Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 Vandaðir mínifræsarar og brennipennar í úrvali Fræsari 350 stk Verð 15.960 Brennipenni Verð 7.890 Brennipenni Verð 6.980 Fræsari lítill Verð 9.980 Fræsari 60 stk Verð 15.240 augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga www.alno.is koma á friði á Norður-Írlandi eftir átök sem kostuðu um 3.500 manns líf- ið. Fellst ESB á tilslakanir? Johnson vill einnig að Bretar skapi „uppbyggilega“ óvissu um hvort þeir byrji að greiða 39 milljarða punda, jafnvirði rúmra 6.000 milljarða króna, sem gert hefur verið ráð fyrir að Bretland borgi ESB vegna útgöng- unnar. Hann vill gera þetta til að bæta samningsstöðu Breta og fá ESB til að fallast á „kyrrstöðusamning“ um að núverandi tollar gildi áfram í viðskiptum milli Bretlands og ESB- ríkja þar til nýr samningur um fram- tíðartengslin tekur gildi. Johnson vill að deilan um írsku landamærin verði leyst með blöndu af tæknilegum lausnum og samningum um undan- þágur til að tryggja að írsku landa- mærin haldist opin á meðan samið er um framtíðartengslin. Hann telur að hægt verði að leysa öll vandamálin í tengslum við brexit áður en kjörtíma- bili þingsins lýkur í maí 2022. Johnson hefur sagt að hann útiloki ekki útgöngu án samnings „ef allt annað bregst“ og líti á það sem „nauð- synlegt tæki“ til að knýja fram tilslak- anir af hálfu ESB í samningaviðræð- um um útgönguna. Stuðningsmenn Johnsons segja að leiðtogar ESB hafi vitað að Theresa May hafi í raun aldr- ei léð máls á útgöngu án samnings og þessi afstaða Johnsons auki líkurnar á því að þeir fallist á tilslakanir til að koma í veg fyrir að brexit skaði efna- hag ESB-ríkja. Meirihluti neðri deildar breska þingsins er hins vegar andvígur út- göngu án samnings vegna þess að tal- ið er að hún hafi alvarlegar afleiðing- ar fyrir efnahag Bretlands. Á meðal þeirra sem leggjast gegn útgöngu án samnings eru nokkrir fráfarandi ráð- herrar í stjórn May og hópur þing- manna Íhaldsflokksins. Kosningum flýtt? Johnson er í enn veikari stöðu en May var að því leyti að þrátt fyrir stuðning DUP, flokks norðurírskra sambandssinna, er ríkisstjórn Íhalds- flokksins núna aðeins með þriggja sæta meirihluta á þinginu. Meirihlut- inn gæti minnkað í tvö sæti í auka- kosningum í Wales 1. ágúst. Nokkrir íhaldsmenn á þinginu hafa gefið til kynna að þeir myndu fella ríkisstjórn- ina frekar en að samþykkja útgöngu Bretlands úr ESB án samnings. Nýlegar skoðanakannanir hafa bent til þess að ef kosið væri nú myndi enginn flokkur fá meirihluta á þinginu. Að sögn The Telegraph benda skoðanakannanir til þess að Íhaldsflokkurinn fengi aðeins um 23% atkvæðanna ef kosið yrði til þingsins áður en Bretland gengi úr ESB. Fylgi hans yrði hins vegar 28% ef kosið yrði eftir útgöngu og það myndi líklega duga til að Íhaldsflokkurinn fengi meirihluta þingsæta. Johnson hefur sagt að ekki komi til greina að efna til þingkosninga fyrir 31. október en nokkrir þingmenn hafa sagt að þeir séu tilbúnir að leggja fram tillögu um vantraust á stjórn hans til að knýja fram kosningar. Yrði slík vantrauststillaga samþykkt áður en sumarhlé þingsins hefst nú í vik- unni er líklegt að kosningar færu fram 19. eða 26. september, að sögn fréttaskýranda BBC. Falli stjórnin eftir sumarhléið er talið líklegt að kosningar geti í fyrsta lagi farið fram 24. október, aðeins viku áður en Bret- land á að ganga úr ESB. Helstu bandamenn Boris Johnsons fögnuðu sigri hans í leið- togakjörinu í gær en leiðtogar Evrópusambandsins vöruðu hann við því að hann ætti erfiðan tíma fyrir höndum vegna brexit-málsins. „Hann verður frábær!“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem varð fyrstur erlendra leiðtoga til að óska Johnson til hamingju með sigurinn. Trump hafði áður lýst yfir stuðningi við Johnson í leiðtogakjörinu. Ursula von der Leyen, verðandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, óskaði einnig Johnson til hamingju með sigurinn og kvaðst hlakka til að vinna með honum. „Við þurfum að takast á við mörg ólík og erfið mál. Við eigum erfiðan tíma fyrir hönd- um.“ Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, krafðist þess að nýi flokksleiðtoginn flýtti þingkosningum. „Boris Johnson hefur fengið stuðning færri en 100.000 félaga í Íhalds- flokknum með því að lofa því að lækka skatta hinna auðugustu, koma fram sem vinur bankamanna og beita sér fyrir skaðlegu brexit án samnings. En hann hefur ekki fengið stuðning þjóðar- innar,“ sagði Corbyn. „Þjóðin ætti að ákveða í þingkosningum hver eigi að vera næsti forsætisráðherra.“ Corbyn krefst þess að kosningum verði flýtt DONALD TRUMP SEGIR AÐ BORIS JOHNSON VERÐI FRÁBÆR FORSÆTISRÁÐHERRA EN LEIÐTOGAR ESB SEGJA HANN EIGA ERFIÐAN TÍMA FYRIR HÖNDUM Forsætisráðherrar Bretlands frá Churchill Heimild: Breska ríkisstjórnin Íhaldsflokkurinn Verkamannaflokkurinn Winston Churchill Clement Attlee Anthony Eden Harold Macmillan Alec Douglas-Home Harold Wilson Edward Heath James Callaghan Margaret Thatcher John Major Tony Blair Gordon Brown David Cameron Theresa May 19501940 1960 1970 1980 1990 2000 2010 Boris Johnson hefur verið í sambúð með Carrie Symonds, sem verður að öllum líkindum fyrsta forsætis- ráðherraunn- ustan í Downing- stræti 10, að sögn The Telegraph. Blaðið segir að Johnson gæti ekki kvænst Symonds þótt hann vildi það vegna þess að hann hefur ekki enn fengið lög- skilnað frá annarri eiginkonu sinni. Carrie Symonds er 31 árs og 24 árum yngri en Johnson. Hún verður yngsti maki bresks forsætisráð- herra, að sögn breskra fjölmiðla. Hún hefur verið pólitískur ráð- gjafi og almannatengill í um ára- tug, m.a. í höfuðstöðvum Íhalds- flokksins. Hún var t.a.m. ráðgjafi Johns Whittingdale þegar hann var menningarráðherra og Sajids Ja- vids innanríkisráðherra. Unnustan sú yngsta Carrie Symonds

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.