Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 ✝ Hanna SigríðurHofsdal Karls- dóttir fæddist 10. apríl 1931 á Brunn- stíg 3, Hafnarfirði. Hún lést á Landspít- alanum 11. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru Sólveig Bergþóra Þor- steinsdóttir, hús- freyja á Húsavík, f. 31. júlí 1915, d. 15. maí 1998, og Karl Guðmundsson, útgerðar- maður frá Ólafsvík, f. 7. október 1909, d. 8. október 1986. Systir Hönnu, samfeðra, er Dóra Scheving Petersen, f. 1936. Systkini Hönnu sammæðra eru: Sædís Birna, f. 1938, látin; Einar Georg, f. 1941; Þórdís Steinunn, f. 1943; Þorsteinn, f. 1944, látinn; Jóhannes Geir, f. 1947; Baldur, f. 1948; Þórhallur Valdimar, f. 1953, látinn. Hanna flutti með móður sinni 1) Sveinn, f. 1957, skrifstofustjóri hjá Eir, hjúkrunarheimili. 2) Sól- veig, f. 1959, flugfreyja hjá Ice- landair. 3) Einar Magnús, f. 1966, sérfræðingur á Samgöngustofu og kvikmyndagerðarmaður. Fyr- ir átti Hanna Ágúst Kvaran Ax- elsson, f. 1952. Hann er doktor í eðlis- og efnafræði og prófessor við Háskóla Íslands. Sambýlis- kona Ágústs er Ólöf Þorsteins- dóttir, f. 1959. Hanna og Magnús eiga fimm barnabörn og fimm barnabarnabörn, þau hafa misst eitt barnabarn. Árið 1978 hóf Hanna verslun- arrekstur með hálfsystur sinni, Dóru Petersen, í leiguhúsnæði á Hlemmi, með snyrti- og hreinlæt- isvörur í versluninni Söru, sem þær stofnuðu. Síðar færðist verslunarrekstur Hönnu í Bankastræti 8 þar sem hún rak snyrtivöruverslun í eigin hús- næði til október 2004. Hanna var sjálfmenntuð í saumaskap. Árið 1958 hóf hún að sauma herravesti, sem herra- fataverslun P&Ó í Pósthússtræti tók í sölu, en hún var þá ein að- alherrafataverslun borgarinnar. Útför Hönnu fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 24. júlí 2019, klukkan 13. og sambýlismanni hennar, Einari M. Jóhannessyni, síðar eiginmanni, til Húsavíkur 1935. Hann gekk Hönnu í föðurstað. Auk heimilisstarfa hjá móður sinni vann hún á sumrin, þegar hún hafði aldur til, m.a. við síldar- söltun. Hanna hóf nám í tannsmíði á Akureyri 1950 og lauk námi í greininni 1953. Hún vann við tannsmíðar á Akureyri þar til hún flutti til Selfoss 1955. Þar vann hún við tannsmíðar til 1956 er hún hóf sambúð með Magnúsi L. Sveinssyni á Selfossi og gengu þau í hjónaband 14. apríl 1957 og fluttu til Reykjavíkur í apríl 1958. Þau byggðu sér einbýlishús í Breiðholtinu 1968 og hafa búið þar síðan. Börn Hönnu og Magnúsar eru: Í minningu um mömmu ætla ég ekki að staldra við það þegar ég tíu ára gamall olli henni von- brigðum með ósannindum mín- um um að ég hefði ekkert komið við sögu þegar kveikt var í sinu í móanum rétt við íbúðabyggðina í Breiðholti. Ég ætla ekki að dvelja við vonbrigði hennar þeg- ar ég, það sama ár, kom inn úr bílskúrnum í rifnum og blóðug- um jakkafötunum sem hún hafði nýlega saumað á mig fyrir út- skrift bróður míns. Ég ætla ekki að dvelja við það þegar mamma horfði áhyggjufull og alvarleg í augu mér vegna þess að ég hafði verið rekinn tímabundið heim úr skóla fyrir að læsa handavinnu- kennarann inni í hannyrða- geymslunni. Ég kýs frekar að dvelja við það sem gnægð er af en það eru minningarnar um mildi hennar og hlýjan faðm sem bæði gaf staðfestingu á fyrirgefningu synda minna og veitti mér ásamt orðum hennar, festu og ástríki skilning á muninum á réttu og röngu. Ég dvel við minninguna um þegar hún nuddaði hita í kaldar hendur og kalda fætur, vafði sæng utan um og huggaði óttasleginn og ímyndunargjarn- an huga. Og samtölin sem við átt- um sem oft voru ótrúlega opin- ská og traust. Ég ætla að dvelja við þakklætið fyrir að hún hvatti mig til að sjá í hverjum manni ágæti hans þrátt fyrir oft sáran breyskleika viðkomandi. Í henn- ar huga átti vamm hvers manns sér skýringu sem hafa skyldi í huga þegar dómur væri kveðinn upp yfir honum. Og öll hlýju, hvetjandi og fallegu orðin hennar sem ég fékk að heyra allt fram á hennar síðustu daga. Ég geymi með mér mikið þakklæti til mömmu og pabba fyrir það að aldrei var sagt, „Nei þú getur ekki.“ Ég var aldrei lát- inn verða vitni að, oft miklum áhyggjum þeirra, um að djarfleg- ar fyrirætlanir mínar og uppá- tæki færu ekki vel saman við þá staðreynd að ég var með sykur- sýki frá tveggja ára aldri. Þess í stað var fundin leið til að ég gæti tekist á við áskorunina og notið líkt og jafnaldrar mínir höfðu kost á. Fyrir þetta lögðu þau oft mikið á sig. Fyrir allt þetta er ég þakklát- ur og orna mér við minningarnar um góða, milda og fallega mömmu sem ég kveð nú á þess- um degi en mun alltaf sakna og geyma í huga mér á fallegum stað. Einar Magnús Magnússon. Mér fundust þeir táknrænir þessir björtu hlýju sólardagar sem fylgdu Hönnu seinustu líf- daga hennar. Fannst þeir tóna vel við lífshlaup elskulegrar mág- konu minnar, Hönnu Hofsdal. Það er notalegt að vita af sólinni senda sína líknandi hlýju geisla yfir á lífríki okkar mannanna. Það er líka notalegt að eiga tryggan sólargeisla innandyra. Það átti minn góði bróðir Magn- ús svo sannarlega. Sá sólargeisli var hans stoð og stytta gegnum lífið. Þar bar aldrei skugga á. Mér yrði orða vant ef ég ætti að lýsa öllum mannkostum Hönnu. Kannski sérkennilegt. Ég finn hvergi snöggan blett á hennar langa lífshlaupi, svo sterk og heil- steypt sem hún var. Hlýtur það að vera svolítið sérstakt. Oft kom ég á þeirra fallega heimili í Geita- stekk 6, bæði boðinn og óboðinn. Alltaf jafngóðar og hlýjar mót- tökur. Hanna undantekningar- laust eins og sólargeisli með bros á brá, öðruvísi mætti hún ekki til dyranna. Inni á þeirra heimili hef ég átt margar eftirminnilegar og góðar stundir sem ég kann að meta og þakka. Hanna var mjög sérstök kona, fljótvirk ham- hleypa til verka, en þó um leið vandvirk, hreinleg svo af bar. Enda bar heimili hennar því gott vitni. Vel klædd og glæsileg í allri framgöngu. Ég ímynda mér að Magnús hafi oft verið stoltur af sínum glæsilega förunaut er þau mættu prúðbúin bæði tvö á ráð- stefnur og mörg önnur opinber trúnaðarstörf sem Magnúsi var trúað fyrir að sinna, sem hann leysti af samviskusemi, heiðar- leika og alúð. Aldrei sá ég Hönnu reiða, alltaf eins og fram hefur komið með bros á vör, það yljaði hjartarótum. Ég tel Hönnu hafa verið mikla gæfumanneskju í líf- inu. Afkomendur hennar, börnin fjögur, öll afburðafólk á öllum sviðum. Þáttur í þeirri gæfu gott uppeldi. Það er þáttur sem oft geymist í umræðunni. Mikil gest- risni var þeim hjónum í blóð bor- in. Naut ég þess í ríkum mæli. Þar var ekki klipið við nögl. Góð- ur matur, kaffi og kökur. Hanna gleymdi ekki að ýta góðgætinu að manni. Af sinni alkunnu ár- vekni var hún á heimavelli og naut sín. Endalaus elskulegheit og velvilji, vildi gera öllum gott. Með mikilli virðingu og þakklæti og góðum minningum kveð ég af- burðagóða manneskju, mágkonu mína Hönnu Hofsdal sem verður sárt saknað. Megi hið eilífa góða afl heimsins styrkja og blessa alla þá sem syrgja hana. Magnúsi eiginmanni hennar, afkomendum og fjölskyldum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur, sem og öllum ættingjum og vinum. Minningin lifir, Guð blessi ykkur öll. Hafsteinn Sveinsson. Hún var tengdamóðir mín í rúmlega 20 ár hún Hanna. Ég kynntist henni, Magga og börn- um þeirra lítillega eftir að ég og Ágúst sonur hennar byrjuðum saman. Fljótlega fluttum við til Skotlands og komu þau hjónin og Einar Magnús til okkar þegar fyrsta barnabarn hennar fædd- ist. Þar kynntist ég þeim vel. Eft- ir þessa dvöl urðum við góðar vinkonur. Ég gleymi því aldrei er þau komu og ferðataska Hönnu var full af heimasaumuðum föt- um á dóttur okkar. Falleg litrík föt – buxur, kjólar, blússur og náttföt. Hún var þvílík snilldar saumakona og listrænir hæfileik- ar Hönnu leyndu sér ekki. Hún saumaði m.a. vesti fyrir eina flottustu herrafataverslun bæj- arins til margra ára „Herrafata- verslun P & Ó“ sem var starf- rækt í Pósthússtrætinu og hafa margir herrar klæðst vesti frá Hönnu. Ég vildi óska að ég ætti eitthvað af þessum fallegu barna- fötum sem hún saumaði. Er við fluttum aftur heim til Íslands komum við stundum í heimsókn til hennar og Magga í Geitastekkinn en þá voru hún og Dóra systir hennar nýbyrjaðar í verslunarrekstri. Ég vann í mið- bænum á þessum árum og kom oft við í búðinni og við ræddum ýmis mál. Oft var ég leyst út með einhverju úr búðinni: „Þú getur örugglega notað þetta“ fylgdi ávallt gjöfinni. Mataruppskriftir á ég frá Hönnu og fæ vatn í munninn er ég hugsa t.d. um lúðu/hrísgrjóna- réttinn og daim-ístertuna sem enginn gerði betri. Smákökurnar hennar – það dugði ekki minna en 8-10 sortir fyrir jólin jafnvel eftir að hún hóf eigin rekstur var ekki slakað á jólabakstrinum þrátt fyrir annríki í búðinni. Fljótlega mun ég útbúa ein- hverja af hennar uppskriftum og minnast hennar um leið. Þrátt fyrir að leiðir skildi hjá okkur Ágústi var alltaf kært með okkur Hönnu. Við hittumst ekki oft sl. ár nema í afmælisveislum hjá barnabörnum hennar. Það er á stundum sem þessum þegar einhver kær kveður að maður áttar sig á hversu mik- ilvægt er að rækta vini og vanda- menn. Í amstri dagsins viljum við oft fresta hlutum og kennum um tímaleysi. En þrátt fyrir að ég hafi hitt Hönnu mína sjaldnar en ég hefði óskað, var alltaf einstak- lega hlýtt á milli okkar og fylgd- ist hún vel með dætrum mínum í gegnum árin. Hanna var ein fyrstu árin með son sinn Ágúst sem fæddist 1952 en síðar fór hann til föðurömmu og -afa á Akureyri og varð eftir hjá þeim. Er hún kynnist Magn- úsi L árið 1955 og þau vildu fá drenginn til sín kom óeðlilegur þrýstingur frá föðurfólki Ágústar um að drengurinn ætti að vera hjá ömmu og afa á Akureyri. Það er alveg ljóst að það hafði mjög mikil áhrif á líf hennar og Ágúst- ar að láta hann frá sér nokkurra ára gamlan. Við ræddum þetta oft. Hún sagði mér að hún hefði ekki verið nægilega sterk á þess- um árum til að standa á móti þeim í baráttu um barnið og lét því drenginn til þeirra. Fyrir mér var Hanna ákveðin kona og föst á sínu. Það er oftast þannig að erfiðleikar styrkja mann og það hefur það gert hjá henni. Hanna var jákvæð og kær- leiksrík. Hún var sterk kona með innri frið. Edda. Öllu er afmörkuð stund og sér- hver hlutur undir himninum hef- ur sinn tíma. Nú er lífdögum Hönnu systur minnar lokið. Við sem fáum frest stöndum eftir í varpa með söknuð í hjarta. Það er fallegt í Hafnarfirði, hraungjóturnar, gróðurinn og ilmurinn. Hanna fæddist við Brunnstíginn 10. apríl 1931. Þá var móðir okkar trúlofuð Karli Guðmundssyni sjómanni. Upp úr því sambandi slitnaði en það lét eftir sig litla stúlku sem var fal- leg frá fyrsta degi. Nokkrum árum síðar tók mamma saman við Einar M. Jó- hannesson leigubílstjóra í Reykjavík. Hann var ættaður frá Húsavík og árið 1935 fluttust þau ásamt Hönnu norður. Þá var mikill uppgangur á Húsavík við bryggjugerð og stétt fyrir neðan bakka. Á Húsavík gekk pabbi Hönnu systur minni í föðurstað. Sennilega hefur verið erfitt að finna leiguhúsnæði. Fyrstu árin áttum við heima í gamla bakarí- inu svokallaða. Þar fæddist ég og þar fæddist Þórdís systir mín. Hvernig skyldi það hafa verið fyrir Hönnu, tólf ára gamla, að vera heimilishjálp? Mamma ól barn annað hvert ár og þarfn- aðist mikillar aðstoðar við bleyjuþvott og pössun. Elsta barn þeirra Einars og Sólveigar var Sædís Birna, fædd 17. sept. 1938. Skömmu fyrir jól 1940 þegar Sólveig var í heim- sókn í Hafnarfirði með dætur sínar veiktist Sædís skyndilega og lést í faðmi móður sinnar. Þetta varð bæði Sólveigu og Hönnu þung reynsla Þegar hér var komið sögu vildi pabbi fara að byggja eigið hús. Meðan á framkvæmdum stóð bjó fjölskyldan í hlöðu uppi í brekku þar sem áður hafði staðið Syðri-Hlíð. Árið 1945 var nýja húsið, Ytri-Hlíð, nokkurn veginn íbúðarhæft. Þá var flutt þangað inn. Pabbi og Marinó bakari áttu saman Litlu búðina framan við Garðarshólma. Þar var Hanna eins konar verslunarstjóri. Dag- urinn hófst gjarnan á því að Hanna leiddi mig niður reitinn. Áður en búðin var opnuð þurfti að ná í Gullí sem var besta vin- kona Hönnu og hét reyndar Gunnlaug Maídís Reynis. Þarna fékk ég gotterí eins og ég gat í mig troðið. Það sýndi sig strax á ung- lingsárum Hönnu að hún var mjög lagtæk. Hún hannaði, sneið og saumaði flíkur á systkini sín og var einstaklega smekkvís. Hún hefði getað náð langt sem hönnuður. Hanna lærði tannsmíðar á Ak- ureyri. Aldrei lét hún bregðast að senda okkur heimalningunum dýrindis jólagjafir þótt varla hafi tekjurnar verið miklar. Mér er einkum í minni eldavél sem Dísa systir fékk sem var svo fullkomin að það var hagt að setja kerti í eldhólf og sjóða pylsur. Ég fékk lítinn vörubíl á tvöföldu að aftan. Það var enginn skilinn út undan. Að loknu tannsmíðanáminu fór Hanna til Selfoss. Þar krækti hún í Magnús sinn, góðan mann og vandaðan. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar. Ég votta afkomendum og eig- inmanni djúpa samúð. Guð blessi minningu góðrar konu. Einar Georg Einarsson. Hanna Sigríður Hofsdal Karlsdóttir Hinn 18. júlí kvöddum við yndis- lega systur, Maríu Sigurborgu Jonný Rósinkarsdóttur, hinstu kveðju. Ekki eru fleiri dagar til að gera það sem ég ætlaði að gera, að heimsækja þig elsku Mæja mín. Ég fæ aldrei þakkað þér fyrir öll kærleiksverkin þín gagnvart mér María Sigurborg Jonný Rósinkarsdóttir ✝ María Sig-urborg Jonný Rósinkarsdóttir fæddist 25. sept- ember 1928. Hún lést 1. júlí 2019. Útförin fór fram 18. júlí 2019. og mínum. Minn- ingasjóðurinn er hins vegar stór og þangað leita ég huggunar. Hve hugljúfar eru minningarnar um þig og Óla, í samveru á sumardögum. Hve yndislegt það er að vita að núna gangið þið hönd í hönd og ekkert mun framar aðskilja ykkur. Hve þakklát ég er fyrir þá fullvissu. Elsku Mæja mín, ég veit að herskarar tóku á móti þér, er þú laukst veru þinni hér á jörðu. Hve þakklát ég er og verð fyrir fordæmi þitt og óendanlega þjón- ustu við okkur öll. Þú varst ljós okkur hinum í Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. María var fyrsta íslenska konan sem kölluð var til forsætis í líkn- arfélagi Kirkju Jesú Krist á upp- hafstíma kirkjunnar hér fyrir 40 árum. Hún vann af fórnfýsi og kærleika sem enn þann dag í dag vekur aðdáun og þakklæti. Hafðu þökk fyrir að vera tilbúin að leggja á þig svo óendanlega mikla vinnu og tíma sem gefinn var af kær- leika og ást. Engin orð fá lýst því mikla verki sem unnið var á upphafsár- um Reykjavíkurgreinar Kirkju Jesú Krists HSDH. Allt varð að koma heiman frá með þeim sem þjónuðu. Það var ekkert til til að nota eða vinna með í upphafi. Fórnfýsi, kærleikur og þjón- usta voru aðalsmerki Maríu í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Ég veit að þessi orð eru fátækleg og ég hugga mig við það að sá sem allt sér og veit og skilur skráir verk þín í lífsins bók, þar sem engu er gleymt. Elsku Mæja mín, ég þakka þér og kveð þig með söknuði og eft- irsjá um leið og ég votta börnun- um þínum og öllum afkomendum samúð. Ég veit að þú lifir og vakir yfir þeim handan hulunnar og enn munu þau njóta verndar þinnar og Óla um alla framtíð. Í þessari vísu eftir Guðrúnu Jó- hannsdóttur eru orð sem hljóma í mínum huga sem lýsing á lífi elsku Mæju. Þú hefur verið göful, góð, grætt þá sjúku af meinum, Það er gott að safna í sjóð sæmdarverkum einum. Því er björt og blómum stráð brautin minninganna og nafn þitt hreinum heiðri skráð í hjörtum þúsundanna. (Guðrún Jóh.) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þínir eilífðarvinir, Valgerður og Guðmundur (Valla og Gummi). Okkar ástkæra og yndislega ÞÓRGUNNUR EYFJÖRÐ PÉTURSDÓTTIR, Meðalholti 2, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild LSH Fossvogi 12. júlí. Útför hennar fer fram frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 27. júlí klukkan 11. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á framtíðarreikning sonar hennar, Péturs Eyfjörðs, 1187-18-560090. Pétur Eyfjörð Friðriksson Ása Guðrún Johansen Pétur Eyfjörð Þórgunnarson Friðrik Freyr Flosason Arnþór Pétursson Jóhann Axel Pétursson Jennie Byrd Anthony Pierce fjölskylda og vinir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA VEIGA BENEDIKTSDÓTTIR, Kvíarholti í Holtum, lést miðvikudaginn 17. júlí. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 27. júlí klukkan 11. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar láti Hjúkrunarheimilið Lund á Hellu njóta þess. Ingibjörg Sigurðardóttir Ágúst Geirsson Þórður Karlsson Brynhildur Magnúsdóttir Margrét Karlsdóttir Gunnar Gunnarsson Fjóla Karlsdóttir Sigurður Steingrímsson Þorsteinn Karlsson Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir Berglind Karlsdóttir Arnar Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.