Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 23

Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 „ÉG SPURÐI AFTUR. BORÐIÐ OKKAR ER EKKI TILBÚIÐ.” „FARÐU OG FINNDU NÆSTA BÆ OG STINGDU ÞESSU Í SAMBAND.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá ástarbréf. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann TAKK NJÓTIÐ FRÁBÆRT! ÁLEGGIÐ ÁTTI AÐ SKIPTAST TIL HELMINGA! EKKERT MÁL. ÉG PLOKKA BARA MÚSAHÖFUÐIN AF ÞINNI HLIÐ! ÉG ÆTLA RÉTT AÐ VONA ÞAÐ! ÞESS VEGNA VALDI ÉG ÞENNAN STAÐ!ÞEGAR ÉG SIT HÉR OG HORFI Á ALLAR STJÖRNURNAR Í ALHEIMINUM VELTI ÉG ÞVÍ FYRIR MÉR HVORT VIÐ SÉUM EIN! þingstörfum 2006-2010 og var þar meðal annars formaður atvinnu- málanefndar. Fjölskylda Sambýliskona Birkis er Svava Halldóra Friðgeirsdóttir, f. 27. nóv- ember 1972. Hún er skjalastjóri Ar- ion banka hf. Foreldrar hennar eru hjónin Sigurbjörg Halldóra Hall- dórsdóttir, f. 9. desember 1947, hús- móðir og útgerðarkona, og Friðgeir Höskuldsson, skipstjóri og útvegs- bóndi úr Drangsnesi í Strandasýslu, f. 31. júlí 1947. Börn Birkis og Svövu eru tvíbur- arnir Auður Björk og Guðrún Hall- dóra, f. 30. mars 2012. Systkini Birkis eru Ólafur, bóndi í Fljótum, f. 1971; Steinar, smiður í Kópavogi, f. 1972; c) Ingvar, bygg- ingartæknifræðingur í Svíþjóð, f. 1980. Foreldrar Birkis eru Björk Jóns- dóttir, húsmóðir og fyrrverandi bankastarfsmaður, f. 15. ágúst 1951, og Jón Sigurbjörnsson, fyrrverandi fjármála- og framkvæmdastjóri í Kópavogi og Siglufirði, f. 24. október 1950. Birkir Jón Jónsson Stefanía Jónsdóttir húsmóðir á Nefstöðum Anton Grímur Jónsson bóndi á Nefstöðum í Fljótum Jóhanna Antonsdóttir húsmóðir á Siglufi rði Sigurbjörn Bogason verkamaður á Siglufi rði Jón Sigurbjörnsson fyrrv. fjármála- og framkvæmda- stjóri í Kópavogi og Siglufi rði Kristrún Hallgrímsdóttir húsfreyja á Minni-Þverá Bogi G. Jóhannesson bóndi á Minni-Þverá í Fljótum Líney Bogadóttir húsmóðir á Siglufi rði Líney Halldórsdóttir fram- kvæmdastjóri Íþrótta- og ólympíusambands Íslands Hallgrímur Márusson leigubílstjóri Friðrik Márusson verkamaður á Siglufi rði Margrét Lára Friðriksdóttir kaupmaður á Siglufi rði Friðrik Jón Arngrímsson fyrrverandi fram- kvæmdastjóri LÍÚ Jónas Hallgrímsson fyrrv. fram- kvæmdastjóri Austfars og varaþing- maður Framsóknarfl okksins Bogi Sigurbjörnsson fyrrv. skattstjóri Norð- urlands vestra, bæjarfulltrúi á Siglufi rði og varaþingmaður fyrir Framsóknarfl okkinn Sigurbjörg Jónasdóttir húsfreyja á Fyrirbarði Márus Ari Símonarson bóndi á Fyrirbarði í Fljótum Guðlaug Márusdóttir bóndi í Efra-Haganesi í Fljótum Jón Kort Ólafsson bóndi í Efra-Haganesi Jórunn Stefánsdóttir húsmóðir í Efra-Haganesi Ólafur Jónsson bóndi í Efra-Haganesi Fljótum Úr frændgarði Birkis Jóns Jónssonar Björk Jónsdóttir húsmóðir og fyrrv. bankastarfsmaður Guðmundur Arnfinnsson kallarþessa skemmtilegu sonnettu „Í gamla daga“ og er okkur kærkom- in sem náð höfum háum aldri – hún rifjar upp ljúfar endurminningar og kallar fram myndir af gömlum búskaparháttum. Ég fór að vísu ekki upp á fjall en Lýður bóndi í Litlu-Sandvík lét mig fara með hey- bandslest í uppengjarnar en síðan var leyst úr böggunum í hlöðunni við Hólhús. En hér er sonnettan: Ég minnist þess, hve frjálst var upp’ á fjalli og forðum daga glatt við engjasláttinn, sýrubland þar sopið var úr dalli og seint á kvöldin farið oft í háttinn. Á klökkum reitt var on’ af engjum heyið og úr því dreift á þurrkvellinum síðan. Loks inn í hlöðu fólkið kátt og fegið flutti það einn sólskinsdaginn blíðan. Og væri gripahlaðan full af heyi, er haustið kom með veðragjósti tíðum, þá stoltur bóndinn bregða lét sér eigi, er brast á veturinn með snjó og hríðum. Þó lemdi sortabylur bæ hans ótt svaf bóndinn allar nætur vært og rótt. Hér birtust í gær stökur um nýja Herjólf og enn fjölgar þeim. Hjálm- ar Freysteinsson birtir á heimasíðu sinni „Vélabrögð“: Vont er að treysta vélum þeim er viðhafa brögð og hrekki. Kyrrsettar þotur halda heim en Herjólfur siglir ekki. Það var notalegt að bregða sér út fyrir og gá til veðurs á mánudags- morguninn. Pétur Stefánsson orti: Enn er sumarveðrið vænt, vötn og tjarnir ljóma. Alls staðar er grasið grænt og gróðurinn í blóma. Það er sama hljóðið í Jóni Giss- urarsyni: „Hér er hæglætis veður og 15 gráðu hiti, andar þó aðeins á sunnan. Svolítið hefur vætt í nótt, en sólin er farin að skína í gegnum skýjaslæðuna og þurrkar því morg- unvætuna. Útsýnið er fallegt“: Útsýnið er flott og frítt flest í gengur haginn. Hér er veðrið bjart og blítt býð því góðan daginn. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich mjálmaði: „Nú er veður til að ríma“: Baugalína, ber það við ballerínan Jósefína að lyfta trýni og líða um svið því listir mínar vil ég sýna. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Í gamla daga og vélabrögð Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur fyrir heimilið Stærð: 200 x 103 x 69 cm Svefnflötur: 140 x 200 cm Springdýna Rúmfatageymsla í sökkli Verð 115.000 kr. Þægilegir svefnsófar á góðu verði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.