335 þúsund innflytjend-
ur bjuggu í Finnlandi árið 2018 og
rúmlega 67 þúsund manns af annarri
kynslóð innflytjenda. Samanlagt
voru þetta ríflega 400 þúsund
manns, eða um 7,3% íbúafjöldans.
Hlutfall innflytjenda á Norður-
löndum er því lægst í Finnlandi.
Um 5,18 milljónir manna bjuggu í
Finnlandi árið 2000 en 5,52 millj. í
fyrra. Árið 2000 voru rétt rúmlega
hundrað þúsund innflytjendur og
einstaklingar af annarri kynslóð inn-
flytjenda í Finnlandi. Fjölgun þeirra
um 300 þúsund frá árinu 2000 á mik-
inn þátt í íbúafjölgun í Finnlandi.
Hlutfall innflytjenda á uppleið
Innflytjendum á Norðurlöndum fer fjölgandi Hlutfallið komið yfir 50% í sumum hverfum Óslóar
Um fjórði hver Svíi er innflytjandi eða af annarri kynslóð innflytjenda Hlutfallið 13,9% á Íslandi
13,9% 13,3%
17,3%
24,9%
7,3%
Innfl ytjendur á Norðurlöndum
Hlutfall af íbúafjölda 2018*
Hlutfall innfl ytjenda
af íbúafjölda
Hlutfall innfl ytjenda
og annarrar kynslóðar
þeirra af íbúafjölda 12,6%
10,2%
14,1%
19,1%
6,1%*Tölurnar geta vísað til
upphafs og loka árs.
Heimildir: Hagstofur
landanna.
Ísland Danmörk Noregur Svíþjóð Finnland
Innfl ytjendur 43.736 591.678 746.700 1.955.569 335.414
Önnur kynslóð innfl ytjenda 4.861 178.719 170.000 587.851 67.205
Samtals 48.597 770.397 916.700 2.543.420 402.619
Íbúafjöldi 348.450 5.781.190 5.295.619 10.230.185 5.517.919
Hlutfall af íbúafjölda
Innfl ytjendur 12,6% 10,2% 14,1% 19,1% 6,1%
Innfl ytjendur og önnur
kynslóð innfl ytjenda 13,9% 13,3% 17,3% 24,9% 7,3%
Morgunblaðið/Baldur
Ósló Mikil uppbygging er í miðborg Óslóar. Lengst til vinstri má sjá nýja Munch-safnið sem verður opnað á næsta ári. Innflytjendum hefur fjölgað mikið í borginni á þessari öld.
VILTU TAKAVIÐ
GREIÐSLUMÁNETINU?
KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar
bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is