Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 M.BENZ C350e AVANTGARDE nýskr. 03/2018, ekinn 14 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, glerþak ofl. ofl. Stórglæsilegur! TILBOÐSVERÐ 5.690.000 kr. Raðnúmer 259502 BMW 530e IPERFORMANCE nýskr. 06/2018, ekinn 10 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, vel búinn aukahlutum. Stórglæsilegur! Verð 6.490.000 kr. Raðnúmer 380510 VW PASSAT GTE PREMIUM nýskráður 02/2018, ekinn 31 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, leður, glerþak ofl. Geggjaður bíll! Verð 5.150.000 kr. Raðnúmer 259510 M.BENZ E 350e EXCLUSIVE nýskr. 05/2017, ekinn 34 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur, tvöfalt stafrænt mælaborð ofl. Glæsilegt eintak! TILBOÐSVERÐ 6.290.000 kr. Raðnúmer 259503 LAND ROVER RANGE ROVER HSE LIMITED nýskr. 02/2015, ekinn 53 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.Verð 13.900.000. Raðnúmer 259534 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Boris Johnson hét því að tryggja út- göngu Bretlands úr Evrópusamband- inu 31. október eftir að ljóst varð að hann var kjörinn leiðtogi Íhalds- flokksins með um tveimur þriðju at- kvæða og verður þar með næsti for- sætisráðherra landsins. Mikil óvissa er þó um hvort hann geti staðið við loforðið, m.a. vegna óeiningar meðal þingmanna Íhaldsflokksins um hvort Bretland eigi að ganga úr ESB án samnings náist ekki nýtt samkomulag um skilmála útgöngunnar. Breska dagblaðið The Telegraph bendir á að ef marka má skoðana- kannanir er líklegt að Íhaldsflokkur- inn fái meirihluta í neðri deild þings- ins í næstu kosningum ef Boris Johnson tekst að tryggja útgöngu Bretlands úr ESB 31. október. Aðrir stjórnmálaskýrendur benda hins veg- ar á að ríkisstjórn Johnsons gæti fall- ið á næstu mánuðum og orðið sú skammlífasta í sögu Bretlands. Hafnar „sjálfsefa og neikvæðni“ Nær 160.000 skráðir félagar í Íhaldsflokknum gátu greitt atkvæði í leiðtogakjörinu og kjörsóknin var 87,4%, að sögn breska ríkisútvarps- ins. Boris Johnson fékk 66,4% at- kvæðanna, nær tvöfalt fleiri en keppi- nautur hans, Jeremy Hunt utanríkisráðherra. David Cameron fékk ívið meira fylgi, eða 67,6% at- kvæðanna, í leiðtogakjöri Íhalds- flokksins árið 2005. „Við ætlum að koma brexit í fram- kvæmd 31. október,“ sagði Johnson m.a. í ræðu eftir að úrslit leiðtoga- kjörsins voru tilkynnt. Hann hét því einnig að sameina bresku þjóðina eft- ir útgönguna og sigra Verkamanna- flokkinn undir forystu Jeremys Cor- byns í næstu þingkosningum. „Við ætlum að fylla landið krafti,“ sagði hann og hét því að nýta þau tækifæri sem gæfust með útgöngunni í þeirri staðföstu trú að Bretar gætu sigrast á vandamálunum. „Við ætlum enn og aftur að trúa á okkur sjálf og rísa upp, eins og risi vaknar af blundi, og hrista af okkur fjötra sjálfsefa og nei- kvæðni.“ Gert er ráð fyrir því að Johnson taki við embætti forsætisráðherra í dag. Vill losna við ákvæði um írsku landamærin Johnson hefur sagt að hann vilji helst ná samkomulagi við Evrópu- sambandið um breytingar á útgöngu- samningi þess við Theresu May. Leið- togar ESB hafa hins vegar sagt að ekki koma til greina að breyta út- göngusamningnum þótt breska þing- ið hafi hafnað honum þrisvar. Þeir hafa hins vegar léð máls á því að ræða óskir breskra stjórnvalda um að gefa út sérstaka yfirlýsinga um framtíðar- tengsl Bretlands við Evrópusam- bandið. Verði ekki gerðar breytingar á út- göngusamningnum vill Johnson að þingið staðfesti „það besta“ úr hon- um, m.a. ákvæði um ýmis mál sem ekki er ágreiningur um á þinginu, svo sem um réttindi ríkisborgara ESB- landa í Bretlandi og samstarf við Evrópusambandið í öryggismálum. Johnson vill hins vegar að þingið und- anskilji umdeilt ákvæði í útgöngu- samningnum sem á að tryggja að landamæri Norður-Írlands og Írska lýðveldisins haldist opin eftir brexit. Ákvæðið felur í sér að reglur ESB um tolla og matvælaframleiðslu eiga að gilda á Norður-Írlandi ef ekki næst samkomulag um annað í viðræðum um framtíðartengsl Bretlands við ESB. Andstæðingar samningsins segja ákvæðið geta orðið til þess að Bretland þurfi að vera áfram í tolla- bandalagi ESB til frambúðar. Stuðn- ingsmenn ákvæðisins segja hins veg- ar að það sé nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að brexit grafi undan samn- ingnum sem náðist árið 1998 til að Mikil óvissa um brexit-loforðið AFP Verður forsætisráðherra Boris Johnson (t.h.) fagnar með föður sínum, Stanley Johnson, eftir að úrslit leiðtogakjörs Íhaldsflokksins voru tilkynnt í gær. BORIS JOHNSON Næsti forsætis- ráðherra Bretlands Ljósmynd AFP/Chris Radburn Frá 1987 Blaðamaður og álitsgjafi, með efasemdir um Evrópusambandið 2001-08, 2015- Þingmaður Íhaldsflokksins Borgarstjóri Lundúna 2008-16 Var á meðal helstu stuðningsmanna brexit fyrir þjóðar- atkvæði um útgönguna 2015-16 2016 Dró sig út úr leiðtoga- kjöri eftir að einn helstu stuðningsmanna hans, Michael Gove, sneri baki við honum 2016-2018 Utanríkisráðherra í stjórn Theresu May 2019 Verður forsætis- ráðherra eftir sigur í leiðtoga- kjöri breska Íhaldsflokksins LOFORÐ FYRIR LEIÐTOGAKJÖRIÐ Lækka skatta hinna auðugustu, um þriggja milljóna manna Neita að greiða andvirði 39 milljarða punda vegna útgöngunnar til að styrkja samningsstöðu Breta Bretland gangi úr ESB 31. okt., með eða án samnings um útgönguna Leggja áherslu á innflytjendstefnu sem byggist á stigakerfi  Stjórn Johnsons gæti orðið sú skammlífasta í sögu Bretlands en takist honum að tryggja útgöngu úr ESB gæti hann hrósað sigri í næstu þingkosningum  Andstaða í flokki hans við brexit-stefnu hans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.